Fleiri fréttir

Þrír 1-0 sigrar í Pepsi-deild kvenna í kvöld

Það voru margir jafnir og spennandi leikir í 4. umferð Pepsi-deildar kvenna í kvöld. Fylkir vann 3-1 sigur á nýliðum FH en í þremur öðrum leikjum unnu Breiðablik, Haukar og Afturelding öll 1-0 sigur.

Valskonur lentu undir fyrir norðan en unnu 4-2 sigur á Þór/KA

Valskonur fengu á sig sitt fyrsta mark á tímabilinu og lentu 2-1 undir á móti Þór/KA fyrir norðan í kvöld en náðu að tryggja sér 4-2 sigur og þriggja stiga forskot á toppnum í Pepsi-deild kvenna í fótbolta með því að skora tvö mörk á lokamínútum leiksins.

Kasper Schmeichel til Leeds United

Kasper Schmeichel er genginn í raðir Leeds United. Danski markmaðurinn er orðinn 23 ára en hann hélt 24 sinnum hreinu hjá Notts County í ensku 3. deildinni á síðasta tímabili.

Torres byrjaður að æfa aftur

Fernando Torres æfði í dag í fyrsta sinn síðan hann gekkst undir aðgerð á hné í síðasta mánuði.

Hernandez fær atvinnuleyfi hjá Man. Utd.

Javier Hernandez frá Mexíkó hefur fengið atvinnuleyfi á Englandi og getur því gengið strax í raðir Manchester United. Hernandez fer því til liðsins strax eftir HM.

Heil umferð í Pepsi-deild kvenna í kvöld

Fjórða umferð Pepsi-deildar kvenna verður leikin í kvöld. Stórleikur kvöldsins er á Akureyri þar sem Íslandsmeistarar Vals verða í heimsókn hjá Þór/KA.

Formúlu 1 kappar spá i HM í fótbolta

Á blaðamannafundi Formúlu 1 ökumanna í Tyrklandi í dag voru nokkrir ökumenn fengnir til að spá í spilin varðandi væntanlegt heimsmeistaramót í fótbolta. Mark Webber er efstur í stigamótinu og var tíðrætt að Ástralía keppti fyrst við Þýskland, land Michaels Schumachers sem einnig var á fundinum.

Michael Essien missir af HM vegna hnémeiðslanna

Michael Essien verður ekki með Gana á HM í Suður-Afríku sem hefst í næsta mánuði. Knattspyrnusamband landsins tilkynnti það í dag að hann sé ekki orðinn góður af hnémeiðslunum sem héldu honum frá seinni hluta keppnistímabilsins með Chelsea.

Ben Arfa orðaður við Everton

Umboðsmaður Hatem Ben Arfa, leikmanns Marseille í Frakklandi, fullyrðir að enska úrvalsdeildarfélagið Everton hafi áhuga á leikmanninum.

Skúli Jón hjá KR til 2013

Skúli Jón Friðgeirsson hefur framlengt samning sinn við KR til loka ársins 2013 en þetta kom fram á heimasíðu KR.

Portsmouth reynir að semja við lánadrottna sína

Portsmouth hefur gert þeim aðilum sem félagið skuldar tilboð um að borga þeim 20% af skuldum sínum. Það þýðir að Portsmouth myndi borga 20 pens af hverju pundi sem það skuldar lánadrottnum sínum.

Stíll Mourinho fullkominn fyrir Real Madrid

Þjálfunarstíll Jose Mourinho hentar fullkomlega fyrir Real Madrid, samkvæmt forseta félagsins Florentino Perez. Mourinho tekur við Madrídarliðinu í þessari viku.

Willum og vestið: Fylgi bara fyrirmælum

Willum Þór Þórsson, þjálfari Keflavíkur, hefur vakið mikla athygli fyrir forláta vesti sem hann klæðist á hlíðarlínunni í Pepsi-deild karla. Ekki er um nýja tískubylgju að ræða.

Tiger Woods spilar aftur eftir meiðsli

Tiger Woods mun snúa aftur til leiks á golfvellinum í næstu viku þegar hann tekur þátt í Memorial mótinu í Ohio. Hann ætlar að spila þrátt fyrir að vera í litlu sem engu formi.

Gareth Barry mikilvægasti hlekkur Englands?

Gareth Barry virðist vera lykillinn að velgengni Englendinga á HM. Hann er að jafna sig eftir meiðsli og alls óvíst er að hann nái að beita sér að fullu í mótinu.

Wenger fær pening til að eyða í sumar

Stjórnarformaður Arsenal segir að Arsene Wenger geti eytt öllum þeim peningum sem hann safnar með leikmannasölum til leikmannakaupa, og meira til. Það er ekki sjálfgefið á Englandi í dag hjá félögunum sem mörg hver eru skuldum vafin.

