Fleiri fréttir

Byrjuð að reykja

Fegurðardísin og leikkonan Scarlett Johansson er byrjuð að reykja sígarettur eins og strompur eftir að hún fékk fregnir af framhjáhaldi kærasta síns Josh Hartnett. Slúðurblöðin vestanhafs hafa verið full af fréttum af sambandi Harnett við dularfulla dökkhærða konu á meðan hann er við tökur í Ástralíu.

Á þrjár konur

Senegalski rapparinn Akon hefur viðurkennt fjölkvæni og kveðst eiga hvorki meira né minna en þrjár eiginkonur. Rapparinn játaði þetta í beinni útsendingu í viðtali á útvarpsstöð í New York en útgáfufyrirtæki hans hefur meinað honum að segja nokkuð meira um einkalíf sitt.

Málþing í minningu Jörundar Hilmarssonar

Íslenska málfræðifélagið og Málvísindastofnun Háskóla Íslands gangast fyrir málþingi um orðsifjafræði og söguleg málvísindi í minningu dr. Jörundar Hilmarssonar, málfræðings og heiðursræðismanns Litháens á Íslandi, á morgun í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafns Íslands.

Eiríkur afhendir heiðursverðlaun Gullkindar

Í kvöld verður Gullkindin, skammarverðlaunahátíð skemmtanaiðnaðarins, haldin á Klassík Rokk. Mikil spenna er í tengslum við hver hreppir hvaða verðlaun, ekki síst heiðursverðlaunin. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins eru nokkrir sem koma til greina og má þar nefna þá Árna Johnsen, Runólf Ágústsson, fyrrv. rektor, Einar Ágúst söngvara og Harald Johannessen ríkislögreglustjóra.

Barnsföður Kate Moss ekki hleypt inn á Rex

"Þetta var bara leiður misskilningur," segir Sverrir Rafnsson, eigandi Rex, þegar hann er spurður hvort stjörnuritstjóranum Jefferson Hack og kærustu hans, ofurfyrirsætunni Anouk, hafi ekki verið hleypt inní eftirpartí hjá Sykurmolunum eftir velheppnaða endurkomu þeirra á föstudagskvöldinu.

Bond á toppinn

Kvikmyndin Casino Royale um njósnara hennar hátignar James Bond hefur slegið Mýrina út af toppnum í íslenskum kvikmyndahúsum. 10.600 manns sáu Daniel Craig í hlutverki njósnarans í vikunni sem leið en 2. 711 sáu Mýrina sem hefur verið fimm vikur í sýningu.

Miðasala á Magna í dag

Aukatónleikar með þátttakendum úr raunveruleikaþættinum Rock Star: Supernova verða haldnir í Laugardalshöll 1. desember. Fyrri tónleikarnir verða haldnir 30. nóvember og vegna mikillar eftirspurnar var ákveðið að bæta við öðrum tónleikum.

Vann gjafabréf á Argentínu steikhús

Eins og landsmenn hafa án efa tekið eftir fór verðlaunaafhending Eddunnar fram í gær á Nordica hótel. Hér á Vísi gátu landsmenn tekið þátt í kosningunni.

Úrin vinsæl hjá Íslandsvininum Eli Roth

Í verslun Gilberts Ó. Guðjónssonar úrsmiðs á Laugaveginum má fá íslensk gæðaúr, sem framleidd eru af syni Gilberts og tveimur samstarfsmönnum hans. Um er að ræða fyrstu íslensku úrin, en þau hafa ekki einungis notið vinsælda landsmanna, heldur vakið athygli Íslandsvinanna Eli Roth og Quentin Tarantino.

Líkaminn fram yfir lífið

Umræðan um of mjóar fyrirsætur fer hátt um þessar mundir en átröskunarsjúkdómar og svelti hafa löngum verið tengd tískuheiminum. Nú hafa tvær frægar fyrirsætur dáið úr átröskunarsjúkdómnum með stuttu millibili og þær fréttir skekja nú tískuheiminn.

Kidman ófrísk?

Nú ganga þeir sögusagnir fjöllum hærra að óskarsverðlaunaleikkonan Nicole Kidman eigi von á barni. Það mun vera útistandandi magi leikkonunnar sem ýtti þessu slúðri af stað en Kidman var búin að lýsa því yfir að hún væri tilbúin í barneignir með nýbökuðum eiginmanni sínum, Keith Urban.

