Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Dudek að íhuga tilboð frá Real Madrid? Pólski markvörðurinn Jerzy Dudek hjá Liverpool er sagður hafa fengið tilboð um að ganga í raðir Real Madrid á frjálsri sölu í sumar. Samningur markvarðarins við Liverpool rennur út í sumar og á heimasíðu sinni greini markvörðurinn frá því að hann sé að íhuga tilboð frá "einu besta, ef ekki besta félagi í heimi." 14.6.2007 15:38
Liverpool staðfestir áhuga sinn á Benayoun Forráðamenn Liverpool hafa staðfest að félagið hafi áhuga á að fá til sín ísraelska landsliðsmanninn Yossi Benayoun frá West Ham. Leikmaðurinn er þegar búinn að samþykkja að framlengja samning sinn við West Ham til fimm ára en hefur dregið að skrifa undir. Stjórnarformaður Liverpool staðfesti áhuga félagsins í dag en neitaði að staðfesta fregnir um að félagið hefði boðið á bilinu 1-3 milljónir punda í hann. 14.6.2007 15:33
Baráttan um Bent Baráttan um enska landsliðsframherjann Darren Bent hjá Charlton fer nú harðnandi ef marka má frétt breska sjónvarpsins í morgun, en talið er að West Ham sé líklegasti viðkomustaður leikmannsins. Þar myndi hann hitta fyrir fyrrum knattspyrnustjóra sinn Alan Curbishley. Verðmiðinn er sagður vera um 17 milljónir punda á þessum 23 ára gamla leikmanni. 14.6.2007 15:24
Jordan vann málið gegn Dowie Simon Jordan, stjórnarformaður Crystal Palace, vann í dag skaðabótamál sem hann höfðaði á hendur fyrrum knattspyrnustjóra félagsins Ian Dowie. Dómari komst að þeirri niðurstöðu að Dowie hefði logið þegar hann samdi sig út úr skuldbindingum sínum við félagið vorið 2006, en stakk svo af til grannliðsins Charlton. 14.6.2007 15:11
Jaaskelainen neitar Bolton Finnski markvörðurinn Jussi Jaaskelainen hefur neitað tilboði félagsins um að framlengja samning sinn. Þessi 32 ára gamli leikmaður hefur verið orðaður við Sunderland og Manchester United og verður hann með lausa samninga eftir næstu leiktíð. Jaaskelainen gekk í raðir Bolton fyrir aðeins 100,000 pund árið 1997. 14.6.2007 15:09
Ledley King þarf í hnéuppskurð Fyrirliðinn Ledley King hjá Tottenham þarf að fara í lítinn hnéuppskurð eftir að hafa meiðst lítillega í keppni með enska landsliðinu á dögunum. King var mikið frá vegna meiðsla á síðustu leiktíð, en ætti að ná bata áður en keppni hefst í ensku úrvalsdeildinni þann 11. ágúst. 14.6.2007 15:05
Meistararnir byrja gegn Reading Leikjaplanið í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð var kynnt í dag. Íslendingalið Reading fær það erfiða verkefni að sækja meistara Manchester United heim í fyrstu umferðinni og mætir svo Chelsea í annari umferð. Sam Allardyce stjóri Newcastle fer með lið sitt á gamla heimavöllinn og mætir Bolton í fyrstu umferðinni. Hér fyrir neðan má sjá fyrstu umferðarnar. 14.6.2007 14:27
Sigur á Fjórðungsmóti Hans Friðrik Kjerúlf á Reyðarfirði hefur keypt stóðhestinn Sigur frá Hólabaki. Hann mun því keppa í flokki 4 vetra stóðhesta á FM07. Sigur vakti mikla athygli á héraðssýningu kynbótahrossa í Skagafirði á dögunum fyrir fegurð og útgeislun. Einkum þykir hann fallegur á litinn, dökk sótrauður með ljósara fax og tagl. 14.6.2007 09:56
