Arsenal fer inn í nýja árið með sjö stiga for­ystu á toppi deildarinnar

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Skytturnar eru á toppnum.
Skytturnar eru á toppnum. Visionhaus/Getty Images

Arsenal sótti Brighton heim og sýndi allar sínar bestu hliðar. Bukayo Saka kom Skyttunum yfir á annarri mínútu og Martin Ødegaard tvöfaldaði forystuna áður en fyrri hálfleikur var úti, staðan 2-0 þegar flautað var til loka fyrri hálfleiks.

Eddie Nketiah gulltrygði sigurinn með marki snemma í síðari hálfleik óþarfi að spila það sem eftir lifði leiks. Kaoru Mitoma minnkaði muninn á 65. mínútu en Gabriel Martinelli kom Arsenal 4-1 yfir skömmu síðar. Ungstirnið Evan Ferguson minnkaði muninn í 4-2 og Mitoma hélt hann hefði skorað þriðja mark Brighton undir lok leiks en það var dæmt af.

Lokatölur 2-4 og Arsenal fer inn í nýtt ár með sjö stiga forystu á toppi deildarinnar.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira