Fleiri fréttir Hausthreinsun með safakúr Þeir eru ófáir sem nota haustið til að efna gömul heit og byrja í líkamsrækt eða á hollu mataræði. Fyrir þá sem vilja rífstarta haustinu er tilvalið að taka léttan detox-kúr. Hildur Guðmundsdóttir, eigandi Yggdrasils, benti á safaföstu sem góðan valkost. 23.8.2007 08:30 Góð kynning í New York Fatahönnuðurinn Steinunn Sigurðardóttir, sem hlaut nýverið norrænu hönnunarverðlaunin Gínuna, snýr heim frá New York í dag. Þar var hún stödd til að koma haustlínu sinni fyrir í versluninni Takashimaya á Fifth Avenue. „Þeir voru að kynna línuna mína núna á þriðjudaginn,“ útskýrði Steinunn. 23.8.2007 08:15 Óþrjótandi möguleikar EVE „Fyrir mig sem fræðimann er þetta ekki tölvuleikur heldur rannsóknarstofa. Þarna eru tvö hundruð þúsund einstaklingar sem haga sínum viðskiptum eins og þeir væru raunverulegir og því er um að ræða óendanlega möguleika á því að að rannsaka hagkerfi og hvernig fólk hagar sér innan þess," segir Dr. Eyjólfur Guðmundsson en hann hefur verið ráðinn yfirhagfræðingur yfir hagkerfi EVE online. 23.8.2007 08:00 Bourne kemst nær Minnislausi njósnarinn Jason Bourne snýr aftur í þriðju myndinni en hún var frumsýnd í gær. Að þessu sinni virðist eitthvað vera farið að rofa til hjá honum því í síðustu tveimur myndum hefur Bourne fengið einhver svör um hvaðan hann er og hver hann var en þetta hefur ekki reynst honum fullnægjandi. 23.8.2007 08:00 Robbie í góðu formi Söngvarinn Robbie Williams þykir sjaldan eða aldrei hafa litið betur út og er að sögn kunnugra í sínu besta formi. Ástæðan fyrir bættu heilsufari söngvarans mun fyrst og fremst vera nýja kærastan, Clare Staples, sem ku sjá til þess að Robbie passi upp á mataræðið, hreyfi sig reglulega og smakki ekki dropa af áfengi. 23.8.2007 08:00 Bragi í Ameríku Edda útgáfa hefur gert samning við forlagið Open Letter í Bandaríkjunum um útgáfu á Gæludýrunum eftir Braga Ólafsson. Kemur sagan út þar haustið 2008. Open Letter, sem er nýtt forlag í eigu Rochester- háskóla, gefur út þýddar samtímabókmenntir fyrir hinn enskumælandi heim. 23.8.2007 07:30 Löng leið niður Ewan McGregor og Charlie Boorman eru komnir á leiðarenda eftir 24 þúsund kílómetra langa hjólaferð. 23.8.2007 07:00 Seacrest í stað O"Brien American Idol-kynnirinn Ryan Seacrest verður kynnir á Emmy-verðlaunahátíðinni sem verður haldin í Hollywood í næsta mánuði. Tekur hann við kyndlinum af spjallþáttastjórnandanum Conan O"Brien sem var kynnir í fyrra. 23.8.2007 07:00 Frumsamið R&B á Gauknum Hljómsveitin Soul 7 heldur tónleika á Gauki á Stöng í kvöld. Leikin verða frumsamin lög eftir söngkonuna Katrínu Ýr Óskarsdóttur og Katherine Dawes, samnemanda Katrínar í tónlistarskóla í London. Einnig verða leikin þekkt R&B lög með blús-, fönk- og gospelívafi. 23.8.2007 07:00 Syngja til heiðurs George Michael Söngvararnir Friðrik Ómar og Jógvan Hansen verða aðalnúmerin á skemmtisýningu á Broadway til heiðurs George Michael og hljómsveitinni Wham! Sýningin hefst þann 27. október og verður öllu tjaldað til. „Þetta verður flottasta „sjóvið“ sem hefur verið sett þarna upp,“ segir Friðrik Ómar, sem er mikill aðdáandi George Michael. 