Fleiri fréttir

Þessir lögðu skóna á hilluna 2022: Heimsmeistarar sem og menn sem þú hélst að væru löngu hættir
Árið 2022 er að renna sitt skeið og líkt og hvert ár hefur fjöldi knattspyrnumanna ákveðið að leggja skóna á hilluna frægu. Töluvert magn heimsfrægra leikmanna ákvað að kalla þetta gott en að sama skapi voru menn að hætta sem flest öll okkar töldu að hefðu hætt fyrir löngu síðan.

Palhinha hetja Fulham | Sigurganga Newcastle á enda
Fimm af sex leikjum dagsins í ensku úrvalsdeildinni er nú lokið. Crystal Palace vann góðan útisigur á Bournemouth, Fulham vann dramatískan 2-1 sigur á Southampton. Þá gerði Newcastle United markalaust jafntefli við Leeds United. Þar á undan hafði Manchester United unnið Úlfana en nágrannar þeirra í City náðu aðeins jafntefli gegn Everton.

Arsenal fer inn í nýja árið með sjö stiga forystu á toppi deildarinnar
Arsenal vann 4-2 sigur á Brighton & Hove Albion í síðasta leik ársins í ensku úrvalsdeildinni. Liðið er með sjö stiga forystu á toppi deildarinnar.

Meistararnir misstigu sig gegn Everton
Everton náði í stig gegn Englandsmeisturum Manchester City þegar liðin mættust í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta, lokatölur 1-1.

Ten Hag hrósaði Rashford sem byrjaði á bekknum í dag
Erik ten Hag, þjálfari Manchester United, hrósaði Marcus Rashford eftir 1-0 sigur Rauðu djöflanna á Úlfunum í ensku úrvalsdeildinni í dag. Rashford hóf leikinn á bekknum en kom inn í síðari hálfleik og gerbreytti gangi mála.

Jafntefli og tvö rauð spjöld á loft í slagnum um Katalóníu
Barcelona mætti nágrönnum sínum í Espanyol í fyrsta leik dagsins í La Liga, spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Með sigri hefðu Börsungar náð tveggja stiga forystu á toppi deildarinnar en leiknum lauk með 1-1 jafntefli.

Varamaðurinn Rashford hetja Man United
Fyrsti leikur dagsins í ensku úrvalsdeildinni fór fram á Molineux-vellinum þar sem heimamenn í Wolves tóku á móti Manchester United. Fór það svo að gestirnir unnu 1-0 sigur þar sem Marcus Rashford skoraði eina mark leiksins.

Óskar Hrafn var á blaði hjá Kalmar
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Íslandsmeistara Breiðabliks í fótbolta, var á blaði hjá sænska úrvalsdeildarliðinu Kalmar FF þegar liðið var í þjálfaraleit á dögunum. Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem Óskar Hrafn er orðaður við lið í Svíþjóð.

Al Nassr kynnir Ronaldo til leiks: Á að hvetja framtíðarkynslóðir
Nýjasta lið Cristiano Ronaldo, Al Nassr, hefur kynnt leikmanninn til leiks. Félagið telur að Ronaldo muni hvetja drengi og stúlkur landsins til að verða besta útgáfan af sjálfum sér.

„Kaíró vinstri, inn á milli eitt og tvö og svo bara upp í skeytin“
Bjarni Mark Antonsson Duffield og Ólafur Andrés Guðmundsson eru greinilega undirbúa sig nú fyrir komandi landsliðsverkefni. Bjarni Mark er í A-landsliðshóp Íslands í fótbolta á meðan Ólafur Andrés er á leiðinni á HM í handbolta.

Ísak Bergmann um eigið hugarfar: „Ég hugsa hraðar en ég hleyp“
Ísak Bergmann Jóhannesson, landsliðsmaður Íslands í fótbolta og leikmaður Danmerkurmeistara FC Kaupmannahafnar, segist til í að gera allt til að vinna. Þá telur hann sig spila betur gegn góðum liðum en á slökum völlum „upp í sveit í Danmörku.“

Sér eftir að hafa fengið sér Messi húðflúr á ennið
Fólk missti sig misvel í gleðinni eftir að Argentína varð heimsmeistari í knattspyrnu karla þann 18. desember eftir sigur á Frakklandi í mögnuðum leik. Einn stuðningsmaður Argentínu gekk svo langt að fá sér húðflúr á ennið þar sem stóð „Messi.“

Endaði í fanginu á Pelé: „Þykir mjög vænt um þessa mynd“
Þeir eru ekki margir sem eiga mynd af sér í fanginu á sjálfum Pelé. En Hafþór Theodórsson getur stært sig af því.

