Fleiri fréttir

Páll: Hjálpar allt í stigasöfnuninni

Páll Viðar Gíslason leit á jákvæðu hliðarnar á steindauðu jafntefli við Grindavík í kvöld. Hann sér batamerki á liðinu eftir þrjú töp í röð.

Leikmaður Swansea fótbrotnaði í golfbílslysi

Varnarmaður Swansea, Alan Tate, varð fyrir því óláni að fótbrotna eftir einkennilegt golfbílslys, en leikmaðurinn var farþegi á golfbíl sem valt með þeim afleiðingum að hann fótbrotnaði.

Steinþór og Kristján skoruðu

Fjölmargir Íslendingar voru í eldlínunni í norska boltanum í dag en þeir Steinþór Freyr Þorsteinsson og Kristján Örn Sigurðsson skoruðu báðir fyrir lið sín í norsku B-deildinni.

Eggert hafði betur gegn Guðlaugi í Edinborgarslagnum

Hearts vann í dag 2-0 sigur á Hibernian í grannaslag í skosku úrvalsdeildinni. Eggert Gunnþór Jónsson kom inn á sem varamaður í liði Hearts í seinni hálfleik en Guðlaugur Victor Pálsson, leikmaður Hibs, kom ekki við sögu.

Redknapp: Modric vildi ekki spila

Luka Modric vildi ekki spila með Tottenham gegn Manchester City í dag, að sögn Harry Redknapp, stjóra Tottenham. Modric hefur verið orðaður við Chelsea í allt sumar.

Ferguson: Þetta kom á óvart

Alex Ferguson segir að hann eigi alltaf von á erfiðum leik þegar að Manchester United mætir Arsenal. Það var þó ekki tilfellið í dag enda vann United 8-2 sigur.

Wenger: Ég ætla ekki að hætta

Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segir að hann ætli ekki að gefast upp og hætta hjá félaginu þrátt fyrir 8-2 tap fyrir Manchester United í dag.

Rooney búinn að jafna Giggs

Wayne Rooney, leikmaður Manchester United, skoraði í dag þrennu í ótrúlegum 8-2 sigri á Arsenal og varð þar með markahæsti leikmaður félagsins frá stofnun ensku úrvalsdeildarinnar. Hann deilir því meti með Ryan Giggs en báðir hafa skorað 105 mörk fyrir félagið.

Buffon verður hjá Juventus út ferilinn

Markvörðurinn margreyndi, Gianluigi Buffon, mun vera hjá Juventus það sem eftir er af ferlinum, en frá þessu greinir umboðsmaður leikmannsins við ítalska fjölmiðla.

Ólína Guðbjörg skoraði í 4-0 sigri

Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir skoraði eitt marka Örebro í 4-0 sigri á Djurgården í Íslendingaslag í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

SönderjyskE lagði OB í Íslendingaslag

OB tapaði í dag illa fyrir SönderjyskE, 4-2, á heimavelli í dönsku úrvalsdeildinni. Rúrik Gíslason kom inn á sem varamaður fyrir OB undir lok leiksins.

Capello finnst ekki mikið til FIFA-listans koma

England er einhverra hluta vegna í fjórða sæti á styrkleikalista FIFA þrátt fyrir að hafa ekki átt neitt sérstöku gengi að fagna að undanförnu. Landsliðsþjálfarinn Fabio Capello tekur ekki mikið mark á listanum.

Nasri: Sendum skýr skilaboð með þessum sigri

Samir Nasri, leikmaður Man. City, sló heldur betur í gegn í sínum fyrsta leik fyrir félagið en hann lagði upp þrjú mörk fyrir samherja sína í sigrinum gegn Tottenham í dag, en Man. City rústaði Tottenham, 5-1, á White Hart Lane.

Dzeko: Við eigum enn meira inni

Edin Dzeko, markahetja Manchester City í leiknum gegn Tottenham í dag, segir að liðið eigi enn meira inni þrátt fyrir að sýnt allar sínar bestu hliðar í 5-1 sigri.

Umfjöllun: Markalaust og leiðinlegt

Þór og Grindavík gerðu markalaust jafntefli og bragðdaufum og tíðindalitlum leik fyrir norðan. Hvorugt liðið virtist þora að sækja til sigurs.

Tottenham að krækja í Scott Parker

Enska knattspyrnufélagið, Tottenham Hotspurs, er í þann mund að ganga frá samningum við miðjumanninn, Scott Parker, frá West-Ham United.

Hver er Francis Coquelin?

Francis Coquelin er óvænt í byrjunarliði Arsenal í stórleiknum gegn Manchester United í dag en aðeins þeir allra hörðustu kannast við þetta nafn.

Wenger ætlar að ná í Cahill

Enska knattspyrnuliðið Arsenal ætlar sér að klófesta Gary Cahill frá Bolton á næstu dögum en félagskiptaglugginn lokar að miðnætti þann 31. ágúst.

Jóhann Berg skoraði fyrir AZ Alkmaar

Jóhann Berg Guðmundsson var á skotskónum með hollenska liðinu AZ Alkmaar gegn Groningen í dag. Skoraði hann annað mark liðsins í 3-0 sigri eftir að hafa komið inn á sem varamaður.

Margrét Lára með stórleik gegn Umeå

Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði bæði mörk Kristianstad í 2-1 sigri liðsins á sterku liði Umeå í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Vettel vann Spa-kappaksturinn

Sebastian Vettel, Red Bull, sigraði Spa-kappaksturinn í Belgíu, en Mark Webber, einnig hjá Red Bull, varð í öðru sæti.

