Fleiri fréttir

Páll Viðar: Eins og við værum manni færri

Páll Viðar Gíslason, þjálfari Þórs, segir að Stjörnumenn hafi einfaldlega jarðað sína menn í leik liðanna í dag. Stjarnan vann 5-1 sigur þrátt fyrir að hafa verið manni færri í rúman hálfleik.

Heimir: Ég er mjög ósáttur með strákana

Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV, var ekki sáttur með sína menn eftir 1-1 jafntefli við Val á Hásteinsvellinum í dag. Valsmenn voru mun sterkari í leiknum og Heimir viðurkennir að sínir menn eigi bara að vera ánægðir með stigið.

Kristján: Gróf mistök hjá okkur í markinu þeirra

Kristján Guðmundsson, þjálfari Valsmanna, var sáttur með leik sinna manna í 1-1 jafntefli í Eyjum í dag en vissi manna best að hans menn áttu meira skilið út úr leiknum heldur en bara eitt stig.

Bayern München tapaði fyrir Mönchengladbach

Borussia Mönchengladbach gerði sér lítið fyrir og sigraði stórliðið, Bayern München, 1-0, á Allianz Arena, heimavelli Bayern í dag. Eina mark leiksins gerði Igor de Camargo þegar um hálftími var eftir af leiknum.

Chelsea gefst ekki upp á Modric

Chelsea er greinilega ekki tilbúið að gefast upp á Luca Modric, miðjumanni Tottenham, og hafa lagt fram enn eitt tilboðið í leikmanninn. Fyrr í sumar hafði Tottenham hafnað tilboði upp á 27 milljónum punda, en nú ætlar Roman Abramovich, eigandi Chelsea, að bjóða enn betur.

Ferguson: Áttum sigurinn skilið

"Mér fannst frammistaða leikmannanna vera frábær út allan leikinn,“ sagði Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Man. Utd., eftir sigurinn gegn Man. City í leiknum um Samfélagsskjöldin. Manchester United vann magnaðan sigur, 3-2, eftir að hafa lent 2-0 undir.

Chelsea og Anderlecht ná samkomulagi um Lukaku

Enska knattspyrnufélagið Chelsea er við það að ganga frá kaupum á belgíska undrabarninu Romelu Lukaku frá Anderlecht, en félögin náðu samkomulagi um leikmanninn um helgina.

Dóra María skoraði í sigri Djurgården

Djurgården vann í dag góðan 3-2 sigur á Piteå í sænsku úrvalsdeildinni. Dóra María Stefánsdóttir skoraði fyrsta mark leiksins og kom Djurgården yfir strax á fjórðu mínútu.

Ísland 1 vann Opna Norðurlandamótið - Ísland 2 lenti í 4. sæti

Lið 1 hjá u-17 landsliðið Íslands vann í dag Opna Norðurlandamótið í knattspyrnu sem fram fer á Akureyri eftir 1-0 sigur gegn Dönum í úrslitaleiknum sjálfum. Ævar Ingi Jóhannesson skoraði eina mark leiksins eftir rúmlega tuttugu mínútna leik.

Kolbeinn lagði upp mark er Ajax hóf titilvörn sína

Þremur leikjum er lokið í hollensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu og kom okkar maður Kolbeinn Sigþórsson við sögu með Ajax þegar hann lagði upp eitt mark þegar meistararnir báru sigur úr býtum, 4-1, gegn De Graafschap.

Beckenbauer: Goetze er okkar Messi

Þýska goðsögnin, Franz Beckenbauer, fer fögrum orðum um Mario Goetze, leikmanns Borussia Dortmund, eftir að félagið sigraði Hamburg, 3-1, í fyrstu umferð þýsku úrvalsdeildarinnar.

Umfjöllun: Meistarabragur á sigri KR

KR vann dramatískan 3-2 sigur á Víkingi á heimavelli sínum í kvöld og jók forskot sitt á ÍBV á toppi deildarinnar í fjögur stig en KR á auk þess leik til góða. Staða Víkings í botnbaráttunni versnar enn því liðið er nú fimm stigum á eftir Grindavík en spilamennska Víkings hefur batnað mikið í síðustu tveimur leikjum.

Þór mun hvíla þá sem eru á gulu spjaldi

Þeir þrír leikmenn sem eru á gulu spjaldi fyrir bikarúrslitaleikinn um næstu helgi taka ekki þátt í leik liðsins gegn Stjörnunni í Pepsi-deild karla í kvöld.

Umfjöllun: Óskar bjargaði Grindavík

Grindvíkingar tóku á móti Íslandsmeisturum Breiðabliks í blíðunni á Grindavíkurvelli. Heimamenn voru fyrir leikinn í 10 sæti með 12 stig en Blikar sæti ofar með fimmtán stig. Það var því vona á hörkuleik milli þeirra tveggja liða sem höfðu fengið flest mörk á sig í deildinni. Mörkin voru þó ekki mörg í kvöld. Eitt hjá hvoru liði og niðurstaðan því jafntefli.