23.8.2007 06:45 Endurnærðir Papar snúa aftur Paparnir ætla að dusta rykið af hljóðfærunum eftir gott frí og spila á nokkrum vel völdum stöðum frá 24. ágúst til 19. október. Þeir hafa ekkert komið fram síðan 18. apríl og eru því orðnir verulega endurnærðir. 23.8.2007 06:45 Viljum að fólk hristi búkinn Fjórða hljóðversplata hljómsveitarinnar Jagúar, Shake it good, kom út um helgina. Vignir Guðjónsson ræddi við Samúel J. Samúelsson um gripinn. Hljómsveitin Jagúar fagnaði níu ára afmæli sínu með pomp og prakt um helgina og hélt vel heppnaða afmælis- og útgáfutónleika á Organ á laugardagskvöld. 23.8.2007 06:30 Fyrirbyggjum flensusmit Nú styttist í að flensan fari að herja á landsmenn. Til eru fyrirbyggjandi aðgerðir til að forðast flensusmit þó engin þeirra sé 100 prósent örugg. Besta leiðin til að forðast flensu og kvef er að lifa heilbrigðu lífi og borða holla fæðu. Þá er rétt að forðast stress, svefnleysi og að keyra sig út á vinnu en slíkt getur veikt ónæmiskerfið. 23.8.2007 06:00 Richards og Ronnie reykja í London Tveir meðlimir The Rolling Stones, þeir Keith Richards og Ronnie Wood, virtu reykingabann að vettugi og kveiktu sér í sígarettum á tónleikum í London fyrir skömmu. 23.8.2007 05:45 Heilsuakademíunnar hollráð Nokkrar skemmtilegar staðreyndir um mat og næringu. 23.8.2007 05:00
Sjá næstu 50 fréttir
Hausthreinsun með safakúr Þeir eru ófáir sem nota haustið til að efna gömul heit og byrja í líkamsrækt eða á hollu mataræði. Fyrir þá sem vilja rífstarta haustinu er tilvalið að taka léttan detox-kúr. Hildur Guðmundsdóttir, eigandi Yggdrasils, benti á safaföstu sem góðan valkost. 23.8.2007 08:30
Góð kynning í New York Fatahönnuðurinn Steinunn Sigurðardóttir, sem hlaut nýverið norrænu hönnunarverðlaunin Gínuna, snýr heim frá New York í dag. Þar var hún stödd til að koma haustlínu sinni fyrir í versluninni Takashimaya á Fifth Avenue. „Þeir voru að kynna línuna mína núna á þriðjudaginn,“ útskýrði Steinunn. 23.8.2007 08:15
Óþrjótandi möguleikar EVE „Fyrir mig sem fræðimann er þetta ekki tölvuleikur heldur rannsóknarstofa. Þarna eru tvö hundruð þúsund einstaklingar sem haga sínum viðskiptum eins og þeir væru raunverulegir og því er um að ræða óendanlega möguleika á því að að rannsaka hagkerfi og hvernig fólk hagar sér innan þess," segir Dr. Eyjólfur Guðmundsson en hann hefur verið ráðinn yfirhagfræðingur yfir hagkerfi EVE online. 23.8.2007 08:00
Bourne kemst nær Minnislausi njósnarinn Jason Bourne snýr aftur í þriðju myndinni en hún var frumsýnd í gær. Að þessu sinni virðist eitthvað vera farið að rofa til hjá honum því í síðustu tveimur myndum hefur Bourne fengið einhver svör um hvaðan hann er og hver hann var en þetta hefur ekki reynst honum fullnægjandi. 23.8.2007 08:00
