Fleiri fréttir

Fyrrum kærasti Britney gæti lent í fangelsi

Adnan Ghalib fyrrum kærasti Britney Spears gæti fengið allt að sjö ára fangelsisdóm ef hann verður ákærður fyrir að hafa lent í árekstri og stungið af. Breski ljósmyndarinn sem var í sambandi með Britney þegar hún átti sem erfiðast er ásakaður um að hafa keyrt bíl sínum inn í húsgarð.

Baksviðs á Ungfrú Reykjavík - myndir

Eins og meðfylgjandi myndir sýna voru stúlkurnar 23 sem kepptu um titilinn ungfrú Reykjavík á Broadway í gærkvöldi önnum kafnar baksviðs við að líta sem allra best út. Keppnin var sýnd í beinni útsendingu á Skjá einum og því mátti ekkert klikka þegar kom að tímasetningu keppenda á sviðið eða útliti. Vísir fangaði stemninguna baksviðs eins og myndirnar sýna greinilega

Húsfyllir á Broadway í gær - myndir

Húsfyllir var á Ungfrú Reykjavík sem haldin var á Broadway í gærkvöld þegar Magdalena Dubik, 22 ára fiðluleikari, bar sigur úr bítum. Þéttsetinn salurinn fagnaði 23 keppendum ákaft þegar þær sprönguðu um sviðið. Meðfylgjandi má sjá myndir af kátum gestunum.

Bókamarkaður í Perlunni í dag

Í dag, laugardaginn 28. febrúar, hefst hinn sígildi og árlegi bókamarkaður Félags íslenskra bókaútgefenda í Perlunni.

Pólskur fiðluleikari kosinn Ungfrú Reykjavík - myndir

Magdalena Dubik, 22 ára, var valin Ungfrú Reykjavík á Broadway í gærkvöld. Magdalena hefur stundað fiðluleik í tólf ár og fjarnám við Fjölbrautaskólann í Ármúla. Hún stefnir á læknisfræði í framtíðinni. Sylvia Dagmar Friðjónsdóttir, 19 ára, varð í 2. sæti og Elísa Guðjónsdóttir 19 ára í 3. sæti. Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, 18 ára, sigraði símakosninguna og Hlín Arngrímsdóttir, 18 ára, var kosin vinsælasta stúlkan.

Opnar kosningaskrifstofu í bílskúrnum

Ein mest umtalaða kosningaskrifstofa síðari tíma opnar í dag Laugardag. En það er kosningaskrifstofa, Kjartans Ólafssonar þingmanns, sem opnuð verður í bílskúrnum að heimili hans í Hlöðutúni í dag á milli 15:00 og 17:00.

Aðdáendur Potters bíða til 2011 eftir endalokunum

Til stendur að sjöunda bókin um galdrastrákinn Harry Potter verði skipt upp og gerð að tveimur kvikmyndum. Skýringin sem gefin er, er sú að söguþráðurinn sé það langur að hann rúmist ekki fyrir í einni mynd.

Stolt af Gleðibanka-búningunum

Vísir hafði samband við Dóru Einars leikmynda- og búningahönnuð til að forvitnast um límið í skóm Helgu Möller þegar hún flutti Gleðibankann með Icy hópnum í Bergen í Noregi eins og fram kom í sjónvarpsþættinum Ísland í dag í gær. „Ég var ekki viðstödd þar sem íslenska Sjónvarpið sendi Rögnu Fossberg förðunarfræðing hjá Sjónvarpinu sem búningahönnuð," svarar Dóra. „Ég gerði þessa Gleðibankabúninga og er stolt af því. Ég er mjög stolt af þessari hönnun. Hnapparnir voru meira að segja íslensk eðalsmíð úr silfri og skór Helgu voru hágæða skór í alla staði," segir Dóra.

Ungfrú Reykjavík á Broadway í kvöld

„Ég er reyndar ekkert búin að vera með stelpunum í keppninni og ekki kynnst þeim, því ég kem að keppninni frá allt annarri hlið en ég er vön," svarar Unnur Birna Vilhjálmsdóttir aðspurð hvort hún hafi nú þegar áttað sig á því hver hlýtur titilinn. „Ég er starfsmaður Skjás eins í kvöld," bætir Unnur Birna við en hún hefur tekið að sér að kynna keppnina sem fram fer á Broadway í kvöld. „Mér líst rosaleg vel á þær en mér finnst þær vera í yngri kantinum, sem ég er ekkert rosalega hrifin af. En það er eins og það er," segir Unnur Birna nýkomin úr „kamerurennsli". Ungfrú Reykjavík verður sjónvarpað í beinni útsendingu á Skjá einum klukkan 22:00. Sjá nánar á Broadway.is.

Farinn í meðferð

Írski leikarinn Jonathan Rhys Meyers hefur skráð sig í áfengismeðferð en undanfarið hefur leikarinn átt við drykkjuvanda að stríða. „Þegar ég er drukkinn haga ég mér eins og Bambi. Ég ræð ekki við mig og er vonlaus," segir Jonathan.

Hjálpar fólki sem er ekki í bransanum

Snorri Snorrason sem sigraði Idol stjörnuleit árið 2006 hefur stofnað nýtt fyrirtæki sem heitir Fjarupptokur.is. Vísir hafði samband við kappann til að forvitnast um reksturinn. „Bæði fyrir og eftir Idol hef ég verid ad vinna mikið í stúdió fyrir bæði fræga og ófræga tónlistarmenn og tók fljótlega eftir því að þeir sem eru ekki „í bransanum" og eru að semja lög og annað, vita ekki hvernig á að snúa sér í því að hljóðrita lögin sín," svarar Snorri aðspurður um tilgang Fjarupptökur.is.

Seinfeld framleiðir raunveruleikaþátt

Jerry Seinfeld mun framleiða raunveruleikaþátt í samstarfi við NBC sjónvarpsstöðina þar sem frægðarfólk og dómarar munu hjálpa pörum að gera upp erjur sínar. Illu heilli fyrir aðdáendur Seinfelds mun hann sjálfur ekki hafa í hyggju að standa sjálfur frammi fyrir myndavélunum. Hann hyggst jafnvel ekki koma fram í sjónvarpsþáttum nokkru sinni aftur á ævinni.

Helga Möller ásamt dóttur - myndband

Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá og heyra Elísabet Ormslev, 16 ára, og mömmu hennar, Helgu Möller söngkonu, þegar Ísland í dag sótti mæðgurnar heim. Tilefnið var að Elísabet varð í 2. sæti í Samfés-söngkeppninni þegar hún söng lagið Unbreak my heart. Elísabet söng í skóm Helgu, móður sinnar, sem hún notaði þegar hún flutti lagið Gleðibankinn í Bergen í Noregi fyrir Íslands hönd.

Hugsanleg sigurhátíð á fæðingadeildinni

„Ég verð kominn nákvæmlega 40 vikur á leið þann sjöunda mars," segir frambjóðandinn Steinunn Þóra Árnadóttir, en henni er ætlað að fæða barn sama dag og forval Vinstri grænna fer fram. Steinunn hefur gefið kost á sér í fjórða sætið í forvali flokksins í Reykjavík - og er kasólétt.

Nýr og spennandi fréttavefur

Stúdentar og aðrir flykkjast á student.is sem er fréttavefur þar sem fjallað er um háskólalífið frá öllum hugsanlegum sjónarhornum. Vefurinn er hluti af lokaverkefni Díönu Daggar Víglundsdóttur meistarnema í blaða- og fréttamennsku við Háskóla Íslands.

Fær ekki prinsessu nema hætta að vinna

Viktoría krónprinsessa Svíþjóðar og Daniel Westling, líkamsræktarfrömuður, opinberuðu trúlofun sína 24. febrúar síðastliðinn. Parið, sem kynntist árið 2002 þegar Daniel þjálfaði prinsessuna, ætlar að giftast árið 2010. Samkvæmt fréttavef Vg.no getur Daniel gleymt því að giftast prinsessunni ef marka má pabba hennar, Karl Gústaf, Svíakonung, sem hefur sett Daniel afarkosti: Annað hvort hættir Daniel að vinna eða giftist prinsessunni.

Fúl á móti - myndir

Leikkonan Jessica Biel, 26 ára, var mynduð yfirgefa kaffihús í Hollywood í gærdag. Eins og myndirnar sýna var leikkonan ekki ánægð með ljósmyndarana sem elta hana stöðugt og mynda.

Höfuðkippir Jennifer Aniston - myndband

Sjaldséðar höfuðsveiflur Jennifer vöktu athygli. Ef vel er að gáð er Jennifer upptekin af því að sveifla hárinu eða hrista á sér höfuðið á meðan á viðtalinu stendur.

Botnlanginn veittur í kvöld

Kattaauglýsing Símans þar sem köttur sést gleypa mann er meðal þeirra auglýsinga sem tilnefndar eru sem sístu auglýsingar ársins 2008 á nýrri og vafasamri verðlaunahátíð í kvöld: Botnlanganum.

Slumdog Millionaire börn fá ný heimili

Rubina Ali og Azhar Ismail, tvo af börnunum úr fátækrahverfinu sem leika tvö aðalhlutverkin í Slumdog Millionaire hafa fengið ný heimili fyrir tilstuðlan ríkisstjórnarinnar í Indlandi. „Þessi tvö börn hafa vakið athygli á landinu og við höfum heyrt að þau búi í hreysum sem ekki er einu sinni hægt að skilgreina sem hús," sagði talsmaður ríkisstjórnarinnar.

Enn eitt vöðvabúntið

Arnold Schwarzenegger hefur bæst í hóp vöðvabúntanna sem leika í hasarmyndinni The Expendables. Arnold mun leika sjálfan sig, ríkisstjóra Kaliforníu, í litlu hlutverki enda verður hann aðeins á tökustað í einn dag. Aðrir leikarar verða Jet Li, Mickey Rourke, Jason Statham, Do

Handjárnuð blóm

Sigurður Pálsson, skáld og þýðandi, heldur í dag fyrirlestur sem hann kallar Handjárn á blómin – Vangaveltur um leikritaþýðingar. Fyrirlesturinn fer fram í Fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins og hefst kl. 16.30.

Killers kæra umboðsmann

Rokkararnir í The Killers hafa höfðað mál gegn fyrrverandi umboðsmanni sínum, Braden Merrick. Krefjast þeir skaðabóta fyrir að hafa orðið af hundruðum milljóna króna vegna tónleika sem hefur verið frestað og annarra tekna af tónleikaferðum og varningi tengdum hljómsveitinni.

Grindhoruð Lindsay - myndband

Meðfylgjandi má sjá myndir af leikkonunni Lindsay Lohan sem teknar voru af henni á Óskarsverðlaunahátíðinni síðasta sunnudag í Los Angeles. Meðfylgjandi linkur er viðtal sem sjónvarpsstöðin E! tók við leikkonuna sama kvöld þar sem hún ræðir meðal annars brúnkuspray sem hún ætlar að setja á markað og demantaviðskipti. Meðfylgjandi má sjá myndir af leikkonunni Lindsay Lohan sem teknar voru á Óskarsverðlaunahátíðinni síðasta sunnudag í Los Angeles. Meðfylgjandi linkur er viðtal sem sjónvarpsstöðin E! tók við leikkonuna sama kvöld þar sem hún ræðir meðal annars brúnkuspray sem hún ætlar að setja á markað og demantaviðskipti.

Besta hljómplata U2 í átján ár

Tólfta hljóðversplata U2, No Line on the Horizon, fær fimm stjörnur hjá Dave Fricke, gagnrýnanda bandaríska tímaritsins Rolling Stone. Hann segir plötuna þá bestu frá sveitinni í átján ár, eða síðan Achtung Baby kom út.

Gefur hvalpiparsteikur á bjórdaginn

„Já, þannig er að 1. mars. á sunnudag, á bjórdag, á tuttugu ára afmælisdegi staðarins býð ég öllum landsmönnum upp á hvalpiparsteik. Opið hjá mér frá klukkan fjögur og fram eftir,“ segir Úlfar Eysteinsson vert á Þremur Frökkum í Þingholtunum.

Óskarinn 2009 - myndband

Hvorki meira né minna en 8 Óskarsverðlaun féllu breska leikstjóranum Danny Boyle og kvikmynd hans, Viltu vinna milljarð, í skaut í nótt. Í meðfylgjandi myndskeiði fer Sindri Sindrason í sjónvarpsþættinum Ísland í dag yfir Óskarsverðlaunahátíðina.

Forsetafrúin stal senunni

Forsetafrú Bandaríkjanna, Michelle Obama, var eiginmanni sínum til halds og trausts á kvöldverði með ríkisstjórum í Bandaríkjunum í gærkvöld. Ofurbloggarinn og tískulöggan Perez Hilton segir að Obama hafi vakið sérstaka athygli fyrir glæsilega hárgreiðslu sína og óaðfinnanlegan kjól sem hún klæddist á samkomunni.

Söng í Gleðibankaskóm mömmu

Elísabet Ormslev, 16 ára dóttir Helgu Möller söngkonu var í 2. sæti í Samfés-keppninni sem fram fór á laugardaginn þegar hún söng lagið Unbreak my heart. Elísabet söng í skóm móður sinnar sem hún notaði þegar hún flutti lagið Gleðibankinn í Bergen í Noregi fyrir Íslands hönd. Vísir hafði samband við mæðgurnar til að óska Elísabetu til hamingju og ekki síður til að spyrja um heillaskó Helgu.

Nýjar konur með þátt á ÍNN

„Ingvi Hrafn hefur ekki lengur ráð á að borga okkur laun og ég var ekki tilbúin til að vinna kauplaust," segir Ásdís Olsen fyrrum þáttastjórnandi Mér finnst sem sýndur var á ÍNN.

Sægreifi kaupir lúxusíbúð af bankastjóra

Þorsteinn Már Baldvinsson, útgerðarkóngur frá Akureyri, hefur keypt lúxusíbúð bankastjórans Ármanns Þorvaldssonar í Skuggahverfinu. Ekki liggur fyrir hvert kaupverðið er en ásett verð var um 70 milljónir króna eftir því sem Vísir kemst næst.

