Fleiri fréttir

Rooney má loksins spila

Wayne Rooney hefur þurft að dúsa uppi í stúku í tveimur fyrstu leikjum Englendinga á EM en í kvöld fær hann loksins að klæðast tíunni og hjálpa enska liðinu til þess að komast í átta liða úrslitin. Rooney viðurkennir að það hafi verið erfitt að horfa á fyrstu tvo leikina.

Sex á land í Skjálfandafljóti; Tregða í Norðurá

Í hádeginu voru sex laxar komnir á land í Skjálfandafljóti en veiðihófst þar í gærmorgun. Á vef SVFR er greint frá því að laxinn í Norðurá hafi verið óvenju tregur til að taka síðustu daga.

Fjölskyldan til veiða á sunnudaginn!

Veiðidagur fjölskyldunnar verður haldinn næstkomandi sunnudag, 24. júní. Þá gefst landsmönnum kostur á að veiða án endurgjalds í fjölmörgum vötnum víðsvegar um landið.

Fyrsti Rínar-laxinn í Sviss í 50 ár

Fyrir skömmu gerðust þau merku tíðindi að lax gekk upp ána Rín allt til bæjarins Rheinfelden í Sviss. Þetta hafði ekki gerst í fimmtíu ár.

Fuglamaður truflaði verðlaunaafhendingu US Open

Athyglissjúkur einstaklingur stal senunni í verðlaunaafhendingu US Open í nótt. Hann ruddist niður úr stúkunni, tók sér stöðu fyrir framan myndavélarnar og fór að mynda fuglahljóð. Þræleðlilegt alveg.

Spánverjar og Ítalir í átta liða úrslitin á EM - myndir

Spánverjar og Ítalir unnu lokaleiki sína í C-riðli Evrópumótsins í fótbolta í kvöld og tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum. Ítalir voru ekki í miklum vandræðum með að vinna Íra 2-0 en Spánverjar sluppu með skrekkinn á móti Króötum og tryggðu sér síðan 1-0 sigur í blálokin.

Robben: Við þurfum allir að horfa í spegil

Arjen Robben, lykilmaður hollenska landsliðsins, viðurkennir að það hafi verið vandamál innan hollenska landsliðshópsins á Evrópumótinu en Hollendingar fóru stigalausir heim frá EM eftir tapleiki á móti Dönum, Þjóðverjum og Portúgölum.

Farðu til helvítis Advocaat!

Rússneskir fjölmiðlar tóku landslið sitt engum vettlingatökum eftir að liðið féll úr keppni á EM eftir neyðarlegt tap gegn Grikkjum.

Manchester United á útivelli eftir 5 af 6 Meistaradeildarleiki sína

Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, er örugglega ekki alltof sáttur við leikjadagskránna í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð einkum þar sem að United þarf að spila útileiki eftir fimm af sex leikjum sínum í Meistaradeildinni. Manchester City liðið er hinsvegar í mun betri málum hvað þetta varðar.

Slaven Bilic: Við fengum bestu færin í leiknum

Slaven Bilic, þjálfari Króata, horfði upp á sína menn tapa naumlega á móti Heims- og Evrópumeisturum Spánverja í lokaleik sínum í C-riðli EM í kvöld og missa um leið af sæti í úrslitakeppni Evrópumótsins. Króatíska liðið fékk góð færi til að skora áður en varamaðurinn Jesus Navas tryggði spænska liðinu sigurinn í lokin.

Hodgson: Það verður erfitt að velja á milli Carroll og Welbeck

Roy Hodgson, þjálfari enska landsliðsins, ætlar að setja Wayne Rooney inn í byrjunarliðið fyrir leikinn á móti Úkraínu á morgun en viðurkennir að það verði erfitt að ákveða það hvort Andy Carroll eða Danny Welbeck fari á bekkinn.

Del Bosque: Þetta var erfiður leikur fyrir okkur

Vicente Del Bosque, þjálfari Spánverja, gat ekki verið rólegur fyrr en í lokin á leik Spánverja og Króata á EM í kvöld. Króatar vantaði bara eitt mark til þess að slá út Heims- og Evrópumeistarana en á endanum var það varamaðurinn Jesus Navas sem tryggði spænska liðinu 1-0 sigur og sæti í átta liða úrslitunum.

Kristján 104 sætum fyrir ofan Ólaf eftir fyrsta daginn

Kristján Þór Einarsson úr Kili og Ólafur Björn Loftsson úr Nesklúbbnum eru búnir með fyrsta hring á opna breska áhugamanna golfmótinu sem fram fer í Skotlandi en leikið er á bæði Glasgow Gailes Links og Royal Troon völlunum.

