Fleiri fréttir

Arnar útilokar ekki að halda áfram

„Við klúðruðum veru okkar í deildinni í fyrri umferðinni og misstum of marga leiki niður í jafntefli sem við áttum að vinna. Þetta var samt fínt sumar að mörgu leyti og sýndum að við eigum alveg heima í þessari deild,“ sagði Arnar Gunnlaugsson, sóknarmaður Hauka, eftir sigur liðsins gegn Val, 2-1 á Vodafone-vellinum í dag.

Gunnleifur: Við gerðum bara ekki nógu vel á þessu tímabili

Gunnleifur Gunnleifsson, markvörður FH, átti góðan leik í 3-0 sigri á Fram á Laugardalsvellinum í dag og FH-ingar geta þakkað honum fyrir að Framarar skoruðu ekki á þá í leiknum. Gunnleifur var þó eins og aðrir FH-ingar hálf niðurlútur í leikslok þrátt fyrir sigurinn.

Heimir Hallgríms: Menn misstu hausinn eftir vítið

„Ef maður á að vera alveg sanngjarn þá var þetta verðskuldaður sigur Keflvíkinga,“ sagði Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV, svekktur eftir tapið gegn Keflavík. Eyjamenn hefðu með sigri orðið Íslandsmeistarar þar sem Blikar gerðu jafntefli í Garðabæ.

Ólafur: Ég er stoltur

Ólafur Kristjánsson, þjálfari Breiðabliks, átti skiljanlega erfitt með að gefa viðtöl strax eftir leikinn á Stjörnuvelli í dag er hans menn urðu Íslandsmeistarar.

Gunnlaugur: Okkur vantar markaskorara

„Við endum tímabilið illa og frammistaðan í dag endurspeglar tímabilið hjá okkur. Þetta hefur verið afar kaflaskipt hjá okkur í sumar og það er ljóst að Valur verður að ná stöðugleika ef liðið á að keppa um titla,“ sagði Gunnlaugur Jónsson, þjálfari Vals, eftir tap liðsins gegn Haukum, 2-1.

Þorvaldur: Get bæði verið sáttur og ósáttur með tímabilið

Þorvaldur Örlygsson, þjálfari Fram, varð að sætta sig við 3-0 tap á móti FH í dag þrátt fyrir að hans menn hafi sýnt lipra takta stóran hluta úr leiknum. FH-liðið spilaði skynsamlega úr sínu og landaði sigri og um leið öðru sætinu í deildinni.

Willum áfram með Keflavík: Spennandi tímar framundan

„Ég held að leikmenn hafi haft gaman að því að spila hér í dag,“ sagði Willum Þór Þórsson, þjálfari Keflavíkur, eftir 4-1 sigurinn gegn ÍBV. Eyjamenn hefðu staðið uppi sem sigurvegarar Íslandsmótsins með sigri.

Þórhallur Dan: Er endanlega hættur

„Það var gaman að við skildum enda veru okkar í deildinni með sigri. Við vorum ekkert sérstakir í seinni hálfleik en gott að ná sigrinum,“ sagði Þórhallur Dan Jóhannesson, varnarmaður Hauka, sem lék lokaleik sinn í efstu deild karla í sigri liðsins gegn Val, 2-1.

Guðjón Árni: Allt jákvætt við þennan dag

„Við lögðum upp með það í undirbúningi fyrir leikinn að enda þetta á góðum nótum og það tókst,“ sagði Guðjón Árni Antoníusson, bakvörður Keflvíkinga, eftir að liðið vann 4-1 sigur á ÍBV í lokaumferð Pepsi-deildarinnar.

Tevez afgreiddi Chelsea

Argentínumaðurinn Carlos Tevez kom Chelsea niður á jörðina í dag þegar hann skoraði eina markið í leik Man. City og Chelsea í dag.

Umfjöllun: FH-ingar gerðu sitt en það var ekki nóg

FH-ingar gerðu sitt á Laugardalvellinum í dag með því að vinna 3-0 sigur á Fram en þurfa engu að síður að horfa á eftir Íslandsbikarnum fara í Kópavoginn þar sem Blikar gerðu markalaust jafntefli við Stjörnuna og tryggðu sér titilinn á markatölu.

