Fleiri fréttir

Birgir Leifur á höggi yfir pari

Birgir Leifur Hafþórsson lék fyrsta hringinn á Opna Andalúsíumótinu á Spáni í dag á 73 höggum, eða einu höggi yfir pari. Hann lék fyrri níu á 37 höggum og seinni níu á 36 höggum. Hann fékk 3 fugla á hringnum, 12 pör, 2 skolla og einn skramba, sem kom á 7. braut. Hann er sem stendur í 81. - 94. sæti, en margir keppendur eiga eftir að ljúka leik í dag.

Ferdinand líkir Ronaldo við hasarblaðahetju

Rio Ferdinand, leikmaður Manchester United, segir að hann hafi oftar en einu sinni verið farinn að óttast um að liðinu tækist ekki að halda efsta sætinu í úrvalsdeildinni í vetur. Hann segir að mark frá Ronaldo hafi endanlega stimplað trú inn í mannskapinn og líkti tilþrifum Portúgalans við tilburði hasarblaðahetjunnar Roy of the Rovers.

Frings hafnaði Juventus

Þýski landsliðsmaðurinn Torsten Frings hefur framlengt samning sinn við Werder Bremen í Þýskalandi og því verður ekkert af fyrirhugaðri för hans til ítalska liðsins Juventus eins og til stóð. "Ég fékk fínt tilboð frá Juventus en hjartað sagði mér að vera áfram hjá Bremen," sagði Frings sem er nú samningsbundinn félaginu til 2011.

Jol: Fólk er búið að gleyma Tottenham

Martin Jol og hans menn í Tottenham taka á móti Blackburn í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni. Jol segir að fólk sé búið að gleyma því síðustu vikur að hans menn eigi góða möguleika á að ná viðunandi árangri í deildinni í vor þó staðan hafi ekki verið glæsileg síðustu vikur.

Sidwell fer líklega frá Reading

Nú er útlit fyrir að miðjumaðurinn efnilegt Steve Sidwell muni fara frá Reading í sumar, en hann er með lausa samninga hjá félaginu og hefur enn ekki skrifað undir nýjan. Hann er 24 ára gamall og hefur staðið sig vel með liðinu í vetur. Sidwell hefur verið orðaður við Chelsea, Manchester United og Newcastle í bresku blöðunum undanfarið.

Shepherd segir Owen að halda sig við Newcastle

Freddy Shepherd, stjórnarformaður Newcastle, var alls ekki kátur með fréttaflutning bresku blaðanna í dag þar sem slúðrað hefur verið um brottför Michael Owen frá félaginu í sumar. Shepherd hvetur Owen til að sýna félaginu hollustu eftir að hafa aðeins spilað 13 leiki með því síðan hann var keyptur fyrir metfé árið 2005.

Vill staðfestingu á að Tevez megi spila

Stjórnarformaður Wigan hefur ritað forráðamönnum ensku úrvalsdeildarinnar bréf þar sem hann krefst því að fá skriflega staðfestingu á því frá deildarmönnum að Argentínumaðurinn Carlos Tevez sé löglegur með West Ham. Wigan á í harðri fallbaráttu við West Ham og örlög liðanna ráðast á sunnudaginn í lokaumferðinni.

Draumadeild Landsbankans og Vísis komin á fullt

Nú er hin árlega Draumadeild Landsbankans og Vísis komin í loftið. Deildin hefur verið uppfærð mikið frá síðasta ári og nú geta þátttakendur slkipt meira um menn í sínu liði og kominn er SMS virkni og fleira. Skráning fyrstu dagana hefur verið góð, þegar hafa 2.000 lið skráð sig til þátttöku og bætist við með hverri mínútu.

Mikil dramatík í Utah

Utah hefur náð 2-0 forystu í einvígi sínu við Golden State í undanúrslitum Vesturdeildarinnar í NBA eftir dramatískan sigur í framlengingu í nótt 127-117. Derek Fisher mætti ekki í leikinn fyrr en í síðari hálfleik eftir að hafa flogið frá New York þar sem dóttir hans var í lífshættulegri aðgerð. Fisher spilaði stóra rullu undir lokin og skoraði öll fimm stig sín í framlengingunni.

Barcelona undir í hálfleik

Nú er kominn hálfleikur í síðari undanúrslitaleik Getafe og Barcelona í spænska konungsbikarnum og hefur Getafe forystu 2-0. Eiður Smári er á bekknum hjá Barclelona en nú vantar Getafe aðeins eitt mark til að fara áfram í úrslitin. Þá hefur Blackburn yfir 1-0 á útivelli gegn Tottenham í ensku úrvalsdeildinni þar sem Benni McCarthy skoraði mark gestanna.

HK deildarbikarmeistari

HK menn urðu í kvöld deildarbikarmeistarar í handbolta þegar þeir báru sigurorð af Stjörnunni í oddaleik í Digranesi 29-28. Augustas Strasdas og Valdimar Þórsson skoruðu 8 mörk hvor fyrir heimamenn en Guðmundur Guðmundsson skoraði 6 fyrir gestina.

Bragðdauft á Brúnni

Chelsea og Manchester United gerðu markalaust jafntefli á Stamford Bridge í leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni. United hafði þegar tryggt sér titilinn og því tefldu bæði lið fram mörgum varaskeifum í leiknum í kvöld og hvíldu lykilmenn fyrir átökin í bikarúrslitaleiknum.

Utah - Golden State í beinni í nótt

Annar leikur Utah Jazz og Golden State Warriors í undanúrslitum Vesturdeildarinnar í NBA verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni klukkan eitt í nótt. Fyrsti leikur liðanna var æsispennandi og lauk með naumum sigri heimamanna. Hér fyrir neðan má sjá leikina sem sýndir verða næstu daga.

Roma valtaði yfir Inter

Roma er í góðri stöðu eftir fyrri úrslitaleik sinn við Inter Milan í ítalska bikarnum. Roma vann 6-2 stórsigur á Mílanóliðinu í dag. Totti, De Rossi og Perrota komu Roma í 3-0 eftir stundarfjórðung og Amantino Manchini og Panucci (2) bættu við mörkum. Hernan Crespo skoraði bæði mörk gestanna.

West Ham ætlar ekki að áfrýja

Eggert Magnússon og félagar hjá West Ham sendu frá sér yfirlýsingu í dag þar sem fram kemur að félagið ætli ekki að áfrýja 5,5 milljón punda sektinni sem félagið var dæmt til að greiða vegna loðinna félagaskipta þeirra Javier Mascherano og Carlos Teves í fyrra.

Gagnslaust að kæra West Ham

Forráðamenn ensku úrvalsdeildarinnar hafa ritað forsvarsmönnum allra úrvalsdeildarfélaganna á Englandi bréf þar sem fram kemur að tilgangslaust sé að reyna að kæra West Ham frekar vegna Argentínumannanna Carlos Tevez og Javier Mascherano.

Réttarhöldum yfir Jackson frestað á ný

Nú er ljóst að vandræðagemlingurinn Stephen Jackson hjá Golden State Warriors getur spilað með liðinu það sem eftir er af úrslitakeppninni, því réttarhöldum yfir honum hefur ferið frestað í annað sinn til 21. júní. Jackson komst í kast við lögin í haust vegna áfloga og vopnaskaks fyrir utan strípibúllu í Indianapolis. Hann á yfir höfði sér fangelsisvist ef hann verður fundinn sekur.

Arnar Freyr og Jón Norðdal framlengja við Keflavík

Leikstjórnandinn Arnar Freyr Jónsson hefur framlengt samning sinn við körfuknattleiksdeild Keflavíkur en hann hefur leikið með liðinu síðan árið 2000. Félagi hans Jón Norðdal Hafsteinsson hefur einnig framlengt við Keflvíkinga. Þetta kom fram á vef Keflavíkur í dag.

Valur: Þriðja árið hans Willums

Fréttablaðið heldur áfram að telja niður að Íslandsmótinu í knattspyrnu og við spáum Valsmönnum þriðja sætinu. Í fyrra náðu Valsmenn að halda sæti sínum meðal þriggja bestu liðanna í fyrsta sinn síðan árið 1988 og voru í raun aðeins nokkrum sekúndum frá því að vinna KR í lokaleiknum og hreppa þar með 2. sætið annað árið í röð.

Teitur Örlygsson tekur við Njarðvík

Teitur Örlygsson verður næsti þjálfari Njarðvíkinga í körfubolta. Teitur tekur við af Einari Árna Jóhannssyni sem hafði verið með liðið síðustu þrjú ár. Teitur skrifar undir tveggja ára samning við Njarðvíkinga á næstu dögum og sagðist í samtali við Víkurfréttir vera mjög spenntur fyrir verkefninu.

Phoenix vann nauðsynlegan sigur

Phoenix lagði San Antonio á nokkuð sannfærandi hátt 101-81 í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Vesturdeildarinnar í NBA í nótt. Staðan í einvíginu er því orðin jöfn og næstu tveir leikir fara fram í San Antonio. Cleveland náði 2-0 forystu gegn New Jersey með sigri á heimavelli.

Boothroyd framlengir við Watford

Knattspyrnustjórinn Adrian Boothroyd framlengdi í dag samning sinn við Watford um þrjú ár. Boothroyd þótti hafa staðið sig ágætlega í vetur þó lið hans hafi aðeins unnið fimm leiki í úrvalsdeildinni og fallið beint niður í Championship deildina á ný.

Ferguson ætlar að færa Mourinho vínflösku

Sir Alex Ferguson hafði orð á því í dag hve auðmjúklega kollegi hans Jose Mourinho hefði tekið því þegar hann þurfti í fyrsta sinn í stjórnartíð sinni að horfa á eftir enska meistaratitlinum renna sér úr greipum á dögunum.

Góður sigur hjá Gummersbach

Þrír leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Gummersbach lagði Göppingen á útivelli 33-30 í leik sem sýndur var beint á Sýn. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 6 mörk fyrir Gummersbach og Róbert Gunnarsson skoraði 2. Alexander Petersson skoraði tvö mörk fyrir Grosswallstadt í 29-24 tapi liðsins gegn Hamburg og Keil vann auðveldan sigur á Hildesheim 34-28.

Íslandsmeisturunum spáð góðu gengi

Fyrirliðar, þjálfarar og formenn knattspyrnuliða í Landsbankadeildum karla- og kvenna spáðu í dag í spilin á árlegum kynningarfundi fyrir Íslandsmótið í knattspyrnu sem hefst á næstu dögum. FH og Valur munu því verja titla sína ef spárnar rætast. Nýliðum HK er spáð falli í karlaflokki og Valur og KR urðu hnífjöfn í öðru til þriðja sæti í spánni.

Átta Valsstúlkur í landsliðshópnum

Sigurður Ragnar Eyjólfsson kvennalandsliðsþjálfari valdi í dag hóp sinn fyrir vináttuleikinn gegn Englendingum á Roots Hall þann 17. maí næstkomandi. Íslandsmeistarar Vals eiga áberandi flesta fulltrúa í hópnum.

Ball biður Ronaldo afsökunar

Michael Ball hjá Manchester City á yfir höfði sér þriggja leikja bann eftir að hann traðkaði á Cristiano Ronaldo hjá Manchester United í leik liðanna á dögunum. Hann hefur beðið Ronaldo afsökunar og iðrast gjörða sinna. "Ég sé eftir þessu og hef sent Ronaldo afsökunarbeiðni. Ég hef aldrei verið rekinn af velli á ferlinum og veit að ég þarf að vera betri fyrirmynd en þetta," sagði Ball á heimasíðu City.

Landsbankadeildin fyrirferðamikil á Sýn

Sjónvarpsstöðin Sýn mun í sumar gera Landsbankadeildinni í knattspyrnu betri skil en nokkru sinni fyrr og alls verða þrjár beinar útsendingar á stöðinni frá fyrstu umferðinni. Sérstakur upphitunarþáttur verður í opinni dagskrá stöðvarinnar á fimmtudagskvöldið klukkan 21.

Phoenix - San Antonio í beinni í nótt

Annar leikur Phoenix Suns og San Antonio Spurs í úrslitakeppni NBA verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni klukkan hálf þrjú í nótt. Hér fyrir neðan má sjá hvaða leikir verða sýndir á stöðinni og rásum Sýnar næstu daga.

Ferguson: Ekkert mál að leyfa Ruud að fara

Sir Alex Ferguson segir að það hafi ekki verið sérlega erfið ákvörðun að leyfa framherjanum Ruud Van Nistelrooy að fara frá liðinu á sínum tíma, því hann hafi verið farinn að hafa áhrif á andann í herbúðum liðsins. Hann segir að erfiðara hafi verið að horfa á eftir Roy Keane.

Sér ekkert athugavert við lyfjanotkun íþróttamanna

Mark Cuban, eigandi NBA liðs Dallas Mavericks, er ekki vanur að liggja á skoðunum sínum. Hann segist ekki sjá neitt athugavert við að íþróttamenn noti lyf til að bæta frammistöðu sína á vellinum.

Nelson bannað að drekka bjór

Don Nelson, þjálfari Golden State Warriors, hefur verið beðinn um að hætta að drekka bjór á blaðamannfundum eftir leiki liðsins í úrslitakeppninni í NBA. Nelson opnaði dós af Bud Light og drakk á blaðamannafundum eftir leikina við Dallas og þótti forráðamönnum deildarinnar þetta ekki við hæfi.

Ball og Brown ákærðir

Varnarmaðurinn Michael Ball hjá Manchester City hefur verið ákærður fyrir ósæmilega hegðun í leik gegn Manchester United á dögunum þegar sannað þótti að hann hefði viljandi troðið á Cristiano Ronaldo hjá United. Ball hefur tíma fram á miðvikudag til að svara fyrir sig. Þá hefur Michael Brown hjá Fulham verið ákærður fyrir að skalla Xabi Alonso leikmann Liverpool og hefur sama tíma og Ball til að svara til saka.

Diego Corrales lést í bifhjólaslysi

Bandaríski hnefaleikakappinn Diego Corrales lét lífið í bifhjólaslysi í Las Vegas í gærkvöldi. Hann var 29 ára gamall og varð á ferlinum heimsmeistari í tveimur þyngdarflokkum hnefaleika. Dauðsfall hans kemur tveimur árum eftir frægasta bardaga hans þegar hann sigraði Luis Castillo þrátt fyrir að hafa tvisvar verið laminn í gólfið.

John Higgins heimsmeistari í snóker

Skotinn John Higgins varð í gær heimsmeistari í snóker í annað skipti á ferlinum eftir sögulegan sigur á Englendingnum Mark Shelby í úrslitaleik 18-13. Higgins virtist vera kominn langt með að tryggja sér sigur á mótinu eftir fyrri daginn þegar hann hafði 12-4 forystu, en sá enski barðist hetjulega og náði að minnka muninn í 14-13.

Yfirtaka á næsta leiti hjá Charlton

Breska sjónvarpið greinir frá því í morgun að hópur fjárfesta frá miðausturlöndum og Evrópu sé nú í alvarlegum viðræðum við stjórn Charlton um hugsanlega yfirtöku í félaginu fyrir 50 milljónir punda. Charlton féll úr úrvalsdeildinni í gær eftir tap á heimavelli fyrir Tottenham.

Terry: Það verður erfitt að heiðra United

John Terry, fyrirliði Chelsea, segir að það muni reynast sér þungbært að heiðra nýkrýnda deildarmeistara Manchester United á Stamford Bridge þegar liðin mætast í deildinni annað kvöld. United gerði slíkt hið sama fyrir Chelsea fyrir tveimur árum.

Ferill Park var í hættu

Ji-Sung Park hefði geta eyðilagt feril sinn ef hann hefði ekki farið strax í aðgerð vegna hnémeiðsla sem hann gekkst undir í Bandaríkjunum í síðasta mánuði. Þetta hefur faðir Kóreumannsins eftir sérfræðingnum Richard Steadman. Park verður ekki klár í slaginn á ný fyrr en á næstu leiktíð.

Barton er falur fyrir 5,5 milljónir punda

Manchester City er tilbúið að selja vandræðagemlinginn Joey Barton fyrir 5,5 milljónir punda eða um 700 milljónir króna. Þetta segir umboðsmaður leikmannsins í dag. Barton er ekki talinn eiga afturkvæmt í herbúðir City á næsta tímabili eftir að hafa verið settur í bann á dögunum fyrir að senda félaga sinn á sjúkrahús í áflogum.

Sanchez vill halda áfram með Fulham

Lawrie Sanchez segist ólmur vilja halda áfram í starfi sínu sem knattspyrnustjóri hjá Fulham eftir að ljóst varð í gærkvöld að liðið héldi sæti sínu í úrvalsdeildinni. Sanchez er landsliðsþjálfari Norður-Íra og er samningsbundinn þar fram yfir EM 2008.

Xavier á förum frá Boro

Varnarmaðurinn Abel Xavier fer frá enska úrvalsdeildarfélaginu Middlesbrough í sumar. Þetta varð ljóst í dag eftir að leikmaðurinn gat ekki sætt sig við þau kjör sem félagið bauð honum í nýjum eins árs samningi. Hann átti ágæta endurkomu með liði Boro í vetur eftir að hafa verið settur í eins árs bann vegna steranotkunar.

Hermann laus allra mála

Hermann Hreiðarsson landsliðsmaður er laus allra mála hjá Charlton eftir að félagið féll úr úrvalsdeildinni í gær eftir tap gegn Tottenham. Hann er nú sterklega orðaður við West Ham. Greint var frá þessu í hádegisfréttum Stöðvar 2.

AÍH óskar eftir starfsfólki á Hellu

Nú eru bara nokkrir dagar í fyrstu Enduro keppni ársins. Brautin verður frábær - eitthvað við allra hæfi. AÍH vantar hins vegar starfsfólk til að vera í race police og flagga. Þeir sem vilja hjálpa til við að auka öryggi keppenda og aðstoða okkur er bent að hafa samband við Kristján Geir

Mótorkrossbrautin á Selfossi opnar

Mótorkrossbrautin á Selfossi hefur lengi verið talin sú skemmtilegasta á landinu. Nú hafa Árborgarmenn ákveðið að opna loksins brautina og var það gert í gærkvöldi. Í gær var unnið hörðum höndum að gera brautina tilbúnna fyrir opnun og var verið að slétta hana í gær. Að sögn þeirra sem fór í brautina í gær er hún æðisleg.

Utah vann nauman sigur á Golden State

Fyrsti leikur Utah og Golden State í undanúrslitum Vesturdeildarinnar í NBA var æsispennandi en svo fór að lokum að heimamenn í Utah höfðu sigur 116-112 á heimavelli sínum. Leikurinn var að hluta til einvígi leikstjórnendanna Deron Williams og Baron Davis og það var hinn ungi Williams sem náði að leiða lið sitt til sigurs í þetta sinn.

Sjá næstu 50 fréttir