Fleiri fréttir

Lakari undir stjórn Souness

Newcastle varð ekki betra við að fá Graeme Souness í stöðu knattspyrnustjóra í stað Sir Bobby Robson.

Stephen Hendry bestur allra tíma

Stephen Hendry, sjöfaldur heimsmeistari í snóker, er besti snókerspilari allra tíma samkvæmt nýrri bók sem heitir Master of the Baize.

Chelsea reynslunni ríkari

Eiður Smári Guðjohnsen segir í viðtali við enska blaðið <em>The Sun</em> í morgun að Chelsea hafi lært sína lexíu í undanúrslitum Meistaradeildarinnar fyrir ári síðan þegar Mónakó sló Chelsea út. Hann segist ekki vilja upplifa þau vonbrigði aftur.

Ferrari kemur aftur, segir Alonso

Fernando Alonso, ökumaður hjá Renault í Formúlu 1 kappakstrinum, býst við að Ferrari muni rétta úr kútnum eftir slaka byrjun á tímabilinu.

McBride hræðist ekki Tyson

Írski hnefaleikakappinn Kevin McBride segist vera fullur sjálfstrausts varðandi bardaga sinn við Mike Tyson sem fram fer í Washington þann 11. júní næstkomandi.

NFL-veisla um hátíðarnar

Forráðamenn bandarísku NFL-deildarinnar hyggjast breyta niðurröðun leikja fyrir næsta tímabil.

Lewis og Johnson með landsliðinu?

Tveir bandarískir körfuboltamenn, sem fengið hafa íslenskan ríkisborgararétt, verða líklega með íslenska landsliðinu á Smáþjóðaleikunum í Andorra í sumar. Þetta eru þeir Darrel Lewis, leikmaður Grindvíkinga, og Damon Johnson, leikmaður spænska liðsins Laguna Bilbao, sem áður lék með Keflavík.

Zidane stendur á sínu

Zinedine Zidane, leikmaður Real Madrid sem varð bæði heims- og Evrópumeistari með Frakklandi, segist standa við þá ákvörðun sína að hætta að leika með franska landsliðinu. Mikil pressa var á Zidane að hefja leik að nýju með landsliðinu en hann lagði landsliðsskóna á hilluna eftir Evrópumeistaramótið í fyrrasumar.

BAR-bíllinn margfalt betri en áður

Jenson Button, ökumaður BAR í Formúlu 1 kappakstrinum, er sannfærður um að liðið sé á réttri leið þrátt fyrir að vera án stiga eftir fyrstu þrjár keppnir tímabilsins.

Sporting - Newcastle í kvöld

Sporting og Newcastle mætast í síðari leik liðanna í fjórðungsúrslitum Evrópukeppni félagsliða í kvöld. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn og hefst kl. 19.15.

Óli með 4 mörk í sigurleik

Ólafur Stefánsson, landsliðsmaður í handknattleik, skoraði fjögur mörk fyrir Ciudad Real sem sigraði Almería 35-30 í spænsku úrvalsdeildinni í gær. Ciudad Real er í 3. sæti deildarinnar með 43 stig.

Getum unnið UEFA Cup

Alan Shearer hefur tröllatrú á að Newcastle geti tryggt sér sæti í undanúrslitum Evrópukeppni félagsliða en liðið sækir Sporting Lissabon heim til Portúgals í kvöld.

Öruggur sigur Essen

Essen lagði botnlið Post Schwerin, 33-26, í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik í gærkvöld. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði fjögur mörk fyrir Essen.

Haukar og ÍBV í úrslit?

Í kvöld geta Haukar og ÍBV tryggt sér sæti í úrslitum Íslandsmótsins í handbolta kvenna. Stjarnan og ÍBV mætast í Ásgarði og Valur og Haukar í Valsheimilinu. Leikirnir hefjast klukkan 19.15.

Verðmætasti leikmaður landsins?

Verðmætasti knattspyrnumaður landsins verður í herbúðum Leiknis á Fáskrúðsfirði í sumar ef marka má frétt á knattspyrnuvefnum Fotbolti.net. Knattspyrnumaðurinn sem um ræðir heitir Almir Cosic og er 29 ára gamall frá Bosníu-Herzegovínu. Knattspyrnuvefurinn segist hafa heimildir fyrir því að Cosic sé metinn á um 300 milljónir króna.

