Fleiri fréttir

Partíþokan í síðasta sinn

Partíþokan hófst á Akureyri í október 2011, og teygði sig til Ísafjarðar, og þaðan til Seyðisfjarðar. Hún er komin hringinn og ætlar að leggja árar í bát.

Rappþulan haldin í fyrsta sinn

Rappþulan er heitið á rappkeppni sem verður haldin í fyrsta sinn 19. apríl. Þátttakendur eru sextán ára og eldri frá öllu landinu. Keppnin sjálf fer fram í Molanum, ungmennahúsi Kópavogs.

Anna hlaut tvær milljónir í styrk

Anna Þorvaldsdóttir tónskáld hlaut hæsta styrkinn, eða tvær milljónir króna, þegar Kraumur tónlistarsjóður tilkynnti um hina árlegu styrki sína í gær. Tónlistarsjóðurinn úthlutaði 10.4 milljónum til listamanna og verkefna sem eiga sér stað hér heima og að heiman árið 2013. Rúmlega tíu milljónum króna verður varið til sextán verkefna á sviði innrásar og útrásar íslenskrar tónlistar en einnig er stuðlað að námskeiðum og fræðslu.

Ekki allir svo heppnir að hafa handboltann

Björgvin Páll Gústavsson, landsliðsmarkvörður í handbolta, er verndari samtakanna Lífsýn sem starfa fyrir börn á grunnskólaaldri sem eiga í félagslegum erfiðleikum.

Sprengjan kom eftir Sónar

"Það voru alls kyns pælingar á lofti um það hvernig myndbandið ætti að vera. Svo kemur þessi hugmynd úr okkar eigin herbúðum og við ákváðum að slá til,“ segir Carmen Jóhannsdóttir úr hljómsveitinni Sísý Ey. Myndbandið við lagið "Ain't got nobody“ verður frumsýnt á Vísi.is í lok mánaðarins.

Stúdentakjallarinn gengið framar vonum

Það verður spennandi að sjá hvort ný tónleikaröð slái jafn vel í gegn og aðrir dagskrárliðir Kjallarans."Við erum með barþjóna hérna sem hafa unnið lengi á öðrum börum og þeir eru ekki alveg að skilja það hvaða kurteisa fólk er alltaf að kaupa bjór á Kjallaranum. Það eru alltaf allir svo glaðir og nice hérna,“ segir Björg Magnúsdóttir, dagskrárstjóri Stúdentakjallarans.

Hulli í Sjónvarpið

Teiknimyndaþáttaröð sem byggð er á lífi listamannsins Hugleiks Dagssonar er í bígerð. Þættirnir nefnast Hulli og verða sýndir í Sjónvarpinu í haust.

Fyrsta myndin af Rainbow litlu

Glamúrfyrirsætan Holly Madison situr fyrir með dóttur sinni Rainbow Aurora í nýjasta hefti tímaritsins In Touch. Myndin af þeim mæðgum var tekin aðeins sjö dögum eftir fæðingu hnátunnar.

Alvöru kona sem þarf ekki Photoshop

Fyrirsætan Robyn Lawley er búin að fara eins og stormsveipur um tískuheiminn að undanförnu. Það væri svo sem ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að hún er í yfirstærð ólíkt flestum öðrum heimsklassa fyrirsætum.

Neyddur til að vera í nærbuxum

Leikarinn Jon Hamm er hrifinn af því að vera ekki í nærbuxum og hefur sloppið við nærfötin þegar hann er að leika í Emmy-verðlaunaseríunni Mad Men. Nú verður hins vegar breyting á.

Skipuleggur leynilegt brúðkaup

Verðlaunasöngkonan Adele er í óðaönn að skipuleggja leynilegt brúðkaup með unnusta sínum Simon Konecki. Saman eiga þau fimm mánaða gamla soninn Angelo.