Toney í bann vegna steraneyslu Þrefaldi heimsmeistarinn James Toney hefur verið dæmdur í eins árs keppnisbann frá hnefaleikum eftir að hafa í annað skipti á ferlinum fallið á lyfjaprófi vegna steraneyslu. Toney féll á lyfjaprófinu í maí eftir að hann sigraði Danny Bathelder í bardaga, en sá féll reyndar einnig á lyfjaprófi sem tekið var fyrir bardagann. Toney er 38 ára gamall og hefur verið atvinnumaður í nær tvo áratugi. 14.6.2007 02:18
FH yfir í hálfleik Íslandsmeistarar FH hafa yfir 2-0 í hálfleik gegn KR í leik liðanna í Frostaskjóli. Gestirnir byrjuðu af miklum krafti og komust í 2-0 eftir 19 mínútur með mörkum Ásgeiri Ásgeirssonar og Guðmundar Sævarssonar. KR-ingar hafa þó verið mjög aðgangsharðir eftir það og eru í raun klaufar að vera ekki búnir að skora. 14.6.2007 20:48
FH komið í 2-0 í vesturbænum Hrakfarir KR-inga í Landsbankadeildinni virðast engan endi ætla að taka en liðið er komið undir 2-0 gegn FH á heimavelli þegar aðeins 20 mínútur eru liðnar af leiknum. Flautað hefur verið til hálfleiks í leikjunum sem hófust klukkan 19:15. 14.6.2007 20:21
KR - FH í beinni á Sýn Stórleikur KR og FH í sjöttu umferð Landsbankadeildarinnar hefst nú klukkan 20 og er sýndur beint á Sýn. KR-ingar þurfa nauðsynlega á sigri að halda því þeir verma botnsæti deildarinnar eftir verstu byrjun í sögu félagsins í efstu deild. Klukkan 19:15 hófust leikir Breiðabliks og ÍA, Fylkis og HK og Keflavíkur og Fram. 14.6.2007 19:52
Öruggur sigur Vals á Víkingi Valsmenn unnu í kvöld öruggan 3-1 sigur á Víkingi í fyrsta leik sjöttu umferðar Landsbankadeildarinnar. Valsmenn voru sterkari aðilinn í leiknum og sigurinn fyllilega verðskuldaður. Helgi Sigurðsson skoraði tvö marka Vals, það fyrra úr víti og Pálmi Rafn Pálmason skoraði fyrsta mark liðsins rétt fyrir lok fyrri hálfleiks. Sinisa Kekic minnkaði muninn fyrir Víking með marki úr víti 15 mínútum fyrir leikslok. 13.6.2007 21:54
Helgi Sig: Mikilvægt að halda í við FH "Það er gaman að skora og ekki verra að vinna leikinn, því við vorum búnir að gera tvö jafntefli og alveg kominn tími á sigur," sagði markaskorarinn Helgi Sigurðsson í samtali við Sýn eftir leik Vals og Víkings í kvöld. Helgi skoraði tvívegis í leiknum. 13.6.2007 22:22
Maggi Gylfa: Valur átti skilið að vinna Magnús Gylfason, þjálfari Víkings, viðurkenndi að lið Vals hefði átt skilið að sigra í leik liðanna í Landsbankadeildinni í kvöld. Hann sagðist í samtali við Sýn hafa verið óhress með fyrsta mark Vals þar sem hann vildi meina að uppbótartíminn hefði verið liðinn þegar Pálmi Rafn skoraði. 13.6.2007 22:15
10 verstu leikmannakaup í sögu úrvalsdeildarinnar Breska blaðið Sun birtir í dag lista sinn yfir 10 verstu leikmannakaup í sögu ensku úrvalsdeildarinnar. Listinn er nokkuð áhugaverður og gaman að sjá hvernig nokkrir af færustu knattspyrnustjórum Englands hafa keypt köttinn í sekknum. 13.6.2007 21:45
Merki Ólympíuleikanna verður ekki breytt Breska ríkisstjórnin tilkynnti í dag að merki Ólympíuleikanna í London árið 2012 yrði ekki breytt þrátt fyrir hörð mótmæli úr öllum áttum. Merkið vakti hörð viðbrögð þegar það var frumsýnt á dögunum og þykir mörgum það hreinlega ljótt. Fréttir herma að kostnaður við hönnun og markaðssetningu á merkinu hafi kostað hátt í hálfa milljón punda. 13.6.2007 20:29
