Enski boltinn

Sjáðu markið sem rotaði lærisveina Mourinho

Van Persie jafnar leikinn.
Van Persie jafnar leikinn. vísir/getty
Manchester United nældi í dramatískt jafntefli gegn Chelsea í dag með marki á elleftu stundu.

Jöfnunarmarkið kom á síðustu mínútu uppbótartíma og það skoraði Hollendingurinn Robin van Persie.

Aukaspyrna frá Angel di Maria sem rataði á kollinn á Fellaini. Courtois hélt ekki skalla Belgans, boltinn féll fyrir fætur sem þrumaði boltanum í markið.

Þegar Phil Dowd dæmdi aukaspyrnuna þá rak hann Branislav Ivanovic af velli.

Rauða spjaldið og markið má sjá hér að neðan.




Tengdar fréttir

Drogba kemur Chelsea yfir | Sjáið markið

Didier Drogba er búinn að koma Chelsea yfir í stórleiknum á Old Trafford þar sem Manchester Untied tekur á móti Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Ótrúlegt jafntefli á Old Trafford

Manchester United og Chelsea skildu jöfn 1-1 í stórleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Manchester United jafnaði metin á fjórðu mínútu uppbótartíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×