Capello: Liverpool voru frábærir

Framkvæmdastjóri Juventus, Ítalinn Fabio Capello, viðurkenndi í gær að lið hans hefði ekki haft nein svör við varnarleik Liverpool í leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í gærkvöldi, en leiknum lyktaði með markalausu jafntefli. Liverpool vann fyrri leikinn á Anfield 2-1 og komst því áfram í undanúrslitin.

Ferdinand vill spila utan Englands

Umboðsmaður Rio Ferdinand, Pini Zahavi, sagði í dag að skjólstæðingur sinn vildi fá að spila utan Englands í framtíðinni, en þessi ummæli koma í kjölfar sögusagnanna að Ferdinand sé á leið til Chelsea.

Tapia: Ég mun ekki tapa heima

Það er eitt sem Tapia segist vita betur en annað og það er að hann mun ekki tapa er hann mætir Frankie Archuleta öðru sinni annað kvöld, en bardaginn fer fram í Albuquerque, heimastöðvum Tapia.

Jón Arnór átti góðan leik

Jón Arnór Stefánsson, landsliðsmaður í körfuknattleik, skoraði 10 stig í leik Evrópuúrvalsins gegn heimsliðinu í Stjörnuleik FIBA á Kýpur í dag. Jón Arnór var í byrjunarliðinu hjá Evrópuúrvalinu og stóð sig vel.

AZ Alkmaar sló út Villarreal

AZ Alkmaar sló í kvöld út spænska liðið Villarreal í 8-liða úrslitum Uefa keppninnar í knattspyrnu. Liðin gerðu 1-1 jafntefli á Alkmaarder Hout, heimavelli Alkmaar í kvöld, en Alkmaar sigraði fyrri leikinn á Spáni 2-1 og því 3-2 samanlagt.

Axerre vann en CSKA fer áfram

Franska liðið Auxerre sigraði CSKA Moskva í Frakklandi í kvöld í 8-liða úrslitum Uefa keppninnar með tveimur mörkum gegn engu.

Parma sló út Austria Vín

Ítalska liðið Parma sló í kvöld út Austria Vín í 8-liða úrslitum Uefa keppninnar í knattspyrnu. Markalaust jafntefli varð í leik liðanna á Ennio Tardini, heimavelli Parma, í kvöld, en Parma fer áfram á marki á útivelli, en fyrri leikurinn fór 1-1 í Vínarborg.

Jafnt hjá Blikum og víkingum

Breiðablik og Víkingur R. gerðu 2-2 jafntefli í fyrsta riðli A-deildar í Deildarbikarkeppni karla í knattspyrnu í Egilshöll í kvöld.

KR-ingar sigruðu Fram

KR-ingar sigruðu Fram í öðrum riðli A-deildar Deildarbikarkeppni karla í knattspyrnu í kvöld, en leikið var á Framvelli. Eina mark leiksins gerði Garðar Jóhannsson úr vítaspyrnu um miðjan hálfleikinn.

Newcastle úr leik í Uefa

Newcastle datt í kvöld úr Uefa keppninni er liðið beið lægri hlut gegn Sporting Lisbon á Estadio Jose Alvalade leikvanginum í Portúgal.

Kvennahandboltinn í kvöld

Stjarnan frá Garðabæ tryggði sér oddaleik gegn ÍBV í Eyjum með sigri í leik liðana í kvöld, 24-23, þar sem sigurmarkið kom rétt fyrir lok leiksins. Oddaleikurinn mun fara fram laugardaginn 16. apríl. Sigurliðið í þeim leik mun mæta Haukum í úrslitum en Haukar lögðu Val öðru sinni í kvöld og tryggðu sér um leið sæti í úrslitum.

Saknaði Fúsa sárt úr vörninni

Línutröllið Sigfús Sigurðsson, oft uppnefndur Rússajeppinn, er byrjaður að leika með Magdeburg á nýjan leik eftir þrálát bakmeiðsli. Alfreð Gíslason, þjálfari Magdeburg, talaði um það fyrr í vetur að hann saknaði Sigfúsar sárt úr vörninni og hann er verulega ánægður með að hafa endurheimt Sigfús.

Ótrúleg endurkoma Stjörnunnar

Bikarmeistarar Stjörnunnar sýndu ótrúlegan karakter í Garðabænum í gær þegar þær fengu Íslandsmeistara ÍBV í heimsókn í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmótsins. Stjarnan var með tapaðan leik þegar aðeins fimm mínútur voru eftir en heimastúlkur neituðu að gefast upp, skoruðu fimm síðustu mörk leiksins og tryggðu sér sigurinn. Sigurmarkið skoraði Kristín Guðmundsdóttir fjórum sekúndum fyrir leikslok en það var í fyrsta og eina skiptið sem Stjarnan var yfir í leiknum.