Flott frammistaða en naumt tap á móti Frökkum - myndasyrpa

Íslenska kvennalandsliðið tókst ekki að tryggja sig inn í lokakeppni EM á móti Frökkum í gær þrátt fyrir að hafa staðið sig vel á móti sterku liði Frakka. Íslenska liðið tapaði 24-27 en jafntefli hefði nægt til að koma stelpunum á EM í fyrsta sinn í sögunni.

Claudio Ranieri hjá Roma: Ég ætla að veðja á Adriano

AS Roma rétt missti af ítalska meistaratitlinum á dögunum þegar liðið endaði í 2. sæti á eftir Jose Mourinho og lærisveinum hans í Internazionale Milan. Claudio Ranieri, þjálfari liðsins ætlar nú að sækja einn gamla Inter-mann fyrir næsta tímabili.

Bendtner vonast eftir því að verða markakóngur HM í sumar

Nicklas Bendtner, leikmaður Arsenal og danska landsliðsins, ætlar sér að skora mörk fyrir danska landsliðið á HM í Suður-Afríku í sumar. Bendtner er að ná sér góðum af nárameiðslum en segist verða tilbúinn í fyrsta leik.

Júlíus: Er stoltur en svekktur

Landsliðsþjálfarinn Júlíus Jónasson sagðist vera stoltur og svekktur maður eftir leikinn gegn Frökkum í kvöld. Niðurstaðan var naumt tap en Júlíus segir að liðið sé staðráðið í að komast á EM með sigri á Austurríki á laugardaginn.

Hanna Guðrún: Við klárum þetta úti

Hanna Guðrún Stefánsdóttir var markahæsti leikmaður íslenska liðsins sem tapaði naumlega fyrir Frökkum í kvöld. Hanna skoraði þrettán mörk í leiknum.

Þjóðverjar skoruðu 24 mörk í æfingaleik fyrir HM

Mario Gomez og Miroslav Klose skoruðu báðir fimm mörk þegar þýska landsliðið vann 24-0 sigur á undir 20 ára úrvalsliði frá Suður-Týrol í kvöld. Gomez og Klose léku báðir aðeins annan af tveimur 30 mínútna hálfleikjum sem voru spilaðir.

Peter Crouch ekki lengur hæstur í ensku úrvalsdeildinni

Birmingham keypti í dag serbneska framherjann Nikola Zigic frá spænska liðinu Valencia en kaupverðið er um sex milljónir punda. Zigic gerði fjögurra ára samning við enska liðið en hann fann sig aldrei hjá Valenica eftir að hafa gert fína hluti hjá Rauðu Stjörnunni í Belgrad og Racing Santander.

Ekkert óvænt á opna franska

Roger Federer, besti tenniskappi heims, er kominn áfram á opna franska meistaramótinu í tennis. Rigning tafði leik í dag en Federer lét það ekkert á sig fá.

Guðjón nær næsta leik hjá KR

Guðjón Baldvinsson fékk góðar fréttir frá lækninum sem hann hitti nú seinni part dags. Hann fór meiddur af velli eftir samstuð í leik KR og Keflavíkur í gær og óttaðist hann um tíma að hann yrði lengi frá.

Besta handboltakona heims verður ekki með Frökkum í Höllinni í kvöld

Íslenska kvennalandsliðið í handbolta mætir silfurliði Frakka í Laugardalshöllinni í kvöld í undankeppni EM. Frakkar eru þegar komnir á EM en íslensku stelpunum nægir eitt stig út úr síðustu tveimur leikjum sínum til að fylgja þeim frönsku á EM sem fram er í Danmörku og Noregi í desmber.

Thomas Müller flaug á hausinn á fjallahjóli en HM er ekki í hættu

Þeir eru seinheppnir landsliðsmenn Þjóðverja þessa dagana. Michael Ballack, Rene Adler og Christian Träsch missa allir af HM vegna meiðsla og Bayern-maðurinn Thomas Müller var næstum því búinn að slasa sig illa í hjólaslysi sem hefði getað kostað hann HM. Það fór þó betur en á horfist í fyrstu.

Mourinho grét á öxlinni á Materazzi þegar þeir kvöddust - myndband

Það var skiljanlega ekki auðvelt fyrir Jose Mourinho að kveðja leikmenn og samstarfsmenn sína hjá Internazionale eftir sigurinn í Meistaradeildinni um síðustu helgi. Mourinho er á leiðinni til Real Madrid þrátt fyrir að allir hafi grátbeðið hann um að vera áfram hjá Inter.

McLaren til varnar mistökum í mótum

McLaren liðið hefur glutrað niður stigaforystunni sem Jenson Button var kominn með í stigakeppni ökumanna og liðið í keppni bílasmiða, eftir mótið í Mónakó á dögunum. McLaren keppir í Istanbúl í Tyrklandi um helgina.

Sjá næstu 50 fréttir