Robbie í góðu formi Söngvarinn Robbie Williams þykir sjaldan eða aldrei hafa litið betur út og er að sögn kunnugra í sínu besta formi. Ástæðan fyrir bættu heilsufari söngvarans mun fyrst og fremst vera nýja kærastan, Clare Staples, sem ku sjá til þess að Robbie passi upp á mataræðið, hreyfi sig reglulega og smakki ekki dropa af áfengi. 23.8.2007 08:00
Bragi í Ameríku Edda útgáfa hefur gert samning við forlagið Open Letter í Bandaríkjunum um útgáfu á Gæludýrunum eftir Braga Ólafsson. Kemur sagan út þar haustið 2008. Open Letter, sem er nýtt forlag í eigu Rochester- háskóla, gefur út þýddar samtímabókmenntir fyrir hinn enskumælandi heim. 23.8.2007 07:30
Löng leið niður Ewan McGregor og Charlie Boorman eru komnir á leiðarenda eftir 24 þúsund kílómetra langa hjólaferð. 23.8.2007 07:00
Seacrest í stað O"Brien American Idol-kynnirinn Ryan Seacrest verður kynnir á Emmy-verðlaunahátíðinni sem verður haldin í Hollywood í næsta mánuði. Tekur hann við kyndlinum af spjallþáttastjórnandanum Conan O"Brien sem var kynnir í fyrra. 23.8.2007 07:00
Frumsamið R&B á Gauknum Hljómsveitin Soul 7 heldur tónleika á Gauki á Stöng í kvöld. Leikin verða frumsamin lög eftir söngkonuna Katrínu Ýr Óskarsdóttur og Katherine Dawes, samnemanda Katrínar í tónlistarskóla í London. Einnig verða leikin þekkt R&B lög með blús-, fönk- og gospelívafi. 23.8.2007 07:00
Syngja til heiðurs George Michael Söngvararnir Friðrik Ómar og Jógvan Hansen verða aðalnúmerin á skemmtisýningu á Broadway til heiðurs George Michael og hljómsveitinni Wham! Sýningin hefst þann 27. október og verður öllu tjaldað til. „Þetta verður flottasta „sjóvið“ sem hefur verið sett þarna upp,“ segir Friðrik Ómar, sem er mikill aðdáandi George Michael. 23.8.2007 06:45
Endurnærðir Papar snúa aftur Paparnir ætla að dusta rykið af hljóðfærunum eftir gott frí og spila á nokkrum vel völdum stöðum frá 24. ágúst til 19. október. Þeir hafa ekkert komið fram síðan 18. apríl og eru því orðnir verulega endurnærðir. 23.8.2007 06:45
Viljum að fólk hristi búkinn Fjórða hljóðversplata hljómsveitarinnar Jagúar, Shake it good, kom út um helgina. Vignir Guðjónsson ræddi við Samúel J. Samúelsson um gripinn. Hljómsveitin Jagúar fagnaði níu ára afmæli sínu með pomp og prakt um helgina og hélt vel heppnaða afmælis- og útgáfutónleika á Organ á laugardagskvöld. 23.8.2007 06:30
Fyrirbyggjum flensusmit Nú styttist í að flensan fari að herja á landsmenn. Til eru fyrirbyggjandi aðgerðir til að forðast flensusmit þó engin þeirra sé 100 prósent örugg. Besta leiðin til að forðast flensu og kvef er að lifa heilbrigðu lífi og borða holla fæðu. Þá er rétt að forðast stress, svefnleysi og að keyra sig út á vinnu en slíkt getur veikt ónæmiskerfið. 23.8.2007 06:00
Richards og Ronnie reykja í London Tveir meðlimir The Rolling Stones, þeir Keith Richards og Ronnie Wood, virtu reykingabann að vettugi og kveiktu sér í sígarettum á tónleikum í London fyrir skömmu. 23.8.2007 05:45
