Glee sakað um dómgreindarleysi 10. nóvember 2011 09:00 Sjónvarpsþættirnir Glee eru fyrst og fremst dans- og söngvaþættir en þykja einnig ögrandi í umfjöllun sinni um viðkvæm málefni.
Framleiðendur bandaríska söng- og dansþáttarins Glee hafa verið sakaðir um dómgreindarleysi af Parent Television Council, sem hópur íhaldssamra Bandaríkjamanna stendur að. Lélegt lagaval eða afbökun á þekktum tónlistarperlum eru hins vegar ekki ástæðan fyrir því að PTC lætur í sér heyra heldur vegna þess að þáttur, sem sýndur var á mánudag, sýndi nána snertingu milli nemenda í framhaldsskóla. Þetta fór ákaflega fyrir brjóstið á forsvarsmönnum PTC, sem sendu frá sér harðorða yfirlýsingu, en í þættinum sást annars vegar gagnkynhneigt par láta vel að hvort öðru og hins vegar samkynhneigt. „Kynið á leikurum Glee skiptir engu máli heldur er það kynlífið hjá börnunum sem er aðalmálið og lýsir algjöru dómgreindarleysi. Kynlíf táninga virðist selja og Fox er eingöngu að feta þá varasömu slóð. Rannsóknir hafa sýnt að kynlíf í sjónvarpi eykur áhuga ungs fólks á að stunda kynlíf fyrr og Fox veit að þessi þáttur er vinsæll hjá börnum. Þetta er því fyrir neðan allar hellur,“ er haft eftir Tim Winter, forsvarsmanni PTC. Leikarinn Chris Colfer, sem er í stóru hlutverki í Glee, sagði í samtali við vefsíðuna EW.com að hann hefði vitað að PTC myndi láta í sér heyra eftir þáttinn. „Ég býst reyndar alltaf við því eftir hvern þátt því við fjöllum um svo mörg viðkvæm mál. En okkur hefur alltaf tekist að koma þeim smekklega frá okkur.“
Mest lesið „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Lífið Nýkominn úr meðferð og „sjaldan verið betur nýsleginn túskildingur“ Lífið Heilsu krónprinsessunnar hrakar gríðarlega Lífið Best klæddu Íslendingarnir 2025 Tíska og hönnun Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Lífið Flýta jólasýningunni um klukkutíma vegna lengdar Menning Úr öskunni í eldinn Gagnrýni Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Lífið Útgefandi Walliams lætur hann róa Lífið Laufey á lista Obama Lífið Fleiri fréttir 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Dúnninn bakaður í fjóra sólarhringa til að drepa allt í honum Heilsu krónprinsessunnar hrakar gríðarlega Pete orðinn pabbi Nýkominn úr meðferð og „sjaldan verið betur nýsleginn túskildingur“ Laufey á lista Obama „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Opnar sig í fyrsta sinn: Kyssti yfirmanninn í fyrsta sinn þetta kvöld Sex hundruð ára kastali Björns í Frakklandi svo gott sem klár Fyrirsát að Valgerði, Stund Pírata og meint alzheimer Þráins Bertelssonar „Það jafnar sig enginn eftir svona og við munum aldrei gera það“ Ungir sjálfstæðismenn gefa út vandræðalegt fjölskyldudagatal Keough sögð líffræðileg móðir Benjamin Travolta Rússland aftur í Eurovision - undirskriftasöfnun Óskarsverðlaununum streymt á Youtube Karmað muni bíta þjófinn í rassinn þegar títan og glyttan byrja að dansa í hitanum Hreimur og Ólafur Darri perluvinir sem horfa á enska boltann saman „Ég er mamman sem gat aldrei gefið honum það sem hann óskaði sér“ Áttu að hitta Reiner-hjónin daginn örlagaríka Leynigesturinn hitti Heimi Karls beint í hjartastað Sannkölluð útsýnisperla með potti í Skerjafirði Kristófer Acox og Guðrún Elísabet eiga von á barni Reynihvammur 39 jólahús Kópavogsbæjar Þingmaður selur húsið Segja Helenu fara með „hreinar rangfærslur“ Skrifaði eftirréttasöguna: „Er hann geðbilaður?“ Palestínskir fánar leyfðir og óánægjuhróp áhorfenda ekki falin Sjá meira