Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Shevchenko verður ekki með í úrslitaleiknum Forráðamenn Chelsea hafa staðfest að framherjinn Andriy Shevchenko verði ekki með liðinu í úrslitaleik enska bikarsins þann 19. maí. Úkraínumaðurinn er á leið í uppskurð vegna nárameiðsla og kosið var að senda hann í aðgerð strax núna í stað þess að bíða með það til loka leiktíðar eins og til stóð. 7.5.2007 18:00
Ísland steinlá fyrir Belgum Íslenska landsliðið í knattspyrnu skipað drengjum yngri en 17 ára steinlá í dag 5-1 fyrir heimamönnum Belgum í lokaumferð B-riðils Evrópumótsins. Belgarnir komust í 1-0 í leiknum en Kolbeinn Sigþórsson jafnaði metin á 19. mínútu. Heimamenn tóku síðan öll völd á vellinum í síðari hálfleik og skoruðu þar fjögur mörk. Englendingar sigruðu í riðlinum en íslenska liðið var á botninum án stiga. 7.5.2007 17:28
Gleði á götum Manchester Stuðningsmenn Manchester United gerðu sér dagamun í gær þegar lið þeirra tryggði sér enska meistaratitilinn. Þeir létu það ekki á sig fá þó liðið væri ekki að spila og flykktust út á götur til að fagna eftir að Chelsea og Arsenal skildu jöfn í London. Í myndbandinu með fréttini má sjá fagnaðarlætin og nokkur viðtöl við stuðningsmenn. 7.5.2007 17:00
Beckham hrósar Alex Ferguson David Beckham hrósaði fyrrum knattspyrnustjóra sínum Alex Ferguson í hástert í gær þegar hann stýrði Manchester United enn á ný til Englandsmeistaratignar. "Ég verð aldrei hissa á því þegar Alex Ferguson nær árangri því hann nær alltaf að snúa á þá sem efast um hæfileika hans," sagði Beckham eftir góðan sigur hans manna í Real Madrid í gær. 7.5.2007 16:45
Costacurta mun aðstoða Ancelotti Gamli refurinn Alessandro Costacurta hjá AC Milan mun gerast aðstoðarmaður Carlo Ancelotti þjálfara þegar hann leggur skóna á hilluna í sumar. Costacurta er 41 árs gamall og lék sinn fyrsta leik fyrir Milan árið 1986. Tveir aðrir af eldri leikmönnum liðsins, þeir Cafu og Paolo Maldini, hafa þegar gefið það út að þeir ætli að spila eitt ár í viðbót. 7.5.2007 15:58
Mánudagsslúðrið á Englandi Bresku blöðin eru uppfull af slúðri í dag sem endranær þar sem meðal annars er talað um að Sam Allardyce sé líklegasti eftirmaður Glenn Roeder í stjórastólinn hjá Newcastle. 7.5.2007 15:46
Detroit - Chicago í beinni í kvöld Annar leikur Detroit Pistons og Chicago Bulls í úrslitakeppni NBA verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni klukkan tólf á miðnætti í kvöld. Detroit vann afar sannfærandi sigur í fyrsta leiknum 95-69 og ljóst að gestirnir verða að mæta ákveðnari til leiks í kvöld ef ekki á illa að fara. Í nótt hefst svo einvígi Utah og Golden State í undanúrslitum Vesturdeildarinnar. 7.5.2007 15:20
Saviola boðinn samningur hjá Barcelona Framherjinn Jaiver Saviola hefur staðfest að Barcelona hafi boðið honum nýjan samning. Núgildandi samningur Argentínumannsins rennur út í sumar og hann lýsti yfir óánægju sinni fyrir skömmu yfir því að vera ekki boðinn nýr samningur. Í samtali við Mundo Deportivo í dag sagðist Saviola nú ætla að bera tilboðið saman við önnur sem honum hafi borist frá öðrum félögum, en hann hefur verið orðaður við Real Madrid. 7.5.2007 14:59
Ferguson með þrjá leikmenn í sigtinu Sir Alex Ferguson hjá Manchester United segist vera með þrjá nýja leikmenn í sigtinu sem hann hafi áhuga á að fá til félagsins í sumar. Hann vill ekki gefa upp hverjir þetta eru af ótta við að verða yfirboðinn af Chelsea. 7.5.2007 14:49
