Umfjöllun: Markalaust og leiðinlegt Hjalti Þór Hreinsson á Akureyri skrifar 28. ágúst 2011 16:00 Mynd/Valli
Þór og Grindavík gerðu markalaust jafntefli og bragðdaufum og tíðindalitlum leik fyrir norðan. Hvorugt liðið virtist þora að sækja til sigurs. Hér fyrir neðan birtust sjálfkrafa allar helstu upplýsingar um framvindu leiksins, leikmannahópa liðanna auk textalýsingar frá blaðamanni Vísis á vellinum. Fyrri hálfleikur var rólegur lengst af. Þórsarar náðu ögn meiri tökum á leiknum en gestirnir, en þó var leikurinn í ágætu jafnvægi. Hann var hægur og lítt spennandi. Þórsarar fengu nokkur hálffæri, ekkert sem truflaði Óskar í markinu alvarlega. Sveinn Elías Jónsson var í banni og David Dizstl á bekknum en Jóhann Helgi Hannesson olli nokkrum usla í fremstu víglínu. Grindvíkingar voru lengi í gang en tóku við sér undir lok hálfleiksins þegar þeir fengu tvö góð færi. Fyrst Orri Freyr, sem var tosaður niður en stóð upp og náði boltanum, skot hans fór framhjá. Hann heimtaði víti en fékk ekki. Óli Baldur fékk svo frábæra sendingu í gegnum vörnina, lék á Þorstein Ingason fyrirliða en skot hans einn gegn Rajkovic var langt framhjá. Glórulaust skot en hann ætlaði að setja boltann utanfótar í samskeytin fjær. Hefði verið nær að setja hann einfalt og innanfótar framhjá Rajkovic. Staðan í hálfleik markalaus. Bæði lið fengu hálffæri, Alexander átti góðan sprett og skot beint á Rajkovic og Gunnar Már skallaði yfir. Leikurinn var mjög hægur og liðin voru afar spör á sóknarþunga. Alltof spör. Hvorugt lið virtist þora að taka áhættu, enda mikið í húfi. Niðurstaðan var drepleiðinlegur leikur þar sem afskaplega lítið markvert gerðist. Bæði lið geta gert betur, sérstaklega hvað skot varðar en öll skot leiksins fóru beint á markmennina, ef þau hittu markið á annað borð. Þórsarar fengu sitt fyrsta stig eftir þrjú töp í röð en liðin hafa nú 18 stig, Fram er með ellefu stig í fallsætinu og á leik til góða. Undir lokin áttu bæði Derek Young og Scott Ramsay að fá rauð spjöld, Young fyrir að sparka í Vrenko sem sat á vellinum og Ramsay fyrir tveggja fóta tæklingu.Þór 0-0 Grindavík Þórsvöllur. Áhorfendur: Um 700.Dómari: Kristinn Jakobsson 4TölfræðinSkot (á mark): 9-12 (3-6)Varin skot: Srjdan 6 - Óskar 3Horn: 3-2Aukaspyrnur fengnar: 10-12Rangstöður: 1-1
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport PSG setti nýtt met í kvöld Fótbolti Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira