Formúla 1

Hamilton náði ráspól

Hamilton ók hringinn á 1 mínútu og 25,368 sekúndum í dag.
Hamilton ók hringinn á 1 mínútu og 25,368 sekúndum í dag. NordicPhotos/GettyImages

Breski ökuþórinn Lewis Hamilton hjá McLaren stakks sér fram úr félaga sínum Fernando Alonso á síðustu stundu í tímatökum fyrir Japanskappaksturinn í morgun og verður því á ráspól í keppninni á morgun. Kimi Raikkönen og Felipe Massa hjá Ferrari hirtu þriðja og fjórða sætið.

Það var gríðarlega mikilvægt fyrir Hamilton að ná ráspól því meistarinn Alonso er búinn að saxa forskot hans niður í aðeins tvö stig þegar þrjú mót eru eftir. Aðstæður á Fuji brautinni voru mjög erfiðar í morgun þar sem þoka og rigning settu svip sinn á keppnina.

Þýski ökuþórinn Nick Heidfeld náði fimmta besta tímabum og Jenson Button sjötta besta tímabum eftir að Nico Rosberg var dæmdur niður um 10 sæti fyrir að skipta um vél í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×