Lífið

Sprengjan kom eftir Sónar

Sísí Ey plötuumslag
Sísí Ey plötuumslag
„Það voru alls kyns pælingar á lofti um það hvernig myndbandið ætti að vera. Svo kemur þessi hugmynd úr okkar eigin herbúðum og við ákváðum að slá til," segir Carmen Jóhannsdóttir úr hljómsveitinni Sísý Ey. Myndbandið við lagið „Ain't got nobody" verður frumsýnt á Vísi.is í lok mánaðarins.

„Það er smá leynd sem hvílir yfir myndbandinu en við getum allavega sagt að það verður öðruvísi," segir Carmen, en gefur upp að þeir Daníel Ágúst úr GusGus og Magnús Jónsson leikari verði á meðal þeirra sem bregða fyrir í myndbandinu.

Lagið sem um ræðir komst í efsta sæti PartyZones-lista Rásar Tvö árið 2012 en hlaut gríðarlegrar vinsældar í kjölfar Sónar Reykjavík hátíðarinnar sem fór fram í febrúar. Það hefur hins vegar verið óaðgengilegt á vefnum til þessa. „Við ákváðum að byrja á því að dreifa laginu á vini okkar sem eru plötusnúðar og það voru þeir sem gerðu það vinsælt, svona eins og í gamla daga bara," segir Carmen og bætir við að fólk hafi hreinlega elt þau á röndum til þess að komast yfir eintak af laginu.

„Hlutirnir hafa gerst rosalega hratt hjá okkur en það má segja að eftir Sónar hafi sprengjan komið. Við fengum rosalega góða gagnrýni, sérstaklega frá erlendu aðilunum, og Sónar-strákarnir komu til okkar strax eftir giggið og vildu bóka okkur í Barcelona. Það er gríðarlega erfitt að komast inn á hátíðina og því mikill heiður fyrir okkur að verða boðið," segir Carmen.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×