Hvað er að gerast í kvöld? Hér er listi yfir nokkra skothelda tónleika á næstu dögum.
Í kvöld:
Hljómsveitin Reykjavík! heldur útgáfutónleika á KEX hosteli klukkan 21. Miðasala fer fram á Midi.is. FM Belfast kemur fram eftir Reykjavík!
Á morgun:
Hljómsveitin Kiriyama Family kemur fram á Faktorý. Húsið opnar klukkan 21.30 og einn heppinn gestur vinnur allan aðgangseyri tónleikanna.
Ekki á morgun heldur hinn:
Meistari Mugison kemur fram í Sjóræningjahúsinu á Patró klukkan 21. Kappinn kannast við sig fyrir vestan, en eins og alþjóð veit bjó hann um árabil í Súðavík. Hann gaf út plötuna Haglél á dögunum og hefur hreinlega mokað út eintökum. Miðar á tónleikana fást á Midi.is.
Útgáfutónleikar Reykjavík!
