Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fernando Torres á bekknum hjá Chelsea á móti United Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United og Carlo Ancelotti, stjóri Chelsea, hafa tilkynnt byrjunarliðin sín fyrir stórleik liðanna á Old Trafford á eftir. United getur nánast tryggt sér meistaratitilinn með sigri en Chelsea getur aftur á móti komist á toppinn á markatölu vinni þeir leikinn. 8.5.2011 14:21
19. meistaratitillinn á leiðinni á Old Trafford - United vann Chelsea Manchester United á Englandsmeistaratitilinn vísan eftir 2-1 sigur á Chelsea í hálfgerðum úrslitaleik milli tveggja efstu liða ensku úrvalsdeildarinnar á Old Trafford í dag. United skoraði strax á fyrstu mínútu leiksins og yfirspilaði Chelsea-menn stóran hluta fyrri hálfleiksins en Chelsea setti smá spennu í leikinn með því að minnka muninn í seinni hálfleik. 8.5.2011 14:15
Ferguson ætlar að halda áfram þó að United vinni tvennuna Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, sem verður sjötugur í lok ársins er ekkert farinn að hugsa um það að hætta með liðið þótt að United vinni bæði ensku úrvalsdeildina og meistaradeildina í vor. 8.5.2011 14:00
Öruggur sigur og örugg forysta hjá Vettel Heimsmeistarinn í formúlu eitt í fyrra, Þjóðverjinn Sebastian Vettel hjá Red Bull, er hreinlega að stinga af í formúlunni en hann vann tyrkneska kappaksturinn örugglega í dag. 8.5.2011 13:38
Aron markahæstur þegar Kiel vann þýska bikarinn Aron Pálmarsson átti mjög góðan leik þegar hann og félagar hans í Kiel urðu þýskir bikarmeistarar eftir sex marka sigur á Flensburg-Handewitt, 30-24, í bikarúrslitaleiknum í Hamburg. Alfreð Gíslason gerði því Kiel að bikarmeisturum í annað skiptið á þremur árum. 8.5.2011 13:27
Búið að selja 25 þúsund miða á úrslitaleikinn á Parken Það gengur vel að selja miða á annan leik AG og Bjerringbro-Silkeborg í úrslitaeinvíginu um danska meistaratitilinn í handbolta en hann fer fram á fótboltavellinum í Parken í Kaupmannahöfn. 8.5.2011 13:00
Stoke vann seinheppið Arsenal-lið Stoke hélt áfram frábæru gengi á heimavelli sínum á árinu 2011 þegar liðið vann 3-1 sigur á seinheppnu Arsenal-liði í ensku úrvalsdeildinni í dag. Tvö marka Stoke-liðsins komu í fyrri hálfleik þar sem varnarleikur lærisveina Arsene Wenger var ekki til að hrópa húrra fyrir og þriðja mark Stoke kom í næstu sókn eftir að Arsenal hafði minnkað muninn. 8.5.2011 12:30
Ancelotti býst ekki við neinu óvæntu á Old Trafford í dag Carlo Ancelotti, stjóri Chelsea, segir að Chelsea og Manchester United geti ekki komið hvoru öðru á óvart þegar þau mætast í hálfgerðum úrslitaleik í ensku úrvalsdeildinni á Old Trafford í dag. 8.5.2011 12:00
Rajon Rondo fór úr olnbogalið en hélt áfram að spila Rajon Rondo, leikstjórnandi Boston Celtics sýndi mikla hörku og fórnfýsi í 97-81 sigri Boston á Miami Heat í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í nótt. Rondo lenti illa í þriðja leikhluta og fór úr olnbogalið. Hann fór inn í búningklefa þar sem olnboganum var aftur kippt í liðinn og Rondo kom síðan til baka og kláraði leikinn. 8.5.2011 11:30
Umfjöllun: Vinnusamir FH-ingar kláruðu Blikana FH-ingar fengu sín fyrstu stig í sumar þegar þeir unnu 4-1 sigur á Íslandsmeisturum Breiðabliks í 2. umferð Pepsi-deild karla í Kaplakrika í kvöld. Blikar misstu annan leikinn í röð mann af velli með rautt spjald. 8.5.2011 11:14
NBA: Garnett pakkaði Bosh saman í léttum sigri Boston á Miami Boston Celtics fór illa með Miami Heat í þriðja leik liðanna í úrslitaeinvígi þeirra í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Þetta var fyrsti leikurinn í Boston en Miami vann tvo fyrstu leikina á heimavelli sínum. Memphis er komið í 2-1 á móti Oklahoma City Thunder eftir endurkomusigur í framlengingu. 8.5.2011 11:00
