Fleiri fréttir

Hamilton áminntur og Maldonado refsað vegna áreksturs

Formúlu 1 ökumennirnir Lewis Hamilton hjá McLaren og Pastor Maldonado lentu í samtuði í tímatöku fyrir belgíska kappaksturinn sem fram fer á morgun. Þeir rákust saman eftir að hafa lokið annarri umferð tímatökunnar í dag og dómarar mótsins töldu báða brotlega.

Dalglish: Vinnusemin skilaði sigrinum

Kenny Dalglish, stjóri Liverpool, segir að samstaða leikmanna og vinnusemi þeirra í leiknum gegn Bolton í dag hafi verið lykillinn að 3-1 sigri Liverpool.

Richards búinn að semja við City

Micah Richards gerði í dag nýjan fjögurra ára samning við Manchester City en hann hefur staðið sig vel að undanförnu.

Forlan á leið til Inter

Diego Forlan, leikmaður Atletico Madrid á Spáni, er á leið til Inter á Ítalíu að sögn knattspyrnustjóra fyrrnefnda liðsins.

Veigar Páll hafði betur gegn Andrési Má

Vålerenga vann í dag 3-2 sigur á Haugesund í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Veigar Páll Gunnarsson lagði upp eitt mark Vålerenga í leiknum.

Malmö styrkir stöðu sína

Malmö vann í dag góðan 2-0 sigur á Dalsjöfors á útivelli og styrkti þar með stöðu sína á toppi deildarinnar.

Þróttur á leið niður en FH upp

Þróttur er í slæmri stöðu á botni Pepsi-deildar kvenna en liðið tapaði í dag fyrir Fylki, 2-1. FH-ingar eru á leið upp úr 1. deildinni eftir stórsigur á grönnum sínum í Haukum.

Nýliðar Brighton á miklu flugi - engir Íslendingar með

Brighton vann í dag 2-0 sigur á Peterborough í ensku B-deildinni og er á toppi deildarinnar með þrettán stig af fimmtán mögulegum. Fjögur Íslendingalið voru í eldlínunni í deildinni í dag en engir Íslendinganna komu við sögu.

Insua kominn til Sporting Lissabon

Emiliano Insua er farinn frá Liverpool en hann hefur skrifað undir fimm ára samning við Sporting Lissabon í Portúgal.

Keníukonur rúlluðu tíu þúsund metrunum líka upp

Þetta hefur verið góður dagur fyrir kenískar konur á HM í frjálsíþróttum í Suður-Kóreu. Nú í hádeginu sópaði Kenía til sín verðlaununum í tíu þúsund metra hlaupi kvenna, rétt eins og í maraþoninu í morgun.

Vettel fljótastur í tímatökunni, en hjól flaug undan bíl Schumacher

Það var misjöfn gæfa tveggja þýskra ökumanna í tímatökunni á Spa brautinni í Belgíu í dag. Sebastian Vettel náði besta tíma á Red Bull, en Michael Schumacher verður aftastur á ráslínu eftir að afturhjól flaug undan bílnum í fyrstu umferð tímatökunnar.

Young kominn til QPR

Varnarmaðurinn Luke Young er genginn til liðs við QPR og kemur til félagsins frá Aston Villa. Kaupverðið er óuppgefið.

KR lagði Grindavík í botnslag - myndir

KR vann 2-1 sigur á Grindavík í Pepsi-deild kvenna í gærkvöldi. Sigurinn var afar dýrmætur fyrir Vesturbæjarliðið en liðin voru bæði með 10 stig í næstneðsta sæti deildarinnar fyrir leikinn. Anton Brink, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var á KR-vellinum og smellti af.

Gylfi Orrason: Brosum bara í kampinn

Mikil og heit umræða hefur verið um dómgæsluna í toppslag KR og ÍBV í fyrrakvöld, sem og á leikjum KR fyrr í sumar. Gylfi Þór Orrason, formaður dómaranefndar KSÍ, gefur lítið fyrir umræðuna. „Dómarar eru með sterk bein.“

Webber rétt á undan Hamilton á lokaæfingunni fyrir tímatökuna á Spa

Mark Webber á Red Bull var fljótastur rennandi blautri Spa brautinni í Belgíu í dag þar sem rigndi mikið á meðan lokaæfingu fyrir tímatökuna var í gangi. Webber varð aðeins 0.058 sekúndum á undan Lewis Hamilton á McLaren á æfingunni, en Jamie Alguersuari á Torro Rosso varð þriðji fljótastur.

