Valsmenn eru Íslandsmeistarar 29. september 2007 13:49 Helgi Sigurðsson heldur stoltur á bikarnum Mynd/Vilhelm
Valur hampaði í dag Íslandsmeistaratitlinum í knattspyrnu í fyrsta skipti í 20 ár. Valsmenn lögðu HK 1-0 á Laugardalsvelli og því skiptu önnur úrslit ekki máli. FH lagði Víking 3-1 og því eru Víkingar fallnir úr Landsbankadeildinni. Fylgst var með gangi mála í beinni lýsingu á Vísi í dag. Úrslit dagsins: Valur - HK 1-0 Víkingur - FH 1-3 KR - Fylkir 1-1 Breiðablik - Fram 2-2 Keflavík - ÍA 3-3 Lokastaðan í deildinni: 1. Valur 38 stig 2. FH 37 stig 3. ÍA 30 stig 4. Fylkir 29 stig 5. Breiðablik 24 stig 6. Keflavík 21 stig 7. Fram 16 stig 8. KR 16 stig 9. HK 16 stig 10. Víkingur 14 stig. 15:50 - FH-ingar laumuðu einu marki í lokin. Arnar Gunnlaugsson var þar að verki en það nægir Hafnfirðingum ekki. 15:48 - Flautað til leiksloka á Laugardalsvelli. Valsmenn eru Íslandsmeistarar. Vísir óskar Val til hamingju með sigurinn í Landsbankadeildinni. 15:47 - Fylkir jafnar á KR-velli. Peter Gravesen jafnar metin fyrir Árbæinga úr vítaspyrnu skömmu fyrir leikslok. 15:43- Valsmenn eru tveimur mínútum frá titlinum. Aðeins uppbótartími eftir. 15:42 - Sekkjapípuleikurinn dynur á Laugardalsvellinum. Frábær stemming og þeir rauðu leika á alls oddi. 20 ára bið Valsmanna eftir titli virðist vera lokið.... 15:40 - Valsmenn eru 10 mínútum frá Íslandsmeistaratitlinum. Ná þeir að standast pressuna? Á sama tíma dökknar útlitið hjá Víkingum. Þeir hafa nú um 15 mínútur til að galdra fram kraftaverk á heimavelli sínum gegn FH þar sem þeir eru enn undir 2-1. 15:35 - Jónas Grani í gullskóinn? Jónas Grani Garðarsson er nú orðinn markahæsti leikmaður Landsbankadeildarinnar eftir að hann skoraði annað mark sitt í leiknum gegn Breiðablik. Staðan því orðin 2-2 í Kópavogi. 15:28 - Það er orðið nokkuð langt síðan hinn litríki Hermann Hreiðarsson spilaði á Íslandsmótinu en við hér á Vísi kunnum ekki við annað en að segja frá því að varnarjaxlinn er búinn að skora fyrir Portsmouth gegn Reading og koma sínum mönnum í 3-2 í ótrúlegum leik. Portsmouth komst 2-0 yfir í leiknum en Reading náði að jafna skömmu eftir hlé. Augnablikum síðar varði David James svo vítaspyrnu frá Reading og hélt Portsmouth í forystu. Bætti þar með fyrir skelfileg mistök sem kostuðu hans menn mark fyrr í leiknum. 15:35 - Víkingar eru nú að verða komnir í afar vond mál í botnslagnum en á sama tíma mega Valsmenn ekki misstíga sig í toppbaráttunni. FH-ingar treysta nú á að HK nái að jafna á Laugardalsvellinum. 15:32 - Skagamenn jafna í bleytunni. Jón Vilhelm Ákason er búinn að jafna metin fyrir Skagamenn í Keflavík. Staðan orðin 3-3 í þessum frábæra leik. 15:20 - FH og Breiðablik komin yfir! Fyrrum Valsmaðurinn Matthías Guðmundsson er búinn að koma FH 2-1 yfir gegn Víkingi og Magnús Páll Gunnarsson skorar sitt annað mark í dag fyrir Blika með marki úr vítaspyrnu. 15:19 - Helgi með skot í slá. Það virðist ekki liggja fyrir Helga Sigurðssyni að skora og tryggja sér gullskóinn í dag. Helgi gerði vel eftir góða sókn Valsmanna, sneri af sér varnarmann en þrumaði knettinum í þverslána á 62. mínútu. Mark hér hefði komið Val í mjög þægilega stöðu. 15:17 - Dauðafæri hjá FH-ingum. Arnar Gunnlaugsson brennir af í dauðafæri hjá FH. Þetta ætlar ekki að verða dagur Hafnfirðinga. 15:14 - KR-ingar komnir yfir. Óskar Örn Hauksson kemur vesturbæingum yfir gegn Fylki eftir snarpa sókn og vænkast þá heldur hagur þeirra svarthvítu eftir ömurlegt sumar. 15:08 - Seinni hálfleikur að fara af stað. Nú siglum við inn í síðustu 45 mínúturnar í Landsbankadeildinni þar sem stefnir í að einokun FH-inga á Íslandsbikarnum sé að ljúka. Enn er þó pláss fyrir smá dramatík bæði á toppi og botni. 