Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
John Arne Riise í læknisskoðun hjá Fulham John Arne Riise fyrrverandi leikmaður Liverpool sem leikið hefur með Roma á Ítalíu undanfarin ár er í læknisskoðun hjá Fulham þessa stundina. Samkvæmt frétt á vef norska ríkisútvarpsins verður Riise kynntur sem nýr leikmaður félagsins síðar í dag. 11.7.2011 12:30
Golfskóli Birgis Leifs: Hvernig á að miða í pútti? Það er mikið um að vera á golfvöllum landsins þar sem að meistaramótin eru í þann mund að hefjast hjá mörgum kylfingum. Góð ráð frá margföldum Íslandsmeistara í golfi gætu komið sér vel fyrir flesta kylfinga og í þessum kennsluþætti fer Birgir Leifur Hafþórsson yfir það hvernig best er að miða í púttum á flöt. Atriðið er úr þáttunum Golfskóli Birgis Leifs, sem sýndir eru á Stöð 2 sport. 11.7.2011 12:30
Eiður Smári með tilboð frá West Ham Eiður Smári Guðjohnsen hefur í höndunum tilboð frá West Ham, þetta staðfesti Arnór Guðjohnsen faðir og umboðsmaður Eiðs við íþróttadeild Stöðvar 2 í morgun. Nýliðar Swansea í ensku úrvalsdeildinni hafa einnig boðið Eiði Smára samning og segir Arnór að fleiri möguleikar séu einnig í boði en Eiður sé þessa dagana að gera upp hug sinn. 11.7.2011 12:00
Button óheppinn á heimavelli Bretinn Jenson Button hjá McLaren var frekar óheppinn í breska kappakstrinum á Silverstone í gær. Hann féll úr leik eftir að þjónustuliðinu hans mistókst að festa ró sem festir hægra framdekkið við framhjólabúnað bílsins í þjónustuhléi. Button ók af stað, en varð að stöðva þar sem dekkið var við það að detta undan. 11.7.2011 11:57
Fallslagur í Laugardalnum og Valur gæti komist á toppinn Þrír leikir fara fram í kvöld í Pepsi-deild karla þegar 10. umferð lýkur. Valur og Stjarnan eigast við á Vodafonevellinum en Valsmenn geta með sigri náð efsta sætinu af KR-ingum sem eiga reyndar einn leik til góða á Val. Leikurinn hefst kl. 20.00 og verðu hann í beinni útsendingu á Stöð2 sport. Farið verður yfir öll helstu atvikin og mörkin úr 10. umferð í Pepsimörkunum kl. 22.00 á Stöð 2 sport. 11.7.2011 11:30
Hamilton: Einn besti breski kappakstur allra tíma Lewis Hamilton hjá McLaren var í hörkubaráttu um verðlaunasæti um tíma í breska kappakstrinum á Silverstone í gær. Undir lokin barðist hann við Felipe Massa á Ferrari um fjórða sætið allt til loka og munaði aðeins 0.024 úr sekúndu á þeim í endamarkinu. Var harður slagur á milli þeirra í síðustu beygjunni í síðasta hringnum og Hamilton hafði betur. 11.7.2011 11:14
Wenger er vongóður um að halda Fabregas og Nasri Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, er vongóður um að Cesc Fabregas og Samir Nasri verði áfram í herbúðum liðsins á næstu leiktíð. Fabregas, sem er fyrirliði Arsenal, er efstur á óskalistanum hjá Barcelona á Spáni og félögin hafa rætt um hugsanleg vistaskipti hans en kaupverðið hefur staðið í vegi fyrir því að félögin hafi komist að samkomulagi. Manchester City og Manchester United hafa bæði áhuga á að fá Nasri í sínar raðir. Franski landsliðsmaðurinn á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við Arsenal og hefur ekki viljað skrifa undir nýjan samning. 11.7.2011 11:00
Um 40 laxar komnir úr Korpu Korpa var komin í um 40 laxa í morgun þegar Veiðivísi bar þar að garði. Einn lax var tekinn strax um klukkan sjö í morgun í Berghyl og var það eini laxinn sem sást til á neðstu stöðunum. 11.7.2011 10:43