Teitur Þórðarson: Eigum hörku knattspyrnumenn

Tilkynnt var á blaðamannafundi hjá Knattspyrnusambandi Íslands á fimmtudaginn að samningur við Ólaf Jóhannesson, núverandi landsliðsþjálfara, yrði ekki endurnýjaður. Teitur Þórðarson, sem þjálfaði á sínum tíma landslið Eistlands með góðum árangri, er spenntur fyrir starfinu.

Wigan aldrei byrjað betur

Wigan vann í dag 2-0 sigur á QPR og er enn ósigrað eftir þrjár umferðir. Er það besta byrjun liðsins í ensku úrvalsdeildinni frá upphafi.

Webber áfram hjá Red Bull 2012

Red Bull hefur staðfest formlega að Mark Webber verður áfram hjá liðinu á næsta keppnistímabili og ekur því við hlið Sebastian Vettel eins og síðustu ár. Þeir félagar eru í fyrsta og öðru sæti í stigamóti ökumanna í ár. Þeir hafa ekið saman hjá Red Bull síðustu þrjú ár og keppa á Spa brautinni í Belgíu um helgina.

Veigar Páll: Fátt skemmtilegra en að spila gegn Noregi

Veigar Páll Gunnarsson var valinn í íslenska landsliðið á nýjan leik fyrir leikina gegn Noregi og Kýpur í undankeppni EM 2012 byrjun september. Veigar Páll þekkir mjög vel til í Noregi, þar sem hann hefur spilað í átta ár, og hlakkar hann vitanlega mjög til að fá að mæta Norðmönnum á nýjan leik.

Eyjamennirnir hætta aldrei

Jöfnunarmark Aarons Spear á KR-vellinum í fyrrakvöld mun hafa mikil áhrif á þróun mála í titilbaráttu Pepsi-deildar karla í sumar en það var líka enn eitt dæmið um að Eyjamennirnir hætta aldrei og eru alltaf líklegir til að skora, sama hversu lítið er eftir af leikjunum.

Erfitt verkefni fyrir höndum hjá Wenger

Manchester United tekur á móti Arsenal í stórslag helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Óhætt er að segja að heimamenn séu sigurstranglegri þrátt fyrir að miðverðirnir Vidic og Ferdinand glími við meiðsli. Liðið skellti Tottenham 3-0 á mánudag þrátt fyrir fjarveru þeirra og virkar í fantaformi.

Leikmennirnir vildu halda áfram

Stjarnan verður með í N1-deild kvenna í vetur þrátt fyrir yfirlýsingar um annað. Þetta var staðfest í gærmorgun eftir að skipt hafði verið um stjórn í handknattleiksdeild félagsins.

Vettel hefur ekki áhyggjur af sigurleysinu

Sebastian Vettel, sem er efstur í stigamóti ökumanna segist ekki hafa áhyggjur af því þó hann hafi ekki landað sigri í síðustu mótum. Hann hefur ekki unnið þrjú síðustu mót, en hann vann fimm af sex fyrstu mótum ársins. Fernando Alonso, Lewis Hamilton og Jenson Button unnu sitt mótið hver hvað síðustu þrjú mót varðar.

Getafe hvetur stuðningsmenn sína til þess að gerast sæðisgjafar

Spænska efstu deildar félagið Getafe fer heldur óhefðbundna leið í því að auglýsa ársmiða fyrir komandi tímabili. Félagið hefur látið framleiða auglýsingu þar sem stuðningsmenn félagsins eru hvattir til þess að gerast sæðisgjafar í þeim tilgangi að fjölga stuðningsmönnum félagsins.

Heidfeld í mál vegna samningsbrots Renault

Nick Heidfleld telur að Formúlu 1 lið Renault hafi brotið á sér þegar það ákvað að ráða Bruno Senna sem keppnisökumann í hans stað frá og með mótinu á Spa brautinni í Belgíu um helgina. Málið er komið fyrir dómara í Bretlandi og verður skoðað í kjölinn 19. september, en á meðan ekur Senna fyrir Renault.

Sjá næstu 50 fréttir