Fótbolti

Mikael Egill á förum frá Spezia

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Mikael Egill í leik gegn Lazio.
Mikael Egill í leik gegn Lazio. Matteo Ciambelli/Getty Images

Landsliðsmaðurinn Mikael Egill Ellertsson er á förum frá ítalska úrvalsdeildarfélaginu Spezia á næstu dögum. Mikael Egill var hvergi sjáanlegur þegar Spezia lagði Torino 1-0 á útivelli í gær, sunnudag.

Fyrir helgi benti Fótbolti.net á að Spezia hefði fengið tvo miðjumenn inn í leikmannahóp sinn og þar af leiðandi væri ekki pláss fyrir hinn tvítuga Mikael Egil í leikmannahópi liðsins. Þetta staðfest Luca Gotti, þjálfari Spezia, fyrir sigurinn á Torino.

Samkvæmt Fótbolti.net hefur leikmaðurinn verið orðaður við lið í Hollandi sem og lið í Serie B, næstefstu deild Ítalíu.

Mikael Egill hefur komið við sögu í 11 leikjum hjá Spezia það sem af er leiktíð en hann hefur einnig leikið fyrir SPAL á Ítalíu. Þá á hann 10 A-landsleiki að baki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×