Fleiri fréttir

Heiðar Davíð með forystu í Eyjum

Heiðar Davíð Bragason úr GR hefur forystu á Íslandsmótinu í höggleik sem stendur yfir í Vestmannaeryjum. Hann lék hringinn í dag á 67 höggum, eða 3 höggum undir pari.

Garðar besti Íslendingurinn í Svíþjóð

Þó svo að Norrköping sé á botni sænsku úrvalsdeildarinnar er Garðar Gunnlaugsson, leikmaður liðsins, besti íslenski leikmaður deildarinnar að mati Aftonbladet.

Dóttur Mexes var rænt

Vopnaðir menn rændu bíl Philippe Mexes meðan ung dóttir hans svaf í aftursætinu. Franski landsliðsmaðurinn var kominn fyrir utan heima hjá sér eftir að hafa farið út að borða með fjölskyldunni.

Robinson færist nær Blackburn

Blackburn vonast til að ganga frá kaupum á markverðinum Paul Robinson frá Tottenham á næstu klukkustundum. Talið er að félögin hafi komið sér saman um kaupverðið sem nemur 3,5 milljónum punda.

Arnar: Kominn tími til að Blikar taki bikar

Breiðabliksliðið hefur verið mikið í umræðunni síðustu vikur. Liðið hefur þótt spila skemmtilegan fótbolta og þá hafa nokkrir kornungir og efnilegir leikmenn vakið mikla athygli.

Stoor á leið til Fulham

Fulham er að ganga frá kaupum á sænska landsliðsmanninum Fredrik Stoor frá Rosenborg í Noregi. Þessi 24 ára varnarmaður lék með Svíum á Evrópumótinu í sumar.

Ásmundur: Ætlum að gera betur en í fyrra

„Það er endurtekin viðureign frá því í fyrra og það verður spennandi að mæta Fylkismönnum aftur," sagði Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fjölnis, eftir bikardráttinn í dag.

Capello ætlar að hætta eftir HM

Fabio Capello ætlar að hætta þjálfun eftir heimsmeistaramótið 2010. Capello er þjálfari enska landsliðsins en hann hefur enn ekki stýrt liðinu í mótsleik eftir að hafa tekið við því í desember.

Martins gæti misst af byrjun tímabilsins

Obafemi Martins, sóknarmaður Newcastle, gæti misst af byrjun tímabilsins vegna dauða móður hans. Hann er floginn út til Nígeríu í faðm fjölskyldunnar og ekki er vitað hvenær hann snýr aftur.

Phil Neville framlengir hjá Everton

Phil Neville, fyrirliði Everton, hefur skrifað undir nýjan fjögurra ára samning við félagið. Neville verður því á Goodison Park til 2012 en hann vill ljúka ferlinum þar.

Beckham og félagar unnu West Ham

Stjörnulið MLS-deildarinnar vann enska úrvalsdeildarliðið West Ham í sýningarleik í Toronto í Kanada í gær. David Beckham, leikmaður LA Galaxy, var meðal leikmanna í stjörnuliðinu.

Chelsea enn á eftir Robinho

Chelsea hefur staðfest að félagið sé ekki búið að gefast upp á því að reyna að krækja í Robinho frá Real Madrid. Viðræður milli félagana standa yfir.

Meiðsli hrjá Stewart Downing

Vængmaðurinn Stewart Downing hjá Middlesbrough virðist ætla að missa af leikjum liðsins á æfingamótinu Algarve Cup í Portúgal eftir að hann meiddist á æfingu á mánudag.

Eygló Óskarsdóttir í forystu í Eyjum

Eygló Myrra Óskarsdóttir úr GO hefur þriggja högga forystu í kvennaflokki eftir fyrsta hringinn á Íslandsmótinu í höggleik sem fram fer í Vestmannaeyjum.