Þjálfari enska landsliðsins gagnrýnir eldri leikmenn liðsins Hope Powell, þjálfari enska kvennalandsliðsins í fótbolta, gagnrýndi eldri og reyndari leikmenn liðsins fyrir „heigulskap" þegar liðið tapaði í vítaspyrnukeppni í 8-liða úrslitum heimsmeistaramótsins gegn Frökkum. Powell segir að hún hafi átt í mestum vandræðum með að finna leikmenn sem vildu taka þeirri áskorun sem fylgir því að fara í vítaspyrnukeppni. Ungur og lítt reyndur bakvörður, Claire Rafferty, sem komið hafði inn á sem varamaður á 80. mínútu , náði ekki að skora úr fjórðu vítaspyrnunni og Fay White fyrirliði enska liðsins klúðraði fimmtu vítaspyrnunni. 11.7.2011 10:30
Svalbarðsá komin í 37 laxa Á hádegi í dag laugardaginn 9. júlí, höfðu veiðst 37 laxar í Svalbarðsá, en veiði hófst þar 1 júli. Á mynd er Agnes Viggósdóttir með glæsilegan 12 punda hæng úr einum besta stað í ánni, Forseta. Laxinn tók rauðan Francis með gullkrók #12. 11.7.2011 10:04
Fyrstu laxarnir á land úr Mýrarkvísl Fyrsti lax sumarsins úr Mýrarkvísl veiddist fyrir um viku og tveir aðrir veiddust í gær. Tóku þeir í gilinu og reyndust báðir vera um 7 pund. 11.7.2011 10:02
Stricker tryggði sér sigur með mögnuðu pútti Bandaríski kylfingurinn Steve Stricker sýndi snilldartakta á lokaholunnu á John Deere meistaramótinu á PGA mótaröðinni í gær þar sem hann tryggði sér sigur með mögnuðu pútti fyrir fugli. Þetta er þriðja árið í röð sem Stricker vinnur þetta mót en hann lék samtals á 22 höggum undir pari og er þetta 11. sigur hans á PGA mótaröðinni. Stricker fékk fugl á 17., og 18. braut og var hann einu höggi betri en Kyle Stanley sem var ansi nálægt því að fá fugl á lokaholunni. 11.7.2011 10:00
Batista setur Tévez á bekkinn hjá Argentínu fyrir leik kvöldsins Mikil spenna er fyrir leik Argentínu gegn Kosta-Ríku í kvöld á Copa America, Suður-Ameríkukeppninni í fótbolta. Argentínumenn verða að vinna til þess að komast áfram úr riðlakeppninni og hefur þjálfari liðsins, Sergio Batista, ákveðið að gera fjórar breytingar á liðinu og setur hann m.a. Carlos Tévez og Ezequiel Lavezzi út úr byrjunarliðinu. Gonzalo Higuaín og Sergio Agüero koma inn í byrjunarliðið í þeirra stað. 11.7.2011 09:30
Enn ein stjarnan til Katar Brasilíski knattspyrnumaðurinn Ze Roberto hefur ákveðið að ljúka ferli sínum með Al Gharafa í Katar. Hann skrifaði undir tveggja ára samning við félagið en hann var samningslaus. 11.7.2011 09:00
Hearts snýr baki við dæmdum kynferðisbrotamanni Vladimir Romanov, eigandi skoska knattspyrnuliðsins Hearts, hefur sagt Craig Thomson að hann muni ekki spila framar fyrir félagið. Thomson var dæmdur fyrir ósæmilega hegðun gagnvart táningsstúlkum í júní síðastliðnum. 11.7.2011 08:30
Uppljóstrarinn í Katar dregur ásakanir um mútugreiðslur tilbaka Uppljóstrarinn í Katar, sem ásakaði þrjá fulltrúa í framkvæmdaráði FIFA um að hafa þegið mútugreiðslur vegna framoðs Katar til heimsmeistarakeppninnar 2022, hefur dregið sögu sína tilbaka. 11.7.2011 08:00
Fyrsta par 6 hola landsins í bígerð Svo gæti farið að fyrsta par 6 hola á landinu verði á Víkurvelli sem staðsettur er í Vík í Mýrdal. Í dag er völlurinn níu holur, en gert er ráð fyrir 18 holu golfvelli í nýju aðalskipulagi Mýrdalshrepps samkvæmt heimasíðunni, www.vik.is/golf. 11.7.2011 07:30
Tryggvi nálgast met Inga Björns, 120 mörk Eyjamaðurinn, Tryggvi Guðmundsson, nálgast markametið í efstu deild karla óðum, en Tryggvi hefur nú skorað 120 mörk í efstu deild. Ingi Björn Albertsson skoraði 126 mörk í efstu deild og því vantar Tryggva aðeins sjö mörk til að bæta metið. 11.7.2011 07:00
Beckham mætir Manchester United David Beckham og stjörnulið MSL-deildarinnar mæta fyrrum félögum Beckham í Manchester United í æfingaleik þann 27. júlí næstkomandi. Auk Beckham verða Landon Donovan, Thierry Henry og Kasey Keller í byrjunarliðinu. 11.7.2011 00:06
