Drauma­mark tryggði Palace stig gegn sjóðandi heitu Man United

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Leikmenn Man United eftir jöfnunarmark heimamanna.
Leikmenn Man United eftir jöfnunarmark heimamanna. Matthew Ashton/Getty Images

Manchester United var hársbreidd frá því að vinna enn einn leikinn árið 2023. Það var aðeins þökk sé draumamarki Michael Olise í uppbótartíma sem Crystal Palace nældi í stig á heimavelli sínum Selhurst Park.

Man United mætti til Lundúna vitandi það að liðið myndi fara upp í 2. sæti deildarinnar með sigri. Heimamenn eru miðja deild en eru allt annað en auðveldir heim að sækja. Það sást snemma að leikmenn gestanna voru margir hverjir heldur þreyttir en gríðarlegt leikjaálag á liðinu um þessar mundir og verður út febrúar hið minnsta.

David De Gea þurfti að taka á honum stóra sínum þegar hann varði langskot Odsonne Edouard meistaralega í þverslánna og aftur fyrir. Skömmu síðar fóru gestirnir í sókn þar sem Christian Eriksen fékk boltann inn á teig, renndi honum út á Bruno Fernandes sem tók við knettinum og lúðraði honum í netið. Staðan 0-1 í hálfleik.

Í þeim síðari vildu gestirnir fá vítaspyrnu þegar að þeirra mati var brotið á Scott McTominay innan vítateigs. Eftir að atvikið var skoðað af myndbandsdómara leiksins var ákveðið að gera ekkert og leikurinn hélt áfram. 

Það nýttu gestirnir sér og þegar ein mínúta var komin fram yfir venjulegan leiktíma jafnaði Olise með ótrúlegu marki úr aukaspyrnu, boltinn í slá og inn - algjörlega óverjandi. Til að strá salti í sárin þá fékk Casemiro - sem fékk gult spjald í leiknum og missir af leik Man United gegn Arsenal í næstu umferð - algjört dauðafæri eftir hornspyrnu skömmu síðar en náði ekki að reka fótinn í boltann. 

Lokatölur í Lundúnum 1-1 sem þýðir að Man Utd er í 3. sæti með 39 stig, jafn mörg og Manchester City sem á leik til góða en átta minna en Arsenal sem er í toppsætinu. Crystal Palace er í 12. sæti með 23 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira