Fleiri fréttir

Mourinho bíður í Börsung

José Mourinho hefur að sögn fjölmiðla á Bretlandseyjum boðið Barcelona tæpar fjórar milljónir punda fyrir Brasilíumanninn Juliano Belletti. Sá er sókndjarfur hægri bakvörður sem er líklega þekktastur fyrir að hafa skorað sigurmark Barcelona gegn Arsenal í úrslitaleik Meistaradeildarinnar fyrir tveim árum.

Real Madrid nær samkomulagi við Chelsea um Robben

Real Madrid hefur náð samkomulagi við Chelsea um kaupverð á hollenska vængmanninum Arjen Robben. Robben hefur lengi verið undir smásjá Spánarmeistaranna og lofaði einmitt forseti klúbbsins, Ramon Calderon, að hann myndi fá Robben til liðsins yrði hann kosinn forseti.

Undankeppni EM: Úrslit kvöldsins

Sex leikir fóru fram í undankeppni EM ´08 fóru fram í kvöld. Einn leikur í riðli Íslands var leikinn, en N-Írland sigraði Liechtenstein örugglega með þremur mörkum gegn einu þar sem David Healy skoraði tvö fyrir N-Íra. Athygli vekur að Portúgalar náðu aðeins jafntefli gegn Armenum.

Vináttuleikir: Úrslit kvöldsins

Fjölmargir vináttulandsleikir fóru fram í kvöld. Mörg áhugaverð úrslit áttu sér stað, þar á meðal má nefna að Norðmenn sigruðu Argentínu og Ítalía tapaði fyrir Ungverjalandi. England tapaði fyrir Þjóðverjum á heimavelli og Íslendingar gerðu jafntefli við Kanada.

Ísland gerði jafntefli við Kanada

Íslenska landsliðið í knattspyrnu gerði í kvöld jafntefli við Kanada, 1-1. Leikurinn var ekki mikið fyrir augað og fá færi litu dagsins ljós. Íslenska liðið var þó sterkara í leiknum en það dugði ekki til. Gunnar Heiðar Þorvaldsson kom Íslendingum yfir með marki af stuttu færi eftir fína sendingu frá Baldri Aðalsteinssyni á 65. mínútu en Oliver Occean jafnaði fyrir Kanada á 74. mínútu með skoti af stuttu færi.

Kanada jafnar leikinn á Laugardalsvellinum

Oliver Occean var núna rétt í þessu að jafna leikinn fyrir Kanada gegn Íslandi. Paul Stalteri átti þrumuskot sem að Fjalar Þorgeirsson varði ágætlega en boltinn datt beint fyrir fæturnar á Occean sem átti ekki í erfiðleikum með að setja boltann yfir marklínuna. Staðan er 1-1, en Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði mark Íslands.

Gunnar Heiðar kemur Íslandi yfir

Gunnar Heiðar Þorvaldsson er búinn að koma íslenska landsliðinu yfir gegn því kanadíska á Laugardalsvellinum. Gunnar Heiðar skoraði markið á 65. mínútu af stuttu færi eftir sendingu frá Baldri Aðalsteinssyni sem var kominn upp á endamörkum. Staðan er 1-0.

Heinze skrifar undir hjá Real Madrid á morgun

Real Madrid hefur náð samkomulagi við Manchester United um kaup á varnarmanninum Gabriel Heinze. Spánarmeistararnir hafa lengi haft augastað á varnarmanninum og í kjölfar þess að Heinze fékk ekki að ganga til liðs við Liverpool gerði félagið tilboð í leikmanninn. Real Madrid hefur staðfest að tilboðið hafi verið samþykkt.

Markalaust í hálfleik í Laugardalnum

Markalaust er í hálfleik í vináttuleik Íslands og Kanada sem hófst klukkan 18:05 á Laugardalsvellinum. Leikurinn hefur verið rólegur og ekki mikið um færi. Emil Hallfreðsson átti þó fínt skot á fyrstu mínútu leiksins sem var varið í horn. Brynjar Björn Gunnarsson átti svo fínan skalla eftitr hornið en markvörður Kanada sá við honum. Leikmenn Kanada hafa komist lítt áleiðis en áttu þó fínt skot fyrir utan teig sem að Daði Lárusson varði vel.

Zlatan hefur ekki áhuga á að yfirgefa Inter

Sænski framherjinn Zlatan Ibrahimovic segir að hann sé ánægður hjá Inter og ekki á leið frá félaginu. Chelsea og Real Madrid eru sögð hafa áhuga á leikmanninum. Zlatan stóð sig vel á síðasta tímabili og hjálpað Inter að vinna deildina. Þrátt fyrir að hafa unnið deildina í fyrra eru ennþá sögusagnir um að leikmaðurinn vilji fara frá Inter.

