Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Strákarnir fá enn á ný lið í sárum - Ísrael vann Serbíu Íslenska körfuboltalandsliðið mætir Serbíu í Nis á morgun í undankeppni Evrópumótsins í körfubolta en strákarnir hafa tapað þremur síðustu leikjum sínum og unnu aðeins einn af fimm leikjum í fyrri umferð riðilsins. 29.8.2012 12:45
Hvað er í gangi hjá Wozniacki? - datt út í 1. umferð á opna bandaríska Það gengur ekkert upp hjá dönsku tennisstjörnunni Caroline Wozniacki sem byrjaði árið í efsta sæti heimslistans en hefur hrunið niður listann í ár. Ekki lagaðist staða hennar eftir að hún féll mjög óvænt út í 1. umferð á opna bandaríska meistaramótinu í tennis. 29.8.2012 12:15
Ætlar Brendan Rodgers að gera vinstri bakvörð úr Downing? Brendan Rodgers, nýr stjóri Liverpool, er tilbúinn að reyna nýja hluti til þess að ná eitthvað út úr enska landsliðsmanninum Stewart Downing sem fann sig engan veginn á sínu fyrsta tímabili á Anfield. Downing lék sem vinstri bakvörður í Evrópusigrinum á Hearts í síðustu viku og fékk hrós að launum frá Rodgers. 29.8.2012 11:45
Lífsmark í Svartá á döpru sumri Dálítið líf virðist vera í Svartá í Svartárdal þótt sumarið hafi verið gríðar dauft. Að því er segir á söluvef leigutakans Lax-ár fékk holl sem lauk veiðum í gær átta laxa. 29.8.2012 11:06
Berbatov floginn til Ítalíu Dimitar Berbatov flaug til Ítalíu í morgun til þess að ganga frá samningi við ítalska félagið Fiorentina samkvæmt heimildum Reuters. Berbatov hefur samið um kaup og kjör og verður væntanlega tilkynntur sem nýr leikmaður Fiorentina seinna í dag. 29.8.2012 11:00
Þór/KA getur orðið Íslandsmeistari í kvöld Sjö félög hafa orðið Íslandsmeistarar í knattspyrnu kvenna en það gæti breyst eftir 16. umferð Pepsi-deildar kvenna í kvöld. Lið Þór/KA á nefnilega möguleika á því að verða Íslandsmeistari í Vestmannaeyjum í kvöld. 29.8.2012 10:15
Helgi Sveinsson verður fánaberi Íslands í kvöld Ármenningurinn Helgi Sveinsson fer fyrir íslenska hópnum á setningarhátíð Ólympíumóts fatlaðra í London í kvöld. Helgi verður nefnilega fánaberi Íslands við hátíðina. 29.8.2012 09:45
Endurkomu Rio Ferdinand seinkar um tvær vikur Rio Ferdinand er meiddur á nára og hefur því misst af fyrstu leikjum Manchester United á tímabilinu. Nú lítur út fyrir það að hann spili ekki fyrr en í fyrsta lagi um miðjan septembermánuð. 29.8.2012 09:15
Walcott sá næsti á förum frá Arsenal? - samningaviðræður ganga illa Theo Walcott gæti orðið næsti stjörnuleikmaður Arsenal sem yfirgefur félagið eftir að samningaviðræður við leikmanninn sigldu í strand. Walcott er á síðasta ári núverandi samnings síns en er í viðræðum um nýjan fimm ára samning. 29.8.2012 09:00
Góður möguleiki í báðum leikjum Ísland á góðan möguleika á að leggja bæði Noreg og Kýpur að velli í fyrstu landsleikjum liðsins í undankeppni HM 2014 að mati þjálfarans Lars Lagerbäck. Óvissa ríkir um þátttöku Kolbeins Sigþórssonar. 29.8.2012 07:00
Ballinu í London hvergi nærri lokið Setningarathöfn Ólympíumóts fatlaðra fer fram á Ólympíuleikvanginum í London í kvöld. Um 4300 keppendur eru mættir til Englands þar sem keppt verður í tuttugu íþróttagreinum. 29.8.2012 06:00
