Fleiri fréttir

Harry prins í stelpubann

Harry Bretaprins er þessa dagana staddur í Bandaríkjunum þar sem hann lýkur við menntun sína sem þyrluflugmaður hjá hernum. Þar sem æfingabúðirnar eru í Kaliforníu hefur prinsinn eytt frítíma sínum í bænum Gila Bend og eytt nóttunum með stúlkum bæjarins.

George Clooney er skítsama

George Clooney er ein skærasta kvikmyndastjarna heims í dag og gerir um það bil það sem hann vill. Hann frumsýndi nýlega myndina The Ides of March, sem er gæluverkefni hans og kostaði ekki mikið. „Hún er ekki fyrir alla, en mér er skítsama,“ sagði Clooney í viðtali við Rolling Stone. „Ég þarf ekki meiri frægð og við skutum hana fyrir tólf milljónir dala. Þannig að allt sem við gerum er fínt.“

Ný plata frá Lanegan

Mark Lanegan, sá mikli snillingur og söngvari hljómsveitarinnar sálugu Screaming Trees, sendir frá sér plötu í febrúar undir nafni Mark Lanegan Band.

13,6 kg léttari

Söngkonan Mariah Carey, 41 árs, hefur misst 13,6 kg síðan hún eignaðist tvíburana Roc og Roe í apríl á þessu ári, ef marka má forsíðuviðtalið við hana í tímaritinu Us Weekly...

Kynna tónlistina í vinsælum útvarpsþætti

"Við erum rosalega spenntar fyrir þessu,“ segir Alma, sem ásamt þeim Klöru og Steinunni myndar stúlknasveitina The Charlies. Á föstudaginn kemur út svokallað mixteip frá sveitinni sem aðdáendur geta hlaðið niður af netinu og fara stúlkurnar í mikla kynningarherferð vegna þessa í Los Angeles.

Ofurkroppar með vængi

Meðfylgjandi myndir voru teknar á árlegri undirfatasýningu Victoria's Secret í New York í gærkvöldi...

Adele nær fullum bata eftir aðgerðina

Breska söngkonan Adele nær sér að fullu eftir aðgerð sem hún gekkst undir á raddböndum. Söngkonan hefur verið í vandræðum með röddina um hríð en í haust var ástandið orðið svo slæmt að hún þurfti að fresta öllum tónleikum út árið og fara í aðgerð til að bjarga ferlinum.

Samstarfið ber ávöxt

Félagarnir Daníel Bjarnason og Ben Frost hafa sent frá sér plötuna Sólaris. Sólaris er tónverk eftir Frost og Daníel, en íslenskur frumflutningur á verkinu var á Listahátíð í Reykjavík í sumar. Unsound-hátíðin í Kraká í Póllandi pantaði verkið í tilefni þess að fimmtíu ár eru liðin frá útgáfu samnefndrar skáldsögu eftir rithöfundinn Stanislaw Lem, en verkið er unnið fyrir Krakársinfóníettuna.

Upp á yfirborðið

Gísli Pálmi er eitt heitasta nafnið í hipphoppinu um þessar mundir. Kappinn sendi frá sér lagið Set mig í gang í sumar. það vakti mikla athygli og hann hefur verið að senda frá sér lög á Youtube síðan. Gísli Pálmi kemur fram á Gauknum á laugardagskvöld.

Mikið rétt fallega fólkið mætti

Sigríður Klingenberg spáði og Karl Berndsen, sem var leynigestur kvöldsins, var einstakur ráðgjafi kvennanna þegar kom að fata- og litavali...

Miklar væntingar til Hjálma

Með síðustu hljóðversskífu sinni treystu Hjálmar sig í sessi sem ein albesta hljómsveit landsins hin síðustu ár. Og, það sem meira er, ekki einungis sem eitthvert illskilgreinanlegt lopapeysuafbrigði heldur alvöru, dúndurfín reggísveit. Væntingar voru því miklar fyrir þessa nýju plötu, Óra, en svekkelsið að sama skapi töluvert. Krafturinn sem einkennt hefur Hjálma er víðsfjarri og svo virðist sem sköpunargleðin hafi lent í hremmingum.

Glee sakað um dómgreindarleysi

Framleiðendur bandaríska söng- og dansþáttarins Glee hafa verið sakaðir um dómgreindarleysi af Parent Television Council, sem hópur íhaldssamra Bandaríkjamanna stendur að. Lélegt lagaval eða afbökun á þekktum tónlistarperlum eru hins vegar ekki ástæðan fyrir því að PTC lætur í sér heyra heldur vegna þess að þáttur, sem sýndur var á mánudag, sýndi nána snertingu milli nemenda í framhaldsskóla.