Ólafur þjálfar Fylki áfram

Ólafur Þórðarson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Fylki í Árbænum og verður því áfram þjálfari liðsins. Þetta kemur fram á heimasíðu Fylkis.

Houllier búinn að skrifa undir

Gerard Houllier er loksins búinn að skrifa undir samning við Aston Villa um að hann verði knattspyrnustjóri liðsins næstu þrjú árin.

Hver fær gullskóinn í ár?

Það er ekki bara verið að keppa um Íslandsmeistaratitilinn í lokaumferð Pepsi-deildar karla í dag því gull- silfur- og bronsskórinn er einnig í boði fyrir þrjá markahæstu leikmenn deildarinnar.

Aðeins þrjú ný nöfn á Íslandsbikarinn á síðustu 45 árum

Það hafa aðeins þrjú ný félög bæst í hóp Íslandsmeistara í knattspyrnu karla á síðustu 45 árum eða síðan að Keflvíkingar unnu sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil sumarið 1964. Blikar geta bæst í þann hóp vinni þeir Stjörnuna í Garðabænum í dag og takist það verður Breiðablik tíunda félagið til að eignast Íslandsmeistaratitil í meistaraflokki karla.

Umfjöllun: Selfoss féll með sæmd

Selfoss bar sigur úr býtum gegn Grindavík 5-2 í síðustu umferð Pepsi-deildar karla í dag. Leikurinn fór fram í mígandi rigningu og roki á Selfossi.

Umfjöllun: Öruggur sigur hjá KR gegn Fylki

Lítið var undir fyrir leik KR og Fylkis í Frostaskjólinu í dag. Fylkismenn voru búnir að tryggja sæti sitt í deildinni en gátu þó með sigri lyft sér upp fyrir Stjörnuna ásamt því að KR var með nánast öruggt Evrópusæti en gátu tryggt það með sigri.

Breiðablik Íslandsmeistari 2010

Breiðablik varð í dag Íslandsmeistari í karlaflokki í fyrsta skipti í sögu félagsins. Blikar gerðu þá markalaust jafntefli gegn Stjörnunni sem dugði til þar sem ÍBV tapaði í Keflavík. FH vann Fram en það dugði ekki til.

Umfjöllun: Haukar unnu lokaleik sinn í Pepsi-deildinni

Haukar höfðu betur gegn Valsmönnum að Hlíðarenda í dag, 2-1, í lokaumferð Pepsi-deildarinnar. Fyrir leikinn var ljóst að Haukar væru fallnir úr deildinnni og Valur hafði að litlu að keppa. Þrátt fyrir það var boðið upp á prýðilegan knattspyrnuleik.

Kominn tími til þess að einblína á fótboltann

Það hefur heldur betur gustað um Inter síðan Rafa Benitez tók við stjórnartaumunum hjá félaginu. Hann hefur gert sitt besta til þess að forðast allan samanburð við José Mourinho en það hefur gengið illa.

Gerrard: Galið að fara á taugum núna

Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, segir að það versta sem gæti komið fyrir liðið núna er að það fari á taugum. Hann segir að það megi ekki gerast þó svo ekkert hafi gengið í upphafi leiktíðar.

Ribery þarf meiri vernd frá dómurum

Hollendingurinn Mark Van Bommel er orðinn þreyttur á því hversu oft félagi sinn hjá FC Bayern, Franck Ribery, er negldur niður í leikjum og vill að hann fái betri vörn hjá dómurum deildarinnar.

Gylfi spilaði allan seinni hálfleikinn í jafntefli hjá Hoffenheim

Hoffenheim og Köln gerðu 1-1 jafntefli í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld en leikurinn fór fram á heimavelli Köln. Hoffenheim hefur þar með aðeins náð tveimur stigum út úr síðustu þremur leikjum sínum í deildinni eftir að hafa unnið þrjá fyrstu leikina.

