Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Falsa ásakanir gegn eigin njósnara Þegar 36 ára gamall maður undir nafninu Victor Muller Ferreira lenti á flugvelli í Sao Paulo í apríl var hann fljótt handtekinn. Yfirvöld í Brasilíu höfðu verið vöruð við því að maðurinn héti í raun Sergey Cherkasov og væri rússneskur njósnari sem hefði skömmu áður reynt að verða starfsnemi hjá Alþjóðlega sakamáladómstólnum í Hag. 29.11.2022 13:12
Rjúfa þögnina um rasistafund Trumps Mike Pence, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna, og hópur þingmanna Repúblikanaflokksins rufu þögnina og gagnrýndu Donald Trump, fyrrverandi forseta, fyrir fund sem hann átti með Kanye West og þekktum kynþáttahatara. Pence hvatti Trump til þess að biðjast afsökunar. 29.11.2022 11:53
Japanir ætla í hernaðaruppbyggingu Fumio Kishida, forsætisráðherra Japans, hefur skipað varnarmála- og fjármálaráðherrum sínum um að auka fjárútlát til varnarmála í tvö prósent af vergri landsframleiðslu. Þetta á að gera fyrir 2027 en þetta er í fyrsta sinn í langan tíma sem upphæðin verður svo há. 29.11.2022 10:56
Fella niður 33 þúsund Covid-sektir í kjölfar dómsmála Yfirvöld í Nýju Suður-Wales í Ástralíu hafa fellt niður yfir 33 þúsund sektir sem gefnar voru út vegna brota á sóttvarnareglum í kórónuveirufaraldrinum. Ákvörðunin var tekin í kjölfar þess að dómsmál voru höfðuð á hendur yfirvöldum, sem gengust við því að sektirnar hefðu verið óljósar. 29.11.2022 08:38
Mótmælin í Kína kæfð í fæðingu Mikill viðbúnaður lögreglu var í nokkrum stórum borgum Kína og svo virðist sem að mótmæli sem brutust út víða um helgina hafi nú fjarað út. Stjórnvöld eru sögð byrjuð að leita uppi fólk sem tók þátt í þeim. 29.11.2022 08:31
„Við getum ekki leyft Pútín að stela jólunum okkar“ Borgaryfirvöld í Kænugarði hyggjast reisa jólatré út um alla borg til að sýna að Rússum takist ekki að berja niður jólaanda borgarbúa, þrátt fyrir sprengjuárásir og orkuskort. 29.11.2022 07:45
Fjölskyldum leikmanna Írans hótað pyndingum Fjölskyldum leikmanna karlalandsliðs Írans í knattspyrnu hefur verið hótað pyndingum og fangelsisvist ef leikmennirnir haga sér ekki á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu. 28.11.2022 20:50
Þögn eftir að Trump fundaði með þekktum rasistum Leiðtogar og þingmenn Repúblikanaflokksins hafa að mestu þagað þunnu hljóði eftir að í ljós kom að Donald Trump, fyrrverandi forseti, hitti tvo þekkta rasista og gyðingahatara heima hjá sér í Flórída á dögunum. Trump vísar gagnrýni annarra á fundinn á bug. 28.11.2022 15:20
Stærsta eldfjall jarðar byrjað að gjósa Eldgos hófst í Mauna Loa, stærsta virka eldfjalli jarðar, á Havaí í nótt. Hraunrennsli er enn bundið við tind fjallsins og ógnar það ekki nærliggjandi byggð. 28.11.2022 14:04
Aurskriða varð fjórtán jarðarfarargestum að bana Að minnsta kosti fjórtán eru látnir eftir að aurskriða fór yfir fótboltavöll í borginni Yaounde í Kamerún í gær. Er aurskriðan fór yfir var jarðarför í gangi á vellinum. 28.11.2022 13:11
Lögreglumaður dæmdur fyrir manndráp í Svíþjóð Lögreglumaður á fertugsaldri hefur verið sakfelldur fyrir að valda dauða manns í bænum Lidingö í Svíþjóð í fyrra en þetta er í fyrsta sinn í sögu Svíþjóðar sem lögreglumaður hefur verið ákærður og sakfelldur fyrir slíkt. Lögreglumaðurinn fær þó að halda starfi sínu þrátt fyrir dóminn. 28.11.2022 12:41
Útbreiddustu mótmæli í Kína í rúmlega þrjátíu ár Mótmæli sem brutust út í fjölda kínverskra borga um helgina eru sögð þau mestu frá því í stúdentauppreisninni sem var barin niður í blóðbaði á Torgi hins himneska friðar árið 1989. Reiði vegna strangra og langvarandi sóttvarnaaðgerða var kveikjan að mótmælunum. 28.11.2022 09:40