Ferna hjá Arsenal Kvennalið Arsenal undirstrikaði yfirburði sína í kvennaknattspyrnunni þegar liðið lagði Charlton 4-1 í úrslitaleik enska bikarsins. Þetta var fjórði titill liðsins á tímabilinu því liðið vann deildarbikarinn, Evrópukeppni félagsliða og þá vann liðið ensku deildina fjórða árið í röð. 7.5.2007 14:44
Mourinho: Klöppum fyrir United Jose Mourinho segir Chelsea ætla að taka vel á móti keppinautum sínum í Manchester United þegar liðin mætast á Stamford Bridge í lokaumferðinni í ensku úrvalsdeildinni á miðvikudaginn. "Við munum klappa þeim lof í lófa þegar þeir komu inn á völlinn og óska þeim til hamingju með titilinn, því þeir gerðu slíkt hið sama fyrir okkur fyrir tveimur árum," sagði Mourinho. 7.5.2007 14:40
Keane og Berbatov leikmenn mánaðarins Framherjaparið Dimitar Berbatov og Robbie Keane hjá Tottenham voru í dag útnefndir leikmenn mánaðarins í ensku úrvalsdeildinni. Þetta er í fyrsta skipti í þrjú ár sem liðsfélagar deila með sér heiðrinum. Báðir hafa þeir skorað 21 mark fyrir Tottenham á leiktíðinni. 7.5.2007 14:35
Ekkert varð af golfinu hjá Ferguson Sir Alex Ferguson sagðist á laugardaginn vel geta hugsað sér að fara í golf frekar en að horfa á leik Arsenal og Chelsea í ensku úrvalsdeildinni. Jafntefli liðanna þýddi að Manchester United tryggði sér titilinn og Ferguson viðurkennir í samtali við Independent að hann hafi horft á síðustu 15 mínúturnar í leiknum. Hann segist hafa verið með hjartað í munninum af spennu. 7.5.2007 06:45
57. sigur Tiger Woods á PGA Það eru ekki mörg mót á PGA-mótaröðinni sem Tiger Woods hefur ekki unnið. Þeim fækkaði enn í kvöld þegar hann sigraði í fyrsta sinn á Wachovia Meistaramótinu í Norður-Karólínu. Þetta var jafnframt 57. sigur hans á PGA-mótaröðinni. Þetta var sjötta mótið sem hann tekur þátt í á þessu ári og hefur hann komist í gegnum niðurskurðinn í þeim öllum og sigrað í þremur. 7.5.2007 02:26
Blóðugt tap hjá Phoenix í fyrsta leik San Antonio vann mikilvægan útisigur á Phoenix Suns í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Vesturdeildar NBA á sunnudagskvöldið 111-106. Segja má að tap Phoenix hafi verið blóðugt í bókstaflegum skilningi, því liðið naut ekki krafta Steve Nash á lokasprettinum vegna skurðar sem hann fékk á nefið í fjórða leikhlutanum. 7.5.2007 01:58
Sanngjarn sigur FH á Keflavík Íslandsmeistarar FH unnu sanngjarnan sigur á bikarmeisturum Keflavíkur í hinni árlegu Meistarakeppni KSÍ. Það var Bjarki Gunnlaugsson sem skoraði eina mark leiksins á 18. mínútu leiksins. Aðstæður til knattspyrnuiðkunar voru ekkert sérstakar á frjálsíþróttavellinum í Krikanu í gær. Nokkur vindur gerði leikmönnum erfitt fyrir en eftir að leikmenn höfðu vanist aðstæðum mátti sjá góð tilþrif. 7.5.2007 00:01
Birgir Leifur upp um 52 sæti á peningalistanum Spánverjinn Gonzalo Fernandez-Castano sigraði á Opna ítalska mótinu í dag eftir bráðabana við Markus Brier frá Austurríki. Þeir léku báðir þrjá hringi á 16 höggum undir pari. Þeir léku 18. brautina tvisvar og í síðara skiptið hafði Castano betur og fékk um 25 milljónir króna í verðlaunafé fyrir fyrsta sætið. Brier fór heim með 16 milljónir. 7.5.2007 01:15
Manchester United enskur meistari Manchester United er enskur meistari árið 2007 eftir að Arsenal og Chelsea skildu jöfn 1-1 á Emirates í dag. Chelsea þurfti á sigri að halda til að halda í vonina um að ná United að stigum fyrir leik liðanna í lokaumferðinni. Gilberto kom Arsenal yfir með marki úr vítaspyrnu í fyrri hálfleik eftir að Khalid Boulahoruz braut á Julio Baptista í teignum og fékk rautt spjald. 6.5.2007 16:58