Keira Knightley leikur Coco Chanel

Tískukóngurinn Karl Lagerfeld hyggst framleiða og leikstýra stuttmynd um Coco Chanel í tilefni af þeim hundrað árum sem liðin eru síðan hún opnaði sína fyrstu búð í París.

Á ólöglegum hraða

Auðunn Blöndal og Egill Einarsson gáfu miða á Páskagleðina í útvarpsþættinum FM95Blö á dögunum. Meðfylgjandi myndband var tekið af hlustendum sem hikuðu ekki við að keyra á ólöglegum hraða til að nálgast boðsmiða og bjór.

Gleðin verður í bænum um páskana

Þeir sem verða í bænum um páskana verða ekki sviknir. Í fyrsta sinn verður Páskagleði haldin í Listasafni Reykjavíkur á laugardeginum, 30. mars.

Carla Bruni aftur í fyrirsætustörfin

Fyrrverandi forsetafrúin, söngkonan og fyrirsætan Carla Bruni mun snúa aftur til fyrirsætustarfa á næstu mánuðum. Hún skrifaði undir samning við skartgriparisann Bulgari á dögunum og verður andlit nýjustu auglýsingaherferðar fyrirtækisins.

Hanna snjóbretti fyrir Nikita

Signý Kolbeinsdóttir og Helga Árnadóttir hafa rekið hönnunarfyrirtækið Tulipop frá árinu 2010. Á HönnunarMars kynntu þær til leiks snjóbretti sem þær hönnuðu fyrir útivistarfyrirtækið Nikita.

Sálin hans Jóns míns fer yfir ferilinn á Bylgjunni

Stórskemmtilegur þáttur verður á dagskrá á Bylgjunni í kvöld þar sem strákarnir í Sálinni hans Jóns míns fara yfir ferilinn og láta ýmsar sögur flakka. Í þættinum ræða þeir einnig um sögurnar á bakvið lögin, atburði á sínum ferli og hvað eina. Þessi skemmtilegi þáttur hefst á slaginu 20 og verður í loftinu til 23.

Leðurklædd á RFF

Fjöldi fólks sótti Reykjavík Fashion Festival á laugardaginn var. Gestir báru sitt allra besta tau í tilefni dagsins líkt og myndirnar bera vitni um.

Skemmtilegt hliðarspor

Ferskir og flottir taktar frá Thom Yorke og félögum, en lagasmíðarnar hefðu mátt vera sterkari.

Grínistar í skiptinámi

„Það er rosalega kalt í þessum löndum en greinilega hlýtt á milli þeirra sem þar búa,“ segir grínistinn Ari Eldjárn. Hann kemur fram á tveimur sýningum í apríl ásamt kanadíska uppistandaranum Craig Campbell og Norðmanninum Jonas Kinge Bergland.

Tónlistin er dásamleg veira

"Málið er að ef maður hefur einu sinni náð tökum á tónlistinni og náð tökum á henni, þá lætur hún mann ekkert í friði. Ég verð ofsalega eirðarlaus ef ég kem ekki með einhverjum hætti að tónlist í smá tíma. Þetta er dásamleg veira,“ segir popparinn Geiri Sæm, sem hefur sent frá sér sitt fyrsta lag í áraraðir, eða síðan þriðja sólóplatan hans kom út árið 1991.

Prófa ný ævintýri í hverjum mánuði

"Það er gaman að hafa ástæðu til að prófa nýja hluti sem við myndum örugglega aldrei gera allra jafna,“ segir Íris Helga Baldursdóttir.

Skíthræddur við að feta í fótspor Hetjanna

"Ég er auðvitað skíthræddur við að reyna að feta í fótspor Hetjanna en ég ætla að reyna. Það kemur samt ekki til greina að ég reyni að stæla útlitið, enda engar líkur á að það myndi nást,“ segir rokkarinn og Eurovision-farinn Eyþór Ingi Gunnlaugsson.

