Íslenski boltinn

Rúnar: Lékum gríðarlega vel í fyrri hálfleiknum

Stefán Árni Pálsson á Fylkisvelli skrifar
„Menn léku gríðarlega vel í fyrri hálfleik og voru vel á tánum," sagði Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, eftir stórsigur KR-inga á Fylki 3-0 þar sem öll mörk leiksins komu í fyrri hálfleiknum.

„Við vissum að við myndum mæta særðu Fylkisliði frá því í síðustu umferð og vissum að leikurinn yrði erfiður, en við leystum þetta verkefni hrikalega vel og ég er rosalega stoltur af strákunum".

„Við lögðum leikinn upp með því að leyfa Fylkismönnum aðeins að koma upp á völlinn og sækja svo stíft í bakið á þeim og það gekk fullkomlega upp".

„Það er verkefni fyrir mig og Pétur (Pétursson) að halda mönnum á jörðinni, við erum ekki búnir að vinna neitt enn," sagði Rúnar Kristinsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×