Ajax bikarmeistari í Hollandi Grétar Rafn Steinsson og félagar hans í AZ Alkmaar þurftu að bíta í það súra epli að tapa úrslitaleik hollenska bikarsins í dag. Alkmaar tapaði fyrir Ajax eftir framlengdan leik og vítakeppni. Grétar var allan tímann í liði Alkmaar og skoraði úr sinni spyrnu í vítakeppninni. Staðan eftir venjulegan leiktíma var 1-1, en Ajax náði að hanga á jöfnu manni færri í framlengingunni. 6.5.2007 20:30
Roeder sagði af sér Breska sjónvarpið hefur greint frá því að Glenn Roeder, stjóri Newcastle, hafi sagt starfi sínu lausu í dag. Hann sat í dag stjórnarfund með forráðamönnum félagsins og niðurstaðan sú að hann hættir störfum. Árangur Newcastle hefur alls ekki staðist háleit markmið stjórnarliða í vetur. 6.5.2007 19:40
Cleveland lagði New Jersey Cleveland hefur náð 1-0 forystu í einvígi sínu við New Jersey í undanúrstitum Austurdeildarinnar í NBA eftir nauman sigur í fyrsta leik liðanna í kvöld 81-77. Bæði lið hittu skelfilega í leiknum en það voru fyrst og fremst yfirburðir heimamanna í fráköstunum sem skiluðu sigrinum. 6.5.2007 19:34
Þriðji sigur Loeb í röð í Argentínu Franski heimsmeistarinn Sebastien Loeb á Citroen tryggði sér í dag sinn þriðja sigur í röð í Argentínurallinu. Frakkinn átti erfitt uppdráttar á fyrstu sérleiðunum en var svo í algjörum sérflokki það sem eftir var og kom í mark 36,7 sekúndum á undan Finnanum Marcus Grönholm. Loeb hefur fyrir vikið náð þriggja stiga forskoti í stigakeppni ökuþóra til heimsmeistara eftir fjórða sigur sinn á tímabilinu. Finninn Mikko Hirvonen varð þriðji í Argentínu og er einnig þriðji í stigakeppninni. 6.5.2007 18:21
Mourinho stoltur af sínum mönnum Jose Mourinho knattspyrnustjóri Chelsea sagðist vera afar stoltur af liði sínu þrátt fyrir að það missti titilinn í hendur Manchester United í dag eftir 1-1 jafntefli við Arsenal á útivelli. Hann segist hugsanlega stoltari af frammistöðu þeirra í vetur en þegar liðið vann titilinn síðustu tvö ár. 6.5.2007 18:09
Cleveland - New Jersey í beinni núna Fyrsti leikur Cleveland Cavaliers og New Jersey Nets hófst klukkan 17 og er hann sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Fjölvarpinu. Klukkan 20:50 verður svo útsending frá fyrsta leik Phoenix og San Antonio á Sýn. Þetta eru fyrstu leikir liðanna í annari umferð úrslitakeppninnar. 6.5.2007 17:16
Van Gundy að hætta hjá Houston? Jeff Van Gundy, þjálfari Houston Rockets í NBA deildinni, ætlar að hætta með liðið og taka sér frí frá þjálfun. Þetta hefur dagblaðið New York Post eftir heimildamanni sínum í dag, en hann segir brottför hans ekki tengjast tapi liðsins á heimavelli fyrir Utah í úrslitakeppninni í nótt. Van Gundy er með lausa samninga hjá félaginu í sumar. 6.5.2007 17:08
Besti árangur Birgis Leifs á ferlinum Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, lék lokahringinn á Opna ítalska mótinu í Mílanó í dag á 69 höggum, eða 3 höggum undir pari. Hann lék hringina þrjá á samtals 13 höggum undir pari og er í 11. sæti og er ljóst að þetta er besti árangur hans á ferlinum og um leið besti árangur Íslendings á alþjóðlegu golfmóti. Hann fékk skolla á lokaholunni, sem kostaði hann nokkur þúsund evrur. 6.5.2007 16:17
Drogba ekki með Chelsea Nú klukkan 15 hefst leikur Arsenal og Chelsea í ensku úrvalsdeildinni, en Chelsea þarf að sigra á Emirates í dag til að koma í veg fyrir að Manchester United verði enskur meistari. Didier Drogba er ekki í liði Chelsea í dag og er sagður meiddur á ökkla. Ashley Cole, fyrrum leikmaður Arsenal, er heldur ekki í byrjunarliði Chelsea. 6.5.2007 14:59