U21: Ísland tapaði fyrir Kýpur

U21 landslið Íslands tapaði í dag sínum fyrsta leik í undankeppni EM ´09 fyrir Kýpur með einu marki gegn engu. Íslenska liðið var sterkara í leiknum en Kýpur skoraði sigurmarkið úr aukaspyrnu tuttugu mínútum fyrir leikslok.

Kýpur komið yfir í Grindavík

Kýpur var rétt í þessu að komast yfir gegn U21 liði Íslands í fyrsta leik Íslands í undankeppni EM ´09. Staðan er 0-1. Íslendingar eru búnir að sækja allan leikinn og því kemur markið gegn gangi leiksins. Markið kom úr aukaspyrnu af löngu færi.

Úttekt: Hvað græða liðin á að reka stjórann?

Martin Jol og Sammy Lee þykja líklegir kandídatar í að verða fyrstu knattspyrnustjórarnir til þess að taka pokann sinn á þessu tímabili. Vísir rifjar hér upp hverju það hefur skilað liðum á síðustu árum að reka knattspyrnustjórann svo snemma á leiktíðinni.

Benítez er ekki sáttur við stjórn úrvalsdeildarinnar

Rafa Benítez, knattspyrnustjóri Liverpool, segir stjórn úrvalsdeildarinnar vera ósanngjarna gagnvart Liverpool. Benítez er mjög ósáttur við að Gabriel Heinze fái ekki leyfi til að yfirgefa Manchester United þrátt fyrir að vera með skjöl sem sanna það að hann hafi rétt á því.

Sjónvarpssamningur eyðileggur knattspyrnuveislu

Nokkur óánægja hefur verið á meðal knattspyrnuáhugamanna á Íslandi vegna ákvörðunar KSÍ að raða niður leikjum landsliða Íslands sem fara fram í dag með svo stuttu millibili. Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, sagði í samtali við Vísi að þeir hafi verið í vandræðum með að raða niður leikjunum.

Leikir kvöldsins í undankeppni EM ´08

Sex leikir fara fram í kvöld í undankeppni Evrópumóts landsliða sem fram fer í Sviss og Austurríki á næsta ári. Íslenska liðið á ekki leik í undankeppninni í kvöld en leikur þess í stað vináttuleik gegn Kanada. Einn leikur fer fram í riðli Íslands í kvöld þegar N-Írland tekur á móti Liechtenstein.

Byrjunarlið Íslands gegn Kanada

Eyjólfur Sverrisson landsliðsþjálfari hefur tilkynnt byrjunarlið sitt fyrir leikinn gegn Kanada sem fram fer á Laugardalsvellinum í kvöld.

Yakubu að fara til Everton

Enska úrvalsdeildarliðið Middlesbrough hefur staðfest að félagið sé búið að semja við Everton um kaupverð á nígeríska framherjanum Yakubu Aiyegbeni. Klúbbarnir hafa átt í samningsviðræðum síðustu vikur og hafa nú loksins náð samkomulagi um að Everton borgi rúmar ellefu milljónir punda fyrir framherjann.

Beckham flýgur 18 þúsund kílómetra á sex dögum

Það er ekki tekið út með sældinni að vera David Beckham. Ákvörðun hans um að spila áfram með enska landsliðinu eftir að hann fluttist til Bandaríkjanna er þegar farin að taka sinn toll. Þetta sést best á ferðaáætlun hans þessa vikuna sem Vísir er búinn að taka saman.

Ísland í 117. sæti á FIFA-listanum

Íslenska landsliðið í knattspyrnu heldur áfram frjálsu falli sínu á styrkleikalista Alþjóða knattspyrnusambandsins. Liðið er nú í 117. sæti listans ásamt Súdan og hefur aldrei verið eins lágt á listanum og nú. Liðið hefur fallið um átta sæti frá síðasta lista og 24 sæti frá áramótum.

West Ham vill fá Heinze

Íslendingafélagið West Ham reynir nú að krækja í argentínska varnarmanninn Gabriel Heinze sem vill ekkert frekar en að komast frá Manchester United. Ljóst er að hann fer ekki til Liverpool eftir að nefnd ensku úrvalsdeildarinnar úrskurðaði að félag hans réði hvert hann færi og það opnaði fyrir áhuga West Ham.

