Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Englendingar léku sér að Senegal og eru komnir í 8-liða úrslit England mætir heimsmeisturum Frakklands í 8-liða úrslitum á HM í fótbolta eftir afar öruggan sigur á Senegal í 16-liða úrslitum keppninnar í kvöld. 4.12.2022 20:54
Alexandra lagði upp mark í sigri Tvær íslenskar knattspyrnukonur voru í eldlínunni í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. 4.12.2022 18:57
Mbappe kláraði Pólverja í síðari hálfleik og Frakkar komnir í 8-liða úrslit Frakkland er komið í 8-liða úrslit heimsmeistaramótsins í Katar en liðið lagði Pólland 3-1 í 16-liða úrslitum í dag. Oliver Giroud skoraði fyrsta mark Frakka og er nú markahæsti landsliðsmaður Frakklands frá upphafi. 4.12.2022 17:00
Albert og Dagný bæði í tapliðum Albert Guðmundsson lék allan leikinn fyrir Genoa sem tapaði 1-0 á heimavelli fyrir Cittadella í ítölsku Serie B deildinni í dag. Þá var Dagný Brynjarsdóttir í liði West Ham sem tapaði fyrir Liverpool. 4.12.2022 16:00
Leikmenn Ástralíu biðu í röð til að fá mynd af sér með Messi þrátt fyrir tapið Lionel Messi var maður leiksins þegar Argentína vann Ástralíu í 16-liða úrslitum HM í gær. Messi skoraði fyrra mark Argentínu en það stoppaði ekki leikmenn Ástralíu í myndatökum með Messi eftir leik. 4.12.2022 15:01
Innbyrðis vandamálin sem felldu Belga | Vandræðaleg grillveisla og rifrildi lykilmanna Belgíska landsliðið olli miklum vonbrigðum á heimsmeistaramótinu í Katar og féll úr leik eftir riðlakeppnina. The Athletic hefur skyggnst bakvið tjöldin hjá belgíska liðinu þar sem innbyrðis deilur lykilmanna hafa valdið vandræðum. 4.12.2022 13:33
Tuttugustu og þriðju kaup Nottingham Forest á tímabilinu Nottingham Forest hefur gengið frá kaupunum á hinum brasilíska Gustavo Scarpa frá Palmeiras. Scarpa gengur til liðs við Forest í janúar en hann er tuttugasti og þriðji leikmaðurinn sem liðið kaupir á tímabilinu. 4.12.2022 13:00
Búist við að Saka komi inn í byrjunarliðið á kostnað Foden eða Rashford England mætir Senegal í kvöld í 16-liða úrslitum heimsmeistarakeppninnar í Katar. Enskir fjölmiðlar greina frá því að Bukayo Saka komi inn í byrjunarlið Englands á kostnað Phil Foden eða Marcus Rashford sem báðir skoruðu í síðasta leik. 4.12.2022 12:00
Verður Gabriel Jesus frá næstu þrjá mánuðina? Brasilískir fjölmiðlar greina frá því að Gabriel Jesus leikmaður Arsenal þurfi að fara í aðgerð og verði frá næstu þrjá mánuðina. Jesus meiddist á hné í leik Brasilíu og Kamerún á heimsmeistaramótinu í Katar. 4.12.2022 11:31
Tók fram úr Maradona í sínum þúsundasta leik Lionel Messi skoraði fyrra mark Argentínu þegar liðið tryggði sér sæti í 8-liða úrslitum heimsmeistaramótsins með 2-1 sigri á Ástralíu. Leikurinn var sá þúsundasti hjá Messi á ferlinum og markið hans níunda á heimsmeistaramóti. 4.12.2022 10:31
Færði Argentínu mark á silfurfati og fékk síðan væna pillu frá liðsfélaga Matthew Ryan og félagar í ástralska landsliðinu féllu úr leik á heimsmeistaramótinu í gær eftir tap gegn Argentínu. Ryan gerði mistök í öðru marki Argentínu og fékk síðan væna pillu frá liðsfélaga sínum í FC Kaupmannahöfn eftir leik. 4.12.2022 10:00
