Fleiri fréttir

Skjár einn skoðar Ásdísarþátt

Þetta er ekkert sem okkur hefur boðist ennþá, en við höfum hugsað um þetta, segir Kristjana Thors Brynjólfsdóttir, dagskrárstjóri Skjás Eins.

From Oakland to Iceland frumsýnd á Skjaldborg

Það hefur nú verið staðfest að heimildamyndin From Oakland to Iceland: A Hip-Hop Homecoming verður frumsýnd á Skjaldborgarhátíðinni nú í maí næstkomandi. Myndin fjallar um heimkomu íslenska plötusnúðsins Illuga, sem hefur búið í Oakland í Kaliforníu frá barnsaldri og getið sér gott orð þar.

Naomi sleppt úr haldi

Fyrirsætunni geðvondu, Naomi Campbell var sleppt úr fangelsi í nótt, eftir yfirheyrslur. Hún var handtekin á Heathrow flugvelli í gær eftir að henni var vísað frá borði Brititsh Airways flugvélar á leið til Los Angeles.

Stjörnufans á Ólíver

Það var fjölmennt á opnunarpartýi skemmtistaðarins Ólíver í gær. Ölið rann í stríðum straumum og heyrðist á viðstöddum að margir gesta hafi nýtt sér það til hins ítrasta.

Brúnkan skiptir máli í lífinu

Vel verður séð um útlit Júróbandsins á meðan þau dvelja í Serbíu. Þau Friðrik og Regína Ósk munu hafa sér til halds og traust förðunarmeistara, sem sér um að þau líti út eins og best verði á kosið.

Albert Maysles heiðursgestur á Skjaldborg

Hinn goðsagnakenndi leikstjóri Albert Maysles verður heiðursgestur Heimildarmyndarhátíðarinnar Skjaldborgar þetta árið. Maysles er einn af kunnustu heimildarmyndagerðarmönnum samtímans og hefur ásamt bróður sínum og helsta samstarfsmanni David Maysles haft gríðarleg áhrif í faginu.

Páll Rósinkranz dæmir rokkarana í Bandinu

Páll Rósinkranz verður gestadómari í Bandinu hans Bubba annað kvöld. Páll er flestum hnútum kunnugur í rokkinu, en hann hefur farið fyrir rokksveitinni Jet Black Joe í hálfan annan áratug. Lítið hefur farið fyrir henni undanfarin ár, en á meðan hefur Páll fóstrað sólóferil sinn og mokað út plötum.

Amy hellir upp á fyrir paparassana

Eiturlyfin hafa ekki þurrkað upp góðmennskuna hjá Amy Winehoue. Á dögunum beið, eins og svo oft áður, hópur ljósmyndara fyrir utan heimili hennar í London. Kalt var í veðri, og skulfu paparassarnir á beinunum í vorloftinu.

Aron Pálmi ánægður í eigin íbúð

Aron Pálmi Ágústsson, sem kom hingað til lands í sumar, eftir 10 ára refsivist í Bandaríkjunum, segir að vel gangi að aðlagast Íslandi. Aron starfar nú á Fannborg,

Úthaldið skiptir ekki öllu í kynlífinu

Kynlífsfræðingar í Bandaríkjunum hafa lagst í ítarlegar rannsóknir á kynlífsvenjum þar í landi og hafa þeir nú komist að því að ákjósanlegur tími til að verja í kynmök sé á bilinu þrjár til þrettán mínútur í senn.

Sex leikarar túlkuðu Dylan

Dylan hefur verið heilmikið í sviðsjósinu undanfarið ár. Í ársbyrjun sýndi Græna ljósið nýja kvikmynd, I'M NOT THERE, um lífshlaup Dylan eftir Todd Haynes þar sem mismunandi æviskeið hans eru túlkuð af sex mismunandi leikurum, þar á meðal Cate Blanchett, Christian Bale, Heath Ledger og Richard Gere.

Árni las fyrir börnin

Árni Sigfússon bæjarstjóri Reykjanesbæjar heimsótti í morgun börnin á leikskólanum Tjarnarseli og las fyrir þau söguna af Gullbrá og birnunum þremur.

Umfangsmesta aprílgabb gærdagsins

Bílasalan Bílamarkaðurinn í Kópavogi átti sennilega besta aprílgabbið í ár. Þröstur Karelsson sölustjóri Bílamarkaðsins segir að ákveðið hefði verið að setja hálfsíðu auglýsingu í Fréttablaðið og var hönnuð heimasíða í tilefni þess að nýr fjármögnunaraðili í bílalánum væri komin á Íslenskan markað, Brabus Invest sem byði Íslendingum uppá bílalán á þýskum 4.15% vöxtum, með m.a. möguleika á að taka gamla lánið upp í.