Ferguson: Berbatov fer ekki frá okkur

Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, hefur gefið það út við enska fjölmiðla að Dimitar Berbatov, leikmaður Man. Utd., sé ekki á förum frá félaginu.

Hardee varði titilinn sinn í tugþraut

Bandaríkjamaðurinn Trey Hardee varði í dag heimsmeistaratign sína í tugþraut í Daegu í Suður-Kóreu í morgun. Hardee fékk samtals 8607 stig.

Bolt þjófstartaði og féll úr leik

Jamaíkumaðurinn Usain Bolt var dæmdur úr leik í úrslitum 100 m hlaups karla á HM í frjálsíþróttum í morgun fyrir þjófstart. Landi hans, Yohan Blake, fagnaði sigri á 9,92 sekúndum.

Kínverji kastaði lengst

Li Yanfeng fagnaði sigri í kringlukasti kvenna á HM í frjálsíþróttum í Suður-Kóreu í morgun. Kastaði hún 66,52 metra en var samt rúmum metra frá sínu besta.

Fyrstu gullverðlaun Bandaríkjanna

Brittney Reese vann til gullverðlauna í langstökki kvenna á HM í frjálsíþróttum í morgun en hún stökk þá 6,82 metra.

Færri tilkynningar um Sæsteinsugubit en í fyrra

Mun færri tilkynningar hafa verið um Sæsteinsugubit á laxfiskum núna í sumar miðað við í fyrra. Á tímabili höfðu menn af þessu miklar áhyggjur, þá sérstaklega í ljósi þess að talið var að þessi fiskur væri farinn að hrygna í miklum mæli hér við land. Ekki hafa fundist nein merki þess að einhver hrygning sé við landið en þetta þarf þó að rannsaka betur til að einhver niðurstaða fáist í málið.

Ótrúlegri sigurgöngu Bekele lokið

Eþíópíumaðurinn Kenenisa Bekele náði ekki að klára 10 km hlaup vegna meiðsla á HM í frjálsíþróttum í morgun. Þar með er ótrúlegri sigurgöngu hans í vegalengdinni lokið.

Pistorius komst í undanúrsiltin

Suður-Afríkumaðurinn Oscar Pistorius komst í morgun í undanúrslit í 400 m hlaupi karla á HM í frjálsíþróttum í Suður-Kóreu.

Bolt örugglega í úrslitin

Usain Bolt komst örugglega í úrslitin í 100 m hlaupi á HM í frjálsíþróttum í Daegu í Suður-Kóreu. Úrslitahlaupið fer fram klukkan 11.45 og verður í beinni útsendingu á Eurosport.

Vettel í kjörstöðu fyrir titilslag í dag

Sebastian Vettel á Red Bull er fremstur á ráslínu í belgíska Formúlu 1 kappakstrinum sem fer fram á Spa brautinni í dag. Vettel er í níunda skipti á árinu fremstur á ráslínu. En Vettel hefur ekki unnið þrjú síðustu mót, en hefur samt sem áður gott forskot í stigamóti ökumanna, eftir sex sigra í ellefu mótum.

Fyrrum NBA-leikmaður ákærður fyrir morð

Javaris Crittenton, fyrrum leikmaður í NBA-deildinni í körfubolta, hefur verið ákærður fyrir morð. Honum er gefið að sök að hafa myrt 22 ára gamla konu í Atlanta.

Laxinn kominn í vötnin í Svínadal

Við á Veiðivísi tókum smá bíltúr í gær og lá leið okkar meðal annars inní Svínadal. Það sem vakti furðu okkar er að það var engin að veiða við vötnin þrátt fyrir frábærar aðstæður. Og það sem meira er, laxinn er mættur!

Barton launahæsti leikmaðurinn í sögu QPR

Joey Barton samdi í vikunni við Queens Park Rangers og samkvæmt enskum fjölmiðlum þénar hann nú 80 þúsund pund í vikulaun. Er hann þar með orðinn launahæsti leikmaðurinn í sögu félagsins.

Lax sem meðafli makrílbáta

Það hefur verið kvittur á kreiki að undanförnu þess efnis að makrílveiðiskip með flottroll fyrir Austurlandi hafi verið að róta upp laxi í stórum haugum. Talað um allt að 30 tonn á einstökum skipum.

Dalglish hefur áhyggjur af álaginu á Suarez

Kenny Dalglish, stjóri Liverpool, hefur áhyggjur af því hversu mikið álag er á Luis Suarez og þá aðallega hversu marga leiki hann þarf að spila með úrúgvæska landsliðinu.

Umfjöllun: Guðjón Pétur náði í stig fyrir Valsmenn

Blikar og Valsmenn gerðu 1-1 jafntefli á rennandi blautum Kópavogsvelli í kvöld, en Valsmenn jöfnuðu metin í blálokin þegar Guðjón Pétur Lýðsson skoraði beint úr aukaspyrnu. Andri Rafn Yeoman skoraði mark Breiðabliks rétt fyrir lok fyrri hálfleiks og það stefndi allt í heimasigur. Valsmenn gefast aftur á móti aldrei upp og náðu að knýja fram jafntefli.

Stoke enn taplaust eftir sigur á West Brom

West Brom er enn án stiga í ensku úrvalsdeildinni eftir að hafa tapað á lokamínútunum í þriðja skiptið í jafn mörgum leikjum í upphafi tímabilsins. Í þetta sinn fyrir Stoke.

Sjá næstu 50 fréttir