18 þristar á 60 sekúndum - er þetta nýtt heimsmet? Dave Hopla setti að eigin sögn nýtt heimsmet í þriggja stiga körfum á einni mínútu þegar hann setti niður 18 þriggja stiga skot í röð á dögunum. Hopla hefur áður sett svona skotsýningu á svið en hefur aldrei gert betur en þarna. 28.8.2012 23:30
Austin-brautin í Texas tilbúin í tölvuleik Formúlu 1-brautin sem verið er að byggja í Austin í Texas í Bandaríkjunum er nú alveg að verða tilbúin. Tölvuleikjarisinn Codemasters er þó tilbúinn með brautina fyrir tölvuleikinn sem þeir hyggjast gefa út í haust. Leikurinn verður sá þriðji í röðinni frá fyrirtækinu og kallast F1 2012. 28.8.2012 23:00
Jabbar fær styttu af sér fyrir utan Staples Center Lakers-goðsögnin, Kareem Abdul-Jabbar, fær gamlan draum uppfylltan í vetur þegar það verður reist stytta af honum fyrir utan heimavöll Lakers, Staples Center. 28.8.2012 22:30
Fulham samþykkti tilboð Tottenham í Dembele Miðvallarleikamðurinn Moussa Dembele er á leið til Tottenham. Martin Jol, stjóri Fulham, greindi frá því í kvöld að félagið hefði tekið tilboði Tottenham í belgíska landsliðsmanninn. 28.8.2012 22:09
Ótrúlegt klúður kostaði Udinese Meistaradeildarsæti Ítalska félagið Udinese varð af sæti í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu eftir að hafa tapað fyrir Braga frá Portúgal í vítaspyrnukeppni í kvöld. 28.8.2012 21:39
Swindon sló Stoke úr leik Fjölmargir leikir fóru fram í 2. umferð ensku deildabikarkeppninnar í kvöld. Óvæntustu úrslitin eru 4-3 sigur enska C-deildarliðsins Swindon á Stoke í framlengdum leik. 28.8.2012 21:56
Mutu skorar á Zlatan: Ég mun skora meira en þú á þessu tímabili Rúmeninn Adrian Mutu ætlar í markakeppni við Svíann Zlatan Ibrahimovic í frönsku úrvalsdeildinni á þessu tímabili ef marka má viðtal við hann. Báðir eru þeir nýkomnir í franska boltann. 28.8.2012 21:45
Kobe nær sátt í sjö ára gömlu kærumáli Kobe Bryant, leikmaður LA Lakers, hefur loksins náð sátt í máli frá árinu 2005. Þá kærði áhorfandi í Memphis leikmanninn fyrir árás eftir atvik sem átti sér stað í leik Lakers og Grizzlies. 28.8.2012 21:00
Malaga í Meistaradeildina í fyrsta sinn Það verða fjögur spænsk lið í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu þar sem að Malaga tryggði sér í kvöld áfram úr forkeppninni með markalausu jafntefli gegn Panathinaikos í Grikklandi. 28.8.2012 20:46
Endurheimtur seiða betri en í fyrra Sjötíu laxar veiddust í Eystri Rangá á sunnudaginn. Veiði er áfram góð í Affallinu og Þverá í Fljótshlíð og endurheimtur seiða betri en í fyrra. 28.8.2012 20:33
Þórsarar með myndarlegt forskot á toppnum Þór frá Akureyri vann í kvöld öruggan 4-0 sigur á Tindastóli í 1. deild karla og er fyrir vikið í afar góðri stöðu á toppi deildarinnar. 28.8.2012 20:23
Auðvelt hjá Füchse Berlin Füchse Berlin, lið Dags Sigurðssonar, er enn með fullt hús stiga eftir sigur á nýliðum Neuhausen í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld, 29-22. 28.8.2012 19:45
