Fleiri fréttir

Vorum sneggri

Leikurinn fór 45-26 fyrir okkur. Úrslitin komu okkur nokkuð á óvart enda höfðum við engar væntingar,“ segir Kristinn Þór Sigurjónsson, varaformaður Rugby-félags Reykjavíkur, sem tók á sunnudaginn á móti Thunderbird Old Boys rugby-liðinu frá Bandaríkjunum. Leikurinn fór fram á Vodafonevellinum og var fyrsti opinberi rugby-leikurinn hér á landi. "Við unnum á því að vera yngri og sneggri. Þeir voru hins vegar tæknilega betri og áttu betri högg og tæklingar enda mun reynslumeiri,“ segir Kristinn.

Leikstýrir ekki Thor 2

Bretinn Kenneth Branagh verður ekki leikstjóri framhaldsmyndarinnar Thor 2 sem verður frumsýnd í júlí árið 2013. Branagh hafði lýst yfir áhuga sínum á að leikstýra myndinni, eins og þeirri fyrri, en verður þess í staðinn einn af framleiðendunum. Ekki er ljóst hver tekur við keflinu af Branagh. Chris Hemsworth mun endurtaka hlutverk sitt sem Þór, enda þótti hann standa sig einstaklega vel í fyrri myndinni. Hann sést næst á hvíta tjaldinu í þriðju Iron Man-myndinni og The Avengers.

Bloodgroup tók úr sambandi og sló í gegn

Hljómsveitin Bloodgroup kom fram á vel heppnuðum "unplugged" tónleikum á fimmtudaginn. Tónleikarnir voru hluti af Gogoyoko Wireless-tónleikaröðinni sem kemur út á DVD fyrir jólin.

Jennifer langar að flytja

Jennifer Lopez vill flytja til New York en hún og eiginmaður hennar, Marc Anthony, búa í Los Angeles um þessar mundir. Lopez þráir að ala börnin sín upp í eðlilegu umhverfi þar sem glys og prjál kvikmyndaborgarinnar er víðsfjarri.

Leiðar á krepputali

"Ástæðan fyrir því að við byrjuðum á þessu var að við vorum svo leiðar á þessu krepputali," segir Karlotta Sigurðardóttir í meðfylgjandi myndskeiði spurð út í félagsskap sem hún tilheyrir, sem kallast Maddömurnar frá Sauðárkróki, en þær bökuðu gómsætar lummur fyrir börnin á Landsmóti hestamanna í ár. Sjá myndir frá Landsmóti hér.

Með fjörutíu feta gám á Landsmót

„Við bara fórum norður með fjörutíu feta gám þó það væri þriggja stiga hiti. Okkur leist ekki á blikuna en létum vaða," sögðu Bergþóra Þorgeirsdóttir framkvæmdastjóri verslunarinnar Lífland og Rúnar Þór Guðbrandsson. Eins og sjá má í meðfylgjandi myndskeiði tóku þau sig til og fluttu heila verslun norður á Landsmót hestamanna sem fram fór á Vindheimamelum í Skagafirði. Lífland.is Sjá myndir frá Landsmóti hér.

Fjölbreytt mannlíf á Landsmóti hestamanna

Í meðfylgjandi myndasafni má greinilega sjá þá góðu stemningu sem ríkti á meðal fjölda gesta sem nutu þess að fylgjast með flestum af fallegustu gæðingum landsins á Landsmóti hestamanna sem lauk í gær.

Owen Wilson drekkur burt sorgir sínar

Vinir leikarans Owen Wilson óttast um heilsu hans eftir sambandsslit hans við barnsmóður sína. Wilson ku vera mjög niðurdreginn og hefur leitað sér huggunar í faðmi Bakkusar.