Egill Ólafs og Mugison sungu fyrir Egil

Sjónvarpsstjarnan Egill Helgason fagnaði 52 ára afmæli sínu í gær. Dagurinn hófst á hefðbundinn hátt með því að Egill kom við, árla morguns, á Kaffifélaginu við Skólavörðustíg. Þar höfðu Sigurveig, kona hans, og Kári, sonur hans, hins vegar slegið upp óvæntri afmælisveislu.

Harry Potter fær níu tilnefningar

Síðasta Harry Potter-myndin er tilnefnd til níu verðlauna hjá People-tímaritinu. Hin heilaga þrenning, Emma Watson, Rupert Grint og Daniel Radcliffe eru öll tilnefnd sem kvikmyndastjarna ársins undir 25 ára aldri auk þess sem Radcliffe keppir um verðlaunin leikari ársins við þá Johnny Depp, Robert Pattinson, Ryan Reynolds og Hugh Jackman. Leikkonurnar Emma Stone, Jennifer Aniston, Julia Roberts, Anne Hathaway og Reese Witherspoon keppa um leikkonu-verðlaun ársins.

Alvöru íslensk hrollvekja

Ómar Örn Hauksson frumsýnir stuttmyndina Ódauðlega ást í kvöld. Hann réðst í gerð myndarinnar þegar hann var atvinnulaus og var að koma úr leiðinlegum sambandsslitum.

Mömmuvænt alþýðupopp í Þjóðleikhúskjallaranum

Tríóið 1860 tók til starfa fyrir réttu ári en hefur þegar látið frá sér sína fyrstu breiðskífu, sem kallast Sagan. Hljómsveitin spilar þjóðlagaskotið popp sem fengið hefur góðar viðtökur hjá landanum. Útgáfutónleikar verða haldnir í Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld klukkan 22.

Clooney horfir til Óskarsins

Kvikmyndin The Ides of March verður frumsýnd um helgina. Þetta er fjórða myndin sem George Clooney leikstýrir og það dylst engum að stórstjarnan rennir hýrum augum til Óskarsverðlaunanna. Clooney er einnig einn af handritshöfundum myndarinnar, sem er skrifuð upp úr leikverkinu Farragut North eftir Beau Willimon.

Eddie Murphy verður ekki kynnir á Óskarnum

Leikarinn Eddie Murphy tilkynnti í dag að hann væri hættur við að kynna næstu Óskarsverðlaun. Ákvörðun Murphys fylgir í kjölfarið á tilkynningu leikstjórans Brett Ratner um að hann væri hættur við að framleiða útsendinguna.

Barnalán í Efstaleiti

Fréttaparið Þóra Arnórsdóttir og Svavar Halldórsson á nú von á sínu þriðja barni. Samstarfsfólk þeirra á Ríkisútvarpinu fékk að heyra tíðindin í síðustu viku og samfagnaði þeim að vonum innilega. Svavar stendur í ströngu þessa dagana, var fyrir skemmstu sýknaður af meiðyrðum í garð Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og þarf enn að verjast slíkri málsókn frá Pálma Haraldssyni.

Bjó til plötu og börn

Barneignir hafa tafið plötugerð hjá popparanum Togga. Fimm ár eru liðin frá síðustu plötu og strákarnir í hljómsveitinni hans hafa eignast sex börn á þeim tíma. Platan Wonderful Secrets kom út í vikunni.

Þessi galli segir grrr

Hlébarðamynstraði samfestingurinn sem söngkonan Ke$ha, 24 ára, klæddist í gær, stal senunni þegar Versace og H&M fögnuðu samstarfi í New York...

Herja á Japan

Hljómsveitin Feldberg er nú stödd í Tokyo í Japan til að kynna breiðskífuna Don‘t Be a Stranger. Platan, sem kom út á Íslandi árið 2009, er nýkomin út í Japan og leikur sveitin á þrennum tónleikum í Tókýó á næstu dögum.

Úrvals útgeislun Angelinu

Leikarinn Brad Pitt, 47 ára, og unnusta hans, leikkonan Angelina Jolie, 36 ára, mættu spariklædd á frumsýningu kvikmyndarinnar Moneyball í Tokyo í Japan í gær...

Hugsar lítið um útlitið

Jack Osbourne segist ekki eyða miklum tíma í að hafa áhyggjur af útliti sínu. „Ég er langt frá því að vera hégómafullur. Ég get sleppt því að raka mig og klippa á mér hárið svo vikum skiptir,“ var haft eftir Osbourne.

Lokkandi Lopez klædd í Versace

Leik- og söngkonan Jennifer Lopez, 42 ára, átti ekki í vandræðum með að stilla sér upp á rauða dreglinum klædd í Versace síðkjól á verðlaunahátíð Glamour tímaritsins...