Benzema kom Real til bjargar í blálokin
Spænska úrvalsdeildin í fótbolta er farin af stað eftir HM pásuna og lentu Spánarmeistarar Real Madríd í vandræðum gegn Real Valladolid í kvöld. Franski sóknarmaðurinn Karim Benzema bjargaði meisturunum með tveimur mörkum undir lok leiks, lokatölur 0-2.

Ótrúleg Faes-staða miðvarðarins kom Liverpool til bjargar
Wout Faes, 24 ára gamall miðvörður Leicester City, reyndist hetja Liverpool þegar Refirnir heimsóttu Anfield í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Gestirnir komust yfir snemma leiks en tvö ótrúleg sjálfsmörk Faes tryggðu Liverpool 2-1 sigur.

„Ég ætla ekkert að gefast upp“
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, ein af okkar efnilegustu knattspyrnukonum, er loks byrjuð að spila á ný eftir löng og erfið meiðsli. Hún spilar með þýska stórveldinu Bayern München og bíður spennt eftir að fá að sanna sig.

Fyrrum Eyjastelpan Lacasse eftirsótt af stærstu liðum Evrópu
Cloé Lacasse lék með ÍBV í efstu deild kvenna í fótbolta frá 2015 til 2019. Hún spilar nú með Benfica í Portúgal en það stefnir í að hún færi sig um set á nýju ári. Hún er orðuð við nokkur af stærstu liðum álfunnar.

Staðfesta að Ronaldo hafi skrifað undir í Sádi-Arabíu
Það er klappað og klárt að Cristiano Ronaldo, einn besti knattspyrnumaður allra tíma, muni enda ferilinn í Sádi-Arabíu. Þessi 37 ára gamli Portúgali hefur skrifað undir tveggja og hálfs árs samning við Al Nassr þar í landi.

Klopp líkir Nunez við Lewandowski
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, hefur tröllatrú á Darwin Nunez og líkir honum við einn besta framherja heims.

Einstök ævi Pelés á 25 mínútum | Myndbönd
Brasilíska fótboltagoðið Pelé lést í gær, 82 ára að aldri, eftir baráttu við krabbamein. Genginn er þar einn besti fótbolta- og íþróttamaður sögunnar.

Myndaveisla frá heimsókn Pele: Reif í einn ljóshærðan hnokka fyrir myndatöku
„Þetta er mjög eftirminnilegt. Það átti að fara að loka dyrunum að einhverjum sal þar sem eðalmenni áttu að fá að vera í friði. Þá rífur hann í mig,“ segir Einar Jónsson um kynni sín af knattspyrnugoðsögninni Pele. Svarta perlan kvaddi þennan heim 82 ára að aldri í gær eftir glímu við krabbamein.

Mun aldrei segja að Messi sé sá besti í sögunni
Reglulega er umræðunni um hver sér besti fótboltamaður allra tíma kastað fram. Sú hefur verið í deiglunni eftir að Lionel Messi tryggði sér langþráðan heimsmeistaratitil.

Gaf frá sér milljónir: „Hvaða verðmiða seturu á sál þína?“
Brasilíumaðurinn Adriano var um tíma talinn á meðal allra bestu framherja heims og átti framtíðina fyrir sér í fótboltanum. Það fjaraði þó hratt undan ferli hans og segist hann hafa þurft að gefa undan geigvænlegri pressu.

Bróðir Balotelli ákærður fyrir líkamsárás
Enoch Barwuah, bróðir fyrrum ítalska landsliðsmannsins Mario Balotelli, er sagður hafa lent í áflogum rétt fyrir jól í ítölskum fjölmiðlum og á yfir höfði sér kæru fyrir líkamsárás.

Þriggja daga þjóðarsorg lýst yfir
Brasilísk yfirvöld hafa lýst yfir þriggja daga þjóðarsorg vegna andláts knattsyrnugoðsagnarinnar Pelé, sem lést í gær. Fjölmargir hafa minnst kappans.

Ein mesta íþróttahetja sögunnar fallin frá: „Fyrir tíma Pelé var fótbolti bara íþrótt“
Edson Arantes do Nascimento, betur þekktur sem brasilíska knattspyrnugoðsögnin Pelé, lést í kvöld, 82 ára að aldri. Pelé er af mörgum talinn einn allra besti knattspyrnumaður sögunnar.

Pelé er látinn
Brasilíska knattspyrnugoðsögnin Pelé er látinn.

Nýtir pirringinn yfir að hafa misst af HM til að skora meira
Norski markahrókurinn Erling Braut Haaland segist nýta pirringinn yfir því að hafa þurft að horfa á HM í Katar í sjónvarpinu sem hvata til að skora fleiri mörk í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu.