Hérðassýning kynbótahrossa við Hringsholt Héraðssýning kynbótahrossa hefur staðið undanfarna daga við Hringsholt og mættu um 100 hross til dóms. Dómum lauk í gærkveldi, en í dag, fimmtudaginn 14. júní fer fram yfirlitssýning en hún hófst kl. 10:00. Byrjað var á yngstu hryssunum og endað á elstu stóðhestunum. 13.6.2007 20:13
Úrtaka fyrir HM í hestaíþróttum Í dag hófst úrtaka fyrir Heimsmeistaramótið í hestaíþróttum á félagssvæði Fáks í Víðidal. Það var hart barist í þremur af þeim fjórum greinum sem voru í dag, en aðeins keppandi var í 100m skeiði. Meðfylgjandi eru úrslit dagsins. Dagskrá hefst aftur á morgun klukkan 13.00 slaktaumatölti T2 . 13.6.2007 20:09
Helmingur leikmanna notaði örvandi lyf Fyrrum knattspyrnuþjálfarinn Peter Neururer fullyrðir að allt að helmingur knattspyrnumanna í þýsku knattspyrnunni hafi notað örvandi lyf á árum áður. Neururer hefur þjálfað mörg lið í efstu deildum í Þýskalandi, þar á meðal Schalke og FC Köln. 13.6.2007 17:37
David Villa: Ég vil vera áfram hjá Valencia Spænski landsliðsframherjinn David Villa hjá Valencia segist ekki vilja fara frá félaginu þrátt fyrir að hafa verið mikið orðaður við lið í ensku úrvalsdeildinni í sumar. Chesea, Manchester United og Liverpool eru sögð hafa mikinn áhuga á leikmanninum en hann er samningsbundinn Valencia til 2013. Hann hefur skorað 15 mörk í 35 deildarleikjum á leiktíðinni. 13.6.2007 17:25
Inter kaupir Suazo Inter Milan var að ganga frá kaupum á framherjanum Davis Suazo frá Cagliari. Þessu greindi Massimo Cellino, forseti Cagliari, frá í dag. „Inter voru að gera frábær kaup, Suazo mun verða þeirra fyrsti kostur, hann er frábær leikmaður." 13.6.2007 16:45
Edmilson: Við vorum sjálfum okkur verstir Brasilíski miðjumaðurinn Edmilson hjá Barcelona segir að félagið verði að taka til í herbúðum sínum í sumar, því ólga innan liðsins hafi að sínu mati kostað það dýrt í vetur og það verði að laga ef árangur á að nást á næsta tímabili. 13.6.2007 16:15
Viðtöl eftir þriðja leik Cleveland og San Antonio San Antonio náði afgerandi 3-0 forystu gegn Cleveland í úrslitaeinvíginu í NBA deildinni í nótt. Í myndbrotinu sem fylgir þessari frétt má sjá þjálfarar og leikmenn liðanna svara spurningum á blaðamannafundinum eftir leikinn, þar sem LeBron James var spurður hvort brotið hefði verið á honum í þriggja stiga skoti um leið og lokaflautið gall. 13.6.2007 15:10
Slúðrið á Englandi í dag Breska slúðurpressan er full af safaríkum fréttum af leikmannamarkaðnum í dag og sem fyrr er mikið rætt um menn sem talið er víst að skipta muni um heimilisfang í sumar. Einn þeirra er framherjinn Darren Bent hjá Charlton, en Star segir að West Ham muni kaupa hann á 18 milljónir punda í sumar og greiða honum 80,000 pund í vikulaun. 13.6.2007 14:56
Kubica klár í næstu keppni Pólski ökuþórinn Robert Kubica hjá BMW Sauber í Formúlu 1 stefnir í að taka þátt í bandaríska kappakstrinum um næstu helgi þrátt fyrir að hafa lent í hörðum árekstri á hátt í 300 kílómetra hraða fyrir þremur dögum. 13.6.2007 14:49