Sahin: Ég ætla að hjálpa Liverpool að ná Meistaradeildarsæti Nuri Sahin, nýr leikmaður Liverpool, svaraði spurningum blaðamanna í dag en hann kemur til Anfield á láni frá spænska liðinu Real Madrid. Nuri Sahin var allt í öllu þegar Dortmund vann þýsku deildina 2010-11 en spilaði lítið á sínu fyrsta tímabili með Real Madrid. 28.8.2012 19:15
Liverpool sagt í viðræðum við Milan vegna Carroll Ekki er útilokað að sóknarmaðurinn Andy Carroll verði lánaður til ítalska félagsins AC Milan áður en lokað verður fyrir félagaskipti í Evrópu á föstudaginn næstkomandi. 28.8.2012 19:14
Carvalho má fara frá Real Madrid Varnamaðurinn Ricardo Carvalho hefur fengið þau skilaboð frá Jose Mourinho, stjóra Real Madrid, að hann megi nú finna sér nýtt félag til að spila með. 28.8.2012 19:09
Rooney: Í lagi með löppina Wayne Rooney, leikmaður Manchester United, segir að meiðslin sem hann varð fyrir í leik liðsins gegn Fulham um helgina séu ekki jafn slæm og þau litu út fyrir að vera. 28.8.2012 19:04
Hazard: Undirbúningstímabilið var ekki eins erfitt og ég bjóst við Belginn Eden Hazard hefur slegið í gegn í fyrstu leikjunum með Chelsea en þessi stórskemmtilegi leikmaður hefur skorað eitt mörk og lagt upp sex önnur í fyrstu þremur leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni. 28.8.2012 18:45
Thomas Mogensen tekur sér frí frá danska landsliðinu Thomas Mogensen, leikstjórnandi danska landsliðsins í handbolta, verður ekki með liðinu á HM á Spáni í byrjun næsta ár. Mogensen ætlar að taka sér pásu frá landsliðinu á næstu misserum til þess að einbeita sér að félagsliði sínu Flensburg. 28.8.2012 18:15
27 marka sigur Kiel á áströlsku liði Kiel vann í dag stórsigur á ástralska liðinu Sydney University í heimsmeistarakeppni félagsliða sem nú fer fram í Katar. Lokatölur voru 40-13, Þýskalands- og Evrópumeisturunum í vil. 28.8.2012 17:58
Raikkönen efaðist aldrei um burði Lotus Kimi Raikkönen, ökumaður Lotus-liðsins í Formúlu 1, segist aldrei hafa haft áhyggjur af því að liðið gæti ekki bætt árangur sinn í ár frá því í fyrra. Árið 2011 var slæmt ár fyrir Lotus. Liðið endaði í fimmta sæti langt á eftir Mercedes. 28.8.2012 17:45
Þórsarar geta nánast gulltryggt sér Pepsi-deildar sætið í kvöld Þór Akureyri er á góðri leið með að endurheimta sæti sitt í Pepsi-deild karla og norðanmenn geta stigið stórt skref í rétta átt þegar þeir taka á móti Tindastól í 1. deild karla í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 18.30 og fer fram á Þórsvelli. 28.8.2012 17:15
Swansea hafnaði tilboði Manchester City í Sinclair Swansea City vill fá meira en 6,2 milljónir punda fyrir Scott Sinclair og hefur því hafnað tilboði frá Englandsmeisturum Manchester City. Fyrstu fréttir voru að Swansea hefði tekið tilboðinu en það var ekki rétt. 28.8.2012 16:45
Rúnar Már um Gumma Steinars: Þvílíkur frethólkur Valsmaðurinn Rúnar Már Sigurjónsson var ekki par sáttur við ummæli Keflvíkingsins Guðmundar Steinarssonar eftir leik Vals og Keflavíkur í gær. 28.8.2012 15:45
Enginn hefur grætt meira á NBA-ferlinum en Garnett - Jordan í 87. sæti Kevin Garnett ætti að vera þokkalega stæður eftir NBA-ferillinn ef marka má nýjan lista yfir þá leikmenn NBA-deildarinnar sem hafa fengið hæstu heildarlaunin á ferli sínum. Garnett slær þar við köppum Shaquille O'Neal og Kobe Bryant sem koma í næstu sætum. 28.8.2012 15:00
