Formúla 1

Hamilton vill losna við Alonso

NordicPhotos/GettyImages

Lewis Hamilton segist ekki eiga von á því að hann og liðsfélagi hans Fernando Alonso geti verið saman í liði á næsta keppnistímabili, en deilur þeirra tveggja síðustu mánuði hafa skapað gríðarlega spennu í herbúðum McLaren.

Hamilton vann í dag glæsilean sigur í Japanskappakstrinum og stendur nú með pálmann í höndunum þegar aðeins tvær keppnir eru eftir. Hann hefur 12 stiga forskot á keppinaut sinn og liðsfélaga Alonso - og stefnir óðfluga á að verða fyrsti nýliðinn til að verða heimsmeistari í sögu Formúlu 1.

"Ef liðið vill halda Alonso innan sinna raða, þá verður það þannig, en ég verð hérna eins lengi og ég get. Ég veit ekki hver annar gæti komið hérna inn en ég mundi miklu frekar vilja að Alonso væri andstæðingur minn hjá Ferrari en félagi minn hér," sagði Hamilton fyrir keppnina í nótt.

Forráðamenn Ferrari neituðu umsvifalaust þegar þeir voru spurðir hvort til greina kæmi að Alonso færi til Ferrari - en hann á tvö ár eftir af samningi sínum hjá McLaren. "Við höfum tvo frábæra ökumenn og það eru engar líkur á því að við leitum annað," sagði Sean Todt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×