Sunderland hafnaði í efsta sæti 1. deildar Lærisveinar Roy Keane í Sunderland tryggðu sér í dag sigur í ensku 1. deildinni með því að bursta Luton 5-0. Birmingham tapaði á sama tíma 1-0 fyrir Preston og West Brom, sem burstaði Barnsley 7-0, mun mæta grönnum sínum í Wolves í úrslitakeppninni um sæti í úrvalsdeild. Í hinni viðureigninni um úrvalsdeildarsæti mætast Derby og Southampton. 6.5.2007 14:53
Sögulegur sigur hjá Utah - McGrady grét á blaðamannafundi Utah Jazz varð í nótt síðasta liðið til að tryggja sér sæti í annari umferð úrslitakeppninnar í NBA með dramatískum og sögulegum sigri á Houston Rockets í oddaleik í Houston 103-99. Utah varð með sigrinum aðeins 19. liðið í sögu NBA til að vinna leik 7 á útivelli af þeim 97 leikjum þeirrar tegundar sem háðir hafa verið. 6.5.2007 05:38
Detroit tók Chicago í kennslustund Detroit Pistons bauð Chicago Bulls velkomið í aðra umferð úrslitakeppninnar í nótt með stórsigri 95-69 á heimavelli sínum í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Austurdeildarinnar. Chicago skoraði aðeins 28 stig í síðari hálfleiknum og þótti fyrnasterkur varnarleikur Detroit-liðsins minna á þann sem tryggði liðinu meistaratitilinn árið 2004. 6.5.2007 05:29
Mayweather vann nauman sigur á De la Hoya Floyd Mayweather stóð við stóru orðin í nótt þegar hann sigraði Oscar de la Hoya naumlega á stigum í bardaga þeirra um WBC titilinn í léttmillivigt. Ekkert varð þó úr barsmíðunum sem Mayweather var búinn að lofa, því De la Hoya barðist hetjulega og veitti andstæðingi sínum góða keppni. 6.5.2007 05:11
Roeder rekinn frá Newcastle? Sky sjónvarpsstöðin greindi frá því nú fyrir stundu að Glenn Roeder, stjóri Newcastle, hafi verið boðaður á neyðarfund hjá stjórn félagsins í dag. Helsta umræðuefni fundarins mun vera slakur árangur liðsins á leiktíðinni og hallast flestir að því að Roeder verði látinn taka pokann sinn. Frekari frétta er að vænta af þessu máli í kvöld. 6.5.2007 18:45
Birgir Leifur í beinni á Sýn á morgun Sjónvarpsstöðin Sýn verður með beina útsendingu frá lokadegi opna ítalska mótsins í golfi upp úr klukkan 12 á morgun og þar gefst áhorfendum tækifæri til að fylgjast með Birgi Leifi Hafþórssyni keppa á Evrópumótaröðinni. Birgir Leifur hefur verið í miklu stuði á mótinu og er sem stendur í 7-12 sæti. 5.5.2007 20:21
Mayweather - De la Hoya í beinni í nótt Bardagi ársins í hnefaleikaheiminum verður í Las Vegas í nótt þar sem hinn ósigraði og yfirlýsingaglaði Floyd Mayweather tekur á móti gulldrengnum Oscar de la Hoya. Sjónvarpsstöðin Sýn sýnir bardagann beint og hefst útsending klukkan eitt í nótt. 5.5.2007 17:50
Detroit - Chicago í beinni í kvöld Fyrsti leikur Detroit Pistons og Chicago Bulls í undanúrslitum Austurdeildarinnar í NBA verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni klukkan 23:00 í kvöld. Klukkan 17 á morgun verður fyrsti leikur Cleveland og New Jersey í beinni á stöðinni og klukkan 20:50 verður Sýn með beina útsendingu frá fyrsta leik Phoenix og San Antonio í undanúrslitum Vesturdeildarinnar. 5.5.2007 17:07
Óbreytt staða á toppnum í þýska handboltanum Fimm leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Efstu liðin tvö Kiel og Hamburg unnu leiki sína og sem fyrr voru íslensku leikmennirnir áberandi í umferð dagsins. 5.5.2007 20:09