K-Fed heimtar fullt forræði

Kevin Federline, fráfarandi eiginmaður poppstjörnunnar Britney Spears, hefur farið fram á fullt forræði yfir sonum þeirra tveim og ber við að Britney sé ekki fær um að annast þá.

Boxæði í Keflavík

Guðjón Vilhelm boxþjálfari var einn af þeim frumkvöðlum sem komu boxíþróttinni á kortið hér á landi fyrir nokkrum árum og vann mikið starf í Keflavík við uppgang íþróttarinnar þar. Hann tók sér frí frá þjálfun í tvö ár en er nú mættur til starfa á ný hjá BAG í Keflavík.

Saltbreiður í sundlaugunum

Kuldakastið sem riðið hefur yfir landið undanfarna daga hefur væntanlega aftrað einhverjum frá sundferðum. Þeir sem lagt hafa leið sína í Laugardalslaugina hafa hins vegar þurft að eiga við miklar, grófar saltbreiður á bökkunum, sem eiga að koma í veg fyrir hálkumyndun en eru varla til þess að gera sundferðina þægilegri.

Myndband frá Rice

Myndband við lagið 9 Crimes, sem er fyrsta smáskífulag nýjustu plötu Damien Rice, 9, verður frumsýnt í Bretlandi hinn 25. nóvember.

Magni með útvarpsþátt fram að jólum

Magni Ásgeirsson, sem gerði garðinn frægan í Rockstar:Supernova, heldur aftur á öldur ljósvakans á næstunni, en hann mun ásamt vini sínum Ómari Berg Torfasyni stýra útvarpsþætti á KissFM í desember.

Lokuð inni í skóla

Leikkonan heimsfræga var föst inni í skóla eftir að læti brustust út á tökustað nýjustu myndar hennar á Indlandi. Lætin brustust út meðal foreldra þegar verið var að taka upp atriði í myndinni „A mighty heart“ í strætó við hliðina á skóla. Fannst foreldrum lífverðir Jolie vera að hóta börnunum og brutust því út ólæti á skólalóðinni meðal fjölda manna.

Íslensk náttúra í tísku

Glöggir lesendur nýjasta tölublaðs tískuritsins Vogue hafa eflaust rekið augun í stóran tískuþátt þar sem íslensk náttúra er í aðalhlutverki.

Heitasta andlitið í dag

Nafn fyrirsætunnar Jessicu Stam er á hvers manns vörum þessa dagana. Hún er vinsælasta andlitið í tískuheiminum í dag þrátt fyrir að vera aðeins tvítug á þessu ári. Stam hefur verið á forsíðum helstu tímarita heims og er meðal annars bæði andlit Marc Jacobs og MiuMiu auglýsingaherferðanna.

Gussi úti í kuldanum hjá Hemma

„Mér var orðið dálítið kalt á þumalputta hægri handar en annars hafði ég það bara fínt,“ segir Gunnar Jónsson, yfirdyravörður á Kaffi Oliver, var hífður upp í 30 metra hæð fyrir framan NASA á Austurvelli á fimmtudagskvöld. Þar var hann látinn hanga í fimbulkulda og roki í eina klukkustund í sex stiga frosti og talsverðum vindi.

Afmælisfundur hjá Al-Anon

Al-Anon samtökin voru stofnuð á Íslandi 18. nóvember 1972 og fagna því 34 ára afmæli sínu í dag. Af því tilefni boða samtökin til afmælis- og kynningarfundar í Háteigskirkju klukkan 20.30 í kvöld. Þar munu tveir Al-Anon félagar, einn Al-Ateen félagi og einn AA-félagi deila reynslusögum sínum með fundargestum.

Baulað á Jackson

Tónlistarmaðurinn Michael Jackson, sem eitt sinn kallaði sig konung poppsins, söng hluta af laginu We Are The World þegar Heimstónlistarverðlaunin voru afhent í London.