Jol fær 520 milljónir ef hann verður rekinn

Þrátt fyrir að forráðamenn Tottenham geri hvað þeir geta til að draga fjöður yfir þá staðreynd að þeir vilja losna við hollenska knattspyrnustjórann Martin Jol þá hafa þeir nú gengið frá drögum að starfslokasamningi Jol ef hann verður rekinn.

Nýtt leikkerfi prófað gegn Kanada

Ísland og Kanada mætast annað kvöld í vináttulandsleik á Laugardalsvelli en þetta er í fyrsta sinn sem liðin munu mætast í knattspyrnuleik. Ísland er í 107. sæti á styrkleikalista FIFA en Kanada í 52. sæti.

AC Milan byrjar án Ronaldo

Evrópumeistarar AC Milan þurfa líklega að byrja tímabilið á Ítalíu án sóknarmannsins Ronaldo. Þessi brasilíski snillingur á við meiðsli að stríða og hefur lítið sem ekkert getað æft undanfarnar vikur. Ólíklegt er að hann verði tilbúinn í slaginn á sunnudag þegar Milan mætir Genoa í fyrsta leik sínum á tímabilinu.

Viðræður um Yakubu standa yfir

Viðræður standa enn yfir milli Everton og Middlesbrough um sóknarmanninn Yakubu Aiyegbeni. Fréttir höfðu borist um að Everton væri búið að gefast upp á því að krækja í Yakubu en þær eru víst úr lausu lofti gripnar.

KR og Keflavík í úrslitaleikinn

Það verða KR og Keflavík sem munu mætast í úrslitaleik VISA-bikars kvenna sem fram fer á Laugardalsvelli 22. september. Undanúrslitaleikirnir fóru fram í kvöld en þar vann KR 7-3 sigur á Breiðabliki á útivelli og Keflavík vann Fjölni 3-1 á heimavelli sínum.

Shevchenko ekki í góðu formi

Úkraínski sóknarmaðurinn Andriy Shevchenko hjá Chelsea er ekki í nægilega góðu formi til að spila heilan leik. Þetta segir Oleg Blokhin, landsliðsþjálfari Úkraínu, en hann kennir um mikilli bekkjarsetu Shevchenko hjá enska stórliðinu.

Newcastle bíður eftir boði í Martins

Newcastle United býst við að fá tilboð frá Manchester United í Obafemi Martins. Þessi ungi leikmaður er einn af fjölmörgum sóknarmönnum sem hafa verið orðaðir við ensku meistarana en liðið hefur aðeins skorað eitt mark í fyrstu þremur leikjum sínum í ensku deildinni.

Olga komin með fjögur gegn Breiðabliki

Nú er hálfleikur í undanúrslitaleikjunum tveimur í VISA-bikar kvenna en þeir hófust klukkan 18. Olga Færseth hefur farið hamförum með KR sem er 4-1 yfir gegn Breiðabliki á Kópavogsvelli. Í Keflavík hafa heimastúlkur 2-0 yfir gegn Fjölni.

Martin Jol áfram með Tottenham

Tottenham Hotspur hefur staðfest að Martin Jol verði áfram knattspyrnustjóri liðsins en haldinn var stjórnarfundur í dag. Framtíð Jol var talinn í óvissu og talað um að stjórn félagsins vildi fá Juando Ramos, þjálfara Sevilla, til starfa. Nú er hinsvegar ljóst að Jol verður áfram.

Ívar er ekki til sölu

Reading ætlar ekki að selja neinn af byrjunarliðsmönnum sínum áður en félagaskiptaglugganum lokar. Nokkur úrvalsdeildarlið hafa sýnt leikmönnum liðsins áhuga en þar á meðal er Everton sem vill fá til sín íslenska landsliðsmanninn Ívar Ingimarsson.

Sagna: Eboue er vanmetinn

Bacary Sagna, varnarmaður Arsenal, segir að hægri bakvörðurinn Emmanuel Eboue sé einn vanmetnasti leikmaðurinn í enska boltanum. Hann sparar ekki stóru orðin þegar hann talar um Eboue og segir að það sé frábært að spila með honum.

Fer Heinze til Spánar?

Manchester United hefur lýst yfir ánægju sinni með ákvörðun stjórnar ensku úrvalsdeildarinnar um að neyða félagið ekki til að selja Gabriel Heinze til Liverpool. Nú er útlit fyrir að þessi 29 ára argentínski vinstri bakvörður fari í spænsku deildina en United hefur víst boðið leikmanninn til Real Madrid og Barcelona.