Úlfarnir unnu WBA og komust upp úr fallsæti Wolves fékk þrjú dýrmæt stig í fallbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar þegar liðið vann 3-1 heimasigur á West Bromwich í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. 8.5.2011 10:30
Alfreð: Ég var mjög ánægður með Aron Alfreð Gíslason var sáttur með sína menn í Kiel sem komu liðinu í bikaúrslitaleikinn eftir 28-23 sigur á Frisch Auf Göppingen í undanúrslitaleiknum í gær. Kiel mætir Flensburg-Handewitt í úrslitaleiknum klukkan 12.00 í dag og er leikurinn í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2 í dag. Útsendingin hefst klukkan 11.40. 8.5.2011 10:00
Rosberg vill skáka Webber í rásmarkinu Nico Rosberg hjá Mercedes er þriðji á ráslínu í Formúlu 1 mótinu á Istanbúl brautinni í Tyrklandi í dag, á eftir Red Bull ökumönnunum Sebastian Vettel og Mark Webber. Hann vill komast framúr Webber strax eftir ræsingu mótsins, en bein útsending frá keppninni hefst kl. 11.30 á Stöð 2 Sport í dag. 8.5.2011 09:44
Moyes: Man City liðið gæti eflaust spilað í NBA-deildinni David Moyes, stjóri Everton, var ánægður með sína menn í gær en þeir komu til baka eftir erfiðan fyrri hálfleik og tryggðu sér 2-1 sigur á Manchester City. City-liðið virtist vera að landa sannfærandi sigri eftir fyrri hálfleikinn en Sylvain Distin og Leon Osman tryggðu Everton sigur í seinni hálfleik. 8.5.2011 09:00
Eini bikarinn sem slapp frá Ólafi Stefánssyni Ólafur Stefánsson og félagar í Rhein-Neckar Löwen töpuðu í gær fyrir Flensburg í undanúrslitum þýska bikarsins og þar með var ljóst að Ólafur nær ekki að verða þýskur bikarmeistari á ferlinum. 8.5.2011 08:00
David Beckham klessti aftan á bíl á hraðbraut í LA Knattspyrnumaðurinn David Beckham lenti í árekstri á hraðbraut í Los Angeles í gær en slapp alveg ómeiddur. Beckham keyrði þá aftan á bíl og þurfti ökumaður hins bílsins að leita sér læknisaðstoðar vegna eymsla í hálsi. 8.5.2011 07:00
Auðunn vann brons á Evrópumótinu í kraftlyftingum Blikinn Auðunn Jónsson vann í gær bronsverðlaun í réttstöðuluyftu á Evrópumótinu í kraftlyftingum í Pilzen í Tékklandi og var nálægt því að taka annað brons í samanlögðu eftir harða keppni. 8.5.2011 06:00
Mancini: Vorum alltof eigingjarnir í færunum Roberto Mancini, stjóri Manchester City, horfði upp á sína menn missa frá sér sigur á móti Everton á Goodison Park í ensku úrvalsdeildinni í dag en með sigri hefðu City-menn tryggt sér sæti í Meistaradeildinni á næsta tímabili. Everton skoraði tvö mörk í seinni hálfleik og vann leikinn 2-1. 7.5.2011 23:00
AG vann síðasta leikinn sinn fyrir lokaúrslitin AG Kaupmannahöfn vann í dag síðasta leikinn sinn í riðli sínum í úrslitakeppni dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta. AG vann þá 30-24 sigur á Nordsjælland sem hafði unnið fyrri leik liðanna. 7.5.2011 22:30
Ronaldo með fernu fyrir Real Madrid - fór upp fyrir Messi Real Madrid vann ótrúlegan 6-2 útisigur á Sevilla, liðinu í 6. sæti, í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld sem þýðir að Barcelona getur ekki tryggt sér spænska titilinn á morgun. 7.5.2011 21:52
Strákarnir hans Kristjáns steinlágu í úrslitaleiknum Sävehof tryggði sér sænska meistaratitilinn í handbolta í kvöld eftir 17 marka stórsigur á Guif, 35-18, í hreinum úrslitaleik um titilinn. Íslendingurinn Kristján Andrésson, þjálfar lið Guif og bróðir hans Haukur leikur með liðinu. 7.5.2011 21:30
