Elliott skaut Liverpool í fjórðu umferð

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Harvey Elliott reyndist hetja Liverpoolmanna í kvöld.
Harvey Elliott reyndist hetja Liverpoolmanna í kvöld. Shaun Botterill/Getty Images

Harvey Elliott skoraði eina mark leiksins er Liverpool tryggði sér sæti í fjórðu umferð FA-bikarsins með 1-0 útisigri gegn Wolves í kvöld.

Liðin mættust fyrir tíu dögum og gerðu þá 2-2 jafntefli á Anfield og því þurftu þau að mætast á nýjan leik í kvöld til að skera úr um hvort þeirra kæmist í fjórðu umferð elstu og virtustu bikarkeppni heims.

Það var nokkuð skrautleg byrjun á leiknum þegar Adama Traore var við það að senda boltann inn á teig utan af hægri kanti eftir rúmlega 30 sekúndna leik, en í þann mund sem hann ætlaði að senda boltann slökknuðu öll ljós á vellinum og fáir, ef einhverjir, sem sáu hvar sendingin endaði.

Þetta urðu sem betur fer einu tæknilegu örðuleikar kvöldsins og leikurinn hélt áfram sinn vanagang.

Það tók gestina í Liverpool ekki nema tæpar 13 mínútur að brjóta ísinn þegar Harvey Elliott boltann á miðlínunni og fékk að hlaupa óáreittur að teignum áður en hann tók eftir því að Jose Sa stóð of framarlega og kláraði snyrtilega yfir hann.

Bæði lið fengu nokkur hálffæri til að bæta við mörkum, en þetta reyndist eina mark leiksins og niðurstaðan því 1-0 sigur Liverpool sem er á leið í fjóðru umferð FA-bikarsins þar sem Brighton verður andstæðingur þeirra.

Úrslit kvöldsins

Forest Green 1-2 Birmingham

Swansea 1-2 Bristol City (eftir framlengingu)

Wigan 1-2 Luton

West Brom 4-0 Chesterfield

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira