„Halda að við séum í einhverju stríði en hann er minn maður“ Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 15. maí 2026 21:49 Dedrick Basile í baráttu við Deandre Kane. Anton Brink/Vísir Tindastóll eru ekki dauðir úr öllum æðum og sóttu gríðarlega mikilvægan sigur í leik þrjú í úrslitaeinvíginu í Grindavík. Með bakið upp við vegg og 2-o undir náði Tindastóll að tryggja sér fjórða leikinn með fimm stiga sigri 89-94. Dedrick Basile ræddi við Andra Már Eggertsson eftir leik í kvöld. „
Við vorum í þessari stöðu í síðasta einvígi að vera undir 2-0 og við vissum að Grindavík vildi vera með partý í kvöld en mitt lið mætti til leiks eins og það væri enginn morgundagur“ sagði Dedrick Basile eftir sigurinn í kvöld. „Ef við höldum áfram að spila svona þá finnst mér við eiga góða möguleika á endurkomu“ Leikurinn var fram og til baka og skiptust liðin tuttugu sinnum á forystu í fyrri hálfleik. „Grindavík er mjög gott lið og þess vegna eru þeir deildarmeistarar. Þeir eru með frábæra leikmenn, gott lið og góða rulluspilara“ „Deandre Kane og Jeremy Pargo eru Euroleague leikmenn og við urðum bara að mæta hingað og berjast. Við vissum að þetta yrði barátta alveg sama hvað“ Tindastóll átti frábæran fjórða leikhluta og héldu Grindvíkingum stigalausum í sex mínútur. „Ég vissi það ekki einu sinni en það er bara flott. Við einbeitum okkur að vörninni og þeir eru með góða einn á einn leikmenn en ef við spilum okkar leik þá trúi ég því að við getum tekið einn leik í einu og átt endurkomu“ Dedrick Basile og Deandre Kane hafa átt mikla baráttu í þessu einvígi. „Hann er stóri bróðir, ég lærði mikið af honum. Það halda margir að við séum í einhverju stríði en hann er minn maður og þetta er eins og það er“ Dedrick Basile hefur oft áður verið í silfurliði og þráir hann að ná loksins gullinu. „Mig langar rosalega í gullið, alveg svakalega“ sagði Dedrick Basile við Andra Már Eggertsson.
Grindavík Bónus-deild karla Körfubolti Mest lesið Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Íslenski boltinn Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Fótbolti „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Fótbolti Meiddist í Portúgal Enski boltinn Sveindís til Króatíu eftir dramatík gegn toppliðinu Fótbolti Segir dyrnar opnar fyrir Ronaldo en biðst ekki afsökunar Fótbolti Tveir í bann fyrir að bauna á Heimi og Ísraelar með sorgarbönd Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Hroturnar heyrðust í beinni útsendingu Sport Zirkzee með sigurmark en Klopp áfram í brasi Fótbolti Heimir íhugar ekki afsögn og UEFA þurfi að skoða sín mál Fótbolti Fleiri fréttir Gylfi með til Eistlands Bakgarðsáskorunin: Hroturnar heyrðust í beinni útsendingu Fljúga til Færeyja í hádeginu Meiddist í Portúgal „Skilgreinandi augnablik“ „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Dagskráin í dag: Allt sem þú þarft að vita fyrir ballið í Bónus-deildinni Segir dyrnar opnar fyrir Ronaldo en biðst ekki afsökunar Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Zirkzee með sigurmark en Klopp áfram í brasi Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik Dýrmætur sigur HK-inga Sveindís til Króatíu eftir dramatík gegn toppliðinu Karólína skoraði og Cecilía hélt hreinu í síðasta leik fyrir HM-umspilið Súrt jafntefli í seinni leiknum sem enginn vildi spila Arftaki Ronaldo áfram sjóðheitur í sigri Tveir í bann fyrir að bauna á Heimi og Ísraelar með sorgarbönd Tapaði titlinum í lokabeygjunni „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ „Þetta er bara víti og rautt spjald“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna Sjáðu ruglið í Formúlunni í morgun Ómar markahæstur í öruggum sigri Fýluferð til Keflavíkur: „Vitum ekkert eins og staðan er núna“ Sjáðu mörkin úr slátrun Englands FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Modric skammast sín Heimir íhugar ekki afsögn og UEFA þurfi að skoða sín mál Strákarnir sitja fastir Sjá meira