Kidman dásamar Jolie - myndband

Í meðfylgjandi myndskeiði heiðrar leikkonan Nicole Kidman, leikkonuna Angelinu Jolie, fyrir leik hennar í kvikmyndinni The Changeling.

Á biðilsbuxum

Svo virðist sem Jake Gyllenhaal hafi í hyggju að biðja kærustu sinnar, Reese Witherspoon, en leikarinn sást nýverið þræða skartgripabúðir í New York í leit að trúlofunarhring. Leikarinn er sagður hafa eytt allt að fjórum klukkustundum í einni búðinni og skoðað hringana gaumgæfilega.

Gítar KK frystur í New York

„Ég var alveg eyðilagður þegar hann brotnaði í flutningunum,“ segir tónlistarmaðurinn KK, sem bíður spenntur eftir að endurheimta forláta Martin-gítar sinn sem hefur undanfarna mánuði verið fastur í New York.

Fagurkerar bíða skipbrot eftir góðærið

„Maður er eiginlega bara skelfingu lostin, ekkert annað. Þetta er mjög slæmt fyrir fólk í mínum bransa,“ segir Jóhanna Kristín Ólafsdóttir, innanhússarkitekt hjá AVH. Í fréttum Sjónvarpsins á fimmtudagskvöld var greint frá því að lífsstíls- og hönnunarbúðinni Saltfélaginu hefði verið lokað og að til stæði að loka Habitat sem löngum hefur verið þekkt fyrir smekklegar innanhússvörur.

Talar ekki í Las Vegas

Cher segist lifa hálfgerðu nunnulífi þegar hún er stödd í Las Vegas á milli þess sem hún er uppi á sviði að skemmta. Söngkonan, sem er 62 ára gömul, segist ekki hafa búist við því að þurra loftið þar í borg myndi hafa svo mikil áhrif á sig og talar því ekki við fólk á milli tónleika á daginn.

Vöruskipti á netinu það sem koma skal í kreppunni

„Þetta er vefsíða fyrir okkur hin, okkur sem urðum eftir og verðum að nota eitthvað annað en krónuna til að versla,“ segir Axel Valdimar Gunnlaugsson, stofnandi vefsíðunnnar samlagid.is, sem vakið hefur mikla athygli. Síðan er glæný, fór í loftið fyrir mánuði síðan, en hugmyndin kviknaði þegar allt fór fjandans til undir lok síðasta árs. „Þetta byrjaði bara sem grín en svo vatt þetta fljótlega upp á sig og í dag eru þúsund manns skráðir notendur,“ segir Axel en svo skemmtilega vill til að meirihluti notenda eru konur.

Þrjátíu umsóknir liggja fyrir

Undirbúningur er í fullum gangi fyrir næstu Airwaves-hátíð sem verður haldin í haust eins og undanfarin ár. Að sögn Þorsteins Stephensen hjá Hr. Örlygi eru þrjátíu umsóknir komnar frá ýmsum hljómsveitum um að spila á hátíðinni. „Við ætlum að sjá hvað kemur best út. Við erum með mörg spennandi mál á borðinu," segir hann.

Óvenju mikið af ballöðum

Búið er að draga saman lönd í undanþætti Euro­vision í ár og verður Ísland á fyrra kvöldinu. Jóhanna Guðrún syngur Is It True að kvöldi þriðjudagsins 12. maí í Ólympísku íþróttahöllinni í Moskvu. Friðrik og Regína kepptu á fimmtudagskvöldi í fyrra. Átján flytjendur keppa við Jóhönnu Guðrúnu, en tíu efstu lögin komast í úrslitaþáttinn 16. maí.

Dauðvona Jade giftir sig

Hin tuttugu og sjö ára Jade Goody sem greindist með banvænt krabbamein fyrir stutt er búinn að giftast unnusta sínum Jack Tweed. Saga Jade hefur vakið gríðarlega mikil viðbrögð í Bretlandi og víðar en hún varð fræg í þættinum Big Brother sem er sýndur á Stöð 4 í bresku sjónvarpi.

Lifðu þig inn í flutninginn og meinaðu það!

„Heyrðu ég er ég soddan Idol-nörd og fylgist vel með því auk þess sem vinkona mín er að keppa núna svo ég er enn áhugasamari," svarar Thelma Hafþórsdóttir söngkona sem var ein af keppendum í sjónvarpsþættinum Bandið hans Bubba. „Ég horfi keppnina allt öðrum augum nú heldur en fyrir Bandið hans Bubba. Eftir að hafa tekið þátt í þessu sjálf þá finnst mér ég fyrirgefa falskar nótur og fleira betur hjá keppendum því ég veit hvernig það er að vera stressuð og vera kannski ekki með rétta lagið," segir Thelma.

Sjá næstu 50 fréttir