John Grant tilnefndur

Tónlistarmaðurinn John Grant, sem spilar á Airwaves-hátíðinni í haust, hefur verið tilnefndur til þrennra verðlauna hjá breska tímaritinu Mojo, þar á meðal fyrir bestu plötuna. Annar tónlistarmaður, Rumer, fékk einnig þrjár tilnefningar. Rokksveitin Arctic Monkeys frá Sheffield fékk tvær, rétt eins og hljómsveitin Arcade Fire sem gaf út plötuna Suburbs. The Vaccines, með Árna Hjörvar á bassanum, fékk eina tilnefningu, eða fyrir besta nýja flytjandann. Verðlaunahátíðin verður haldin í London 21. júlí.

Beckham spilar Bítlalög fyrir ófædda dóttur sína

Fótboltahetjan David Beckham hefur hlaðið niður vögguvísuútgáfum af Bítlalögunum fyrir ófædda dóttur sína sem kemur í heiminn í næsta mánuði. "David hefur verið að hlaða niður vögguvísum fyrir barnið okkar. Ég elska plötuna The Beatles,“ skrifaði Victoria Beckham á Twitter. Þessi tíðindi hafa ýtt undir orðróm um að dóttirin verði skírð Jude, eftir Bítlalaginu Hey Jude. Það var tólf ára sonur þeirra, Brooklyn, sem stakk upp á nafninu. Hinn átta ára Romeo stakk upp á nafninu Justine Bieber en telja má ólíklegt að það verði fyrir valinu. "Það koma þrjú nöfn til greina og þau eru algjört leyndarmál,“ sagði heimildarmaður.

Jógvan krækti í vænan lax í Langá

„Þetta tók vel á, ég var orðinn ansi þreyttur í upphandleggsvöðvunum,“ segir Jógvan Hansen söngvari, sem veiddi fimmtán punda lax í Langá á dögunum.

Skokkar berfættur um bæinn

"Ég hélt alltaf að hlaup væru það leiðinlegasta sem hægt væri að gera — af öllu,“ segir Eyvindur Karlsson, grínisti og nýútskrifaður leikstjóri úr East 15-skólanum í Lundúnum.

Gleðja fólk með dansi

Dansdúettinn Brak mun gleðja gesti og gangandi í miðbæ Reykjavíkur með dansi í sumar. Dúettinn skipa þær Snæfríður Ingvarsdóttir og Hildur Margrét Jóhannsdóttir.

Áhyggjufull Demi Moore

Demi Moore óttast að eiginmaður hennar, Ashton Kutcher, muni missa áhugann á hjónabandinu nú þegar hann er farinn að vinna við sjónvarpsþáttinn Two and a Half Men.

Fær sér húðflúr í fyrsta sinn

Leikkonan Jennifer Aniston sást á dögunum spássera um götur New York með húðflúr á hægri fæti. Það var nafnið Norman sem var skrifað með skrautskrift á ökklann en það er nafnið á hundi Aniston sem lést í vor.

Viskíauglýsing tekin upp á Íslandi

Tökum fyrir erlenda aðila hefur fjölgað hér á landi undanfarið þrátt fyrir tvö eldgos á rúmu ári. Þetta segir Andrea Brabin, eigandi Eskimo umboðsskrifstofunnar, sem leitar nú að þrjú hundruð manns til að leika í erlendri auglýsingu.

Frumleg og skringileg

Björk Guðmundsdóttir fær mjög góða dóma í The Guardian, einu virtasta dagblaði Englands, fyrir fyrstu Biohpilia-tónleika sína á menningarhátíðinni í Manchester.

Sigrún dagskrárstjóri sofnaði yfir Bíódögum

"Ég gerði smá tilraun á sjálfri mér á fimmtudagskvöldið þegar við sýndum Bíódaga. Og ég var farin að sofa um miðja mynd,“ segir Sigrún Stefánsdóttir, dagskrárstjóri RÚV.

