Fleiri fréttir

Móðir Ragnheiðar fór holu í höggi í Peking

Sigríður Anna Guðjónsdóttir úr GO, móðir Ragnheiðar Ragnarsdóttur sundkonu sem keppti á Ólympíuleikunum, skellti sér í golf í Peking í gær. Hún gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi.

Króatía vann Danmörku

Rétt í þessu var að ljúka handboltaleik Króata og Dana í átta liða úrslitum Ólympíuleikanna. Króatía vann 26-24 og mun mæta Frakklandi í undanúrslitum.

Myndir úr leik Íslands og Póllands

Ísland vann í morgun frægan sigur á Pólverjum, 32-30, í fjórðungsúrslitum í handboltakeppni karla á Ólympíuleikunum í Peking.

Pólverjar grétu - Myndir

Tilfinningarnar voru miklar að loknum leik Íslands og Póllands í morgun. Á meðan að íslensku leikmennirnir og íslenska þjóðin öll fögnuðu í gleðivímu voru pólsku leikmennirnir heldur langt niðri.

Arnór Atla: Fáranleg trú í þessu liði

„Þetta verður ekkert mikið stærra en þetta. Maður er tiltölulega hátt uppi núna og leyfir sér að fagna þessu aðeins,“ sagði brosmildur Arnór Atlason sem var ánægður með karakterinn í íslenska liðinu.

Logi: Skemmtilegasta stund lífs míns

„Það er óhætt að segja að maður sé hrikalega glaður en maður tekur þessu með jafnaðargeði. Við megum ekki missa okkur í gleðinni. Fagna þessu smá og fara svo að hugsa um næsta verkefni,“ sagði stórskyttan Logi Geirsson og brosti allan hringinn. Logi átti fínan leik eins og allir strákarnir og skorað fjögur flott mörk.

Alexander: Ég trúi þessu varla

„Þvílíkur leikur og við höfðum trú á okkur allan tímann. Það lögðust allir á eitt því við viljum svo innilega láta drauminn rætast sem er að vinna medalíu. Við sýndum hverslags lið við erum í þessum leik. Við erum með rosalega gott lið,“ sagði járnmaðurinn Alexander Petersson og brosti allan hringinn.

Guðjón Valur: Erum ekki hættir

„Venjulega segir maður bara tvö stig og ekkert annað en þessi sigur þýðir að við erum á leið í undanúrslit á Ólympíuleikum og það er einfaldlega frábær tilfinning,“ sagði Guðjón Valur Sigurðsson að vonum glaður eftir sigurinn á Pólverjum.

Sigfús: Medalían er á leiðinni

„Mér líður rosalega vel og er ekkert smá stoltur af strákunum. Diddi [Ingimundur] og Sverre voru að vinna eins og brjálaðir menn í dag. Drápu allt sem kom inn á miðjuna og Bjöggi alveg brjálaður á bakvið. Það voru allir flottir í dag,“ sagði skógarbjörninn Sigfús Sigurðsson kampakátur eftir sigurinn á Pólverjum.

Verður á milli tannanna á fólki næstu daga

Benedikt Guðmundsson, þjálfari KR-liðsins, brosti út að eyrum á blaðamannfundi í KR-heimilinu í gær enda búinn að fá til liðs við KR tvo "týnda" syni sem jafnframt eru tveir af bestu körfuboltamönnum landsins.

Frakkar í undanúrslit

Frakkland er komið í undanúrslit í keppni í handbolta karla á Ólympíuleikunum í Peking eftir sigur á Rússum í fjórðungsúrslitum.

Grétar Rafn: Framtíðin björt

Grétar Rafn Steinsson, leikmaður Bolton, er spenntur fyrir vináttulandsleikinn gegn Aserbaídsjan sem fram fer á Laugardalsvelli í kvöld.

Ísland spilar um verðlaun á Ólympíuleikunum

Ísland vann glæsilegan sigur á Pólverjum í fjórðungsúrslitum handboltakeppni karla á Ólympíuleikunum í Peking, 32-30. Ísland spilar þar með um verðlaun á leikunum.

Capello: Mjög erfið ákvörðun

Fabio Capello segir að það hafi verið mjög erfið ákvörðun að velja næsta fyrirliða Englands. Í dag var tilkynnt að John Tery, varnarmaður Chelsea, myndi taka við bandinu.

Ramzi vann 1.500 metra hlaupið

Rashid Ramzi frá Bahrain vann gullið í 1.500 metra hlaupi karla í Peking þegar hann hljóp á 3:32,94 mínútum.

Væntingarnar að aukast

Vængmaðurinn Emil Hallfreðsson er fullur tilhlökkunar að mæta Aserum á morgun eftir erfitt undirbúningstímabil með ítalska liðinu Reggina.

Var hissa eins og allir aðrir

KR-ingar fengu ekki bara besta körfuboltamann landsins í dag heldur ákvað besti leikstjórnandi landsins, Jakob Örn Sigurðarson, að stjórna umferðinni hjá KR-liðinu í vetur.

Orðinn leiður á að vera alltaf einn

Jón Arnór Stefánsson hefur verið viðloðandi flestar stærstu fréttirnar úr íslenskum körfubolta síðustu ár og það varð engin breyting á því í dag þegar hann samdi við KR.

Hermann: Ætlum að reyna að spila mjög illa

„Við höfum oft verið að spila nokkuð vel í þessum undirbúningsleikjum en síðan ekki byrjað keppnina sérstaklega vel. Við ætlum því að reyna að spila mjög illa á morgun og byrja síðan keppnina vel," sagði Hermann Hreiðarsson kíminn í samtali við Vísi í dag.