Fram-Grindavík á Boltavarpi Vísis Leikur Fram og Grindavíkur verður í beinni lýsingu í Boltavarpi Vísis. Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli. 11.7.2011 18:30
Donald tryggði sér 100 milljónir kr. með öruggum sigri í Skotlandi Luke Donald sigraði með nokkrum yfirburðum á opna skoska meistaramótinu í golfi á Evrópumótaröðinni sem lauk í dag. Enski kylfingurinn hefur nú sigrað á þremur atvinnumótum á þessu ári en hann er í efsta sæti heimslistans og til alls líklegur á opna breska meistaramótinu sem hefst á fimmtudaginn. Donald lék samtals á -19 en hann lék lokahringinn á 63 höggum, eða -9, og gerði engin mistök. 10.7.2011 23:30
Óvíst hvort Yao Ming sé hættur Umboðsmaður NBA-leikmannsins Yao Ming, John Huizinga, vildi ekki staðfesta við fjölmiðla ytra að leikmaðurinn væri búinn að leggja skónna á hilluna. 10.7.2011 23:30
Rúnar: Lékum gríðarlega vel í fyrri hálfleiknum "Menn léku gríðarlega vel í fyrri hálfleik og voru vel á tánum,“ sagði Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, eftir stórsigur KR-inga á Fylki 3-0 þar sem öll mörk leiksins komu í fyrri hálfleiknum. 10.7.2011 23:11
Grétar: Ætlum okkur langt í öllum keppnum „Við skoruðum þrjú glæsileg mörk og ég er stoltur af liðinu að hafa spilað sig svona vel í gegnum gott lið Fylkis,“ sagði Grétar Sigfinnur Sigurðarson, leikmaður KR, eftir sigurinn í kvöld. 10.7.2011 22:58
Ásgeir: Við drulluðum á okkur „Þetta er bara gjörsamlega til skammar og ég á ekki til orð yfir spilamennsku okkar í leiknum,“ sagði Ásgeir Börkur Ásgeirsson, leikmaður Fylkis, eftir tapið í kvöld. 10.7.2011 22:52
Rosenborg og Stabæk í viðræðum um kaupverð á Veigari Páli Norska sjónvarpsstöðin TV 2 greinir frá því að norsku meistararnir í knattspyrnu Rosenborg séu í viðræðum við Stabæk um kaup á Veigari Páli Gunnarssyni. 10.7.2011 22:48
Guðjón: Verð að vera ánægður með mína fyrstu þrennu „Ég hefði getað skorað fleiri mörk í kvöld en maður getur ekki verið ósáttur með fyrstu þrennuna í úrvalsdeild,“ sagði Guðjón Baldvinsson, markaskorari KR, eftir leikinn í kvöld. 10.7.2011 22:47
Kólumbíumenn unnu Bóllivíu og tryggðu sér sigur í riðlinum Landslið Kólumbíu í knattspyrnu vann 2-0 sigur á Bólivíu í A-riðli Suður-Ameríkukeppninnar í knattspyrnu í Argentínu í kvöld. Kólumbía hefur tryggt sér efsta sætið í riðlinum og er komið í 8-liða úrslit. 10.7.2011 21:45
Sigursteinn látinn fara - Miljkovic tekur við Zoran Miljkovic verður næsti þjálfari Leiknis í fyrstu deild. Fótbolti.net greinir frá því að Sigursteini Gíslasyni og Garðari Gunnari Ásgeirssyni hafi verið sagt upp störfum. 10.7.2011 21:15
Heimir Guðjóns: Þeir voru betri á öllum sviðum Heimir Guðjónsson þjálfari FH var ekki ánægður með 3–1 tap á Hásteinsvellinum. Hann vildi kenna viljaleysi sinna manna um hvernig fór en leikur FH-inga var einstaklega slappur í dag. 10.7.2011 20:53
Tryggvi: Vissum alveg hvað við ætluðum að gera Maður leiksins, Tryggvi Guðmundsson, var að vonum ánægður í leikslok. Tryggvi sem er fyrrum FH-ingur skoraði eitt og lagði upp annað í 3–1 sigri Eyjamanna og FH-ingunum. 10.7.2011 20:50
Nicklaus: McIlroy á langt í land í að verða sá besti Sigursælasti kylfingur allra tíma, Jack Nicklaus, telur að Rory McIlroy þurfi að halda vel á spöðunum til þess að eiga möguleika á því að sigra Opna Breska Meistaramótið í golfi sem hefst í næstu viku. 10.7.2011 20:30