Eiður skoraði tvívegis í stórsigri Barcelona

Eiður Smári Guðjohnsen var í byrjunarliði Barcelona í kvöld þegar liðið vann 6-0 stórsigur á skoska liðinu Hibernian í æfingaleik. Eiður skoraði fyrsta og þriðja mark Barcelona á 5. og 17. mínútu leiksins.

Sigur í fyrsta leik hjá Mourinho

Inter Milan sýndi engin glæsitilþrif í kvöld þegar liðið vann 1-0 sigur á Al-Hilal í fyrsta æfingaleiknum undir stjórn Jose Mourinho. Það var Nicolas Burdisso sem skoraði sigurmark Inter í leiknum.

Ermolinskij íhugar tilboð frá Spáni

Íslenski landsliðsmaðurinn Pavel Ermolinskij sem leikið hefur með Ciudad Huelva á Spáni er nú að íhuga nokkrar fyrirspurnir sem gerðar hafa verið í hann frá öðrum liðum.

Góður sigur á Þjóðverjum

Íslenska 20 ára landslið kvenna vann í dag frækinn 24-23 sigur á Þjóðverjum á HM stúlknalandsliða sem fram fer í Makedóníu. Staðan í hálfleik var 13-11 fyrir þýska liðið. Íslenska liðið hefur nú unnið einn leik og gert tvö jafntefli í riðlinum og á aðeins eftir að spila við Rúmena.

Mosley dæmdar tæpar 10 milljónir í miskabætur

Max Mosley, forseti Alþjóða akstursíþróttasambandsins, vann dómsmál sem hann höfðaði gegn breska blaðinu News of the World vegna skrifa um kynlíf hans sem sagt var að bæri með sér nasiskan undirtón.

Haukar komnir á Laugardalsvöll

Átta liða úrslit VISA-bikars karla fara fram í kvöld. Tvö lið úr 1. deild eiga möguleika á því að komast í undanúrslit keppninnar. Haukar taka á móti Fylki og þá heimsækir Víkingur Reykjavík lið Fjölnis.

Eiður Smári er túlkur fyrir Hleb

Alexander Hleb er fullur tilhlökkunar fyrir komandi tímabil á Spáni en hann gekk til liðs við Barcelona frá Arsenal á dögunum. Eiður Smári Guðjohnsen og Thierry Henry eru túlkar fyrir Hleb á æfingum.

Ræðst í dag hvort Bjarni fari í Val

„Á einn eða annan hátt mun þetta skýrast í dag," sagði Bjarni Guðjónsson, leikmaður ÍA, þegar Vísir náði tali af honum fyrir skömmu. Bjarni er sterklega orðaður við Valsmenn sem vilja ólmir fá hann í sínar raðir.

Anthony Gardner til Hull

Hull City, nýliðarnir í ensku úrvalsdeildinni, eru að fá varnarmanninn Anthony Gardner lánaðan frá Tottenham. Þessi 27 ára leikmaður fer í læknisskoðun á morgun.

Viðræður um Bjarna standa yfir

Valsmenn ætla að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að klófesta Bjarna Guðjónsson frá ÍA. Þetta sagði Börkur Edvardsson, formaður Vals, í viðtali í fréttum Ríkissjónvarpsins í gær.

Titilvörn Björgvins fer vel af stað

Íslandsmeistarinn Björgvin Sigurbergsson úr GK hóf titilvörn sína á Íslandsmótinu í höggleik með glæsibrag. Mótið hófst í Vestmannaeyjum í morgun en Björgvin kom inn á 66 höggum eða fjórum höggum undir pari.

Pálmi og Kári Steinn æfa með Skagamönnum

Pálmi Haraldsson og Kári Steinn Reynisson eru farnir að æfa með Skagamönnum. Báðir höfðu þeir lagt skóna á hilluna en eru til í að hjálpa liðinu í þeirri erfiðu fallbaráttu sem liðið er í.

David Ngog til Liverpool

Rafael Benítez hefur gengið frá kaupum á franska sóknarmanninum David Ngog frá Paris St Germain. Þessi efnilegi nítján ára leikmaður hefur skrifað undir fjögurra ára samning við Liverpool.

Auðun spáir óvæntum úrslitum að Ásvöllum í kvöld

Átta liða úrslit VISA-bikars karla fara fram í kvöld. Allir leikirnir hefjast klukkan 19:15 en Vísir fékk Auðun Helgason, varnarmann Fram, til að spá í spilin fyrir leikina. Auðun spáir að heimavöllurinn muni vega þungt í kvöld.

Muntari á leið til Inter

Sulley Muntari, miðjumaður Portsmouth, er að ganga til liðs við Ítalíumeistara Inter fyrir 12,7 milljónir punda. Þessi 23 ára landsliðsmaður frá Gana hefur samþykkt fjögurra ára samning.

Fleiri mörk skoruð

Það sem af er móti í Landsbankadeild karla hafa leikmenn reimað vel á sig skotskóna en að meðaltali hafa verið skoruð 3,06 mörk að meðaltali í leikjunum 72 í sumar.

Kuyt: Torres verður betri

Dirk Kuyt varar varnarmenn úrvalsdeildarinnar við því að liðsfélagi hans, Fernando Torres, verði enn betri á næsta tímabili. Torres átti magnað fyrsta tímabil á Englandi og skoraði 33 mörk í öllum keppnum.

Scholes tvö ár í viðbót

Paul Scholes, miðjumaður Manchester United, segist reikna með því að leggja skóna á hilluna eftir tvö ár. Scholes er orðinn 33 ára en hann hefur allan sinn feril leikið með United.

Fær AC Milan Berbatov á afslætti?

Sögusagnir eru í gangi um að Tottenham vilji alls ekki selja sóknarmanninn Dimitar Berbatov til Manchester United. Í nokkrum fjölmiðlum er sagt að félagið hafi boðið AC Milan að fá leikmanninn á afsláttarverði.

Tevez: Virðið óskir Ronaldo

Carlos Tevez hefur stigið fram og biðlað til stjórnar Manchester United að hlusta á óskir Cristiano Ronaldo og virða draum hans að spila fyrir Real Madrid.

Strákarnir okkar leika í Frakklandi um helgina

Íslenska handboltalandsliðið tekur þátt í æfingamóti í Strasbourg í Frakklandi um komandi helgi. Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari valdi sautján manna hóp til að taka þátt í verkefninu.

Valsmenn úr leik í Evrópukeppninni

Valur tapaði í kvöld 1-0 fyrir liði Bate frá Hvíta-Rússlandi í síðari leik liðanna í forkeppni Meistaradeildar Evrópu og er því úr leik í keppninni. Valsmenn töpuðu fyrri leiknum ytra 2-0.

Stuðningsmenn Inter bauluðu á Mourinho

Jose Mourinho fékk í dag að upplifa þá óskemmtilegu reynslu að láta stuðningsmenn Inter baula á sig. Þjálfarinn uppskar reiði þeirra þegar hann ákvað á síðustu stundu að hafa æfingu liðsins í dag á bak við luktar dyr.

Hugsar enn um vítið á hverjum morgni

John Terry, fyrirliði Chelsea, segist enn hugsa um vítið sem fór í súginn í úrslitaleik Meistaradeildarinnar á hverjum einasta morgni þegar hann vaknar.

Dortmund sigraði í meistarakeppninni

Borussia Dortmund vann í kvöld 2-1 sigur á Bayern Munchen í meistarakeppninni í þýsku úrvalsdeildinni. Keppnin var haldin í fyrsta skipti síðan árið 1996, en það á vann Dortmund einnig sigur.

Tainio semur við Sunderland

Finnski landsliðsmaðurinn Teemu Tainio sem leikið hefur með Tottenham í ensku úrvalsdeildinni frá árinu 2005 skrifaði í kvöld undir þriggja ára samning við Sunderland.

Sjá næstu 50 fréttir