Fleiri
Meistarar krýndir í dag 29.9.2007 00:01 Þróttur upp og Reynir niður Þróttur vann Reynismenn suður með sjó, 4-0, á meðan að ÍBV vann Fjölni, 4-3. Þróttarar fara því upp ásamt deildarmeisturum Grindavíkur og Fjölni. 28.9.2007 19:15 Hjörtur: Líklegt að ég hætti Hjörtur Hjartarson, markakóngur 1. deildarinnar, segir líklegt að hann hafi spilað sinn síðasta leik í dag. 28.9.2007 23:17 Sjá næstu 50 fréttir
Snæfellingar unnu Powerade bikarinn Snæfellingar fögnuðu í dag sigri í Powerade bikarnum í karlaflokki með sigri á KR 72-65 í miklum baráttuleik í Laugardalshöll. Snæfell lenti undir 2-0 í leiknum en hafði undirtökin eftir það og vann verðskuldaðan sigur. 30.9.2007 17:47
Keflavíkurstúlkur deildarbikarmeistarar Keflavíkurstúlkur tryggðu sér sigur í Powerade bikarnum í körfubolta í dag þegar þær lögðu lið Hauka í úrslitaleik 95-80. Haukaliðið vann alla titla sem í boði voru á síðustu leiktíð, en Keflvíkingar sáu til þess að þær endurtaka það ekki í ár. 30.9.2007 17:35
Everton í fimmta sætið Everton smellti sér í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar í dag þegar liðið lagði Middlesbrough 2-0 á heimavelli sínum Goodison Park. Middlesbrough fékk fullt af fínum færum í leiknum en náði ekki að nýta þau. 30.9.2007 17:13
Howard kominn í markið hjá Everton Leikur Everton og Middlesbrough í ensku úrvalsdeildinni hófst nú klukkan 15 og er þetta eini leikurinn í deildinni í dag. Tim Howard er kominn aftur í markið hjá Everton eftir meiðsli og þá er markahrókurinn Yakubu kominn aftur í framlínuna. 30.9.2007 15:00
Hamilton vill losna við Alonso Lewis Hamilton segist ekki eiga von á því að hann og liðsfélagi hans Fernando Alonso geti verið saman í liði á næsta keppnistímabili, en deilur þeirra tveggja síðustu mánuði hafa skapað gríðarlega spennu í herbúðum McLaren. 30.9.2007 14:45
Kærasta Crouch dansar brúðudansinn Enski landsliðsmaðurinn Peter Crouch hjá Liverpool sló í gegn í fyrra þegar hann dansaði vélmennadansinn þegar hann fagnaði marki gegn Ungverjum. Kærastan hans svaraði þessu með því að dansa brúðudansinn. 30.9.2007 14:33
Grant verður farinn fyrir jól "Æfingarnar hjá Avram Grant eru grín," segir ónefndur leikmaður Chelsea í samtali við News of the World í dag. Þar gagnrýnir hann þjálfunaraðferðir stjórans og segir hann ekki njóta virðingar leikmanna - hann verði látinn taka pokann sinn fyrir jól. 30.9.2007 14:18
Þjóðverjar vörðu titilinn Þýska kvennalandsliðið í knattspyrnu varð í dag fyrsta liðið í sögunni til að verja heimsmeistaratign sína með 2-0 sigri á Brasilíu í úrslitaleik í Kína. Fyrirliðinn Birgit Prinz kom þýska liðinu á bragðið og Simone Laudehr tryggði sigurinn. Martha hafði áður átt skot í þverslá og misnotað vítaspyrnu fyrir Brasilíu. 30.9.2007 14:00
Við erum klárlega með betra lið en Chelsea Spænski landsliðsmaðurinn David Villa hjá Valencia fer ekki leynt með skoðanir sínar á Avram Grant og liði hans Chelsea fyrir viðureign liðanna í Meistaradeildinni á miðvikudaginn. 30.9.2007 13:43
"Kloni" tryggði Bayern sigur Bayern Munchen vann í gær mikilvægan 1-0 sigur á Bayer Leverkusen í toppslag þýsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu. Það var Ítalinn Luca Toni sem skoraði sigurmarkið skömmu fyrir hlé eftir sendingu frá Miroslav Klose. 30.9.2007 13:30