Alexander-Arnold segist ekki vera að reyna að fá Bellingham til Liverpool Trent Alexander-Arnold segir að hann sé ekki að reyna að sannfæra Jude Bellingham um að koma til Liverpool. 3.12.2022 22:30
Messi skoraði í naumum argentínskum sigri Lionel Messi lék sinn þúsundasta leik á ferlinum og skoraði þegar Argentína sigraði Ástralíu, 2-1, í sextán liða úrslitum á HM í Katar í kvöld. Argentínumenn mæta Hollendingum í átta liða úrslitum á föstudaginn. 3.12.2022 20:50
Van Gaal kyssti Dumfries á blaðamannafundi Louis van Gaal, þjálfari hollenska fótboltalandsliðsins, var ánægður með Denzel Dumfries eftir sigurinn á Bandaríkjunum, svo ánægður að hann smellti kossi á bakvörðinn á blaðamannafundi. 3.12.2022 20:09
Hollendingar fyrstir í átta liða úrslitin Holland komst fyrst liða í átta liða úrslit á HM í Katar eftir 3-1 sigur á Bandaríkjunum í dag. Denzel Dumfries var maður leiksins en hann skoraði eitt mark og lagði upp hin tvö fyrir Memphis Depay og Daley Blind. Haji Wright skoraði mark Bandaríkjamanna. 3.12.2022 16:50
Stuðningsmannahópar United birta kröfugerð fyrir nýja eigendur Yfir fimmtíu stuðningsmannahópar Manchester United hafa birt lista með kröfum fyrir mögulega nýja eigendur félagsins. Eigendur félagsins, Glazer-fjölskyldan, tilkynntu fyrir nokkru að þeir íhuga að selja félagið eftir að hafa átt það í 17 ár. 3.12.2022 16:31
Anna Björk í liði Inter sem bið lægri hlut gegn samherjum Söru Bjarkar Sara Björk Gunnarsdóttir kom ekkert við sögu í liði Juventus sem vann 2-0 útisigur á Inter í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Anna Björk Kristjánsdóttir lék allan leikinn í vörn Inter. 3.12.2022 15:46
Pele settur í lífslokameðferð Brasilíska knattspyrnugoðsögnin Pele hefur verið settur í lífslokameðferð af læknum á Albert Einstein sjúkrahúsinu í Sao Paulo. Þessi ákvörðun var tekin þar sem líkami hans er hættur að svara geislameðferð vegna krabbameins í þörmum. 3.12.2022 15:01
Manchester United á toppinn eftir stórsigur Manchester United vann 5-0 sigur á Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag fyrir framan rúmlega 30.000 manns á Old Trafford. 3.12.2022 14:46
Gabriel Jesus ekki meira með í Katar Brasilíski framherjinn Gabriel Jesus verður ekki meira með á heimsmeistaramótinu í Katar vegna meiðsla. Jesus meiddist á hné gegn Kamerún í gær og leikur vafi á því hvort hann verði klár í slaginn þegar enska úrvalsdeildin hefst á ný í lok mánaðarins. 3.12.2022 13:56
Dómararnir þurftu fylgd inn í klefa eftir að leikmenn Úrúgvæ gerðu að þeim aðsúg Það voru mikil læti eftir að leik Úrúgvæ og Gana lauk á heimsmeistaramótinu í Katar í gær og þurftu dómarar leiksins fylgd inn í klefa að honum loknum. Luis Suarez segir að FIFA sé á móti Úrúgvæ. 3.12.2022 12:00
Pulisic klár í slaginn gegn Hollendingum Christian Pulisic hefur fengið grænt ljós frá læknum bandaríska knattspyrnulandsliðsins eftir meiðslin sem hann varð fyrir gegn Íran. Hann verður því klár í slaginn þegar 16-liða úrslit heimsmeistarakeppninnar hefjast í dag. 3.12.2022 11:31