Leyndarmálið afhjúpað Fyrirtækið Græna ljósið hefur tryggt sér útgáfuréttinn á kvikmyndinni The Secret með íslenskri talsetningu og texta. „Ég hef ekki séð aðra eins spennu og eftirspurn eftir nokkrum DVD-diski hér á landi,“ segir Ísleifur B. Þórhallsson, framkvæmdastjóri Græna ljóssins ,um The Secret. 23.8.2007 05:00
Mood með tónleika Bergþór Smári, sem vakti athygli í síðustu Eurovision-keppni með laginu Þú gafst mér allt, spilar með hljómsveit sinni Mood á Næsta bar í kvöld. Mood var stofnuð árið 2003 og er skipuð, auk Bergþórs, þeim Inga Skúlasyni, bassaleikara Jagúars, og trommaranum Friðriki Júlíussyni. 23.8.2007 05:00
Varhugavert rúsínuát smábarna Smábörn eru sólgin í rúsínur og þykir gaman að tína þær upp í sig. Nú hefur komið á daginn að börn yngri en þriggja ára beri að varast rúsínur í miklum mæli. 23.8.2007 04:00
Sölumet slegin VW slær sölumet sjöunda mánuðinn í röð. Sala hefur aukist mikið á fyrstu sjö mánuðum ársins hjá Volkswagen-samstæðunni. Sett var sölumet í júlí þegar seldust 522 þúsund bílar, sem er 10,2% söluaukning miðað við sama mánuð í fyrra. 23.8.2007 04:00
Bara Dodge-merkið uppi Ólafur Rögnvaldsson veðurfræðingur ekur um á athyglisverðum bíl sem hann hefur látið breyta eftir sínu höfði. 23.8.2007 03:00
Fólat lengir lífið Mikilvægi B-vítamínsins fólats ætti öllum sem aðhyllast heilsusamlegt mataræði og heilbrigt líferni. 23.8.2007 02:30
Brostu bara breiðar Kristín Ólafsdóttir leikskólakennari á Selfossi þarf ekki langt að fara til að gæða sér á gómsætum og safaríkum kirsuberjum. Í gróðurhúsinu hennar svigna greinar trés undan slíkum gersemum. 23.8.2007 02:00
Fólkið sem meiddist við tökur á nýjustu mynd Tom Cruise hótar því að fara í mál Statistarnir sem meiddust við tökur á Valkyrie, nýjustu mynd Tom Cruise, hóta því að fara í mál við framleiðendur myndarinnar. Lögmaður þeirra Ariane Bluttner segir að ef hinir særðu fái ekki umsvifalaust bætur muni þeir fara í mál. 22.8.2007 17:15
Astrópía frumsýnd í kvöld Frumsýning á myndinni Astrópíu fer fram í Sambíóunum Álfabakka í kvöld. Ottó Geir Borg og Jóhann Ævar Grímsson skrifuðu handritið. Gunnar Björn Guðmundsson leikstýrir myndinni og framleiðendur eru þeir Ingvar Þórðarson og Júlíus Kemp. 22.8.2007 16:46
Britney hætti við að syngja með Timberlake Samkvæmt heimildum Page Six hugðist Justin Timberlake reyna að aðstoða fyrrum kærustu sína Britney Spears við að hleypa glæðum æ dapurlegri feril hennar með því að bjóða henni að syngja með sér dúett. Timberlake á að hafa samið sérstakt lag að því tilefni og voru umboðsmenn Britneyjar yfir sig hrifnir. 22.8.2007 15:43
Geir Ólafs keyrir um á Range Rover Glöggir vegfarendur hafa tekið eftir að söngvarinn og athafnamaðurinn geðþekki Geir Ólafs ekur um bæinn á flottum dökkbláum Range Rover. Geir hefur nýlega stofnað plötufyrirtæki og sagði í samtali við Vísi að bíllinn, sem er rúm 300 hestöfl, væri hluti af ímyndinni. 22.8.2007 15:24