14:54 - Hálfleikur í öllum leikjum. Nú er kominn hálfleikur í öllum leikjunum sem standa yfir í lokaumferðinni. Valsmenn eru í góðum málum og hafa yfir 1-0 gegn HK. Jafnt er 1-1 hjá Víkingi og FH, Keflavík hefur yfir 3-2 gegn ÍA í Keflavík. Jafnt er hjá Blikum og Fram 1-1 og þá er markalaust hjá KR og Fylki. Eins og staðan er núna er því Valur að verða Íslandsmeistari og Víkingar á leið niður. 14:45 - "Línuvörðurinn verður að vera vakandi," sagði Sigurbjörn Hreiðarsson Valsari hneykslaður í samtali við Sýn þegar hann gekk til búningsherbergja. Sigurbjörn vildi meina að línuvörðurinn hefði dæmt gott og gilt mark af Valsmönnum þegar Helgi skoraði snemma leiks - og hefur ef til vill nokkuð til síns máls. 14:45 Hálfleikur á Laugardalsvelli. Valsmenn eru í góðri stöðu með 1-0 forystu gegn HK á Laugardalsvellinum. Enn eru nokkrar mínútur eftir af fyrri hálfleik hjá Víkingi og FH þar sem sá leikur fór ekki af stað á réttum tíma 14:43 - Keflavíkurhrellirinn Bjarni Guðjónsson minnkar muninn fyrir Skagamenn í Keflavík. Þrumuskot af löngu færi, kannski ekki jafn löngu færi en á Skaganum forðum, en Skagamenn taka það. Staðan orðin 3-2 í frábærum leik í Bítlabænum - ótrúlegt á miðað við aðstæður þar sem líkja má leiknum við sundbolta á tíðum vegna bleytu á vellinum. 14:42 - Fagnið ekki of fljótt Framarar. Magnús Páll Gunnarsson jafnar fyrir Blika aðeins tveimur mínútum síðar. Breiðablik - Fram 1-1. 14:41 - Jónas Grani strikes again! Jónas Grani Garðarsson er búinn að koma Fram yfir gegn Breiðablik á Kópavogsvelli. Jónas er því orðinn markahæsti leikmaður Íslandsmótsins. Hefur skorað jafn mörg mörk og Helgi Sigurðsson hjá Val- en hefur spilað einum leik færra. 14:36 - Áflogaleikur í vesturbænum. Staðan er enn jöfn 0-0 á KR-velli þar sem heimamenn taka á móti Fylki, en þar eru tæklingarnar á heimsmælikvarða. Eftir um hálftíma leik kom til átaka milli leikmanna eftir eina tæklingasúpuna - en dómari leiksins gerði rétt og sleppti þáttakendum með gult spjald. 14:31 - Fjör í Keflavík. Heimamenn eru komnir í 3-1 gegn nýskipuðum erkifjendum sínum af Skaganum. Guðjón Árni Antoníusson er búinn að koma Keflvíkingum í 3-1 eftir tæplega 30 mínútna leik. 14:30 - Skipting hjá Val. Hafþór Ægir Vilhjálmsson kemur inn í stað Baldurs Aðalsteinssonar sem greinilega er meiddur. Baldur getur huggað sig við að hafa sett mark sitt á leikinn með stoðsendingu þó hann hafi aðeins náð að spila 30 mínútur. 14:28- HK-menn að sækja í sig veðrið á Laugardalsvelli. Vörn Valsmanna virkar ótraust í augnablikinu. 14:21 - FH jafnar! FH-ingar eru búnir að jafna stöðuna í 1-1 gegn Víkingi. Það var Dennis Siim sem skoraði mark Hafnfirðinga með bylmingsskoti af löngu færi. Glæsilegt mark og vonir FH-inga glæðast á ný. 14:20 - Jón Þorgrímur skorar fyrir HK, en markið réttilega dæmt af þar sem brotið var á Kjartani Sturlusyni markverði Vals. 14:20 - Allt að verða vitlaust í Bítlabænum. Hallgrímur Jónasson er búinn að koma Keflvíkingum yfir á ný! Eins og staðan er í augnablikinu er HK á leið niður. 14:18 - Dramatík í Víkinni! Sinisa Kekic er búinn að koma Víkingi yfir gegn FH. Kekic virðist ætla að halda áfram að skora fram að fimmtugu. Ótrúlegur leikmaður. Staða FH-inga orðin mjög slæm, en enn er mikið eftir af leikjum dagsins. 14:17 - Helgi Sigurðsson skorar fyrir Val eftir sendingu frá Guðmundi Ben, en markið er dæmt af vegna rangstöðu. Umdeildur dómur. 14:16 - Skagamenn jafna. Hinn skæði Vjekoslav Svadumovic er búinn að jafna fyrir ÍA í Keflavík. 