Inter malaði Roma Inter vann í gær öruggan 4-1 útisigur á Roma í ítölsku A-deildinni í gær og skellti sér á toppinn í kjölfarið. Zlatan Ibrahimovic kom gestunum á bragðið með sjöunda marki sínu í deildinni og þannig var staðan í hálfleik. 30.9.2007 13:20
Van der Sar ekki með gegn Roma Hollenski markvörðurinn Edwin van der Sar hjá Manchester United verður ekki með liðinu í leiknum gegn Roma á Old Trafford í Meistaradeildinni þriðjudaginn. Hann meiddist á tá í leiknum gegn Birmingham í gær og það verður Pólverjinn Tomasz Kuszczak sem tekur stöðu hans gegn Roma. 30.9.2007 12:48
Henry skoraði þrennu Thierry Henry opnaði markareikning sinn fyrir Barcelona í deildinni með látum í gær þeggar hann skoraði þrennu í 4-1 útisigri liðsins á Levante í gærkvöldi. Viðureignin var leikur kattarins að músinni og var Leo Messi enn í eldlínunni. Hann átti þátt í tveimur marka Henry og skoraði það fjórða sjálfur. Barcelona skaust á toppinn með sigrinum. 30.9.2007 12:43
Bandaríkin hirtu bronsið Það var lið Bandaríkjanna sem hirti bronsið á HM kvenna í knattspyrnu sem stendur yfir í Kína, en liðið vann öruggan 4-1 sigur á Norðmönnum í leiknum um þriðja sætið í dag. Abby Wambach kom liðinu yfir í fyrri hálfleik og bætti við öðru marki sínu eftir horn í þeim síðari. Þær bandarísku bættu svo við tveimur mörkum áður en Ragnild Guldbrandsen náði að laga stöðuna. 30.9.2007 12:38
Hamilton skrefi nær titlinum Breski ökuþórinn Lewis Hamilton tók í morgun stórt skref í áttina að því að verða fyrsti nýliðinn til að verða heimsmeistari í Formúlu 1 þegar hann sigraði í Japanskappakstrinum. 30.9.2007 12:16
Bannaði Cole að fara til Real Madrid Cheryl Cole, eiginkona enska landsliðsmannsins Ashley Cole, hefur viðurkennt að hún hafi eyðilagt fyrir manni sínum að ganga til liðs við draumaliðið sitt Real Madrid. Hún segist ekki hafa verið tilbúintil að fórna ferlinum sem söngkona fyrir hann og því gekk Ashley Cole til liðs við Chelsea frá Arsenal. 30.9.2007 08:07
Hef alltaf sagt að ég kunni ekki að skalla Jónas Grani Garðarsson, leikmaður Fram, skoraði bæði mörk liðs síns gegn Breiðabliki í 2-2 jafntefli liðanna í lokaumferð Landsbankadeildar karla í gær og varð því markakóngur Landsbankadeildar með 13 mörk í 17 leikjum. 30.9.2007 00:01
Rúnar kvaddi með stoðsendingu Taugar Vesturbæinga hafa verið þandar til hins ýtrasta í sumar enda hefur KR setið á botninum í nánast allt sumar. Brúnin lyftist af Vesturbæingum þegar ljóst var að liðið slapp við fall eftir 1-1 jafntefli gegn Fylki sem þar með missti af þriðja sætinu. 30.9.2007 00:01
Tuttugu ára bið Valsmanna á enda Valsmenn eru Íslandsmeistarar í Landsbankadeild karla eftir 1-0 sigur á HK á Laugardalsvellinum. Miðvörðurinn Atli Sveinn Þórarinsson tryggði Val titilinn með því að skora eina mark leiksins eftir aðeins 13 mínútna leik. Þetta er tuttugasti Íslandsmeistaratitill Hlíðarendaliðsins sem kemst þar með í hóp með KR sem einu félögin með 20 titla. 30.9.2007 00:01
