Fleiri fréttir

Nýjasta stjarna West Ham liðsins mögulega frá í mánuð

West Ham er annað af tveimur spútnikliðum ensku úrvalsdeildarinnar á tímabilinu en liðið er í 4. sæti deildarinnar eftir 2-1 sigur á Englandsmeisturum Manchester City um helgina. Liðið varð samt fyrir áfalli í leiknum þegar framherjinn Diafra Sakho meiddist á öxl.

Rodgers: Liverpool saknar Sturridge

Daniel Sturridge hefur ekki spilað með Liverpool-liðinu síðan 31. ágúst og ennfremur ekki skorað fyrir Liverpool síðan í fyrstu umferð tímabilsins. Knattspyrnustjórinn Brendan Rodgers viðurkennir fúslega að liðið sakni síns aðalframherja.

Bannar FIFA fótboltamönnum að fagna eins og Klose?

Indverjinn Peter Biaksangzuala lést á dögunum eftir að hafa lent illa á hálsinum eftir misheppnað heljarstökk í leik í indversku deildinni. Afleiðingar þessa hræðilega slys í Indlandi gætu orðið að það væri bannað að fagna marki með því að taka heljarstökk.

Heimskulegt að mati Van Gaal

Robin van Persie, fyrirliði Manchester United, tryggði liðinu jafntefli á móti toppliði Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi þegar hann jafnaði metin í uppbótartíma.

Sam Allardyce: Desember verður erfiður

Sam Allardyce, knattspyrnustjóri West Ham, er ekkert að missa sig yfir frábærri byrjun liðsins í ensku úrvalsdeildinni og talaði um að stóra prófið fyrir liðið kæmi í jólamánuðinum.

Berahino minnir stjórann á Wayne Rooney

Saido Berahino hefur byrjað tímabilið vel með West Bromwich Albion og knattspyrnustjórinn Alan Irvine er sáttur með sinn mann sem hann segir hafa allan pakkann.

Uppeldisfélagið skipar ákveðinn sess hjá mér

Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, sér enga ástæðu til að breyta um starfsvettvang en hann skrifaði nýverið undir nýjan tveggja ára samning við félagið. "FH er stórhuga og ætlar sér langt í Evrópukeppninni,“ segir Heimir sem er að hefja sitt 16.

Kristinn skoraði í öruggum sigri

Kristinn Steindórsson skoraði þriðja mark Halmstad í 4-0 sigri á Falkenberg í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Moyes orðaður við Inter

Það er farið að hitna hressilega undir Walter Mazzarri sem þjálfara Inter frá Milanó í ítölsku A-deildinni í fótbolta. David Moyes fyrrum þjálfari Manchester United og Everton er orðaður við starfið.

Pálmi með þrennu fyrir Lilleström

Pálmi Rafn Pálmason stal senunni í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag þegar hann skoraði þrennu fyrir Lilleström sem lagði Start 4-1.

Mourinho: Þurfum ekki að horfa á aðra

„Seinni hálfleikurinn var mikið betri. Við sýndum frá byrjun seinni hálfleiks að við vildum vinna,“ sagði Jose Mourinho knattspyrnustjóri Chelsea eftir 1-1 jafnteflið við Manchester United á Old Trafford í dag.

Van Persie: Hefðum getað unnið

"Þetta eru blendnar tilfinningar. Við hefðum getað unnið í dag. Ég fékk tvö færi snemma í leiknum. Ég hugsa alltaf jákvætt og einbeiti mér að næsta færi og sem betur fer féll það fyrir mig,“ sagði Robin van Persie eftir jafnteflið gegn Chelsea í dag.

Drogba kemur Chelsea yfir | Sjáið markið

Didier Drogba er búinn að koma Chelsea yfir í stórleiknum á Old Trafford þar sem Manchester Untied tekur á móti Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Van Gaal: Mourinho gæti verið betri en ég

Stórleikur Manchester United og Chelsea hefst klukkan 16 í beinni útsendingu Stöðvar 2 Sport og mætast þar þjálfarar sem þekkjast vel því Jose Mourinho var aðstoðarmaður Louis van Gaal hjá Barcelona.

Jones: Chelsea er ekki ósigrandi

Phil Jones varnarmaður Manchester United segir leikmenn liðsins ekki hafa neitt að óttast þegar liðið tekur á móti Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í dag klukkan 16.

Andri Rúnar í Víking

Framherjinn Andri Rúnar Bjarnason hefur gert þriggja ára samning við Pepsí deildar félagið Víking en hann kemur frá BÍ/Bolungarvík.

Ótrúlegt jafntefli á Old Trafford

Manchester United og Chelsea skildu jöfn 1-1 í stórleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Manchester United jafnaði metin á fjórðu mínútu uppbótartíma.

Newcastle úr fallsæti

Newcastle gerði góða ferð á White Hart Lane þar sem liðið lagði heimamenn í Tottenham 2-1 í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Everton lagði Burnley

Everton vann nýliða Burnley 3-1 á útivelli í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Everton var 2-1 yfir í hálfleik.

Neuer: Ég gæti spilað úti

Manuel Neuer markvörður Bayern Munchen og heimsmeistara Þýskalands í fótbolta segist geta leikið framar á vellinum en þó ekki í sama gæðaflokki.

Gylfi fann fyrir náranum fyrir leikinn

"Hann er mjög teknískur og getur sent boltann á mig hvenær og hvar sem er,“ sagði Wilfried Bony um hvernig sé að leika með Gylfa Þór Sigurðssyni hjá Swansea í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Arnar Þór hafði betur gegn Ólafi Inga

Cercle Brugge vann fyrsta leik sinn undir stjórn Arnars Þórs Viðarssonar þegar liðið lagði Zulte-Waregem 2-1 í belgísku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Gylfi lagði upp mark Bony | Sjáðu mörkin

Gylfi Þór Sigurðsson átti sendinguna á Bony sem kom Swansea yfir á heimavelli gegn Leicester í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í síðdegisleik dagsins.

Markalaust í Liverpool

Liverpool og Hull gerðu markalaust jafntefli á Anfield Road í Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

West Ham 2-1 yfir | Sjáðu mörkin

West Ham United heldur áfram að koma á óvart en liðið er komið 1-0 yfir gegn Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta með marki Morgan Amalfitano.

Sjá næstu 50 fréttir