Fer fljúgandi og ríðandi á milli vínekranna 16. nóvember 2006 10:00 Aurelio Montes Frægasti víngerðarmaður Suður-Ameríku skálar við gesti í Grillinu í Íslandsheimsókn sinni.Fréttablaðið/Brink MYND/Brink
Víngerðarmaðurinn Aurelio Montes heimsótti Ísland og kynnti vínin sín. Hann er þjóðhetja í Chile eftir að hafa umbylt víngerð þar í landi fyrir röskum tveimur áratugum. Árelíó hver, hváði vinur minn þegar ég sagði honum að ég væri að fara að hitta Aurelio Montes. Eitthvað rofaði til þegar ég sagði honum að hann væri frægasti víngerðarmaður Suður-Ameríku. „Montes, auðvitað, oft drukkið það." Og hefðu margir Íslendingar getað svarað á svipaðan máta enda vart það mannsbarn sem yfirhöfuð hefur dreypt á léttvíni sem ekki hefur smakkað vínin frá Montes. Þau hafa verið með vinsælustu vínum í vínbúðum allar götur frá því þau komu fyrst á markaðinn hér árið 1989. Samt vitum við giska lítið um manninn á bak við vínið. „Þótt vínin beri nafn mitt vil ég helst vera í bakgrunninum. Það eru vínin en ekki mennirnir sem búa þau til sem skipta öllu máli," segir Aurelio Montes.Þjóðhetja í ChileFlugmaður Montes er snöggur á milli vínekranna.Hafi fólk á annað borð áhuga á vínum er þó ekki hægt annað en að forvitnast um menn á borð við Aurelio Montes. Saga hans er samtvinnuð framrásinni í víngerð í Suður-Ameríku og breytingum á vínneyslu á Vesturlöndum. Montes var prímusmótor í þeirri umbyltingu er varð í víngerð í Chile fyrir röskum tveimur áratugum. Sannfæring hans var að náttúrulegar aðstæður í Chile væru svo stórkostlegar að ómögulegt væri annað en að búa til vín sem stæðust samanburð við það sem best gerðist annars staðar. Eldmóðurinn og skjót velgengni hafði smitandi áhrif á kollega hans. Öll helstu vínhús landsins lögðu í miklar umbætur á víngerðinni með þeim árangri að Chile er nú eitt helsta vínframleiðsluland heims. Hér á landi hafa vínin frá Montes verið í hópi mest seldu vína. Argentínumenn skemmtilegirFellur að fjöllunum Nýja vínhúsið er afar náttúruvænt.Vínframleiðsa er orðin ein mikilvægasta útflutningsgrein Chile á eftir kopar og laxeldi. Velgengni vínanna hefur fyllt Chile-menn miklu stolti og er Aurelio Montes þjóðhetja þar í landi. Þessi hógværi maður gefur þó lítið fyrir eigin frægð og færir undantekningarlítið talið frá sjálfum sér og að víngerðinni þegar hann er spurður út í eigin hagi. Stór hluti spjalls okkar fer í að ræða nágrannana í Argentínu í víðu samhengi en Montes hefur frá því 2001 byggt upp víngerð í Argentínu undir nafninu Kaiken.„Nafnið kemur úr máli mapuche-indjána. Kaiken er gæs sem á sér híbýli beggja vegna Andesfjallanna í Patagóníu sem er landsvæði syðst í Chile og Argentínu. Nafnið endur-speglar að þetta er samvinnuverkefni þessara tveggja nágrannalanda. Argentínumenn eru skemmtilegir og það er mjög gaman að vinna þar þótt það sé talsvert frábrugðið því sem gerist heima. Efnahagslífið er afar óstöðugt en við höfum verið svo lánsöm í Chile að búa við lang-varandi hagsæld og stöðugleika. Aðstæður til vínræktar eru gerólíkar, meginlandsloftslag á meðan við búum við úthafsloftslag. Afar krefjandi umhverfi en gefandi."Áhyggjur af gróðurhúsaáhrifumMontes Cherub Nýjasta vínið frá Montes. Vel hugsað rósavín.Aurelio er mikill náttúruunnandi, hestamaður og flugmaður sem þvælist upp og niður eftir landinu mjóa á lítilli rellu og smellir sér niður á túnin við hlið vínakranna. Hendir sér síðan beint á hestbak og æðir út á vínekrurnar. Þannig nær hann mikilli yfirreið á skömmum tíma og getur það skipt sköpum í vínrækinni. „Ég vil vera með puttana eins mikið í þessu sjálfur og ég get. Tæknin hefur batnað mikið en það eru alltaf ný viðfangsefni, ég hef t.d. miklar áhyggjur af loftlagsbreytingum.Það hefur orðið gjörbreyting þau 30 ár sem ég hef starfað í víngerð og ég sólbrenn á ekrum þar sem ég svitnaði ekki fyrir nokkrum áratugum. Ég gæti þurft að færa sumar vínekrurnar af þessum sökum. Það er þó ekki útaf þessu sem ég er að færa út kvíarnar til annarra landa, þar ræður ævintýraþráin og vonin um að geta búið til vín sem eru frábær og öðruvísi. Ég veit þó ekki hvort ég fer að vaða út um víðan völl en ef ég færi eitthvað þá myndi ég vilja skoða víngerð á Spáni eða Ástralíu frekar en önnur svæði í Suður-Ameríku því þar eru árstíðirnar aðrar og uppskerutíminn skarast ekki."
Menning Mest lesið Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Lífið „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Lífið Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Lífið Þingmönnum bannað að hanga í stiganum Lífið Stóri skandallinn, óvæntir sigurvegarar og ótvíræð taplið Menning Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Lífið „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Bíó og sjónvarp Óresteia og Lína sigursælust á Grímunni Menning Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Lífið Fleiri fréttir Þingmönnum bannað að hanga í stiganum Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins Sjá meira