Arsenal ætlar að kaupa Giroud frá Montpellier

BBC segir frá því í kvöld að Arsenal sé langt komið með því að ganga frá kaupum á franska landsliðsmanninum Olivier Giroud og muni borga 12 milljónir punda fyrir framherja Frakklandsmeistara Montpellier.

Cassano og Balotelli tryggðu Ítölum sæti í átta liða úrslitunum

Antonio Cassano og Mario Balotelli tryggðu Ítölum 2-0 sigur á Írum og um leið sæti í átta liða úrslitum Evrópumótsins í fótbolta. Cassano skoraði fyrra markið í fyrri hálfleik en Balotelli það síðara í lokin eftir að hafa komið inn á sem varamaður.

Spánverjar skoruðu í lokin og slógu út Króata

Varamaðurinn Jesús Navas skoraði sigurmark Heims- og Evrópumeistara Spánverja á móti Króatíu í lokaleik liðanna í C-riðli Evrópumótsins í fótbolta. Jesús Navas kom inn á sem varamaður fyrir Fernando Torres eftir klukkutíma og skoraði eina mark leiksins tveimur mínútum fyrir leikslok.

Sömu átján í hópnum gegn Búlgaríu

Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu hélt í morgun til Búlgaríu þar sem liðið mætir heimakonum í undankeppni Evrópumótsins á fimmtudaginn.

Torres með sjálfstraustið í botni

Fernando Torres hefur sýnt gamalkunna takta á EM og meira að segja tekist að skora. Hann segist spila með sjálfstraustið í botni þar sem hann njóti fyllsta trausts frá þjálfaranum, Vicente del Bosque.

UEFA sektar Rússana

Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, hefur sektað rússneska knattspyrnusambandið um 30 þúsund evrur vegna hegðunar stuðningsmanna liðsins í leiknum gegn Póllandi. Það á einnig að draga sex stig af liðinu en ekki er búið að virkja þá refsingu.

Rooney: Við getum unnið EM

Wayne Rooney er orðinn spenntur fyrir því að taka þátt á EM eftir að hafa verið í banni í fyrstu tveim leikjunum. Hann er líka með sjálfstraustið í lagi enda hefur hann trú á því að enska landsliðið geti unnið EM.

Juventus búið að bjóða í Torres

Framherjaleit Juventus heldur áfram en nú er ljóst að ítölsku meistararnir munu ekki fá Edinson Cavani frá Napoli. Juve hefur nú ákveðið að reyna við Fernando Torres hjá Chelsea.

Hrafnhildur Skúla: Ég brosi hringinn

"Þetta eru frábærar fréttir fyrir íslenska kvennahandbolta. Algjörlega stórkostlegar," segir Hrafnhildur Skúladóttir fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í handbolta. Í hádeginu bárust þau tíðindi að Ísland fengi síðasta lausa sætið á Evrópumótinu sem upphaflega átti að halda í Hollandi en mun fara fram í Serbíu.

Stelpurnar okkar fara á EM eftir allt saman

Evrópska handknattleikssambandið, EHF, staðfesti í dag að Ísland myndi taka sæti Hollands í lokakeppni EM í handbolta í desember. Einnig hefur verið ákveðið að mótið fari fram í Serbíu.

Roy Keane fer í taugarnar á Trapattoni

Roy Keane, fyrrum landsliðsfyrirliði Írlands, hefur náð að gera landsliðsþjálfarann Giovanni Trapattoni brjálaðan með gagnrýni sinni á írska landsliðið á EM.

Van Marwijk vill ekki ræða framtíðina

Hollendingar eru farnir heim af EM með skottið á milli lappanna. Þeir töpuðu öllum leikjum sínum á mótinu og stóðu engan veginn undir væntingum.

Titilvörn Man. City hefst gegn Southampton

Búið er að gefa út leikjalista fyrir næsta tímabil í ensku úrvalsdeildinni. Meistarar Man. City byrja á því að spila gegn Southampton á heimavelli en Man. Utd spilar sinn fyrsta leik á útivelli gegn Everton. Deildin hefst þann 18. ágúst.

Simpson vann US Open

Webb Simpson vann opna bandaríska meistaramótið í golfi, US Open, í nótt. Þetta er hans fyrsti risatitill á ferlinum. Simpson endaði mótið á einu höggi yfir pari eða höggi betur en Graeme McDowell og Michael Thompson.

Miami komið með yfirhöndina í einvíginu gegn Oklahoma

Þeir voru ansi margir sem afskrifuðu lið Miami Heat fyrir úrslitarimmuna gegn Oklahoma í NBA-deildinni. Það var engin innistæða fyrir slíkum yfirlýsingum eins og Miami hefur sýnt í úrslitunum. Heat er komið í 2-1 í einvíginu og hefur verið sterkara liðið lengstum í öllum leikjunum.

Sjá næstu 50 fréttir