

Stuðningsmaður hljóp inn á Selhurst Park á meðan leik Crystal Palace og Manchester United stóð og tók mynd af sér með Casemiro, miðjumanni United.
Davide Nicola er „nýr“ þjálfari ítalska félagsins Salernitana sem er ótrúlegt vegna þess að hann var rekinn í byrjun vikunnar.
Alex Greenwood er mikilvægur leikmaður hjá knattspyrnuliði Manchester City og hún passaði upp á það að forráðamenn félagsins gerðu sér örugglega grein fyrir því.
Danmerkurmeistarar FC Kaupmannahafnar höfnuðu tilboði Red Bull Salzburg í íslenska landsliðsmanninn Hákon Arnar Haraldsson.
Annað árið í röð var Manchester City það knattspyrnufélag sem bjó til mestar heildartekjur af félögum heimsins en þetta kemur fram í árlegri úttekt Deloitte.
Sif Atladóttir segir að dómurinn í máli Söru Bjarkar Gunnarsdóttur gegn Lyon geti haft svipuð áhrif og Bosman-dómurinn frægi.
Sádi-arabíski fasteignamógúllinn Mushref Al-Ghamdi hefur greitt andvirði 370 milljóna íslenskra króna fyrir miða á fótboltaleik í kvöld. Miðanum fylgja nefnilega ýmis konar fríðindi.
Sigurður Gísli Bond Snorrason, fyrrverandi leikmaður Aftureldingar, segir það hafa verið heimskulegt af sér að veðja á sína eigin knattspyrnuleiki. Strangt til tekið vissi hann að þetta væri ólöglegt en hann segist aldrei hafa labbað inn á knattspyrnuvöll með neitt annað hugarfar en að vinna leikinn.
Manchester United var hársbreidd frá því að vinna enn einn leikinn árið 2023. Það var aðeins þökk sé draumamarki Michael Olise í uppbótartíma sem Crystal Palace nældi í stig á heimavelli sínum Selhurst Park.
Úrslit ítalska ofurbikarsins, þar sem lands- og bikarmeistarar Ítalíu mætast, fór fram í Riyadh í Sádi-Arabíu í kvöld. Fór það svo að Inter vann öruggan 3-0 sigur á nágrönnum sínum í AC Milan.
Sverrir Ingi Ingason var í byrjunarliði PAOK sem vann 2-0 sigur á Panathinaikos í fyrri viðureign liðanna í grísku bikarkeppninni í fótbolta.
Norska úrvalsdeildarliðið Brann hefur áhuga á íslenska landsliðsmanninum Aroni Elísi Þrándarsyni.
Luis Suarez var fljótur að minna á sig í fyrsta leik sínum með brasilíska félaginu Gremio.
Bandaríska ofurstjarnan Megan Rapinoe hefur sent Lyon tóninn fyrir það hvernig félagið kom fram við Söru Björk Gunnarsdóttur.
Geggjað mark Marcin Oleksy er eitt af þeim mörkum sem koma til greina sem mark ársins hjá Alþjóða knattspyrnusambandinu.
Sigur íslensku knattspyrnukonunnar Söru Bjarkar Gunnarsdóttur í máli hennar gegn fyrrverandi félagi hennar, Lyon, er að flestra mati tímamótasigur í réttindum leikmanna um fæðingarorlof og hefur vakið mikla athygli í erlendum miðlum sem og hér á landi.
Opta tölfræðiþjónustan hefur lagst í mikla útreikninga og fundið út líkurnar hjá hverju liðanna tuttugu í ensku úrvalsdeildinni til að enda í ákveðnu sæti deildarinnar í vor.
Áhorfendum í Bretlandi brá sjálfsagt í brún í gærkvöld þegar háværar stunur heyrðust á meðan að Gary Lineker og félagar ræddu í beinni útsendingu um bikarleik Liverpool og Wolves sem var þá að hefjast.
Leikmannasamtökin FIFPRO segja að sigur Söru Bjarkar Gunnarsdóttur í máli hennar gegn fyrrverandi félagi hennar, Lyon, sé tímamótasigur í réttindum leikmanna um fæðingarorlof. Félaginu var gert að greiða Söru vangoldin laun frá því að hún var ófrísk.
Franska knattspyrnufélagið Lyon sendi frá sér fréttatilkynningu fyrr í kvöld þar sem félagið svarar gagnrýni Söru Bjarkar Gunnarsdóttur. Sara skrifaði langa grein á vefsíðunni The Players Tribune þar sem hún segir frá því hvað gerðist þegar hún varð ólétt og hvernig Lyon tók á því, en félagið segist hafa gert allt sem í þeirra valdi stóð til að styðja við hana.
Napoli, topplið ítölsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta, er fallið úr leik ítölsku bikarkeppninnar Coppa Italia eftir tap gegn botnliði deildarinnar, Cremonese, í vítaspyrnukeppni.