Veikindi valda Hollendingum vandræðum fyrir stórleikinn í dag Holland mætir Bandaríkjunum í fyrsta leik 16-liða úrslita heimsmeistaramótsins í Katar í dag. Undirbúningur hollenska liðsins fyrir þennan stórleik hefur ekki verið sá besti þar sem flensa hefur herjað á lið Hollands. 3.12.2022 09:30
Hildur opnaði markareikning sinn í Hollandi Hildur Antonsdóttir skoraði sitt fyrsta mark fyrir Fortuna Sittard í hollensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld þegar liðið gerði 2-2 jafntefli við Telstar. 2.12.2022 23:01
Adam Örn í Fram Bakvörðurinn Adam Örn Arnarson hefur gert tveggja ára samning við Fram. Félagið greindi frá þessu í kvöld. 2.12.2022 22:00
Sviss í sextán liða úrslit eftir leik mótsins Sviss er komið í 16-liða úrslit HM í fótbolta sem fram fer í Katar eftir frábæran 3-2 sigur á Serbíu. Leikurinn var gríðarlega dramatískur og sveiflukenndur. 2.12.2022 21:15
Aboubakar tryggði Kamerún óvæntan sigur og sá rautt eftir fagnaðarlætin Tilfinningarnar báru Vincent Aboubakar, framherji Kamerún, ofurliði þegar hann skoraði það sem reyndist sigurmark Kamerún gegn Brasilíu í lokaleik liðanna í riðlakeppni HM í fótbolta. Hann reif sig úr að ofan og fékk sitt annað gula spjald í kjölfarið. 2.12.2022 21:05
Glódís Perla setur pressu á Sveindísi Jane Bayern München vann Hoffenheim 3-0 á útivelli i þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Glódís Perla Viggósdóttir var að venju í hjarta varnar Bayern. 2.12.2022 20:16
Elfar Freyr skrifar undir tveggja ára samning á Hlíðarenda Valur hefur staðfest komu miðvarðarins Elfars Freys Helgasonar. Hann skrifar undir tveggja ára samning við liðið. 2.12.2022 19:35
Breyttu um leikkerfi eftir að miðinn sem Eriksen fékk komst í þeirra hendur Það vakti mikla athygli þegar Christian Eriksen, fyrirliði danska landsliðsins í fótbolta, fékk miða á stærð við A3 blað í leik Danmerkur og Ástralíu. Miðinn endaði í höndum Ástralíu sem gerðu í kjölfarið taktíska breytingu og sendu Dani heim af HM sem nú fer fram í Katar. 2.12.2022 19:01
Bæði lið gengu niðurlút af velli eftir fréttirnar úr hinum leiknum Úrúgvæ tókst ekki að tryggja sér sæti í sextán liða úrslitum á heimsmeistaramótinu þrátt fyrir að hafa unnið 2-0 sigur á Gana í lokaumferð H-riðils. 2.12.2022 17:05
Bæði lið áfram eftir magnaðan sigur Kóreumanna Suður-Kórea afrekaði það að vinna Portúgal, 2-1, í lokaumferð H-riðils á HM karla í fótbolta og það dugði liðinu til að komast í 16-liða úrslit á fleiri skoruðum mörkum en Úrúgvæ. 2.12.2022 16:51
Gerðu stólpagrín að Þjóðverjum í sjónvarpinu Katarskir sjónvarpsmenn stóðust ekki mátið og gerðu stólpagrín að Þjóðverjum eftir að Þýskaland féll úr keppni á HM karla í fótbolta í Katar í gær. 2.12.2022 15:30
Pelé kveður fréttir af heilsubresti sínum í kútinn Brasilíski fótboltasnillingurinn hefur reynt að kveða áhyggjur af heilsufari sínu í kútinn. Hann var fluttur á sjúkrahús fyrr í vikunni. 2.12.2022 14:01