Sky Sports: AC Milan að koma Bendtner til bjargar Sky Sports hefur heimildir fyrir því að danski landsliðsframherjinn Nicklas Bendtner sé á leiðinni til ítalska liðsins AC Milan. AC Milan er að leita sér að framherja í staðinn fyrir Zlatan Ibrahimovic og Bendtner á enga framtíð hjá Arsenal. 28.8.2012 14:30
Úlfar búinn að velja þá sex kylfinga sem fara á HM í Tyrklandi Úlfar Jónsson landsliðsþjálfari í golfi hefur valið samkvæmt afreksstefnu Golfsambandsins sex kylfinga til að leika fyrir Íslands hönd á HM karla og kvenna. Heimsmeistaramótið verður haldið verður í Tyrklandi í haust en leikið verður á Gloria Golf Resort (Old og New course) í Antalya í Tyrklandi. 28.8.2012 14:03
Ný regla hjá Sir Alex: 23 ára og yngri mega ekki eignast sportbíla Það standa ekki allir leikmenn Manchester United við sama borð þegar kemur að því að þiggja gjafir frá styrktaraðilum félagsins. Enska úrvalsdeildarliðið gerði nýverið samning við bílarisann Chevrolet en samningurinn mun taka gildi eftir tvö ár. 28.8.2012 13:30
Lagerbäck velur hópinn: Enginn Eiður Smári en meiddur Kolbeinn valinn Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfari Íslands, tilkynnti í dag leikmannahóp sinn fyrir leikina gegn Noregi og Kýpur í undankeppni HM 2014. Þetta verða fyrstu alvöru leikir íslenska landsliðsins undir stjórn Svíans. 28.8.2012 12:47
Aron: Ekki bara líkur Kevin Bacon því ég kann líka að dansa Aron Jóhannsson hefur verið afar áberandi í dönskum fjölmiðlum eftir að hann skoraði fernu fyrir AGF í dönsku úrvalsdeildinni í gær en íslenski framherjinn setti met með því að skora þrjú markanna á aðeins þremur mínútum og fimmtíu sekúndum í fyrri hálfleiknum. 28.8.2012 12:45
Barton búinn að afskrifa það að komast til Marseille Joey Barton, miðjumaður Queens Park Rangers, er búinn að afskrifa það að komast til franska félagsins Marseille áður en félagsskiptaglugginn lokar á föstudaginn. Þetta kom fram í færslu á twittersíðu hans. 28.8.2012 12:15
Hægt að sjá metþrennuna hans Arons í rauntíma Aron Jóhannsson bætti met Ebbe Sand í gær þegar hann skoraði þrjú mörk á aðeins 3 mínútum og 50 sekúndum í 4-1 sigri AGF á AC Horsens í dönsku úrvalsdeildinni. 28.8.2012 11:45
Puyol ætlar sér að spila kinnbeinsbrotinn á móti Real Carles Puyol, fyrirliði Barcelona, er harður á því að spila áfram með liðinu þrátt fyrir að hafa kinnbeinsbrotnað í sigrinum á Osasuna í spænsku úrvalsdeildinni um helgina. 28.8.2012 11:15
Verður Drogba og Anelka fórnað í valdabaráttu innan Shenhua? Didier Drogba og Nicolas Anelka eru frekar nýkomnir til kínverska félagsins Shanghai Shenhua en svo gæti farið að þeir verði báðir seldir á næstunni vegna valdabaráttu innan félagsins. 28.8.2012 10:30
Mikið að gera hjá Brendan Rodgers fram á föstudag Liverpool Echo segir frá því í morgun að Fulham-maðurinn Clint Dempsey sé enn efstur á óskalistanum hjá Brendan Rodgers, stjóra Liverpool en félagsskiptaglugginn lokar á miðnætti á föstudag og því er ekki langur tími til stefnu til að styrkja liðið. Það verður væntanlega mikið að gera hjá Rodgers á næstu dögum. 28.8.2012 09:59