Abou­bakar tryggði Kamerún ó­væntan sigur og sá rautt eftir fagnaðar­lætin

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Vincent Aboubakar fagnar marki sínu í kvöld.
Vincent Aboubakar fagnar marki sínu í kvöld. Tom Weller/Getty Images

Tilfinningarnar báru Vincent Aboubakar, framherji Kamerún, ofurliði þegar hann skoraði það sem reyndist sigurmark Kamerún gegn Brasilíu í lokaleik liðanna í riðlakeppni HM í fótbolta. Hann reif sig úr að ofan og fékk sitt annað gula spjald í kjölfarið.

Brasilía hafði þegar tryggt sér sæti í 16-liða úrslitum og mætti með mikið breytt lið til leiks. Á sama tíma þurfti Kamerún að vinna ásamt því að treysta á hagstæð úrslit í leik Sviss og Serbíu.

Leikurinn var ekki mikið fyrir augað framan af og stefndi allt í markalaust jafntefli. Það er þangað til téður Vincent Aboubakar stangaði fyrirgjöf Jerome Ngom Mbekeli í netið á 92. mínútu leiksins.

Aboubakar gjörsamlega missti sig í fagnaðarlátunum. segja má að hann hafi fagnað líkt og Kamerún væri komið áfram. Það var þó ekki raunin, Aboubakar fékk sitt annað gula spjald í kjölfarið og þrátt fyrir 1-0 sigur endaði Kamerún í 3. sæti með 4 stig á meðan Brasilía vann riðilinn með 6 stig.

Brasilía mætir Suður-Kóreu í 16-liða úrslitum.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira