Lífið

Úrvals útgeislun Angelinu

Leikarinn Brad Pitt, 47 ára, og unnusta hans, leikkonan Angelina Jolie, 36 ára, mættu spariklædd á frumsýningu kvikmyndarinnar Moneyball í Tokyo í Japan í gær.

Kvikmyndin Moneyball hefur farið sigurför um heiminn enda byggð á sannri sögu. Brad Pitt leikur hafnarboltaþjálfara sem nær ótrúlegum árangri með því að nýta tölfræði við leikmannakaup.

Stjörnuparið gaf sér dágóðan tíma í að gefa eiginhandaráritanir eins og sjá má í myndasafni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×