Umfjöllun: Atli Viðar tryggði FH sigur

FH-ingar unnu ágætan sigur, 1-0, gegn Keflvíkingum í kvöld eftir að hafa verið einum fleiri nánast allan leikinn. Hvorugt liðið náði sér almennilega á strik en Atli Viðar Björnsson gerði eina mark leiksins.

Sögunni endalausu um Fabregas virðist vera að ljúka

Sagan endalausa um vistaskipti Cesc Fabregas, leikmanns Arsenal, til Börsunga virðist vera á enda runninn. Samningaferlið ku vera komið á lokastig og leikmaðurinn gengur líklega til liðs við Barcelona á næstu vikum.

Umfjöllun: KR græddi á jafntefli í Eyjum

ÍBV og Valur gerðu 1-1 jafntefli í uppgjöri liðanna í öðru og þriðja sæti Pepsi-deildarinnar. Það má segja að sigurvegarinn hafi verið KR því þessi töpuðu stig hjá næstu liðum í töflunni styrkja stöðu þeirra í toppsætinu.

Man. Utd. vann Samfélagsskjöldin eftir magnaðan úrslitaleik

Manchester United vann stórleikinn gegn Manchester City, 3-2, um Samfélagsskjöldin eftir að hafa lent 2-0 undir. Man. Utd. lék frábærlega í síðari hálfleiknum og sýndi meistaratakta. David De Gea, markvörður Man. Utd, var sennilega manna kátastur eftir leikinn en hann gat gert betur í báðum mörkunum sem United fékk á sig í leiknum. Fylgst var með gangi mála beint á Vísi sem sjá má hér að neðan.

Barcelona vann í Dallas

Barcelona vann í gærkvöldi 2-0 sigur á mexíkóska liðinu Club America. Leikurinn fór fram á heimavelli NFL-liðsins Dallas Cowboys í Dallas.

Enska úrvalsdeildin: Aldrei fleiri félög gert tilkall

Viðureign Manchester-félaganna City og United í Samfélagsskildinum í dag markar að margra mati upphaf leiktíðarinnar á Englandi. Aðeins vika er í að flautað verði til leiks í ensku úrvalsdeildinni á nýjan leik.

Mancini vill fá fleiri leikmenn

Roberto Mancini segir að hann sé ekki með nógu marga leikmenn til að geta unnið ensku úrvalsdeildina á næsta keppnistímabili. Hann vill fá 2-3 leikmenn til viðbótar.

Vongóðir um að Van der Vaart nái fyrsta leik

Kevin Bond, aðstoðarstjóri Tottenham, er vongóður um að Hollendingurinn Rafael van der Vaart verði orðinn góður af meiðslum sínum áður en liðið leikur sinn fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni.

Eriksen hafnaði Manchester City

Umboðsmaður hins danska Christian Eriksen segir að leikmaðurinn hafi hafnað tækifæri til að ganga til liðs við Manchester City og þéna þær háar upphæðir.

Carew kominn til West Ham

John Carew gekk í dag til liðs við enska B-deildarfélagið West Ham. Hann var síðast á mála hjá Aston Villa en samningur hans rann út í lok síðasta tímabils.

Eiður meiddist í æfingaleik

AEK frá Grikklandi tapaði í kvöld æfingaleik fyrir spænska liðinu Getafe, 1-0. Eiður Smári Guðjohnsen var í byrjunarliði AEK en fór meiddur af velli eftir 25 mínútur.

Sunderland hefur áhuga á Bellamy

Steve Bruce, stjóri Sunderland, hefur áhuga á að fá Craig Bellamy til liðs við félagið en hann er nú á mála hjá Manchester City, þar sem hann er ekki í náðinni.

Arsenal tapaði í Portúgal

Arsenal lauk undirbúningstímabilinu í Portúgal í kvöld þar sem að liðið tapaði, 2-1, fyrir Benfica.

Jón Guðni á bekknum

Jón Guðni Fjóluson sat á bekknum er lið hans, Germinal Beerschot, gerði 2-2 jafntefli við Gent á heimavelli í belgísku úrvalsdeildinni í dag.

Obertan á leið til Newcastle

Gabriel Obertan er á leið til Newcastle en gengið verður frá félagaskiptum hans í næstu viku, eftir því sem kom fram í enskum fjölmiðlum í dag.

Tottenham vann Athletic á heimavelli

Tottenham vann 2-1 sigur á Athletic Bilbao frá Spáni í æfingaleik á White Hart Lane í Lundúnum, eftir að þeir spænsku höfðu 1-0 forystu í hálfleik.

Loksins hélt Liverpool hreinu

Liverpool vann í dag 2-0 sigur á Valencia í síðasta æfingaleik liðsins áður en keppni í ensku úrvalsdeildinni hefst um næstu helgi. Andy Carroll og Dirk Kuyt skoruðu mörk liðsins.

Sjá næstu 50 fréttir