Fluttur á sjúkrahús

Írinn Jonathan Rhys-Meyers, sem lék Henry VIII í sjónvarpsþáttunum The Tudors, var fluttur á sjúkrahús fyrir skömmu eftir að hafa tekið of stóran skammt af pillum. Talið er að um sjálfsvígstilraun hafi verið að ræða. Atvikið átti sér stað á heimili hans og fannst hann liggjandi á gólfinu í lyfjamóki. Að sögn götublaðsins The Sun var lögreglan kölluð á staðinn eftir að hann neitaði að fá aðhlynningu sjúkraliða. Meyers, sem lék á móti Anitu Briem í The Tudors, hefur verið útskrifaður af sjúkrahúsinu. Stutt er síðan hann fór í sína fimmtu meðferð en hún virðist ekki hafa skilað sínu.

Nirvana á Reading

Goðsagnakenndir tónleikar hljómsveitarinnar Nirvana á bresku tónlistarhátíðinni Reading frá árinu 1992 verða sýndir á Reading og Leeds-tónlistarhátíðunum í sumar.

Frábær frammistaða

Hollywood-leikarinn Kevin Spacey hefur fengið frábæra dóma fyrir túlkuna sína á Ríkharði III í Old Vic-leikhúsinu í London. Óskarsverðlaunahafinn leikur þennan frægasta þorpara Shakespeares með fótinn í stálspelku, haltrandi með staf.

Einstæð og ættleiðir

Leikkonan Denise Richards ættleiddi á dögunum nýfædda stúlku sem hefur fengið nafnið Joni. Richards á fyrir tvær dætur með leikaranum og vandræðagemlingnum Charlie Sheen en þau skildu árið 2006. Miklar forræðisdeilur hafa staðið á milli þeirra en deilurnar leystust í fyrra og deila þau nú forræði.

Með augum útgefandans

Jóhann Páll Valdimarsson útgefandi hefur fært sig upp á skaftið sem ljósmyndari. Á dögunum hélt hann sýningu á Íslendingaslóðum í Kanada og á laugardag opnar hann sýningu með landslagsmyndum úr Skorradal.

Öskrað í eyru áhorfandans

Transformers: Dark of the Moon er þreytandi. Mér leið hálfpartinn eins og Michael Bay sjálfur sæti við hliðina á mér í kvikmyndahúsinu og öskraði í eyrun á mér. Hljóðstyrkurinn var að vísu ekki vandamálið, heldur sá sjónræni hávaði sem virtist engan endi ætla að taka. Ég ímynda mér að handritið allt sé skrifað í caps lock og að allar setningar endi á þremur upphrópunarmerkjum.

Búinn að lifa lífinu nóg

Ef þú hefur heyrt um rapparann Gísla Pálma eru góðar líkur á því að þú hafir fyrst heyrt um hann nýlega. Hann sendi frá sér lagið Set mig í gang á þjóðhátíðardaginn og annar hver maður hefur deilt myndbandinu við lagið á Facebook-vegg sínum undanfarnar vikur. Þar sést Gísli ber að ofan, hnykla vöðvana og í bakgrunni hefur Range Rover-jeppa verið lagt. Hann er reyndar í eigu vinar Gísla Pálma, sem er rétt að skríða yfir tvítugt. "Annar af tveimur,“ segir Gísli.

Lávarðurinn Eyfi tekur Valdimar undir sinn væng

„Þetta leggst mjög vel í mig. Það verður gaman að prófa eitthvað nýtt,“ segir popparinn Eyjólfur Kristjánsson. Hann verður heiðursgestur tónlistarhátíðarinnar Innipúkans um verslunarmannahelgina og stígur þar á svið með hljómsveitinni Valdimar.

Opnar veitingastað gengin 29 vikur

"Ég er komin 29 vikur og er með strák. Ég leit í spegil í gær þegar ég var að gera mig tilbúna fyrir partýið og sá þá eiginlega í fyrsta skipti ólétta konu," svarar Hrefna Sætran sem opnaði nýjan veitingastað, Grillmarkaðinn, í Lækjargötu í gær.

Fredrik elskar íslenska hönnun

Fredrik Kristján Jónsson klæðist íslenskri hönnun í bresku raunveruleikaþáttunum Made in Chelsea. Hann er væntanlegur til Íslands síðar í mánuðinum.

Íslensk sirkussýning frumsýnd í kvöld

Sirkus Íslands frumsýnir í kvöld sýninguna Ö-Faktor, og er það þriðja fjölskyldusýningin sem sirkusinn setur upp frá því hann var settur á fót árið 2007, en um sex þúsund manns sáu síðustu sýningu hópsins, Sirkus Sóley.

Potts aftur með Bó

Paul Potts, hinn heimsþekkti tenór úr Britain"s Got Talent, verður aftur gestur á jólatónleikum Björgvins Halldórssonar í ár. Þetta staðfestir Björgvin í samtali við Fréttablaðið.

Stjörnurnar mæta í konunglega brúðkaupið í Mónakó

Áhugamenn um kóngafólk og stjörnur úr Hollywood eiga annasama helgi framundan þegar Albert fursti af Mónakó gengur að eiga Charlene Wittstock. Á gestalista brúðkaups Alberts fursta af Mónakó og Charlene Wittstock er að finna aragrúa af frægum nöfnum. Albert er þekktur fyrir að vera vel tengdur inn í Hollywood-heiminn og bíða því margir í eftirvæntingu eftir að sjá hvaða fræga fólk á eftir að heiðra brúðhjónin með nærveru sinni.

Sólveig vinsæl hjá Þjóðverjum

"Þetta er pínulítið eins og að fara í sumarbúðir," segir Sólveig Arnarsdóttir leikkona. Síðasta tvo og hálfan mánuðinn hefur Sólveig verið á Gotlandi, lítilli eyju undan ströndum Svíþjóðar, við tökur á þýskum sakamálaþáttum, Der Kommissar und Das Meer eða Lögregluforinginn og hafið. Um er að ræða tvær níutíu mínútna langar sjónvarpsmyndir sem byggðar eru á samnefndum bókum eftir sænska höfundinn Mari Jungstedt. Leikkonan hefur ekki verið ein á tökustað, með henni eru maðurinn hennar og nýfætt barn. "Og það kippir sér enginn upp við það þegar ég þarf að gefa því að drekka á milli atriða."

Í fíling við flygilinn

„Á tónleikunum ætlum við að spila lög af nýútkominni plötu okkar, sem heitir einfaldlega Mood. Svo spilum við meira fjör fram eftir eins og á við á sólríkum föstudegi í byrjun júlí. Svona einhvern stuðblús," segir Bergþór Smári tónlistarmaður sem gaf nýverið út fyrstu plötuna sína sem ber heitið Mood. „Þetta er myndband við lagið No Sense, sem er smáskífa númer tvö af plötunni. Sú fyrsta var Warm & Strong," segir Beggi. „Þetta er eiginlega bara tekið upp í fíling við flygilinn. Ég viðurkenni að ég er ekki eins sterkur á þetta yndislega hljóðfæri og Víkingur frændi minn. Gítarinn er mitt hljóðfæri en ég nota oft píanóið til að semja músík, eins og ég gerði með þetta lag. Þetta er píanólag sem mér þykir mjög vænt um," segir hann. Beggi Smári heldur tónleika á Rosenberg í kvöld, föstudag klukkan 22:00 og á Blúshátíð Ólafsfjarðar á laugardagskvöldið. Facebook síða Begga Smára.

Courtney Love stal bíl og bílstjóra

Courtney Love gerði ljósmyndarann David LaChapelle brjálaðan fyrr í vikunni þegar hún stal bílnum hans, samkvæmt dagblaðinu New York Post.

Lára í garðpartíi

Laugavegurinn verður opnaður sem göngugata í dag og af því tilefni munu verslunin Spúútnik og skemmtistaðurinn Dillon halda heljarinnar garðpartí í Dillon-garðinum yfir helgina. Skemmtiatriði verða fyrir alla fjölskylduna; tónleikar, trúðar, andlitsmálning, eldgleypir og grillaðar pylsur.

Sjá næstu 50 fréttir