Rúnar kvaddi með stoðsendingu 30. september 2007 00:01 Rúnar Kristinsson spilaði sinn síðasta knattspyrnuleik gegn Fylki í gær. fréttablaðið/daníel
Taugar Vesturbæinga hafa verið þandar til hins ýtrasta í sumar enda hefur KR setið á botninum í nánast allt sumar. Brúnin lyftist af Vesturbæingum þegar ljóst var að liðið slapp við fall eftir 1-1 jafntefli gegn Fylki sem þar með missti af þriðja sætinu. KR-ingar þökkuðu stuðningsmönnum sínum eftir leikinn og það áttu þeir skilið enda staðið sig talsvert betur en liðið. Þó nokkuð margir bauluðu á leikmenn liðsins í leikslok. Lái þeim hver sem vill. „Þetta verkefni var erfiðara en ég átti von á í fyrstu. Markmiðið náðist samt og KR er áfram í efstu deild þar sem það á að vera,“ sagði Logi Ólafsson þjálfari KR, eftir leikinn sem var ekki eftirminnilegur. Óskar Örn kom KR yfir með marki eftir stungusendingu Rúnars Kristinssonar en Peter Gravesen jafnaði úr víti undir lokin. „Ég get ekkert sagt um það á þessari stundu hvort ég eða félagið hafi áhuga á frekara samstarfi,“ sagði Logi um framhaldið. Rúnar Kristinsson spilaði sinn síðasta knattspyrnuleik í gær. „Ég er hættur. Það breytir því enginn. Mér hefur ekki liðið vel í sumar, ekki getað æft mikið og ekki verið eins heill á líkama og sál og ég hefði viljað vera. Ég hefði viljað sýna meira en því er ekki að neita að ég er þreyttur eftir tímabilið. Ég sé samt ekki eftir því að hafa klárað ferilinn með KR,“ sagði Rúnar. „Ég er þokkalega sáttur í lok sumars. Við erum að byggja upp og það gengur mjög vel. Vörnin frábær í sumar og við þurfum að bæta sóknarleikinn.“ sagði Leifur Garðarsson sem verður áfram með Fylkisliðið næsta sumar. - hbg
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Viðurkenna að VAR hafi bilað Fótbolti Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Handbolti Koepka fyrsta stjarnan sem riftir samningi við LIV Golf Jólagjöf í Keflavík: Remy Martin snýr aftur Körfubolti Úr Bestu heim í Hauka Íslenski boltinn Stefndi á ÓL en fannst látinn á hótelherbergi Sport Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Ótrúlegur sigur á HM: „Ég er mjög tregur svo pressan nær ekki til mín“ Sport „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Íslenski boltinn Ekkert spilað í vetur en gæti mætt Íslandi í fyrsta leik á EM Handbolti Fleiri fréttir Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Meira en 37 stöðugildi hjá Knattspyrnusambandi Íslands Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Breiðablik kaupir Jónatan frá Norrköping Elías mættur til meistaranna KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull Sjá meira