Fékk nokkur símtöl vegna snekkju Saddams

Glögga lesendur Vísis hefur líkast til grunað að ekki væri allt satt og rétt í frétt okkar um að snekkja Saddams Hussein væri lögst við bryggju í Sundahöfn, og að Al Gore myndi gista þar á meðan hann dveldi á landinu.

Spikaður Gillz í kynþokkafyllsta myndbandi sögunnar

„Ég hef aldrei verið feitari, 95 kíló með sjö prósent fitu,“ segi Egill Gillzenegger Einarsson. „Mér líður eins og offitusjúklingi“. Það er að sögn Gillz nágranni hans sem ber sökina.

Þriggja ára afmæli Techno.is

Laugardagskvöldið 5. apríl mun Techno.is halda upp á 3ja ára afmæli sitt á Nasa við Austurvöll og í tilefni dagsins er aðgangur ókeypis.

Dita von Teese í lesbískri klámmynd

Burlesque dansarinn og fyrirsætan Dita Von Teese á sér skrautlega fortíð. Að minnsta kosti ef marka má klámmynd sem dúkkaði upp á yfirborðið fyrir skemmstu.

Idol keppandi fluttur á sjúkrahús

American Idol keppandinn David Cook var fluttur á sjúkrahús í gær eftir að þættinum lauk. Cook hafði liðið illa um daginn, en snarversnaði eftir flutning sinn. Sjúkraliðar á staðnum skoðuðu Cook og komust að þeirri niðurstöðu að hann væri með allt of háan blóðþrýsting og þjáðist af hjartsláttartruflunum.

Ásdísi boðið að hanna gallabuxnalínu

Aðstandendur keppninnar Is She Hot staðfestu í nótt það sem marga hafði grunað. Ásdís Rán hafði unnið þessa lotu Is She Hot? keppninnar, og þar með öðlast þáttökurétt í áströlskum raunveruleikaþætti, þar sem sigurlaunin eru milljón dollarar.

Beyonce og Jay-Z upp að altarinu innan 60 daga

Beyonce og Jay-Z ætla að láta pússa sig saman innan tveggja mánaða. Samkvæmt heimildum People sótti parið um giftingarpappíra í New York í gærmorgun, en þeir gilda í sextíu daga.

Ólafur Ragnar bjargaði okkur úr kolabingnum

Í forsetatíð sinni hefur Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, verið í forystu um að umbreyta orkunotkun Íslendinga. Áður en hann tók við embætti voru aðalorkugjafar landsins kol og gas en í hans tíð hefur verið skipt yfir í endurnýjanlega orkugjafa á borð við vatnsafl og háhita. Frá þessu er greint á fréttavef CNN í gær, fyrsta apríl en ekki mun vera um gabb að ræða.

Goðsögnin DJ Sammy á Íslandi

Flass 104,5 kynna með stolti einn sögufrægasta plötusnúð allra tíma, DJ SAMMY á Íslandi. Dj Sammy er maðurinn sem færði okkur lög eins og Heaven og Boys of Summer mun koma til Íslands og spila á þrennum tónleikum á vegum Steríó.

Taka lagið fyrir hakk og spagettí

Fólk þarf ekki að svelta þó hart sé í ári. Á Prikinu má til dæmis fá magafylli af rjúkandi hakki og spaghetti - ef maður tekur lagið.

Andrea Róberts á von á barni

Sjónvarpskonan og háskólaneminn Andrea Róbertsdóttir og kærasti hennar, Jón Þór Eyþórsson, verkefnastjóri hjá Senu og útgáfustjóri Cod Music, eiga von á sínu fyrsta barni. Andrea er komin átján vikur á leið, og kemur barnið því að öllum líkindum í heiminn í byrjun september.

Paul McCartney slakar á með nýju kærustunni

Paul McCartney virtist hafa tekið gleði sína á ný þar sem hann slakaði á með nýju ástinni sinni á strönd á Antigua. Þangað flaug hann til að hitta kærustuna, Nancy Shevell, nokkrum dögum eftir að skilnaðarmáli hans og Heather Mills lauk í Lundúnum.

Verður spennandi að sjá hvort Ísland komist áfram

„Við vorum búnar að bóka okkur í þetta í maí og svo er það bara hrifsað af manni korter í keppni,“ segir Sigrún Birna Blomsterberg ein af fjórum dönsurum sem tóku þátt í að sigra undankeppnina í Eurovision með lagið, This is my life. Búið er að taka ákvörðun um að henda stelpunum fjórum út úr atriðinu í stað fjögurra bakraddarsöngvara.

Sjá næstu 50 fréttir