Tryggvi Hrafn Haraldsson, knattspyrnumaður úr Val, vonast til að vera farinn að æfa og geta mögulega spilað fyrsta leik liðsins í Bestu deildinni í vor þrátt fyrir að hafa ristarbrotnað á dögunum.
Harvey Elliott skoraði eina mark leiksins er Liverpool tryggði sér sæti í fjórðu umferð FA-bikarsins með 1-0 útisigri gegn Wolves í kvöld.
Stuðningsmaður Tottenham sem gerði sér ferð að endalínu vallarins til þess eins að sparka í Aaron Ramsdale, markvörð Arsenal, eftir tap Tottenham í Lundúnaslagnum síðastliðinn sunnudag hefur verið ákærður fyrir líkamsárás.
Rúnar Alex Rúnarsson og félagar hans í Alanyaspor eru úr leik í tyrknesku bikarkeppninni í fótbolta eftir að liðið tapaði 2-1 gegn toppliði tyrknesku úrvalsdeildarinnar Galatasaray í kvöld.
Jón Dagur Þorsteinsson skoraði eina mark OH Leuven er liðið þurfti að sætta sig við 1-1 jafntefli gegn Eupen í belgísku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.
INEOS, fyrirtæki breska milljarðamæringsins og Íslandsvinarins Sir Jim Ratcliffe, hefur formlega verið skráð sem áhugasamur kaupandi enska úrvalsdeildarfélagsins Manchester United.
Forseti franska knattspyrnusambandsins, Noël Le Graët, er til rannsóknar vegna kynferðislegrar áreitni.
Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrrverandi landsliðsfyrirliði, hefur svipt hulunni af því sem gerðist hjá Lyon þegar hún varð ólétt og eftir að hún eignaðist son sinn. Lyon borgaði henni ekki laun eftir að hún varð ólétt og framkvæmdastjóri Lyon sagði að ef hún færi með málið til FIFA ætti hún sér enga framtíð hjá félaginu.
Knattspyrnumaður sem spilaði með Aftureldingu í næstu efstu deild Íslandsmótsins sumarið 2022 veðjaði á hundruð knattspyrnuleikja hér á landi á sama sumar. Meðal annars leiki sem hann spilaði.
Vincent Kompany, knattspyrnustjóri Burnley, nýtur þess út í ystu æsar að vinna með Jóhanni Berg Guðmundssyni.
Íslandsmeistarar Vals unnu 13-0 sigur gegn Fram í fyrsta leiknum í Reykjavíkurmóti kvenna í fótbolta síðastliðinn föstudag. Sigurinn stendur, þrátt fyrir að Valur hafi teflt fram tveimur ólöglegum leikmönnum.
Hollenski markvörðurinn Guy Smit spilar með ÍBV í Bestu deild karla í sumar.
Spænska knattspyrnufélagið Sevilla hefur upplifað mun betri tíma en þá sem leikmenn og stuðningsmenn þurfa að ganga í gegnum þessa dagana.
Knattspyrnusamband Íslands styður sameiginlega umsókn Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar um að halda EM kvenna eftir tvö ár.
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, ætlar ekki að hætta hjá félaginu nema honum verði gert að gera það.
Kvennalið ÍBV hefur gert samning við kanadíska framherjann Holly O'Neill sem mun spila með Eyjaliðinu í Bestu deildinni í sumar.
Íslendingaliðið Rosenborg í norsku kvennadeildinni hefur fengið á sig gagnrýni fyrir að tíma ekki að bjóða kvennaliði sínu upp á það sama og karlaliðið fær.
Gyrðir Hrafn Guðbrandsson er genginn í raðir FH frá Leikni R. og mun því halda áfram að spila í Bestu deildinni í fótbolta á komandi leiktíð.
Ofurtölvan fræga hefur nú spáð fyrir um lokastöðuna í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta út frá því hvernig hún telur að seinni hluti tímabilsins muni spilast.
Fótboltasamfélagið í Sambíu hefur síðustu daga syrgt fyrrverandi landsliðsframherjann Philemon Mulala sem lést eftir að hundarnir hans réðust á hann. Hann var sextugur að aldri.
Genoa vann mikilvægan 1-0 sigur á Venezia í Serie B, næstefstu deild Ítalíu í knattspyrnu. Albert Guðmundsson var í byrjunarliði Genoa á meðan enginn Íslendingur var í leikmannahópi Venezia að þessu sinni.
Landsliðsmaðurinn Mikael Egill Ellertsson er á förum frá ítalska úrvalsdeildarfélaginu Spezia á næstu dögum. Mikael Egill var hvergi sjáanlegur þegar Spezia lagði Torino 1-0 á útivelli í gær, sunnudag.
Stuðningsmaður Tottenham sem sparkaði í markmann Arsenal í leikslok á derby-slag Tottenham og Arsenal í ensku úrvalsdeildinni er væntanlega á leiðinni í lífstíðarbann frá leikjum Tottenham liðsins.
Nokkra athygli vakti þegar bandaríski leikarinn Kevin Spacey var heiðursgestur á leik Torino og Spezia í ítölsku úrvalsdeildinni í gær.