Eiður kom við sögu í sigri Barcelona Eiður Smári Guðjohnsen spilaði síðustu fimm mínúturnar með Barcelona í kvöld þegar liðið styrkti stöðu sína á toppi spænsku deildarinnar með 2-0 sigri á Real Sociedad. Andres Iniesta og Samuel Eto´o skoruðu mörk Barcelona eftir frábæran undirbúining Ronaldinho. 5.5.2007 19:53
Mikill halli á rekstri KKÍ Fjármálastaða körfuknattleikssambands Íslands er fjarri því að vera í lagi sagði formaður sambandsins á ársþingi þess sem nú stendur yfir á Flúðum. Rekstrarhalli sambandsins á síðasta ári voru 14 milljónir króna. 5.5.2007 18:56
Schalke heldur toppsætinu Schalke hefur enn eins stigs forystu á topp þýsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu eftir að liðið vann 1-0 sigur á Nurnberg í dag. Stuttgart er í öðru sæti eftir 2-0 sigur á Mainz. Bayern verður líklega að gera sér sæti í UEFA keppninni að góðu eftir 1-1 jafntefli við botnlið Gladbach. Bremen er fimm stigum á eftir Schalke og á enn möguleika á titlinum ef það leggur Hertha á morgun. 5.5.2007 18:46
Aston Villa lagði Sheffield United Aston Villa vann auðveldan 3-0 sigur á Sheffield United í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni og því er United enn í fallhættu í deildinni. Gabriel Agbonlahor, Ashey Young og Patrick Berger skoruðu mörk Villa. Wigan getur enn komist upp fyrir Sheffield í lokaumferðinni á betri markamun, en liðið hefur 38 stig í 16 sæti líkt og West Ham. 5.5.2007 18:39
Rangers í Meistaradeildina Glasgow Rangers tryggði sér í dag sæti í Meistaradeild Evrópu með góðum 2-0 sigri á erkifjendum sínum Celtic í skoska boltanum. Kris Boyd skoraði fyrra mark Rangers og sitt 100. í úrvalsdeildinni í fyrri hálfleik og Charlie Adams bætti við öðru í þeim síðari. Rangers hefur ekki tapað leik síðan Walter Smith tók við liðinu í janúar, en Celtic er þegar búið að tryggja sér titilinn. 5.5.2007 18:33
Oddaleikur hjá HK og Stjörnunni Stjarnan lagði HK 28-23 í öðrum leik liðanna í úrslitaeinvíginu í deildarbikarkeppni karla í handbolta í dag. Liðin verða því að mætast í oddaleik í Digranesi á miðvikudagskvöldið. HK hafði yfir í leikhléi í dag 14-13 en heimamenn voru sterkari á lokasprettinum. 5.5.2007 18:24
Birgir Leifur: Spennustigið verður hátt Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, er í 7.-12. sæti fyrir lokahringinn á Opna ítalska mótinu sem fram fer á morgun. Hann verður væntanlega í þriðja síðasta holli og fer þá út um klukkan níu að íslenskum tíma. Hann lék á 67 höggum, eða 5 höggum undir pari, í dag eins og fyrsta hringinn á fimmtudag. Birgir er því samtals á 10 höggum undir pari og er aðeins fjórum höggum frá toppsætinu. 5.5.2007 16:49
Stjarnan deildarbikarmeistari Íslandsmeistarar Stjörnunnar urðu í dag deildarbikarmeistarar kvenna í handbolta eftir sigur á Gróttu í annari úrslitaviðureignar liðanna á Seltjarnarnesi 25-23. Stjarnan var með þægilegt forskot þegar skammt var til leiksloka en Grótta náði að minnka muninn niður í eitt mark með æsilegum lokaspretti. Rakel Dögg Bragadóttir tryggði svo Stjörnunni sigurinn með marki í lokin. Stjarnan vann einvígið 2-0. 5.5.2007 16:16
West Ham af fallsvæðinu West Ham lyfti sér í dag af botni ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu með 3-1 sigri á Bolton á heimavelli sínum. Wigan tapaði á sama tíma fyrir Middlesbrough á heimavelli 1-0 og missti West Ham upp fyrir sig í töflunni. Fulham krækti í gríðarlega mikilvæg stig með 1-0 sigri á Liverpool. 5.5.2007 15:52