Stjóri McLaren reynir að stilla til friðar Ron Dennis, stjóri McLaren liðsins í Formúlu 1, vísar því á bug að deilur standi milli ökuþóra liðsins þeirra Fernando Alonso og Lewis Hamilton. Alonso gagnrýndi lið sitt í viðtali við spænska útvarpsstöð á dögunum eftir að Hamilton vann sinn fyrsta sigur í Kanada um síðustu helgi. 13.6.2007 14:40
Yfirtökutilboð í Blackburn á viðræðustigi Forráðamenn enska úrvalsdeildarfélagsins Blackburn hafa staðfest að félagið sé í viðræðum við bandaríska fjárfesta um yfirtöku í félaginu en segja að enn sé langt í land með að samningar náist. Blackburn-menn hafa verið í grunnviðræðum við fjárfesta í nokkra mánuði. 13.6.2007 14:35
Styttist í ráðningu stjóra hjá Man City Breska sjónvarpið telur sig hafa heimildir fyrir því að úrvalsdeildarfélagið Manchester City muni ganga frá ráðningu á nýjum knattspyrnustjóra innan viku. Juande Ramos, þjálfari Sevilla, og hollenski þjálfarinn Co Adriaanse eru sagðir efst á óskalista félagsins. 13.6.2007 14:29
Smith gæti farið frá United Framherjinn Alan Smith gæti farið frá Old Trafford í sumar ef hann fær ekki frekari staðfestingu á því að hann sé inni í myndinni með aðalliði Manchester United. Smith hefur ekki náð að vinna sér sæti í aðalliðinu síðan hann fótbortnaði illa á sínum tíma. 13.6.2007 14:26
Saha verður klár í upphafi leiktíðar Franski framherjinn Louis Saha hjá Manchester United mun ekki missa af fyrstu leikjunum í ensku úrvalsdelidinni á næstu leiktíð eins og haldið var fram í fréttum á dögunum. Umboðsmaður Saha segir þær fréttir ekki réttar og segir Saha verða klárann í slaginn í fyrsta leik. Hann er nú í endurhæfingu í Frakklandi eftir vel heppnaða hnéaðgerð í Bandaríkjunum. 13.6.2007 14:24
Ármann Smári orðinn bestur Stefán Gíslason er ekki lengur besti íslenski knattspyrnumaðurinn í Noregi ef mið er tekið af einkunnagjöf fjögurra stærstu fjölmiðlanna þar í landi. Ármann Smári Björnsson er nú kominn með hærri meðaleinkunn, 5,5. Hann var í fyrsta sinn í byrjunarliði Brann um helgina og fékk bestu dóma Íslendinga um helgina. 13.6.2007 10:00
Zola telur enska knattspyrnu gjalda fyrir fjölda útlendinga Ítalinn Gianfranco Zola telur ástæðuna fyrir því hversu illa enska landsliðinu gengur að vinna titla sé sú að of margir útlendingar spili í úrvalsdeildinni á Englandi. Zola, sem er fyrrverandi leikmaður Chelsea segir að Ítalir gætu kennt englendingum margt. 13.6.2007 09:00
Langar að halda áfram Alfreð Gíslason landsliðsþjálfara langar til að vera áfram með íslenska liðið. Hann segist þó eiga mjög erfitt með það en hann mun setjast niður með HSÍ og ræða stöðuna eftir leikinn gegn Serbum sem fer fram á sunnudaginn kemur. 13.6.2007 08:30
Var aldrei ætlunin að slá mann í andlitið Aganefnd KSÍ felldi í gær þann dóm að þeir Tryggvi Guðmundsson úr FH og Fylkismaðurinn Valur Fannar Gíslason skyldu fá eins leiks bann fyrir rauða spjaldið sem þeir fengu í leik liðanna um helgina. 13.6.2007 06:45
Alltaf minn fyrsti kostur að vera áfram hjá Celtic Theodór Elmar Bjarnason var nýbúinn að skrifa undir framlengingu á samningi sínum við Celtic þegar Fréttablaðið náði tali af honum í gær. Samningurinn er til tveggja ára en Celtic getur bætt ári við hann kjósi félagið að gera það. Theodór var að verða samningslaus og höfðu mörg félög falist eftir kröftum hans. 13.6.2007 06:00