Annar auðveldur sigur Haukakvenna

Haukar sigruðu Valsstúlkur á sannfærandi hátt, 17-26, að Hlíðarenda í kvöld. Með sigrinum tryggðu Haukar sér sæti í úrslitum DHL-deildarinnar þar sem þær mæta annað hvort ÍBV eða Stjörnunni, en Stjarnan tryggði sér oddaleik í kvöld í mögnuðum leik.

Fimm leikir í NBA í nótt

Fimm leikir voru á dagskrá í NBA deildinni í körfuknattleik í nótt. Þar bar hæst slagur Philadelphia 76ers og Boston Celtics, en liðin eru í harðri baráttu um sæti sín í úrslitakeppninni.

Inter í vondum málum

Knattspyrnulið Inter Milan á yfir höfði sér harða refsingu eftir að stuðningsmenn liðsins urðu til þess að dómari þurfti að flauta leik þeirra við grannaliðið AC Milan af í Meistaradeildinni í gærkvöldi.

Lampard ánægður

Frank Lampard, leikmaður Chelsea, var ánægður með sína menn eftir leikinn við Bayern Munchen í gær. Þrátt fyrir að tapa leiknum 3-2 í Munchen, er Chelsea komið áfram í undanúrslitin í Meistaradeildinni eftir að hafa unnið fyrri leik liðanna á Englandi 4-2.

Keane segir sína skoðun

Írski fyrirliðinn Roy Keane hjá Manchester United er ekki vanur að liggja á skoðunum sínum og hann hefur nú sagt sína meiningu á tapi sinna manna fyrir Norwich um síðustu helgi.

Tyson staðfestir endurkomuna

Mike Tyson hefur staðfest enn eina endurkomu sína í hnefaleikahringinn og nú hefur verið gert kunnugt um bardaga hans við írska boxarann Kevin McBride, þann 11. júní í Washington.

Alonso býst við meiri keppni

Fernardo Alonso segist handviss um að keppinautar Renault muni bæta sig mikið í næstu keppnum og nefnir þar helst lið Ferrari.

Montoya að ná heilsu

Kólumbíski ökuþórinn Juan Pablo Montoya ætti að vera búinn að ná sér af meiðslum sínum fyrir næstu keppni í Formúlu eitt, sem háð verður í San Marino um næstu helgi.

Ferdinand ekki á leið til Chelsea

Orðrómurinn um að varnarmaðurinn Rio Ferdinand ætti í viðræðum við Chelsea hefur verið kæfður í fæðingu af stjórnarformanni Chelsea, Peter Kenyon.

Heitt í kolunum í Tórínó

Stuðningsmenn Juventus og Liverpool tóku forskot á sæluna fyrir leik liðanna í Meistaradeildinni með því að fljúgast á í knæpu í gærkvöldi.

Giggs vill ná bikarleiknum

Ryan Giggs hefur ekki gefið upp alla von um að geta leikið með Manchester United í undanúrslitaleiknum í bikarnum gegn Newcastle um næstu helgi.

Gold segist muni halda Pandiani

David Gold, stjórnarformaður Birmingham, segist öruggur á því að liðið muni ná að semja um kaup á lánsframherja sínum, Walter Pandiani í sumar.

Meistaradeildin í kvöld

Leik Juventus og Liverpool í Meistaradeild Evrópu í kvöld er beðið með mikilli eftirvæntingu, ekki síst vegna þeirrar spennu sem byggst hefur upp meðal stuðningsmanna liðanna. Leikur liðanna verður í beinni útsendingu á Sýn í kvöld og hefst útsending klukkan 18:30.

Landsliðið í frjálsum valið

Frjálsíþróttasamband Íslands hefur tilkynnt landsliðshóp Íslands, sem tekur þátt í smáþjóðaleikunum í Andorra í júni og heimsbikarmótinu í frjálsum íþróttum sem fram fer í Tallin í Eistlandi í sama mánuði.

Hitzlsperger semur við Stuttgart

Þjóðverjinn Thomas Hitzlsperger hefur gert formlegan tveggja ára samning við Stuttgart í heimalandi sínu, en samningur hans við Aston Villa á Englandi rennur út í sumar og vildi enska liðið frekar selja hann nú, en að eiga á hættu að missa hann án endurgjalds í sumar.

Sjá næstu 50 fréttir