Stormurinn siglir lygnan sjó

Veðurfræðingurinn rómaði Sigurður Ragnarsson, betur þekktur sem Siggi stormur, flytur reglulega veðurfréttir í morgunþættinum Ísland í bítið, en þar hefur Krakkaveðrið nýlega bæst við venjulega veðurspá. Vakti það athygli fólks í gærmorgun þegar Sigurður tók það sérstaklega fram að krakkafígúrurnar sem birtast á skjánum séu af báðum kynjum.

Shiloh verður fyrirsæta

Shiloh Nouvel Jolie-Pitt hefur fengið fyrirsætutilboðin í hrönnum enda ekki skrýtið þar sem foreldrar hennar eru eitt fallegasta par í heimi, Angelina Jolie og Brad Pitt. Það freistar Angelinu Jolie að taka þessum tilboðum og láta allt féð ganga til góðgerðamála en pabbinn er ekkert of hrifinn af hugmyndinni enda hefur barninu verið haldið fyrir utan fjölmiðla af bestu getu.

Krókódílar og antílópur á jólamatseðlinum

„Jú, jú, maður er náttúrlega kolruglaður,“ segir Gunnar Garðarsson, matreiðslumaður á Café Bifröst, en hann hyggst brydda upp á skemmtilegum nýjungum á matseðlinum um jólin.

Matgæðingaferð til Lyon

Klúbbur matreiðslumeistara stendur fyrir beinu leiguflugi á Bocuse D'Or keppnina sem fram fer í Lyon 23. til 24. janúar 2007, þar sem Friðgeir Ingi Eiríksson mun keppa fyrir Íslands hönd.

Sirrí með þrjár tilnefningar í Gullkindinni

Morgunþátturinn Capone stendur að venju fyrir verðlaunaafhendingunni Gullkindinni sem heiðrar allt það versta í afþreyingariðnaði Íslands og voru tilnefningarnar tilkynntar nú í morgun. Að venju getur þjóðin kosið á vefsíðunni XFM.is en um er að ræða þrettán flokka.

Heim til mömmu

Britney Spears stendur í ströngu þessa dagana enda nýorðin tveggja barna móðir og stendur í skilnaði við hinn misheppnaða tónlistarmann Kevin Federline. Hún hefur því flutt inn á móður sína sem býr í Louisiana með syni sína tvo, hinn eins árs gamla Sean Preston og hinn átta vikna Jayden James.

Brjálaður Bond í golfi

Sir Michael Caine segist hafa óttast um líf sitt þegar hann fór í golf með góðvini sínum og gamla Bond-leikaranum Sean Connery. Félagarnir léku saman í kvikmyndinni The Man who would be King árið 1975 og tókst þá góður vinskapur með þeim, en sir Caine viðurkennir að honum hafi verið stefnt í voða á golfvellinum.

Bófar fái ekki borgað

Bresk stjórnvöld undirbúa nú lagasetningu sem mun gera þeim kleift að gera upptækan allan ágóða sem glæpamenn kynnu að fá fyrir að deila sögu sinni með öðrum.

Aguilera leikur í CSI

Söngkonan fræga Christina Aguilera mun koma fram í sjónvarpsþáttunum CSI á næstunni. Aguilera er mikill aðdáandi þáttanna og mun hún leika konu sem verður fyrir misnotkun. Þetta er hlutverk sem söngkonan getur vel komið sér inn í því Aguilera hefur lýst því yfir í mörgum viðtölum að hún hafi verið fórnarlamb ofbeldis þegar hún var ung.

Vill ekki hætta

Ólátabelgurinn og rokkarinn Pete Doherty viðurkennir að hann muni aldrei geta hætt að nota eiturlyf þó að hann sé nýkominn úr meðferð. Doherty er trúlofaður ofurfyrirsætunni Kate Moss og var það fyrir tilstilli hennar að rokkarinn ákvað að fara í meðferð eftir mörg ár sem eiturlyfjaneytandi. „Ég er fíkill og það mun ég alltaf vera,“ segir Doherty við BBC.

Ver Naomi

Ofurfyrirsætan Cindy Crawford hefur nú ákveðið að taka upp hanskann fyrir stallsystur sína Naomi Campell. Campell hefur verið kærð fyrir líkamsárásir oftar en einu sinni og þykir mjög mislynd og árásargjörn manneskja. Nú síðast var hún kærð af aðstoðarkonu sinni sem sagði Campell hafa tekið sig hálstaki.