Spilað til úrslita í dag Úrslitaleikir Powerade-bikarsins í körfubolta fara fram í Laugardalshöllinni í dag. Klukkan 14.00 mætast Haukar og Keflavík í kvennaflokki og klukkan 16.00 spila karlalið KR og Snæfells til úrslita. 30.9.2007 00:01
Tókum þetta á endasprettinum Sigurbjörn Hreiðarsson, Guðmundur Benediktsson og Helgi Sigurðsson voru allir í lykilhlutverki í fagnaðarlátunum hjá Valsmönnum en það var mikið fjör inni í búningsklefanum eftir leik. 30.9.2007 00:01
Valsmenn eru Íslandsmeistarar Valur hampaði í dag Íslandsmeistaratitlinum í knattspyrnu í fyrsta skipti í 20 ár. Valsmenn lögðu HK 1-0 á Laugardalsvelli og því skiptu önnur úrslit ekki máli. FH lagði Víking 3-1 og því eru Víkingar fallnir úr Landsbankadeildinni. 29.9.2007 13:49
Enn vinnur United 1-0 Manchester United komst í dag í annað sæt ensku úrvalsdeildarinnar með því að leggja Birmingham 1-0 á útivelli. Það sama var uppi á teningnum hjá United og venjulega, lítið fór fyrir fljúgandi spilamennsku liðsins frá síðustu leiktíð en niðurstaðan engu að síður enn einn 1-0 sigurinn. 29.9.2007 18:39
Mikill léttir "Eins sorglega og það hljómar var það mikill léttir að við næðum að bjarga okkur frá falli í dag. Menn fórnuðu sér fyrir málstaðinn og klúbbinn í dag, en liðið er auðvitað búið að vera spila langt undir getu í allt sumar. 29.9.2007 18:21
Þurftum enga presta eða sálfræðinga Logi Ólafsson þjálfari KR sagðist vera sáttur við að hafa náð að klára verkefnið sem honum var sett fyrir þegar hann tók við liðinu seint í sumar - að halda stórveldinu í efstu deild. 29.9.2007 18:11
John Terry fluttur á sjúkrahús John Terry, fyrirliði Chelsea, er nú á sjúkrahúsi eftir að hann lenti í samstuði við Clint Dempsey í leik Chelsea og Fulham í dag. Óttast er að hann sé kinnbeinsbrotinn og að hann muni því missa af leikjum Englendinga í undankeppni EM í þessum mánuði. Hann fer í aðgerð á sjúkrahúsinu á morgun. 29.9.2007 17:59
Botnliðin skildu jöfn Derby og Bolton skildu jöfn 1-1 í botnslagnum í ensku úrvalsdeildinni í dag þar sem mikið var í húfi. 29.9.2007 17:50
Blackburn taplaust á útivelli Blackburn heldur áfram að ná fínum úrslitum á útivelli í ensku úrvalsdeildinni og lagði Sunderland 2-1 úti í dag. Mark Hughes hafði þar betur gegn fyrrum félaga sínum Roy Keane í fyrsta einvígi þeirra sem stjórar í úrvalsdeildinni. 29.9.2007 17:31
Benayoun bjargaði Liverpool Ísraelsmaðurinn Yossi Benayoun bjargaði öllum þremur stigunum fyrir Liverpool í dag þegar liðið vann 1-0 baráttusigur á Wigan á útivelli. Benayoun kom inn sem varamaður og skoraði sigurmark gestanna með góðu einstaklingsframtalki á 75. mínútu. 29.9.2007 17:26
Vandræði Chelsea halda áfram Didier Drogba var rekinn af velli og John Terry er líklega með brákað kinnbein eftir að Chelsea mistókst enn eina ferðina að vinna leik í ensku úrvalsdeildinni í dag. Chelsea náði aðeins 0-0 jafntefli á heimavelli gegn Fulham. 29.9.2007 17:18
Arsenal áfram á toppnum Arsenal heldur toppsætinu í ensku úrvalsdeildinni eftir sanngjarnan 1-0 sigur á grönnum sínum í West Ham á Upton Park í dag. Robin Van Persie skoraði sigurmark gestanna snemma leiks. 29.9.2007 17:09
Hermann skoraði í 7-4 sigri Íslendingaslagur Portsmouth og Reading í ensku úrvalsdeildinni í dag var ævintýri líkastur en alls voru skoruð 11 mörk í leiknum. Það voru heimamenn sem fögnuðu sigri 7-4. 29.9.2007 16:54