14:12 - Valsmenn eru komnir yfir! Atli Sveinn Þórarinsson skorar sitt annað mark í sumar fyrir Valsmenn. Fékk sendingu frá Baldri Aðalsteinssyni frá hægri og potaði boltanum í netið. Staða Valsmanna orðin mjög góð. 14:07 - Keflvíkingar virðast ætla að svara tapinu á Skaganum í júlí með stæl. Hallgrímur Jónasson hefur komið heimamönnum í 1-0 með marki eftir aðeins 2 mínútur. Keflvíkingar aðeins fengið þrú stig í leikjunum átta síðan í ólátaleiknum á Skipaskaga. 14:00 - Flautað til leiks. Leikur Vals og HK er hafinn á Laugardalsvelli. Nokkur hvasst er í veðri og völlurinn virkar þungur, en það er eflaust það síðasta sem leikmenn Vals eru að velta sér upp úr núna. Willum Þór Þórsson þjálfari Vals sagði í samtali við Sýn að þó vissuelga væri mikið undir í leik hans manna í dag, réðust úrslit Íslandsmótsins aldrei í einum leik. Hann segir sína menn staðráðna í að njóta augnabliksins í dag og njóta þess að vera í þeirri aðstöðu að geta klárað dæmið sjálfir. Þjálfari HK sagði sína menn ekki vera að horfa í það að skemma eitt eða neitt fyrir Val - hans menn þyrftu einfaldlega stig og hvort það myndi skemma fyrir Val eða ekki yrði bara að koma í ljós. Stemmingin meðal stuðningsmanna Vals er gríðarlega góð og mættu þeir rauðklæddir í skrúðgöngu á völlinn.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Uppgjörið: Stjarnan - Valur 3-2 | Heimamenn í Evrópubaráttu með góðum sigri Íslenski boltinn Russell aftur á ráspól í Kanada: „Virkilega ánægður“ Formúla 1 „Var að hugsa hvort ég vildi spila í tvo daga til viðbótar“ Golf Forseti Al-Hilal ósáttur við launakröfur: „Við prentum ekki peninga“ Fótbolti „Erum sjálfum okkur verstir“ Íslenski boltinn Hetjuleg harka hjá Ómari og Gísla fleytti Magdeburg í úrslit Handbolti „Meira getur maður ekki beðið um“ Íslenski boltinn „Heilt yfir sterkara liðið og áttum skilið að vinna“ Íslenski boltinn Bubbi segir Eriku Nótt oft hafa verið betri: „Veit ekki hvað var að plaga hana“ Sport Atlético hætt við Hernandez og sýnir Robertson áhuga Enski boltinn Fleiri fréttir „Erum sjálfum okkur verstir“ „Heilt yfir sterkara liðið og áttum skilið að vinna“ „Meira getur maður ekki beðið um“ Uppgjörið: Stjarnan - Valur 3-2 | Heimamenn í Evrópubaráttu með góðum sigri Njarðvík með öflugan endurkomusigur gegn Þór Heitir Valsmenn fara á toppinn með sigri Pedersen í tvö hundruð leikja klúbbinn í kvöld: „Skiptir mig miklu máli“ ÍR áfram taplaust á toppnum eftir sigur í Breiðholtsslag Jón Gnarr heiðursgestur á Breiðholtsslag í fótbolta Þrjár Guðmundsdætur í liði KR og Albert mætti Ekki spilað á Þjóðhátíð og meistararnir á heimavelli Blikar hentu nágrönnunum út og gripu síðasta farseðilinn Flug FH heldur áfram inn í undanúrslit Bíða eftir gúmmíi og spila á Þórsvelli eins og stelpurnar Uppgjörið: Valur - Þróttur 2-1 | Valskonur í undanúrslit Þróttur fékk kröftugan framherja sem þarf að bíða fram að stórleiknum Breiðablik búið að semja við Damir „Auðvitað þyrstir okkur í sigur sem fyrst“ Harma ljót orð í Dalnum og lofa bættri gæslu ÍR og Njarðvík áfram taplaus „Þróttarar gefa ekkert eftir, er þeim ekki alvara í þessu stríði?“ Landsliðskonan reddaði málunum fyrir leik á Kópavogsvelli Vilja sjá Þórólf hugsa líka um konurnar: „Gæti gert þetta að ríkasta liði landsins“ Sjáðu frábært liðsmark FH, markaveislu Blika og Þrótt halda sig á toppnum Leik lokið: Þróttur - Þór/KA 2-0 | Þróttur með þriggja stiga forskot á toppnum Uppgjör: Fram - Stjarnan 3-1 | Framarar sannfærandi Uppgjörið: Breiðablik-FHL 6-0 | Sex Blikakonur á skotskónum Uppgjörið: Víkingur-FH 1-4 | Eintóm hamingja hjá FH-konum í Víkinni Gummi Ben fékk gullmerki Þórs afhent á Spáni Blómstra á meðan Valskonur eru sögulega slakar Sjá meira