Rammíslensk fiðla í rammíslensku safni Sunnudaginn 26. ágúst er komið að síðustu stofutónleikum Gljúfrasteins í sumar. Á þeim munu þau Guðný Guðmundsdóttir, fiðluleikari og Gerrit Schuil, píanóleikari flytja verk eftir Ludwig van Beethoven og Fritz Kreisler. Guðný mun auk þess vígja nýja fiðlu sem smíðuð var á Íslandi af Hans Jóhannssyni fiðlusmiði. 22.8.2007 14:36
Lindsay gæti sloppið við fangelsisvist Samkvæmt heimildum TMZ.com gæti verið að Lindsay Lohan slyppi við fangelsisvist vegna fíkniefnabrota sem hún hefur verið kærð fyrir. Kærurnar snúa að tveimur nýlegum handtökum vegna aksturs leikkonunnar undir áhrifum áfengis og fíkniefna sem fundust í fórum hennar. 22.8.2007 13:57
Pitt gagnrýnir hægfara uppbyggingu í kjölfar Katrínar Hollywoodleikarinn Brad Pitt segir að uppbygging í New Orleans, eftir að fellibylurinn Katrín fór þar yfir fyrir um tveimur árum, sé allt of hæg en bylurinn olli mikilli eyðileggingu á svæðinu. 22.8.2007 12:31
Perez Hilton mælir með Hafdísi Huld Einn frægasti og vinsælasti bloggari heims, slúðurberinn Perez Hilton, fer fögrum orðum um tónlist Hafdísar Huldar á heimasíðu sinni. Perez hefur sérhæft sig í slúðri af ríka og fræga fólkinu í Bandaríkjunum og víðar og sækja milljónir manna síðu hans daglega. 22.8.2007 12:06
Megas í fyrsta sinn í Höllinni Laugardaginn 13. október næstkomandi mun tímabótaviðburður eiga sér stað í íslensku tónlistarlífi þegar Megas stígur á stokk í Laugardalshöllinni og heldur sína allra fyrstu stórtónleika ásamt Senuþjófunum. 22.8.2007 10:51
Leit að Nylon stúlku slegin af Ekkert verður af fyrirhuguðum sjónvarpsþætti Nylon flokksins á Stöð 2 Sirkuss í haust eins og efni stóðu til. Búið var að gera samkomulag um raunveruleikaþætti sem áttu að fjalla um fyrirhugaðar áheyrnarprufur hjá Nylon og upptökur erlendis í kjölfarið. Ástæða þess að hætt er við þættina er sú að stúlkurnar vilja ekki bæta meðlimi við flokkinn eftir vel heppnaða framkomu á Kaupþingstónleikunum á föstudaginn síðastliðinn. 22.8.2007 09:54
Skammbyssa Presleys fannst á kamri Skammbyssa, sem stolið var úr After Dark safninu sem tileinkað er Elvis Presley, fannst á kamri fyrir utan safnið. Ræstingarmaðurinn Janitor Travis Brookins fann byssuna þegar hann var að þrífa kamarinn. Byssan var tekin úr sýningarkassa á safninu í Graceland þann 16. ágúst síðastliðinn þegar fjöldi fólks var þar saman kominn til að minnast þess að 30 ár voru liðin frá dauða rokkkóngsins. 22.8.2007 09:12
Donald Trump réttir partígellum hjálparhönd Það má segja að þeim Britney Spears, Linsay Lohan og Paris Hilton veiti ekki af hjálparhönd. Nú hefur boð um hjálp borist úr ólíklegustu átt. Donald Trump mun nefnilega vera að falast eftir því að fá þær í stjörnuútgáfu af sjónvarpsþætti sínum The Apprentice. 21.8.2007 16:55
Samið um kvikmyndarétt á Fólkinu í kjallaranum Kvikmyndaframleiðslufélagið Túndra undirritaði í gær samning við Auði Jónsdóttur og Eddu útgáfu um kaup á réttindum til að gera kvikmynd eftir bókinni Fólkið í kjallaranum eftir Auði. 21.8.2007 16:10
Nóg af þingmönnum í Vesturbænum Ágúst Ólafur Ágústson, þingmaður Samfylkingarinnar, er búinn að setja hús sitt í Vesturbænum á sölu og hyggst flytja í draumahúsið í Rauðagerði sem hann festi kaup á í sumar. 21.8.2007 15:34