Stjórnar þætti í spænsku sveitaútvarpi

Flökkukindin Jón Sigurður Eyjólfsson hélt á vit ævintýranna fyrir skömmu og fluttist til smábæjarins Carbonero sem er á spænsku hásléttunni en hann á þar spænska dóttur.

Opruh ekki boðið

Spjallþáttadrottningunni Opruh Winfrey er ekki boðið í brúðkaup stjörnuparsins Katie Holmes og Toms Cruise sem haldið verður á Ítalíu um helgina. Eins og mörgum er kunnugt var það í þætti Winfrey sem Cruise játaði ást sína á Holmes í fyrsta sinn með því að hoppa í sófanum í sjónvarpsþættinum.

Landsliðið til Lúxemborgar

Á morgun heldur Landslið matreiðslumanna í heimsmeistarakeppnina í Lúxemborg, en hún stendur yfir 18. til 22. nóvember. Liðið er skipað átta úrvalskokkum, og gegna þeir Ragnar Ómarsson, yfirmatreiðslumaður á Salti, og Bjarni Gunnar Kristinsson, yfirmatreiðslumaður á Grillinu, stöðum spilandi þjálfara.

Lachey hafnað

Söngvaranum og hjartaknúsaranum Nick Lachey var hafnað um daginn af hinni fögru Vanessu Minnillo. Lachey mun hafa borið upp bónorð, en parið er búið að vera saman síðan fyrr á þessu ári, en Minnillo fannst það vera of snemmt.

Allt að verða klárt fyrir Cruise og Holmes

Undirbúningurinn fyrir brúðkaup Toms Cruise og Katie Holmes heldur áfram en Ítalir ráða sér vart fyrir kæti yfir því að stjörnuparið skyldi velja landið þeirra eftir allt fjaðrafokið í kringum hugsanlegt brúðkaup Angelinu Jolie og Brad Pitt við Como-vatnið.

Gafst upp á kuldanum á Íslandi og fann paradís á jörðu

„Mér leiddist á Íslandi enda er hér kalt og dimmt meirihluta árs,“ segir hin 23 ára Monika Klonowski. Erfitt er annað en að vera sammála henni í kuldakastinu sem ríður yfir landið þessa dagana. Monika er nýkomin heim eftir að hafa verið í tæp tvö ár á eyjunni Roatan í Karíbahafinu þar sem hún vinnur sem köfunarkennari.

Fer fljúgandi og ríðandi á milli vínekranna

Víngerðarmaðurinn Aurelio Montes heimsótti Ísland og kynnti vínin sín. Hann er þjóðhetja í Chile eftir að hafa umbylt víngerð þar í landi fyrir röskum tveimur áratugum.

Það hafa allir skoðun á starfi veðurfréttamanna

Óvenjumikil endurnýjun hefur verið í stétt veðurfréttamanna að undanförnu. Tvö ný andlit hafa birst á sjónvarpsskjám landsmanna sem heyrir til tíðinda þar á bæ. Báðir nýliðarnir eru 29 ára gamlir, þau Soffía Sveinsdóttir á Stöð 2 og Hálfdán Ágústsson í Sjónvarpinu.

Sævar Karl ósáttur við Tekinn

„Þetta er ekki minn stíll. Sigurður Kári myndi aldrei fá svona móttökur hér og ég hálfskammast mín fyrir þetta," segir Sævar Karl Ólason kaupmaður um sjónvarpsþáttinn Tekinn, sem sýndur var á Sirkus á mánudagskvöld.

Lifir í ótta

Michael Jackson er búinn að auka gæsluna í kringum sig til muna eftir að klæðskiptingur frá Ástralíu byrjaði að senda honum yfir 100 bréf á dag. Jackson er með fjóra lífverði sem fylgja honum hvert fótmál og klæðist skotheldu vesti á hverjum degi.

Brúðkaup ársins á Ítalíu

Tom Cruise hefur sett allt á annan endann á Ítalíu en leikarinn er nú kominn til Rómar og undirbýr brúðkaup sitt og leikkonunnar Katie Holmes.

Sjá næstu 50 fréttir