AC Milan ítalskur meistari í fyrsta sinn síðan 2004 AC Milan tryggði sér í kvöld ítalska meistaratitilinn í knattspyrnu með því að gera markalaust jafntefli á útivelli á móti Roma. AC Milan menn þurftu aðeins að ná í eitt stig í þessum leik til þess að tryggja sér endanlega titilinn. 7.5.2011 21:16
Ekki fjölgað leikjum í úrvalsdeild karla en tveir kanar leyfðir Það voru nokkrar breytingar samþykktar á 49. körfuknattleiksþinginu sem lauk í dag en það var haldið á Sauðárkróki á þessu sinni. Það verður ekki fjölgað leikjum í úrvalsdeild karla en aftur á móti verða tveir kanar leyfðir. Leikjum verður aftur á móti fjölgarð í úrvalsdeild kvenna og þá verður Fyrirtækjabikar karla og kvenna með öðru sniði næsta vetur. 7.5.2011 20:18
Ólafur Þórðarson: Frábært fyrir Alla að skora tvö mörk Ólafur Þórðarson, þjálfari Fylkis, var ánægður með sína menn í leiksloks eftir 2-1 útisigur á Eyjamönnum en þetta voru fyrstu stig Fylkisliðsins í sumar. 7.5.2011 19:43
Heimir Hallgrímsson: Þeir voru bara betri en við Heimir Hallgrímsson var að vonum ekki sáttur með leik sinna manna í dag þegar þeir töpuðu 1-2 fyrir Fylki á Hásteinsvellinum. 7.5.2011 19:40
Daði: Boltinn fór einfaldlega ekki inn Reynsluboltinn Daði Guðmundsson var í liði Framara sem sigraði Þór síðast þegar liðin mættust í efstu deild sumarið 2002. Daði var á skotskónum í þeim leik en gleymdi líkt og félagar sínir að reima á sig skotskóna í dag. "Við héldum boltanum líklega 80 prósent af leiknum. Fengum sextán horn, óteljandi krossa, nokkrar aukaspyrnur fyrir utan teig úr góðum færum en boltinn fór einfaldlega ekki inn. Það var það sem vantaði.“ 7.5.2011 19:16
Hreinn: Við kunnum alveg fótbolta þótt við búum á Akureyri Hreinn Hringsson aðstoðarþjálfari Þórs var kampakátur með sigur sinna manna gegn Fram. Fyrir leikinn átti hann allt eins von á því að liðið tæki þrjú stig í Laugardalnum. 7.5.2011 19:10
Bjarni: Vantaði meiri grimmd „Fyrsta stigið er komið en við hefðum viljað hafa þau þrjú. Við vorum í heildina ívið sterkari en það vantaði græðgina inn í teig til að klára þetta," sagði Bjarni Jóhannsson, þjálfari Stjörnunnar eftir 0-0 jafntefli gegn Víking í dag. 7.5.2011 18:49
Andri: Sáttur með stigið hérna „Við fáum við stig hérna í dag og ég er sáttur með að fá stig á þessum útivelli. en eins og leikurinn spilaðist í dag hefði ég hinsvegar viljað fá þau þrjú," sagði Andri Marteinsson, þjálfari Víkinga eftir 0-0 jafntefli í Garðabænum. 7.5.2011 18:34
Helgi: Frábært að vera á toppnum „Það er frábært að við fáum alla vega að vera á toppnum í sólarhring. Sjálfstraustið er að byggjast upp í liðinu og það er frábært að halda hreinu tvisvar í röð," sagði Helgi Sigurðsson, leikmaður Víkings eftir 0-0 jafntefli í Garðabænum. 7.5.2011 18:23
Enn eitt jafntefli hjá Tottenham-liðinu Blackpool var ekki nema tvo klukkutíma í fallsæti í ensku úrvalsdeildinni því að liðið gerði 1-1 jafntefli við Tottenham á White Hart Lane í kvöld. Wigan hafði haft sætaskipti við Blackpool eftir jafntefli við Aston Villa fyrr í dag en eftir þetta stig á móti Spurs er Blackpool aftur komið upp í síðasta örugga sætið í deildinni þegar aðeins tvær umferðir eru eftir. 7.5.2011 16:15
Valskonur meistarar meistaranna fimmta árið í röð Íslands- og bikarmeistarar Vals eru meistarar meistaranna í kvennafótboltanum eftir 3-1 sigur á Þór/KA í Meistarakeppni kvenna í Kórnum í dag. Valskonur voru manni færri síðasta hálftímann í leiknum. 7.5.2011 16:02
Miðstöð Boltavaktarinnar - allir leikir á einum stað Íþróttavefur Vísis býður lesendum sínum á að fylgjast með öllum leikjum dagsins í Pepsi-deild karla samtímis. 7.5.2011 15:30