Áramótabomba í Breiðholtinu
Gambíski framherjinn Omar Sowe er genginn í raðir Lengjudeildarliðs Leiknis R. Hann kemur frá Íslandsmeisturum Breiðabliks.

Berlusconi vill Maldini
Silvio Berlusconi, forseti ítalska A-deildarliðsins Monza, vill styrkja leikmannahóp þess fyrir komandi átök á nýju ári í janúarglugganum. Hann lítur nú til sonar gamals félaga.

Van Dijk sannfærði Gakpo um að velja Liverpool
Virgil van Dijk átti stóran þátt í því að sannfæra samherja sinn í hollenska landsliðinu, Cody Gakpo, um að ganga í raðir Liverpool.

Guardiola kemur „kynæsandi“ Kalvin til varnar
Pep Guardiola, stjóri Manchester City, gefur lítið fyrir orðræðu breskra fjölmiðla um að Kalvin Phillips, miðjumaður liðsins, sé ekki í standi.

Bjarni hitti í Mark hjá Arnari Þór
Bjarna Mark Antonssyni hefur verið bætt við hóp íslenska karlalandsliðsins í fótbolta fyrir leikina gegn Svíþjóð og Eistlandi á Algarve í næsta mánuði.

Var kallaður svikari og rekinn í beinni: „Þetta er týpískur Mourinho“
Lögmaður Ricks Karsdorp, leikmanns Roma, gagnrýndi José Mourinho fyrir meðferð hans á leikmanninum.

Fyrirliði Englands óttaðist að missa af EM vegna legslímuflakks
Fyrirliði Evrópumeistara Englands, Leah Williamson, óttaðist að missa af leikjum á Evrópumótinu sökum verkja vegna legslímuflakks, eða endómetríósu.

„Angel gæti kennt þér að gráta, koma vel fram við konur og skora í úrslitaleikjum“
Eiginkona argentínska heimsmeistarans Ángels Di María sparaði ekki stóru orðin þegar hún gagnrýndi Adil Rami, fyrrverandi leikmann franska landsliðsins.

Brjálaður Neymar brunaði á brott fyrir leikslok
Brasilíumaðurinn Neymar var afar ósáttur eftir að honum var vísað af velli í 2-1 sigri Paris Saint-Germain á Strasbourg í frönsku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Frávita vegna andláts náins vinar: „Gífurlegt tóm innra með mér“
Dejan Stankovic, þjálfari Sampdoria á Ítalíu, er óviss um að hann muni nokkurn tíma jafna sig á andláti vinar síns Sinisa Mihajlovic.

Haaland slátraði rúmlega 20 ára gömlu meti
Erling Haaland skoraði tvö marka Manchester City í öruggum 3-1 sigri á Leeds United í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær. Hann setti þar með met í deildinni.

Mbappé: Eyði ekki orku í slíka vitleysu
Kylian Mbappé var hetja Paris Saint-Germain í fyrsta leik hans eftir vonbrigði Frakka á HM í Katar. Hann segist ekki eyða tíma í að pæla í Argentínumönnum, sem unnu Frakka í úrslitum mótsins.

Mbappé tryggði PSG sigur í blálokin eftir að Neymar var sendur í bað fyrir leikaraskap
Stjörnur París Saint-Germain áttu misjöfnu gengi að fagna í fyrsta leik liðsins eftir HM pásuna. Liðið vann 2-1 sigur á Strasbourg en sigurmarkið kom fimm mínútum eftir að venjulegum leiktíma lauk.

Håland heitur eftir HM pásuna og Man City eltir Skytturnar eins og skugginn
Englandsmeistarar Manchester City unnu 3-1 útisigur á Leeds United í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni. Erling Braut Håland skoraði tvö af þremur mörkum Man City.

Segir 2022 hafa verið sitt erfiðasta ár til þessa
Reece James, leikmaður enska úrvalsdeildarfélagsins Chelsea, segir árið 2022 vera eitt það erfiðasta sem hann hefur upplifað. Hann missti af HM í Katar vegna meiðsla og meiddist aftur í fyrsta leik Chelsea eftir HM pásuna.

Man United vildi Gakpo síðasta sumar en hefur ekki efni á honum nú
Erik ten Hag, þjálfari Manchester United, vildi festa kaup á Coady Gakpo, nýjasta leikmanni Liverpool, síðasta sumar en félagið náði ekki að ganga frá kaupunum þar sem brasilíski vængmaðurinn Antony kostaði meira en áætlað var.

Sagðir hafa boðið yfir 100 milljónir í heimsmeistara
Argentínska ungstirnið Enzo Fernández heillaði marga á leið Argentínu að heimsmeistaratitlinum í fótbolta í Katar. Félag hans, Benfica, mun berjast fyrir því að halda honum með kjafti og klóm.