Ummæli Valsmanna eftir sigurinn Willum Þór Þórsson þjálfari Vals var að vonum kampakátur eftir að hans menn hömpuðu Íslandsmeistaratitlinum í dag. Það voru þeir Helgi Sigurðsson og Guðmundur Benediktsson einnig. 29.9.2007 16:45
FH verður ekki meistari að eilífu "Við ætluðum að klára okkar leik ef Valsmenn myndu misstíga sig og gerðum það. Það er hundfúlt að tapa þessu eftir að hafa verið með forystuna svona lengi í sumar. Það er líka fúlt að lenda í öðru sæti en FH verður ekki Íslandsmeistari að eilífu. Valsararnir hafa verið að bæta sig og eru bara með betra lið en við núna," sagði Ólafur Jóhannesson, þjálfari FH eftir sigur hans manna á Víkingi í dag. 29.9.2007 16:35
Ætla að grenja heima á morgun "Þetta er ólýsanleg tilfinning," sagði Sigurbjörn Hreiðarsson, fyrirliði Valsmanna eftir að liðið tryggði sér titilinn í dag. 29.9.2007 16:31
Frábær sigur hjá City Lærisveinar Sven-Göran Eriksson í Manchester City sýndu sínar bestu hliðar á heimavelli í dag þegar þeir unnu verðskuldaðan 3-1 sigur á Newcastle í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. 29.9.2007 13:36
Drogba og Torres byrja Ný styttist í að leikir dagsins í enska boltanum fari á fullt. Man City hefur yfir 2-1 gegn Newcastle þegar 15 mínútur eru eftir af fyrsta leik dagsins. Martins kom gestunum í Newcastle yfir en Petrov og Mpenza komu City í 2-1. 29.9.2007 13:20
Keane: Tek hárblásturinn í klefanum Roy Keane, stjóri Sunderland, segist hafa tekið meðvitaða ákvörðun um það fyrir leiktíðina að geyma alla reiðilestra yfir liðsmönnum sínum þangað til hann er kominn inn í lokuð búningsherbergi. 29.9.2007 12:27
Fowler fer aftur á Anfield Nú hefur verið dregið í fjórðu umferð enska deildarbikarsins og þar ber hæst að Robbie Fowler fer með liði sínu Cardiff á Anfield og mætir sínum gömlu félögum í Liverpool. Þá fá United-banarnir í Coventry heimaleik á móti West Ham. 29.9.2007 12:10
Drogba: Andinn er farinn Framherjinn Didier Drogba segist enn vera í sjokki yfir brottförn Jose Mourinho hjá Chelsea. Hann segir andann í herbúðum liðsins ekki saman síða og segist þurfa að finna sér nýja hvatningu til að spila með liðinu. 29.9.2007 11:50
Schmeichel settur út úr liði City Fyrsti leikur dagsins í ensku úrvalsdeidinni er nú að hefjast og er hann sýndur beint á Sýn 2. Þetta er viðureign Man City og Newcastle. Athygli vekur að danski markvörðurinn Kasper Schmeichel hefur verið settur út úr liðinu og í hans stað kemur Joe Hart. 29.9.2007 11:38
Hamilton náði ráspól Breski ökuþórinn Lewis Hamilton hjá McLaren stakks sér fram úr félaga sínum Fernando Alonso á síðustu stundu í tímatökum fyrir Japanskappaksturinn í morgun og verður því á ráspól í keppninni á morgun. Kimi Raikkönen og Felipe Massa hjá Ferrari hirtu þriðja og fjórða sætið. 29.9.2007 11:33
Þróttur upp og Reynir niður Þróttur vann Reynismenn suður með sjó, 4-0, á meðan að ÍBV vann Fjölni, 4-3. Þróttarar fara því upp ásamt deildarmeisturum Grindavíkur og Fjölni. 28.9.2007 19:15
Hjörtur: Líklegt að ég hætti Hjörtur Hjartarson, markakóngur 1. deildarinnar, segir líklegt að hann hafi spilað sinn síðasta leik í dag. 28.9.2007 23:17