Sagði nafnið sem mátti ekki nefna og fékk ekki að lýsa seinni hálfleik Alper Bakircigil missti starfið sitt í gær en hann hefur í mörg ár starfað sem fótboltalýsandi í Tyrklandi. Ástæðan er þó afar furðuleg í augum flestra. Hann nefndi á nafn knattspyrnugoðsögn Tyrkja. 2.12.2022 13:00
Freyr hrósar mikið manninum sem er ekki nógu góður fyrir íslenska landsliðið Freyr Alexandersson þjálfar danska úrvalsdeildarliðið Lyngby Boldklub og veit allt um það sem er að gerast í danska fótboltanum. Freyr veit því vel hvað Aron Sigurðarson hefur verið að gera góða hluti með Horsens í dönsku deildinni. 2.12.2022 12:01
Kynþokkafullur Kóreumaður leikur sama leik og Rúrik Fjöldi fylgjenda suður-kóreska framherjans Cho Gue-sung á Instagram hefur margfaldast síðan að HM í Katar hófst, ekki ósvipað því sem gerðist hjá Rúrik Gíslasyni á HM í Rússlandi fyrir fjórum árum. 2.12.2022 11:01
Arnar ætlar að taka niður myndirnar af börnunum sínum og setja plakat af meistara Moriyasu í staðinn Japanski landsliðsþjálfarinn Hajime Moriyasu er ekki bara elskaður í heimalandi sínu eftir frábæran árangur japanska liðsins á HM í Katar heldur á hann einn mikinn aðdáanda í einum besta þjálfara Bestu deildar karla. 2.12.2022 10:31
Segir að Spánverjar hafi ekki reynt að tapa Sergio Busquests, fyrirliði spænska fótboltalandsliðsins, segir ekkert til í því að Spánverjar hafi reynt að tapa fyrir Japönum til að fá auðveldari leiki í útsláttarkeppninni á HM í Katar. 2.12.2022 10:00
Pulisic segir að pungurinn hafi sloppið ómeiddur Christian Pulisic, stærsta stjarna bandaríska fótboltalandsliðsins, segist ekki hafa fengið högg í punginn þegar hann skoraði sigurmark Bandaríkjanna gegn Íran á HM í Katar. Með sigrinum komust Bandaríkjamenn áfram í sextán liða úrslit mótsins. 2.12.2022 09:30
Segir klúðrið hjá Þjóðverjum algjöra kata(r)strófu Thomas Müller segir að klúður Þjóðverja að komast ekki upp úr sínum riðli á HM í Katar sé algjör katastrófa. 2.12.2022 08:30
Dómarar fúlir út í Fótbolta.net og mótið blásið af Félag deildardómara (FDD) í fótbolta hefur ákveðið að slíta samstarfi sínu við Fótbolta.net varðandi umsjón dómgæslu á hinu árlega Fótbolta.net-móti, vegna óánægju með umfjöllun um dómara á vegum miðilsins. 2.12.2022 08:01
Óskar Örn ekki búinn að ákveða hvort hann beygi til vinstri eða hægri á Reykjanesbrautinni Óskar Örn Hauksson er ekki búinn að semja við nýtt lið eftir að hann yfirgaf Stjörnuna að loknu tímabilinu í Bestu deildinni. Hann viðurkennir að tíminn hjá Stjörnunni hafi verið vonbrigði. 2.12.2022 07:00
Lukaku klúðraði öllu og braut síðan varamannaskýlið Belgíski framherjinn Romelu Lukaku mun eflaust eiga erfitt með svefn í nótt eftir að hafa misnotað fjölmörg færi þegar Belgía féll úr leik á heimsmeistaramótinu eftir jafntefli gegn Króatíu. 1.12.2022 22:32
Japan hirti efsta sætið af Spáni og skildi Þjóðverja eftir með sárt ennið Japan tryggði sér efsta sætið í E-riðli heimsmeistaramótsins með mögnuðum 2-1 sigri á Spánverjum í kvöld. Japan endar því með sex stig í efsta sæti en Spánn fer einnig áfram með jafn mörg stig og Þjóðverjar en betri markatölu. 1.12.2022 21:05