Stelpurnar ráða ríkjum um helgina

"Ég er í ótímabundnu fríi hér á landi. Vinir mínir hafa sagt mér að ég verði að upplifa íslenskt sumar, en við sjáum til hvort ég verð svo lengi,“ segir plötusnúðurinn Shandi Sullivan sem kemur fram á viðburðinum StelpuMúzík á laugardag. Íslensku plötusnúðarnir Dj Yamaho og Dj Lovísa munu einnig þeyta skífum á skemmtistaðnum Volta við Tryggvagötu 22.

Google-gleraugun á markað í lok ársins

Alvöru fólk með gríðarlegan áhuga á nýjustu tækni og opinn hug fékk tækifæri til að gerast tilraunadýr Google í síðasta mánuði þegar fáeinir einstaklingar voru valdir til að prófa Google-gleraugun.

Blondie til Bretlands

Bandaríska hljómsveitin Blondie, með söngkonuna Debbie Harry í fararbroddi, ætlar í tónleikaferð um Bretland og Írland í sumar.

M.I.A. í forræðisdeilu

Söngkonan M.I.A. á í harðvítugri forræðisdeilu við barnsföður sinn, Benjamin Bronfman, sem kemur úr einni ríkustu fjölskyldu Bandaríkjanna.

Tom Cruise og Guy Ritchie í samstarf?

Tom Cruise er í viðræðum um að leika aðalhlutverkið í The Man From U.N.C.L.E. Myndin er byggð á samnefndri bandarískri sjónvarpsþáttaröð sem fjallar um tvo leyniþjónustumenn. Leikstjóri verður Guy Ritchie, maðurinn á bak við hinar vinsælu myndir Sherlock Holmes.

Kannski elska þær munnmök

Leikkonan og grínstinn Lily Tomlin gagnrýnir sjónvarpsþáttaröðina Girls fyrir að fjalla of mikið um kynlíf.

Allt hægt með réttri förðun - sjáðu myndirnar

Nemendur Förðunarskólans Snyrtiakademíunnar sýna hér hvað hægt er að gera með réttri förðun. Eins og sést á myndunum er allmikill munur. Vörurnar sem þær nota eru frá NN Cosmetic.

Made in sveitin verður aldrei í háskerpu

Vísir frumsýnir hér glænýtt myndband við lagið Í nótt með hljómsveitinni Made in sveitin. "Hér er meira lagt upp úr gleði en gæðum. Made in sveitin verður aldrei í háskerpu," segir Hreimur Örn Heimisson söngvari.

Nú er hún búin að meika'ða

Það virðist ekkert geta skyggt á frægðarsól fyrirsætunnar Cöru Delevingne. Nýjasta verkefni hennar er að auglýsa skótegundina Melissa með engum öðrum en tískukónginum Karl Lagerfeld.

Missti sjónina meðan mamma var enn að vagga mér í vöggu

"Þegar ég var pínulítill patti missti ég alfarið sjónina meðan mamma var enn að vagga mér í vöggu ... Upp úr 12 ára aldri fór ég fyrst að fikta í tölvum ... Með þeim gat ég til dæmis skrifað ritgerðir og annað efni, prentað út fyrir kennara og kollega [og] fengið námsefni á aðgengilegu rafrænu formi ... Með hjálp tækninnar tókst mér að komast í gegnum Verzló með ágætum en sífellt meiri tími fór í að nördast á netinu, svona eins og gengur hjá 18 ára nördum."

Sumir hafa ekkert breyst

Vefsíðan www.Geiri.net heldur áfram að birta gamlar myndir af þekktum Íslendingum skemmta sér fyrir þó nokkuð mörgum árum. Ný rannsókn sýnir að það getur komið fólki í betra skap að skoða gamlar myndir af sér á Facebook. Rannsóknin var framkvæmd í háskólanum í Portsmouth á dögunum eins og sjá má hér. Ef myndaalbúmið er skoðað má sjá að sumir hafa ekkert breyst.

Sjá næstu 50 fréttir