Mel B ver bónda sinn Kryddpían Mel B hefur nú í fyrsta skipti tjáð sig um þann orðróm að hinn nýbakaði eiginmaður hennar sé ofbeldismaður. Kvikmyndaframleiðandinn, Stephen Belafonte, hlaut skilorðsbundinn dóm árið 2003 fyrir að leggja hendur á fyrrverandi eiginkonu sína Nicole Contreras og var auk þess gert að sitja námskeið fyrir menn sem beita heimilisofbeldi. 21.8.2007 14:33
Keira gagnrýnir þá sem sækjast eftir frægð Pirates of the Caribbean stjarnar, Keira Knightley, hefur ráðlagt þeim sem sækjast eftir frægð og frama að sækja frekar um vinnu á hlutabréfamörkuðum. "Það vekur ugg hjá mér þegar krakkar segjast vilja verða frægir," sagði hin 22 ára gamla leikkona í viðtali við Radio Times. 21.8.2007 13:47
Tvö hundruð manna afmælisveisla fyrir eins árs dóttur Önnu Nicole Smith Þegar er farið að skipuleggja eins árs afmælisveislu Dannielynn Hope Marshall Birkhead dóttur Önnu Nicole Smith en hún fagnar fyrst afmælisdegi sínum í næsta mánuði. 21.8.2007 11:37
Miðasala hefst á forhlustunartónleika Sprengjuhallarinnar Sprengjuhöllin heldur forhlustunartónleika á tónleikastaðnum ORGAN í Hafnarstræti laugardaginn 1. september í tilefni af því að upptökum er að ljúka á fyrstu breiðskífu hljómsveitarinnar. 21.8.2007 10:53
Er Jen ástfangin? Mikil óvissa ríkir um ástarlíf Jennifer Aniston þessa dagana. Hún virðist þó hamingjusöm og það er nú fyrir öllu. Sá sem kætir stúlkuna er módelið Paul Sculfor en mánuðum saman hafa verið uppi getgátur um að þau séu par. Jennifer heldur því þó staðfastlega fram að þau séu einungis góðir vinir. 21.8.2007 10:34
K-Fed í One Tree Hill K-fed, hinn illa þokkaði fyrrverandi eiginmaður Britney Spears, ætlar að leika í þætti af One Tree Hill. Honum hefur í gegnum tíðina verið legið á hálsi fyrir að gera lítið annað en að mergsjúga digra sjóði Spears til að fjármagna meðal annars misheppnaðan tónlistarferil. 21.8.2007 09:15
Skammbyssu Elvis stolið úr After dark safninu Skammbyssu sem var í eigu rokkkóngsins Elvis Presley var stolið úr After dark safninu í Graceland sem tileinkað er söngvaranum. Byssunni var stolið þann 16. ágúst síðastliðinn þegar fjöldi fólks var þar saman kominn til að minnast þess að þrjátíu ár voru liðin frá dauða kóngsins. 21.8.2007 09:15
Pavarotti þarf að gangast undir frekari rannsóknir Óperusöngvarinn Luciano Pavarotti mun þurfa að dvelja áfram á spítala til að gangast undir krabbameinsrannsóknir. Tenórinn var fluttur á spítala í Mondena á Ítalíu fyrir tveimur vikum með mikinn hita. Skömmu síðar bárust fregnir af því að það ætti að útskrifa hann en nú vilja læknar halda honum lengur. 21.8.2007 09:14
Eivör Pálsdóttir á Ormsteiti Ormsteiti er tíu daga hátíð sem haldin er á Héraði, og hluti af þeirri hátíð er skógardagurinn, sem fór að sjálfsögðu fram í Hallormstaðaskógi. Þar söng Eivör Pálsdóttir, eins og henni einni er lagið, fyrir hátt í sexhundruð manns. 20.8.2007 20:19