Ekki þörf fyrir Euell hjá Middlesbrough

Jason Euell er sár og svekktur eftir að honum var tjáð að hans væri ekki þörf hjá Middlesbrough og gæti farið að leita sér að nýju liði. Eitt ár er síðan Gareth Southgate, stjóri Middlesbrough, keypti Euell frá Charlton.

Richards hefur ekki skrifað undir

Varnarmaðurinn Micah Richards hefur enn ekki skrifað undir samning við Manchester City. Þessi bráðefnilegi varnarmaður sem er fæddur 1988 fékk nýjan samning í hendurnar í síðasta mánuði en hefur enn ekki skrifað nafn sitt undir hann.

Breyting á U21 landsliðshópnum

Luka Kostic, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur gert eina breytingu á hóp sínum fyrir leikinn gegn Kýpur sem fram fer á morgun. Hallgrímur Jónasson úr Keflavík kemur inn í hópinn í stað Eggerts Gunnþórs Jónssonar, leikmanns skoska liðsins Hearts, sem er meiddur.

Real enn á eftir Robben

Spænska liðið Real Madrid heldur enn í vonina um að krækja í hollenska landsliðsmanninn Arjen Robben sem er á mála hjá Chelsea. Hans, faðir Arjen, segir að enn sé möguleiki á því að sonur sinn klæði sig í hvíta búninginn áður en lokað verði fyrir félagaskipti.

Guti undir smásjá City

Manchester City fylgist grannt með stöðu Guti hjá spænska stórliðinu Real Madrid. Guti var ekki í byrjunarliði Madrídarliðsins á sunnudaginn þegar það tapaði fyrir Sevilla í hinum árlega Super Copa leik. Hann er víst að skoða stöðu sína hjá Real Madrid þessa dagana.

Tottenham býður í Riquelme

Umboðsmaður argentínska miðjumannsins Juan Roman Riquelme segir að Tottenham hafi komið með tilboð í leikmanninn. Spænska liðið Villareal er tilbúið að selja Riquelme en leikmaðurinn eyddi seinni helmingi síðasta tímabils á lánssamningi hjá Boca Juniors í heimalandinu.

Johnson ekki með gegn Þýskalandi

Andy Johnson, sóknarmaður Everton, verður ekki með enska landsliðinu í vináttulandsleiknum gegn Þýskalandi á morgun. Hann er meiddur á hné og dregur sig því út úr hópnum. Þetta er enn eitt áfallið fyrir enska liðið en margir leikmenn geta ekki spilað vegna meiðsla.

Verður aldrei fullt á nýja Anfield?

Hjá Liverpool eru hugmyndir uppi um skilja 96 sæti alltaf eftir auð á nýjum leikvangi félagsins. Á það að vera til minningar um stuðningsmennina sem létu lífið á Hillsborough 1989. Það voru alls 96 aðdáendur Liverpool sem biðu bana þegar þeir krömdust upp við girðingu á undanúrslitaleik FA bikarsins gegn Nottingham Forest.

Undanúrslit VISA-bikars kvenna í kvöld

Í kvöld fara fram undanúrslit VISA-bikars kvenna og hefjast báðir leikir kvöldsins kl. 18:00. Á Kópavogsvelli er stórleikur milli Breiðabliks og KR en í Keflavík taka heimastúlkur á móti Fjölni.

Lazio vill fá Cudicini

Lazio hefur haft samband við Chelsea vegna markvarðarins Carlo Cudicini. Samkvæmt ítölskum fjölmiðlum vill Lazio fá Cudicini lánaðan. Argentínski markvörðurinn Juan Pablo Carrizzo fékk ekki ítalskt ríkisfang og því horfir Lazio til Cudicini.

Ronaldo: Nani má vera stoltur

Menn hafa misjafnar skoðanir á byrjun tímabilsins hjá portúgalska leikmanninum Nani og hefur hann fengið talsverða gagnrýni. Cristiano Ronaldo, liðsfélagi hans hjá Manchester United, segir þó að landi sinn geti verið mjög stoltur af því hvernig hann fer af stað með Englandsmeisturunum.

Er Anelka á förum?

Nicolas Anelka gæti yfirgefið herbúðir Bolton áður en félagaskiptaglugganum lokar. Þessi franski sóknarmaður hefur verið orðaður við Manchester liðin City og United eftir mjög slæma byrjun Bolton á tímabilinu. Einnig fylgist Lyon í heimalandi hans grannt með gangi mála.

Sjá næstu 50 fréttir