Fótbolti

Jón Dagur skoraði í grátlegu jafntefli

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
jón Dagur Þorsteinsson skoraði eina mark OH Leuven í kvöld.
jón Dagur Þorsteinsson skoraði eina mark OH Leuven í kvöld. Plumb Images/Getty Images

Jón Dagur Þorsteinsson skoraði eina mark OH Leuven er liðið þurfti að sætta sig við 1-1 jafntefli gegn Eupen í belgísku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Jón Dagur var á sínum stað í byrjunarliði Leuven og spilaði rétt tæpar 85 mínútur úti á vinstri kanti.

Eins og áður segir skoraði Jón Dagur eina mark Leuven, en það gerði hann þegar hann kom heimamönnum í 1-0 forystu eftir tæplega hálftíma leik.

Gestirnir fengu hins vegar gullið tækifæri til að jafna metin á 87. mínútu af vítapunktinum, nýttu sér það og þar við sat. Niðurstaðan því 1-1 jafntefli.

Jón Dagur og félagar sitja nú í áttunda sæti deildarinnar með 30 stig eftir 21 leik, tíu stigum meira en Eupen sem situr í 14. sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×