Fleiri fréttir

Gegnsær kjóll stelur senunni

Leikkonan Malin Akerman var klædd í gegnsæjan kjól á frumsýningu kvikmyndarinnar Rock of Ages í London í gær...

Jennifer Aniston hamingjusöm í París

Jennifer Aniston og Justin Theroux lentu í París á dögunum og eyddu þar rómantískum degi saman. Þau leiddust út um alla borg og kíktu í búðir. Sjónvarvottur sagði parið hafa verið mjög hamingjusamt og ánægt! Jennifer bar glæsilegan demantshring sér á fingri sem talið er að sé trúlofunarhringur en Jennifer hefur einu sinni gengið í það heilaga áður með Prad Pitt.

Fagnar með kærastanum

Söngkonan Nicole Scherzinger og Formúlu 1 kærastinn hennar Lewis Hamilton, 27 ára, fögnuðu sigri kappans á Grand Prix kappaksturskeppninni í Kanada í gær. Eins og sjá má var kærustuparið í skýjunum...

Gullhafi helgarinnar gerir mynsturforrit fyrir iPad

"Þetta er fyrir almenning sem leiðist í ipad-num eða iphone-inum sínum,” segir grafíski hönnuðurinn Siggi Eggertsson sem vinnur að fyrsta forritinu sínu ásamt forritaranum og æskuvini sínum Hjalta Jakobssyni. Von er á forritinu um miðjan næsta mánuðinn.

Eins manns stórskotalið

Hljóðhnökrar og pirringur í upphafi viku fyrir samblandi af eldmóði og reynslu Costello. Frábærir tónleikar. Elvis var einn á sviðinu í hartnær þrjá klukkustundir og lagði allt sitt í giggið svo rann af honum svitinn, sem er alltaf jafn mikið ánægjuefni.

Hita upp fyrir Chili Peppers

Breska hljómsveitin The Vaccines með Árna Hjörvar Árnason á bassanum hitar upp fyrir hinar heimsfrægu hljómsveitir Red Hot Chili Peppers og The Stone Roses í sumar.

Tólf tommu vínyll frá Sin Fang

„Þetta eru fimm lög sem urðu útundan,“ segir tónlistarmaðurinn Sindri Már Sigfússon sem gengur undir listamannsnafninu Sin Fang. Hann sendi frá sér 12“ vínylplötuna Half Dreams á dögunum en útgefandi hennar er þýska útgáfufélagið Morr Music.

Hörð barátta fagmanna

Nú þegar fyrsta helgin í EM er yfirstaðin er ekki úr vegi að skoða hverjir í Venediktsson, tippkeppni fagmanna, reyndust sannspáir. Tónlistarmaðurinn geðþekki og knattspyrnukappinn úr FH, Jón Ragnar Jónsson, trónir á toppnum eftir leiki helgarinnar en fast á hæla hans fylgir sjónvarpsmaðurinn Logi Bergmann Eiðsson.

Fjölmargir hafa fataskipti á netinu

"Viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa og farið fram úr mínum björtustu vonum,“ segir Myriam Marti sem stendur að vefsíðunni Fataskipti.is. Rúmur mánuður er síðan Myriam stofnaði síðuna sem nú þegar telur um 500 notendur. Á síðunni koma saman seljendur, kaupend-ur og svo þeir sem vilja hafa fataskipti. Myriam fékk hugmyndina að síðunni þegar hún var stödd í fataleiðangri.

Crossfit-gámurinn fer hvert á land sem er

„Það voru búnir til tuttugu svona gámar á heimsvísu og við vorum svo heppin að fá einn þeirra hingað til lands,“ segir Annie Mist Þórisdóttir, Crossfit-drottning og einn meðeiganda Crossfit Reykjavík. Undir lok seinustu viku kom til landsins gámur sem er eins konar færanleg Crossfit-stöð fyrir allt að fimmtán manns.

Dress vikunnar

Það var vandasamt verk að velja dress vikunnar samkvæmt pressunni vestanhafs...

Leiðinlega fólkið er nauðsynlegt

Söngvaskáldið og myndlistarmaðurinn Bjartmar Guðlaugsson fagnar sextugsafmæli sínu á miðvikudaginn með útkomu nýs safnkassa og tónleika í Háskólabíói.

Dallas drottningin hefur ekkert breyst

Dallas drottningin Sue Ellen Ewing sem leikkonan Linda Gray lék á árunum 1978-1989 og þrítugi leikarinn Josh Henderson sem leikur John Ross Ewing III ásamt Lindu í nýju Dallas þáttaröðinni sem hefur göngu sína í júní á Stöð 2, sátu fyrir svörum...

Lady Gaga búin með enn eina plötu

Lady Gaga virðist vera óstöðvandi ef marka má afraksturinn en söngkonan vinsæla hefur nú lokið við þriðju plötuna sína í fullri lengd.

Stutt pils koma sterk inn

Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum eru stuttu pilsin vinsæl um þessar mundir...

Brosir þrátt fyrir góðkynja æxli

Tónlistarkonan Sheryl Crow, 50 ára, var glæsileg á rauða dreglinum um helgina. Hún greindist með heilaæxli í nóvember í fyrra en hún greindi frá veikindunum í viðtali við blaðið Las Vegas Review á dögunum. Hún segir æxlið vera góðkynja en hún þarf að fara reglulega til læknis sem fylgist með þróuninni....

Sigurboginn styrkir Mæðrastyrksnefnd

Nýlega var haldið mæðrakvöld í versluninni Sigurboganum við Laugaveg í þeim tilgangi að styðja við bakið á nýstofnuðum Menntunarsjóði Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur og halda upp á 20 ára afmæli fyrirtækisins...

Grúví danspopp

Hárdoktorinn Jón Atli og Gísli Galdur með flotta rafpoppplötu. Lögin eru misgóð og sums staðar mætti vera aðeins meiri kraftur, en á heildina litið er þetta samt mjög fín danspoppplata sem óhætt er að mæla með.

Jóhann er fastur í að syngja hlutverk illmenna og feðra

Jóhann Axel Schram Reed, óperusöngvari, komst nýverið inn í óperunámskeið í Los Angeles sem ætlað er ungum óperusöngvurum sem eru að stíga sín fyrstu skref sem atvinnufólk í óperuheiminum. Um þrjú hundruð manns sækja um námskeiðið ár hvert, en aðeins þrjátíu komast inn.

Þriðja plata Kiru Kiru

Platan Feathermagnetik eftir Kiru Kiru er komin út. Kira Kira er hliðarsjálf tónskáldsins og leikstjórans Kristínar Bjarkar Kristjánsdóttur og er platan hennar þriðja í röðinni. Feathermagnetik inniheldur níu tónverk sem flokka má sem tilraunakennda raftónlist. Hljómur hennar er dekkri en í fyrri verkum Kiru Kiru og segja má að það kveði við nýjan tón í ferli hennar. Platan kemur út hjá undirmerki þýska útgáfufélagsins Morr Music, Sound of a Handshake. Útgáfutónleikar vegna Feathermagnetik verða haldnir í Berlín þann 8. júlí og síðar í Reykjavík.

Mættir aftur á dansgólfið

Hin hressa Hot Chip er mætt aftur til leiks með sína fimmtu plötu. Tólf ár eru síðan skólafélagarnir Alexis Taylor og Joe Goddard stofnuðu hljómsveitina.

Lagasafn frá múm

Hljómsveitin múm hefur sent frá sér plötuna Early Birds. Það er þýska fyrirtækið Morr Music sem gefur hana út bæði á geisladiski og tvöfaldri vínylplötu.

Loftskeytamenn í gamla tímanum

Fyrsta lag Loftskeytamanna, Gott að búa á Íslandi, er komið út. Það er titillag heimildarþátta um íslenska lífeyrissjóðakerfið. Hljómsveitin Loftskeytamenn hefur sent frá sér sitt fyrsta lag, Gott að búa á Íslandi. Það er titillag nýrra heimildarþátta Gunnars Sigurðssonar og félaga um lífeyrissjóðakerfið á Íslandi sem verða líklega sýndir í Sjónvarpinu á þessu ári.

Óvíst með framhald Prometheus

Ekki hefur verið ákveðið hvort framhald verður gert af spennumyndinni Prometheus. Þetta segir handritshöfundurinn Damon Lindelof. Prometheus fór beint á toppinn yfir aðsóknarmestu myndir Bretlands um síðustu helgi og hefur fengið góðar viðtökur gagnrýnenda.

Costello lentur

Elvis Costello er kominn til landsins og rúntar nú um bítlabæinn Keflavík meðan hann bíður eftir eiginkonu sinni, Diana Krall, sem lendir fljótlega í Leifsstöð.

Keppa um besta matinn

Leitað verður að bestu heimatilbúnu máltíðinni í nýjum matreiðsluþætti, Food Glorious Food, sem verður sýndur á bresku sjónvarpsstöðinni ITV. Það er dómarinn í X-Factor, Simon Cowell, sem er maðurinn á bak við þættina, samkvæmt blaðinu The Sun.

Þjálfar bardagaíþróttir og leitar að íslenskri konu

„Ég er mjög spenntur að koma með tæknina mína og deila ástríðu minni fyrir sportinu með íslenskum víkingum,“ segir Írinn John Kavanagh, einn þekktasti bardagaíþróttaþjálfari heims, sem undirbýr flutning sinn til Íslands í haust þar sem hann kemur til með að kenna hjá bardagaíþróttaklúbbnum Mjölni.

Handleggsbrot í Brúðubílnum

„Ég er í miklu gifsi langt upp að olnboga og fram yfir fingur,“ segir brúðuleikarinn Helga Steffensen sem varð fyrir því óhappi í vikunni að detta inn í Brúðubílinn og handleggsbrotna. Atvikið átti sér stað eftir generalprufu sumarsins í Hallargarðinum en eins og flestir vita hefur Helga skemmt börnum í hartnær 32 ár með sýningum Brúðubílsins.