Yfirmaður Red Bull hissa á að Webber hunsaði liðsskipanir Mark Webber sinnti ekki liðsskipunum Red Bull liðsins í Silverstone kappakstrinum í dag, þegar hann fékk nokkrum sinnum fyrirmæli um að sækja ekki að Sebastian Vettel. Þeir voru í slag um annað sætið á eftir Fernando Alonso og Webber lét ekki segjast. 10.7.2011 19:19
Given er tilbúinn að taka á sig launalækkun Shay Given, varamarkvörður Man. City, hefur gefið það út að hann sé tilbúinn að taka á sig 25.000 punda launalækkun á viku svo hann komist til Aston Villa, en Villa leitar nú óðum að markverði þar sem Brad Friedel fór frá liðinu á dögunum. 10.7.2011 19:00
Alonso vann á sextíu ára afmæli fyrsta sigurs Ferrari Sigur Fernando Alonso á Silverstone brautinni í dag var kærkominn fyrir Ferrari liðið sem hafði ekki unnið mót á árinu, en fyrir 60 árum vann Ferrari fyrsta sigurinn í Formúlu 1 á Silverstone. Þá vann Jose Froilan Gonzalez á Ferrari, en Alonso keyrði einmitt keppnisbíl hans í sýningarakstri í morgun nokkru áður en kappaksturinn hófst. 10.7.2011 18:51
Bandaríkin sló Brasilíu út í dramatískum leik eftir vítakeppni Það verða Bandaríkin sem mæta Frökkum í undanúrslitum á HM kvenna á miðvikudag. Bandaríkin lagði Brasilíu í risaslag í 8-liða úrslitum í dag eftir vítaspyrnukeppni sem lauk 5-3. 10.7.2011 18:25
Þór/KA lagði KR í Vesturbænum Þór/KA gerði góða ferð í Vesturbæ Reykjavíkur í dag og lagði KR með tveimur mörkum gegn einu. Slóveninn Mateja Zver var á skotskónum í dag en hún skoraði bæði mörk Akureyringa. 10.7.2011 18:07
Scholes: Enskir landsliðsmenn hugsa aðeins um sjálfan sig Paul Scholes, fyrrum leikmaður Manchester United, segir í ítarlegu viðtali við enska fjölmiðla að ástæðan fyrir því að hann hafi lagt landsliðskónna á hilluna árið 2004 hafi verið að leikmenn liðsins hafi ávallt haft sína eigin hagsmuni að leiðarljósi, því hafi aldrei skapast góð liðsheild. 10.7.2011 17:30
Formaður BÍ/Bolungarvíkur biður Ólsara afsökunar "Ég bið Ólafsvíkinga afsökunar á þessu," sagði Samúel Samúelsson formaður BÍ/Bolungarvíkur í viðtali við vefsíðuna Fótbolta.net í dag. 10.7.2011 16:45
Myndaveisla af Kópavogsvelli Breiðablik lagði Þór 4-1 í blíðskaparveðri í Kópavogi í gær. Sigurinn var gott veganesti fyrir Blika sem mæta Rosenborg í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu á miðvikudag. Pjetur Sigurðsson ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis var á vellinum. 10.7.2011 16:15
Kevin Phillips skrifaði undir hjá Blackpool Enska 1. deildarliðið, Blackpool, hefur fengið til sín reynsluboltann Kevin Phillips sem skrifaði undir eins árs samning við félagið. 10.7.2011 15:30
Beckham skoraði beint úr hornspyrnu Knattspyrnumaðurinn, David Beckham, hefur í gegnum tíðina skorað mörg falleg mörk og kom eitt af þeim fyrir LA Galaxy í gær, en leikmaðurinn setti boltann í netið úr hornspyrnu. 10.7.2011 14:45
Fernando Alonso sigraði Silverstone-kappaksturinn Fernando Alonso, ökuþór hjá Ferrari, vann í dag frábæran sigur í breska kappakstrinum í Silverstone eftir spennandi keppni. Sebastian Vettel varð í öðru sæti og Mark Webber í því þriðja en þeir tveir aka báðir fyrir Red Bull liðið. 10.7.2011 14:19
Abramovich ætlar að greiða 80 milljónir fyrir Tevez og Modric Eigandi Chelsea, Roman Abramovich, er tilbúinn að greiða 80 miljónir punda eða 15 milljarða íslenskra króna í þá Carlos Tevez og Luka Modric, en sá fyrrnefndi er á leiðinni frá Man. City. 10.7.2011 13:30
Svíþjóð komið í undanúrslit á HM Svíþjóð varð í dag þriðja liðið að tryggja sér sæti í undanúrslitum Heimsmeistaramótsins í knattspyrnu sem fram fer í Þýskalandi, en þær sænsku unnu Ástralíu, 3-1, og mæta Japan í undanúrslitum 13.júlí. 10.7.2011 13:00