Stjarnan með 8 mörk á KR-vellinum - Sandra markvörður skoraði

Stjarnan tryggði sér fjórða sætið í Pepsi-deild kvenna með 8-0 sigri á KR í fyrsta leik lokaumferðar deildarinnar sem klárast síðan á sunnudaginn. Lindsey Schwartz og Rachel Rapinoe skoruðu báðar tvö mörk í leiknum en markvörðurinn Sandra Sigurðardóttir var meðal markaskorara Stjörnunnar í leiknum.

Hannes breytti öllu fyrir Sundsvall í kvöld

Hannes Þ. Sigurðsson kom inn á sem varamaður og tryggði GIF Sundsvall 3-3 jafntefli á móti Heiðari Geir Júlíussyni og félögum í Ängelholms FF í sænsku b-deildinni í fótbolta. Hannes skoraði jöfnunarmarkið sjö mínútum fyrir leikslok en aðeins mínútu áður hafði hann lagt upp mark fyrir félaga sinn.

Theo Walcott leitar bata í 110 gráðu frosti

Theo Walcott, framherji Arsenal og enska landsliðsins, leitar allra hugsanlegra ráða til þess að ná sér sem fyrst af ökklameiðslunum sem hann varð fyrir í leik með enska landsliðinu í Sviss. Walcott byrjaði tímabilið frábærlega og meiðslin voru því mjög svekkjandi fyrir hann.

17 ára landsliðið vann Tyrki sem enduðu níu inn á vellinum

Íslenska 17 ára landsliðið vann 2-0 sigur á Tyrkjum í öðrum leik liðsins í undanriðli fyrir EM en riðilinn fer fram á Íslandi. Fylkismaðurnn Hjörtur Hermannsson og Blikinn Oliver Sigurjónsson skoruðu mörk íslenska liðsins en leikið var í Víkinni.

Lokaumferðin í beinni fyrir utan landsteinana

Lokaumferð Pepsi-deildar karla fer fram á morgun og nú er orðið ljóst að Íslendingar erlendis fá tækifæri til fylgjast með gangi mála á Sporttv.is. Útsending Stöð 2 Sport frá lokaumferðinni verður aðgengileg á netinu.

Queiroz ætlar að kæra portúgalska sambandið

Carlos Queiroz ætlar ekki að taka því þegjandi að hafa verið rekinn sem þjálfari portúgalska landsliðsins. Hann hefur nú sagt lögfræðingum sínum að kæra portúgalska knattspyrnusambandið vegna uppsagnarinnar.

Mancini: Chelsea verður meistari

Nýjustu ummæli Roberto Mancini, stjóra Man. City, eiga ekki eftir að kæta eigendur Man. City því Mancini er þegar búinn að lýsa því yfir að Chelsea verði enskur meistari á þessari leiktíð.

Kasi-Jesper ætlar líka í fótboltann

Jesper „Kasi“ Nielsen hefur undanfarin ár látið til sín taka í heimi handboltans í Danmörku og Þýskalandi og stefnir nú að vinna sömu sigra í knattspyrnunni.

Riise vildi hefna sín á Bellamy

John Arne Riise rifjaði upp í samtali við norska fjölmiðla í gær golfkylfurifrildið fræga við Craig Bellamy er þeir voru samherjar hjá Liverpool árið 2007.

Methagnaður hjá Arsenal

Arsenal hefur tilkynnt að félagið hefur aldrei hagnast meira en á síðasta rekstrarári er hagnaður var 56 milljónir punda eða rúmir tíu milljarðar króna.

Berbatov sáttur við sína ákvörðun

Dimitar Berbatov segist ekki sjá eftir því að hafa hætt að gefa kost á sér í búlgarska landsliðið en nýráðinn landsliðsþjálfari, Lothar Matthäus, sagðist í gær ætla sér að reyna að fá Berbatov til að klæðast landsliðstreyjunni á nýjan leik.

Lampard ekki með gegn City

Frank Lampard verður ekki með Chelsea þegar liðið mætir Manchester City í ensku úrvalsdeildinni á morgun.

Sjá næstu 50 fréttir