Riff á topp fimmtán

MEDIA, sjóður Evrópusambandsins til eflingar kvikmyndagerðar og -menningar, hefur valið Alþjóðlega kvikmyndahátíð í Reykjavík eina af fimmtán áhugaverðustu kvikmyndahátíðunum í Evrópu. Þetta kom fram í kynningarriti um framúrskarandi kvikmyndaviðburði í Evrópu sem var kynnt á kvikmyndahátíðinni í Cannes.

Biggi gefur glænýtt lag

Tónlistarmaðurinn Biggi Hilmars, sem er best þekktur sem söngvari Ampop, ætlar að bjóða lagið Now Is The Time frítt á netinu í eina viku.

Kominn með erlenda umboðsmenn

„Maður er kominn einu skrefi lengra og hefur aðgang að aðeins stærri heimi,“ segir leikstjórinn Reynir Lyngdal. Hann er kominn með umboðsmenn hjá bandarísku umboðsskrifstofunni William Morris Endeavor, sem er sú stærsta í heimi, og bresku skrifstofunni United Agents. „Ég hitti þetta fólk í Cannes en var búinn að vera í samskiptum við það síðan í febrúar. Þetta er tilkomið mikið til út af Frosti. Það var mikill hiti og spenna fyrir henni í Cannes,“ segir Reynir en sýnishorn úr spennumynd hans vakti mikla athygli á kvikmyndahátíðinni í síðasta mánuði.

Egill Ólafs syngur Yesterday í Hörpu

Æfingar eru í fullum gangi fyrir tónleika til heiðurs Sir Pauls McCartney í Eldborgarsal Hörpu 18.júní. Þá verður Bítillinn sjötugur.

Útskrifa trúða frá sex til 42 ára

„Þannig útskrifaðist elsti trúðurinn 42 ára og sá yngsti 6 ára,“ segir Íris Stefanía Skúladóttir, einn stjórnenda Norðurpólsins og kennari á sprellfjörugu sirkus- og trúðanámskeiði sem hefst þar eftir helgi. Með þessum orðum á hún við námskeið frá sumrinu 2010 þegar tónlistarkonan Margrét Kristín Blöndal, betur þekkt sem Magga Stína, tók virkan þátt í æfingum barnanna sinna.

Popptónlist og gleði

Hljómsveitirnar Retro Stefson og Jón Jónsson spila saman á Faktorý á laugardagskvöld. Slegið verður til veislu í hverjum mánuði á skemmtistaðnum þar sem Retro Stefson býður mismunandi listamönnum að spila með sér. Þema þessa fyrsta kvölds er dásemdir popptónlistarinnar og endalaus gleði.

Gelgjumyndin LOL í bíó

Það er margt um fína drætti þegar kemur að leikkonum í kvikmyndinni LOL, sem er frumsýnd í bíóhúsum um helgina. LOL er alvöru gelgjumynd þar sem líf unglingsstúlkunnar Lolu, alltaf kölluð LOL, hrynur þegar kærastinn hennar hættir með henni. Hún er þó ekki lengi að leita sér huggunar í örmum myndarlegs vinar síns en lendir í erfiðleikum með að blanda rómantík saman við vinasamband þeirra.

Sheryl Crow með heilaæxli

Tónlistarkonan Sheryl Crow greindist með heilaæxli í nóvember í fyrra en þessu greindi Crow frá í viðtali við blaðið Las Vegas Review á dögunum. Crow segir æxlið vera góðkynja en hún þurfi að fara reglulega til læknis sem fylgist með þróuninni.

Tekur sig ekki of hátíðlega

„Ég er aðallega að gera litla „vídeósketsa“ á DV á lífsstílssíðunni Fókus. Markmiðið er að gera sketsa og vídeóblogg um allt og ekkert. Þetta er í þróun. Aðalmálið er að hafa gaman af þessu og taka sig ekki of hátíðlega,“ segir leikkonan Brynja Valdís Gísladóttir, sem hefur vakið athygli á veraldarvefnum fyrir að vera á persónulegu nótunum um samskipti kynjanna meðal annars...

Aniston í Burberry

Leikkonan Jennifer Aniston, 43 ára, var klædd í hvítan síðan Burberry kjól á samkomu þar sem leikkonan Shirley MacLaine var heiðruð fyrir störf sín í gegnum tíðina...

Þetta er lífsstíll sem ég hef valið mér

Aðalheiður Ýr Ólafsdóttir náði þeim frábæra árangri að verða heimsbikarmeistari í Bikini Fitness í sínum flokki á stórmóti sem haldið var í Búdapest í Ungverjalandi á dögunum.

Talar um föðurmissinn

Paris Jackson, dóttir tónlistarmannsins sáluga Michaels Jackson, talaði í fyrsta sinn opinberlega um föðurmissinn við sjónvarpskonuna Opruh Winfrey á dögunum. Viðtalið verður sýnt vestanhafs næsta sunnudag í nýja þætti Winfrey, Oprah‘s Next Chapter.

Sjá næstu 50 fréttir