Gylfi tryggði Hoffenheim útisigur á móti Nürnberg Gylfi Þór Sigurðsson var hetja Hoffenheim í þýsku úrvalsdeildinni í dag þegar hann skoraði sigurmark liðsins þremur mínútum fyrir leikslok. Gylfi lagði einnig upp fyrra mark Hoffenheim sem lenti undir í leiknum en vann síðan góðan 2-1 sigur. 7.5.2011 15:27
Umfjöllun: Markalaust í Garðabænum Leik Stjörnunnar og Víkings í 2. umferð Pepsi-deildar karla lauk með 0-0 jafntefli í Garðabænum í dag. Víkingar tylla sér með þessu á toppinn en Stjörnumenn ná fyrsta stigi sumarsins. 7.5.2011 15:15
Umfjöllun: Nýliðar Þórs unnu Framara í Laugardalnum Þórsarar fögnuðu fyrstu stigum sínum í Pepsi-deild karla í knattspyrnu í dag þegar þeir lögðu Fram að velli með einu marki gegn engu í Laugardalnum. Óhætt er að segja að Þórsarar hafi stolið stigunum þremur því Framarar voru mun meira með boltann og sköpuðu sér fleiri færi. Barátta Þórsara sem voru tilbúnir að "deyja fyrir klúbbinn“ skilaði sér þó í þremur stigum á meðan Framarar eru stigalausir að loknum tveimur umferðum. 7.5.2011 15:15
Vettel fannst skrítinn tilfinning að horfa á lokasprett tímatökunnar Sebastian Vettel hjá Red Bull er fremstur á ráslínu í fjórða skipti í fjórum mótum á þessu keppnistímabili. Hann náði besta tíma í tímatökum fyrir tyrkneska kappaksturinn sem er á morgun í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport kl. 11.30. 7.5.2011 15:11
Umfjöllun: Albert tryggði Fylki sigur í Eyjum Albert Brynjar Ingason skoraði bæði mörk Fylkismanna í 2-1 sigri liðsins á ÍBV á Hásteinsvellinum í Eyjum í 2.umferð Pepsi-deildar karla í dag. Þetta var fyrsti sigur Fylkis í sumar en liðið missti niður 2-0 forystu í fyrstu umferðinni. 7.5.2011 15:00
Margrét Lára tryggði Kristianstad jafntefli í lokin Margrét Lára Viðarsdóttir tryggði Kristianstad 1-1 jafntefli á útivelli á móti Örebro í sænsku kvennadeildinni í dag og hefur þar með skorað fimm mörk í fyrstu fimm umferðunum á leiktíðinni. 7.5.2011 14:56
Rhein-Neckar Löwen komst ekki í bikarúrslitaleikinn Það verður Flensburg-Handewitt sem spilar til úrslita um þýska bikarinn í handbolta á móti Kiel á morgun eftir að Flensburg sló út Guðmund Guðmundsson og lærisveina hans í Rhein-Neckar Löwen í dag. Flensburg vann leikinn 22-20. 7.5.2011 14:45
Allar með í 90 mínútur í sigri Djurgården Guðbjörg Gunnarsdóttir, Katrín Jónsdóttir og Dóra María Lárusdóttir spiluðu allan leikinn með Djurgården þegar liðið vann 1-0 heimasigur á Hammarby IF í sænsku kvennadeildinni í dag. 7.5.2011 14:15
Heiðar skoraði eftir 30 sekúndur en QPR tapaði Heiðar Helguson skoraði mark Queens Park Rangers í 1-2 tapi á móti Leeds í lokaumferð ensku b-deildarinnar í dag. Heiðar og félagar fengu bikarinn afhentann í leikslok en liðið vann ensku b-deildina í ár og tryggði sér um leið sæti í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð. 7.5.2011 13:53
Everton vann endurkomusigur á Manchester City Manchester City tókst ekki að tryggja sér sæti í Meistaradeildinni í dag þegar þeir töpuðu 2-1 á útivelli á móti Everton í ensku úrvalsdeildinni. City hefði tryggt sér fjórða sætið með sigri en nú eiga Liverpool og Tottenham enn smá möguleika á Meistaradeildarsætinu. City er sjö stigum á undan þeim þegar níu stig eru eftir í pottinum. 7.5.2011 13:30
Vettel fremstur á ráslínu fjórða skipti í röð Formúlu 1 ökumaðurinn Sebastian Vettel sá við öllum keppinautum sínum í tímatökum á Istanbúl Park brautinni í Tyrklandi í dag. Hann varð á undan Mark Webber liðsfélaga sínum hjá Red Bull, en Nico Rosberg á Mercedes varð þriðji. 7.5.2011 12:55