Konur ársins að mati Glamour

Tímaritin Harper"s Bazaar og Cosmopolitan hafa valið þær konur sem þótt hafa skarað fram úr árið 2011 en um helgina var komið að bandaríska blaðinu Glamour að birta sinn lista.

Sætu stelpurnar mættu í þessa opnun

Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar vinnustofa og tískuverslunin BeMonroe Icelandic Design opnaði að Höfðabakka 3 í Reykjavík síðustu helgi...

Vinur Jay-Z spilar á Íslandi um helgina

Margir skemmtistaðir eru þessa dagana að stilla upp dagskrá fyrir helgina og vanda sig þá sérstaklega fyrir föstudaginn sem skartar hinni einstöku dagsetningu 11.11.11. Vegamót eru þar engin undantekning og hafa fengið til liðs við sig plötusnúðinn Neil Armstrong frá New York. Armstrong er gríðarlega vel þekktur í hip hop-bransanum og hefur meðal annars spilað með Jay-Z á tónleikum í fjölda ára.

Sjónvarpskona hljóp maraþon í New York

„Ég eignaðist stelpuna mína fyrir einu og hálfu ári og byrjaði að hlaupa til að koma mér í form eftir það. Svo bara endaði þetta svona. Ég hefði aldrei trúað að ég myndi gera þetta fyrir nokkrum árum,“ segir Sigríður Halldórsdóttir sjónvarpskona, sem hljóp um helgina heilt maraþon í New York-borg.

Það leiddist engum á Lockerbie

Strákarnir í síðrokksveitinni Lockerbie hafa verið að gera góða hluti upp á síðkastið. Platan Ólgusjór sem nýlega kom út hjá Record Records hefur fengið góða dóma gagnrýnenda og gaf Trausti Júlíusson henni fjórar stjörnur í Fréttablaðinu...

Sveppi í jólabókaflóðið

„Nei, nei, ég er ekkert að fara að sækja um inngöngu í Rithöfundasambandið með þessari bók en það hefur lengi blundað í mér að gera skemmtibók fyrir krakka,“ segir Sverrir Þór Sverrisson, betur þekktur sem Sveppi, en hann dembir sér í jólabókaflóðið í ár með bókinni Skemmtibók Sveppa.

Sjóræningjar leggja á ráðin í leikhúsinu

Það var gott andrúmsloftið í Borgarleikhúsinu í gær þegar fyrsti samlestur á Gulleyjunni fór fram. Verkið er samstarfsverkefni Borgarleikhússins og Leikfélags Akureyrar en leikritið verður sýnt á Akureyri í janúar og kemur svo fyrir sjónir höfuðborgabúa haustið 2012.

Kardashian verslar verkjalyf

Eftir allt sem á undan er gengið í lífi raunveruleikastjörnunnar Kim Kardashian er ekkert skrýtið þó hún brgi sig upp af verkjalyfjum eins og sjá má á meðfylgjandi myndum sem teknar voru af henni á LAX flugvellinum í dag...

Rússar vilja Auði Övu

Tvö rússnesk leikhús hafa sýnt áhuga á því að taka leikrit Auðar Övu Ólafsdóttur, Svartur hundur prestsins, til sýninga. Leikritið er nú á fjölum Þjóðleikhússins og munu áhrifamenn í rússnesku leikhúslífi hafa hrifist af sýningunni.

Smoothie að hætti Ebbu

Ebba Guðný Guðmundsdóttir er nýkomin heim frá Frankfurt þar sem hún náði að selja bókina sína Hvað á ég að gefa barninu mínu að borða? til þýsks bókaútgefanda.

Voldugasta par veraldar

Leikkonan Angelina Jolie, 36 ára, og unnusti hennar, leikarinn Brad Pitt gengu hröðum skrefum í gegnum Haneda flugvöllinn í Tokyo í Japan í dag...

Taka jaðaríþróttir úr skugganum

"Okkur fannst fjölmiðlar á Íslandi einfaldlega ekki vera að sinna jaðaríþróttum nógu vel," segir Arnar Guðni Jónsson, einn þriggja framleiðenda á nýjum þáttum sem nefnast Shadez of Reykjavik og fjalla um jaðaríþróttir á Íslandi.

Söng fyrir Norðmenn

„Það var virkilega sterk og falleg upplifun að koma þarna fram,“ segir söng- og leikkonan Bergljót Arnalds en hún frumflutti lag eftir sig á hátíðinni Hjertefred í Noregi á sunnudaginn fyrir þúsundir manna.

Sjá næstu 50 fréttir