Fleiri fréttir

Jóhann: Vantaði alla greddu

Jóhann Helgason, leikmaður Grindavíkur, var afar ósáttur eftir leik ÍBV og Grindavíkur. “Það vantaði alla baráttu og vilja í menn í dag.”

Gauti: Óskar átti ekki möguleika

"Það er auðvitað alger draumur að skora hérna," sagði Gauti Þorvarðarson framherji ÍBV eftir leikinn í kvöld. Gauti braut ísinn í kvöld fyrir Eyjamenn með glæsilegu marki.

Haukur Ingi: Þetta er hundfúlt

„Það er góð spurning hvað nákvæmlega gerðist hjá okkur í seinni hálfleik. Við vorum einu marki yfir og lentum í því síðast að vera yfir í hálfleik gegn Blikum en fengum svo fjögur mörk í andlitið. Kannski sat það í okkur og gerði það að verkum að við duttum of aftarlega og ætluðum að verja forskotið," sagði Keflvíkingurinn Haukur Ingi Guðnason eftir 1-1 jafnteflisleik Keflavíkur og Stjörnunnar.

Bjarni Jóh.: Hefði verið sárt að fara tómhentur heim

„Við áttum svo sannarlega skilið stigið og miðað við hvernig síðari hálfleikur þróaðist þá áttum við þau öll skilin," sagði Bjarni Jóhannsson, þjálfari Stjörnunnar, eftir 1-1 jafnteflisleik Keflavíkur og Stjörnunnar í kvöld.

Kristján: Ömurlegt að fylgjast með þessu

„Ef ég horfi á hvernig allur leikurinn spilaðist þá er eitt stig allt í lagi. Ég er samt fúll að við höfum ekki verið einbeittir undir lokin og halað inn öll stigin," sagði Kristján Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, eftir jafnteflisleik hans manna og Stjörnunnar í kvöld.

Ólafur Kristjánsson: Sáttur með stigið eftir að lenda undir

Ólafur Kristjánsson, þjálfari Breiðabliks, var ánægður með viðsnúninginn hjá sínum mönnum gegn Fram í Laugardalnum í kvöld. Blikarnir fundu sig illa í fyrri hálfleik og lentu svo marki undir í seinni hálfleik en náðu að klóra sig til baka inn í leikinn og tryggja sér jafntefli.

Heimir: Höfum oft spilað betur

Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, segir að sínir menn hafi oft spilað betur en þeir gerðu í kvöld en gat þó ekki verið annað en ánægður með að skora þrjú og halda markinu hreinu.

Rosenberg enn taplaust

Rosenborg vann í dag 4-0 sigur á Bodö/Glimt í norsku úrvalsdeildinni og er því enn taplaust á toppi deildarinnar með fimm stiga forskot á næsta lið.

Umfjöllun: Björn Daníel með tvö í sigri FH

Björn Daníel Sverrisson skoraði tvívegis og Atli Viðar Björnsson var með eitt þegar Íslandsmeistarar FH unnu öruggan 3-0 sigur á Fjölni í Pepsi-deild karla í kvöld.

Umfjöllun: Blikarnir sóttu stig í Laugardalinn

Breiðablik náði að kría fram jafntefli gegn Fram á Laugardalsvelli í kvöld en Framararnir voru sterkari aðilinn á löngum köflum í leiknum og þá sérstaklega í fyrri hálfleik.

Róbert og félagar meistarar

Róbert Gunnarsson og félagar í þýska úrvalsdeildarfélaginu Gummersbach urðu í dag Evrópumeistarar eftir sigur á Gorenje Velenje frá Slóveníu í úrslitum EHF-bikarkeppninnar.

Celtic vill ræða við Martinez

Celtic hefur lagt fram formlega beiðni um að fá að ræða við Roberto Martinez, knattspyrnustjóra Swansea City.

LeBron tjáir sig loksins

LeBron James er loksins búinn að opna sig eftir að lið hans, Cleveland Cavaliers, féll úr leik gegn Orlando í úrslitum Austurdeildar í NBA-körfuboltanum.

Kolding danskur meistari

Kolding varð í dag danskur meistari í handbolta eftir sigur á FC Kaupmannahöfn í oddaleik liðanna í lokaúrslitunum, 31-27.

Meistararnir úr leik á Opna franska

Einhver óvæntustu úrslit síðari ára í tennisheiminum urðu á opna franska meistaramótinu í Roland Garros þegar að Rafael Nadal, meistari síðustu fjögurra ára, tapaði fyrir Svíanum Robin Söderling.

Draumur Federer um sigur á Opna franska enn á lífi

Tenniskappinn Roger Federer hélt draumi sínum á floti um að vinna sinn fyrsta sigur á Opna franska mótinu með því að bera sigurorð af Tommy Haas í fimm hrinu rimmu í dag. Haas vann fyrstu tvær hrinurnar en Federer kom sterkur til baka og tók þrjár næstu, 6-4, 6-0 og 6-2, og komst áfram í átta-manna úrslit.

Blanc vill ná mun betri árangri í Meistaradeildinni

Knattspyrnustjórinn Laurent Blanc hafði ríka ástæðu til þess að fagna um helgina þegar lið hans Bordeaux varð franskur meistari eftir frækinn endasprett þar sem félagið vann hvorki fleiri né færri en síðustu ellefu leiki sína í deildinni. Bordeaux vann þar með sinn sjötta deildartitil í sögu félagsins og batt jafnframt enda á sjö ára einokun Lyon að franska meistaratitlinum.