Gunnar Heiðar: Sáttur við nýju peyjana

Íslenska landsliðið mætir Aserbaídsjan í vináttulandsleik á Laugardalsvelli á morgun. Leikurinn er lokaundirbúningur fyrir leik gegn Noregi í undankeppni HM sem verður þann 6. september.

Noregur mætir Suður-Kóreu

Ljóst er hvaða lið munu mætast í undanúrslitum í handboltakeppni kvenna í Peking. Átta liða úrslitin fóru fram í dag.

Ohuruogu vann gull fyrir Bretland

Christine Ohuruogu varð Ólympíumeistari í 400 metra hlaupi kvenna. Hún kom í mark á 49,62 sekúndum en Shericka Williams frá Jamaíka varð önnur og Sanya Richards frá Bandaríkjunum þriðja.

Silnov stökk hæst allra

Andrey Silnov frá Rússlandi vann gullið í hástökki karla í dag. Hann stökk yfir 2,36 metra og dugði það honum til sigurs. Þessi úrslit koma ekki á óvart en Silnov var talinn sigurstranglegastur.

Bolt auðveldlega í úrslitin

Usain Bolt frá Jamaíka flaug í gegnum undanúrslitin í 200 metra hlaupi karla í dag. Hann hægði vel á sér áður en hann kom í mark en hljóp samt sem áður á 20,09 sekúndum.

Lærisveinn Vésteins Ólympíumeistari

Gerd Kanter frá Eistlandi varð í dag Ólympíumeistari í kringlukasti karla. Þjálfari hans er Vésteinn Hafsteinsson sem er því fyrsti Íslendingurinn sem þjálfar Ólympíumeistara.

„Ætlaði ekki að trúa því að Jón Arnór vildi koma í KR“

Benedikt Guðmundsson þjálfari körfuknattleiksliðs KR segir að bæði Jón Arnór Stefánsson og Jakob Sigurðarson hafi viljað koma heim og spila eitt tímabil með sínu gamla félagi. Þeir hafa lengi verið atvinnumenn erlendis en semja nú við sitt gamla félag til eins árs. Benedikt býst við fleiri kvenmönnum á leiki KR í vetur.

Johnson vann á jafnvægisslá

Bandaríkin unnu sín önnur gullverðlaun í fimleikakeppni Ólympíuleikanna þegar Shawn Johnson vann á jafnvægisslá í kvennaflokki í morgun. Með þessari grein lauk fimleikakeppninni í kvennaflokki.

Nemanja Sovic í Stjörnuna

Serbinn Nemanja Sovic hefur skrifað undir eins árs samning við Stjörnuna. Sovic fékk sig lausan undan samning við Breiðablik fyrr í sumar.

Sögulegur sigur Chris Hoy

Bretar hafa farið hamförum í hjólreiðakeppni Ólympíuleikanna og unnið alls átta gullverðlaun á meðan engin þjóð hefur unnið meira en eitt gull í hjólreiðakeppni.

John Terry valinn fyrirliði enska landsliðsins

Fabio Capello, landsliðsþjálfari Englands, hefur valið John Terry hjá Chelsea sem nýjan fyrirliða. Terry er 27 ára en hann tekur við fyrirliðabandinu af David Beckham sem bar það á heimsmeistaramótinu 2006.

Hargreaves ætlar að sýna sitt rétta andlit

Owen Hargreaves er ákveðinn í að sýna stuðningsmönnum Manchester United sitt rétta andlit á þessu tímabili. Þessi enski landsliðsmaður segist ekki hafa gengið heill til skógar síðasta vetur en sé nú að komast í sitt besta form.

Lítil mengun í Peking

Kínversk stjórnvöld hafa staðfest það sem flestum í Peking grunaði. Andrúmsloftið í borginni er í góðu lagi. Fyrir Ólympíuleikanna var mikið talað um áhyggjur af mengunarstiginu í borginni.

Bruce Arena nýr þjálfari Beckham

Bruce Arena var í gær kynntur sem nýr þjálfari LA Galaxy í bandaríska boltanum. Með LA Galaxy leikur stórstirnið David Beckham eins og flestir vita.

Ísland mætir Póllandi í fyrramálið

Nú reynir á strákanna okkar sem mæta Pólverjum í 8-liða úrslitum á Ólympíuleikunum í Peking í fyrramálið. Liðið hefur verið að leika vel og eru væntingarnar miklar.

Frábær endasprettur Frodeno

Frábær og vel tímasettur endasprettur Jan Frodeno frá Þýskalandi færði honum gullverðlaun í þríþraut karla á Ólympíuleikunum.

Ásdís: Árangurinn ekki lýsandi fyrir mig - Myndir

„Ég var að hugsa um að gera ógilt líka í þriðja kastinu. Var að spá í hvort það væri ekki skárra að vera með lélegan árangur en engan. Ég sá nú eftir því að hafa ekki gert ógilt þegar ég sá töluna á skjánum.

Ásdís úr leik í Peking

Ásdís Hjálmsdóttir náði ekki að sýna sínar bestu hliðar í spjótkastkeppni kvenna á Ólympíuleikunum í Peking.

Breiðablik vann Stjörnuna

Fjórir leikir voru í Landsbankadeild kvenna í kvöld og voru allir sigrarnir öruggir. Breiðablik vann Stjörnuna 3-1 þar sem Harpa Þorsteinsdóttir skoraði tvö mörk.

Sjá næstu 50 fréttir