Eggert frá út tímabilið Framarar urðu fyrir miklu áfalli í leiknum gegn HK þegar Eggert Stefánsson meiddist illa. Í ljós hefur komið að Eggert er með slitið krossband og hann leikur því ekki meira á þessari leiktíð. Eggert hafði verið að spila vel í uppafi leiktíðar og náði ágætlega saman við Reynir Leósson. Spurning hver fær það verðuga verkefni að leysa Eggert af hólmi það sem eftir lifir sumars. 13.6.2007 06:00
Tímabilið búið? Alls er óvíst hvort Eiður Smári Guðjohnsen geti spilað með Barcelona í lokaleik spænsku deildarinnar. Eiður fékk slæmt högg á vinstra hnéð og neyddist til að snúa aftur til búningsherbergja. Ekki er ljóst hversu lengi Eiður verður frá en það ætti að koma í ljós eftir nánari skoðun. 13.6.2007 05:45
San Antonio með aðra höndina á titlinum San Antonio Spurs er komið í afar vænlega stöðu í úrslitaeinvíginu gegn Cleveland Cavaliers í NBA deildinni eftir 75-72 sigur í þriðja leik liðanna í Cleveland í nótt. San Antonio leiðir nú 3-0 í einvíginu og Cleveland verður að gera nokkuð sem engu liði í sögunni hefur tekist ef það á að hampa titlinum. 13.6.2007 05:25
Álfasteinn lækkaði undir Þórði Þorgeirs Ja nú er það spurning hvort hrossabóndinn í Akurgerði þurfi í tíma hjá FT formanninum en Álfasteinn lækkaði í forsýningu á Sörlastöðum nú í kvöld í 8.47 en hann fékk 8.54 á Hellu. 13.6.2007 23:45
3-0 fyrir Val Valsmenn eru komnir í 3-0 gegn Víkingi á Laugardalsvellinum eftir rúmlega tíu mínútna leik í síðari hálfleik. Helgi Sigurðsson skoraði annað mark Valsmanna úr vítaspyrnu sem dæmd var eftir að skot Valsmanna fór í höndina á varnarmanni Víkinga og skoraði svo þriðja markið aðeins tveimur mínútum síðar eftir laglega skyndisókn. Þetta er fimmta mark Helga á leiktíðinni. 13.6.2007 21:12
Valsmenn 1-0 yfir á Laugardalsvelli Valsmenn hafa yfir 1-0 gegn Víkingum þegar flautað hefur verið til hálfleiks í fyrsta leik sjöttu umferðar Landsbankadeildarinnar. Pálmi Rafn Pálmason skoraði mark Valsmanna í uppbótartíma eftir að liðið hafði verið með yfirburði á síðustu mínútunum. Bæði lið hefðu auðveldlega geta verið búin að ná forystunni áður en kom að marki Pálma, en leikmenn höfðu ekki heppnina með sér fyrir framan markið. 13.6.2007 20:46
Valur - Víkingur í beinni í kvöld Sjötta umferðin í Landsbankadeild karla í knattspyrnu hefst í kvöld með leik Vals og Víkings á Laugardalsvelli. Leikurinn hefst klukkan 20 og verður sýndur beint á Sýn. Valsmenn eru í öðru sæti deildarinnar en Víkingur í 3.-5. sæti. Valsmenn hafa aðeins unnið 1 af fyrstu 3 heimaleikjum sínum til þessa, en Víkingar hafa unnið báða útileiki sína. 13.6.2007 18:51
Stáljöfur íhugar að kaupa Birmingham Milljarðamæringurinn Lakshimi Mittal hefur nú verið kynntur til sögunnar sem hugsanlegur kaupandi knattspyrnufélagsins Birmingham á Englandi. Mittal er fimmti ríkasti maður heims og er metinn á hátt í 20 milljarða punda. Hann er fæddur á Indlandi og komst til auðs í stáliðnaðinum. 12.6.2007 22:00
Fegnir að vera lausir við Viduka Stjórnarformaður Middlesbrough segir að þó félagið komi til með að sjá á eftir framherjanum Mark Viduka, hafi hann að hluta til orðið feginn þegar Viduka neitaði síðasta samningstilboði frá félaginu og ákvað að ganga í raðir Newcastle. 12.6.2007 21:15