Vucinic samdi við Roma - Totti og Spalletti næstir?

Ítalska félagið Roma tilkynnti í dag að framherjinn Mirko Vucinic hafi skrifað undir nýjan samning við félagið. Samningurinn gildir til júníloka árið 2013.Þá er fastlega búist við því að "herra Roma", Francesco Totti, muni framlengja samning sinn við félagið til ársins 2014 á allra næstu dögum.

Advocaat ráðinn landsliðsþjálfari Belgíu

Hollenski þjálfarinn Dick Advocaat hefur ákveðið að láta af störfum sem knattspyrnustjóri Zenit frá St. Pétursborg og taka við landsliðsþjálfarastöðunni hjá Belgíu. Hinn 61 árs gamli Advocaat skrifaði undir þriggja og hálfs árs samning við knattspyrnusamband Belgíu en hann á að baki langan feril sem þjálfari hjá félögum á borð við PSV og Rangers auk þess sem hann var áður landsliðsþjálfari hjá Hollandi, Sameinuðu arabísku furstadæmunum og Suður-Kóreu.

Heil umferð í Pepsi-deild karla í kvöld

Heil umferð fer fram í Pepsi-deild karla í fótbolta í kvöld. Spútniklið Stjörnunnar situr á toppi deildarinnar fyrir sjöttu umferðina og fær verðugt verkefni þegar það heimsækir Keflvíkinga í kvöld. Keflvíkingar hafa til þessa verið illviðráðanlegir á heimavelli og unnið alla þrjá leiki sína þar og ekki enn fengið á sig mark á Sparisjóðsvellinum.

Serena Williams komst áfram á Opna franska

Hin bandaríska Serena Williams átti ekki í miklum vandræðum með að tryggja sér farseðilinn í átta-manna úrslitum á Opna franska mótinu í tennis í dag en það gerði hún eftir öruggan sigur gegn Aleksöndru Woniak í tveimur settum, 6-1 og 6-2.

Bruce að taka við Sunderland

Knattspyrnustjórinn Steve Bruce hjá Wigan er samkvæmt Sky Sports fréttastofunni rétt við það að taka við Sunderland eftir að félagið náði samkomulagi um bótagreiðslur til að leysa Bruce undan samningi sínum við Wigan.

Smáþjóðaleikarnir settir í dag - Keppni hefst á morgun

Smáþjóðaleikarnir verða settir á Kýpur í dag og standa þeir til 6. júní en þetta er í 13. sinn sem leikarnir eru haldnir. Íslendingar eiga 126 fulltrúa á leikunum að þessu sinni sem munu keppa í tíu keppnisgreinum.

Joe Calzaghe: Hatton ætti bara að hætta þessu

Framtíð breska hnefaleikakappans Ricky Hatton er enn óráðin eftir vandræðalegt tap hans gegn Manny Pacquiao í byrjun síðasta mánaðar en fjölmargir aðilar hafa komið fram og sagt að hann ætti bara að hætta þessu. Velski hnefaleikakappinn fyrrverandi Joe Calzaghe er sá síðasti til þess að bætast í þann hóp.

Ancelotti ráðinn sem knattspyrnustjóri Chelsea

Enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea hefur tilkynnt að hinn ítalski Carlo Ancelotti verði nætsti knattspyrnustjóri félagsins. Ancelotti sem hætti í gær sem knattspyrnustjóri AC Milan eftir níu ár í starfi þar en hann lék einnig með félaginu á árunum 1987-1992. Ancelotti skrifar undir þriggja ára samning við Lundúnafélagið.

Terry hissa á fullyrðingum Makalele

John Terry, fyrirliði Chelsea, skilur ekkert í fullyrðingum Claude Makalele í nýútkominni ævisögu miðjumannsins franska þar sem fram kemur að Teyrry hafi átt sök á því að José Mourinho var rekinn sem knattspyrnustjóri Chelsea á sínum tíma.

Kemur Jameer Nelson inn í Orlando-liðið fyrir lokaúrslitin?

Orlando Magic er komið í lokaúrslit NBA-deildarinnar í fyrsta sinn í 14 ár og mætir þar liði Los Angeles Lakers. Fyrsti leikurinn er á fimmtudaginn og svo gæti farið að Orlando Magic væri búið að fá góðan liðstyrk fyrir þann leik.

Rosaleg ferna hjá Dinart, Abalo og Fernandez

Þrír félagar Ólafs Stefánssonar í liði Ciudad Real náðu magnaðri fernu á þessu tímabili. Auk þess að vinna Meistaradeildina og spænska titilinn með Ciudad Real þá urðu þeir Ólympíumeistarar með franska landsliðinu í ágúst og síðan heimsmeistarar í febrúarbyrjun.

Carrick getur ekki spilað með enska landsliðinu vegna meiðsla

Michael Carrick leikmaður Manchester United hefur dregið sig út enska landsliðinu fyrir leiki í undankeppni HM. Carrick er meiddur á fæti og í stað hans hefur Fabio Capello, þjálfari enska landsliðsins, kallað á James Milner 23 ára leikmann Aston Villa.

Adriano skoraði í sínum fyrsta leik með Flamengo

Brasilímaðurinn Adriano byrjaði vel hjá Flamengo en hann skoraði eitt mark og lagði upp annað í 2-1 sigri á Atletico Paranaense á hinum fræga Maracana-velli í Rio de Janeiro í nótt.

Sjá næstu 50 fréttir