Sátu fastir í flugvélinni í sjö tíma Flugmanni og farþega lítillar flugvélar sem flogið var á raflínumastur í Bandaríkjunum í gær var bjargað eftir þeir höfðu setið fastir í flugvélinni í sjö tíma. Flugvélin skorðaðist af í mastrinu og sat þar föst. 28.11.2022 09:08
Fjörutíu og níu handteknir og hald lagt á 30 tonn af kókaíni Lögregluyfirvöld í fjórum Evrópuríkjum og Sameinuðu arabísku furstadæmunum réðust í aðgerðir dagana 8. til 19. nóvember síðastliðinn, þar sem 49 voru handteknir í tengslum við umfangsmikinn innflutning á kókaíni til Evrópu. 28.11.2022 08:00
Sjö fundist látnir eftir aurskriðuna á Ischia Sjö hafa nú fundist látnir og fimm er enn saknað eftir að aurskriða féll á ítölsku eyjunni Ischiaum helgina. Björgunarstarf stendur enn yfir og segir talsmaður yfirvalda að börn séu í hópi þeirra sem sé saknað. 28.11.2022 07:51
Mótmælt með auðum blaðsíðum Mótmæli í mörgum af helstu borgum Kína héldu áfram í nótt og virðist sem aðeins sé að bæta í frekar en hitt. 28.11.2022 07:51
Bandaríkin og Rússland hafi leiðir til að höndla kjarnorkuógnina Það eru til staðar úrræði fyrir Bandaríkin og Rússland að draga úr áhættunni á kjarnorkustríði, hefur ríkisfréttastofan Ria Novosti eftir fulltrúa sendiherra Bandaríkjanna í Moskvu. Engir fundir um ógnina eru á dagskrá, segir hún. 28.11.2022 06:52
Rottur og kakkalakkar herja á stórborgir Spánar Rottur og kakkalakkar herja nú á margar borgir Spánar. Gríðarlega aukningu þessara skaðræðisskepna má fyrst og fremst rekja til ómuna veðurblíðu í haust, en einnig til Covid farsóttarinnar. 27.11.2022 16:47
Segja Rússa ætla að ræna rúmlega tíu þúsund börnum Yfirvöld í Úkraínu segja að Rússar ætli sér að ræna rúmlega tíu þúsund börnum af hernumdum svæðum þeirra í Luhansk-héraði í austurhluta landsins og reyna að þvinga foreldra þeirra til að fylgja þeim eftir. Þegar eru Rússar sakaðir um að hafa rænt minnst tólf þúsund úkraínskum börnum en líklegt er að þau séu mun fleiri. 27.11.2022 11:21
Karlmaður skotinn til bana í Osló Karlmaður á þrítugsaldri var skotinn til bana nálægt miðbæ Oslóar á fimmta tímanum í nótt. Einn hefur verið handtekinn grunaður um morðið. 27.11.2022 10:17
Kim talinn vera að undirbúa fjórðu kynslóðina Ríkismiðlar Norður-Kóreu birtu í morgun nýjar myndir af dóttur Kim Jong Un, einræðisherra ríkisins. Vika er síðan fyrstu myndirnar af Ju Ae voru birtar en nýju myndirnar munu hafa verið teknar um svipað leyti. 27.11.2022 10:12
Umfangsmikil mótmæli vegna strangra sóttvarnaraðgerða Umfangsmikil mótmæli áttu sér stað víðsvegar um Kína í gærkvöldi og í nótt vegna strangra sóttvarnaraðgerða í Kína. Meðal annars var mótmælt í Sjanghæ þar sem mótmælendur kölluðu eftir því að Xi Jinping, forseti Kína, stigi til hliðar. 27.11.2022 08:07
Rýma hús vegna gróðurelda í Noregi Íbúum minnst þrjátíu húsa í Åfjord í Þrændalögum í Noregi hefur verið skipað að yfirgefa heimili sín vegna gróðurelda á svæðinu sem kviknuðu í gær. Eldarnir hafa breitt úr sér en slökkvilið á svæðinu telur sig hafa náð þokkalegum tökum á þeim. Fleiri gróðureldar brutust út í Noregi í dag. 26.11.2022 23:56
Kona fannst látin og tíu enn saknað Yfirvöld á Ítalíu hafa staðfest að kona hafi fundist látin eftir stóra aurskriðu sem féll yfir hluta bæjarins Casamicciola á eyjunni Ischia í morgun. Tíu er enn saknað. 26.11.2022 22:47
Utanríkisráðherra Hvíta-Rússlands bráðkvaddur Vladimir Makei, utanríkisráðherra Hvíta-Rússlands, er látinn. Frá þessu greindi hvítrússneski ríkismiðillinn Belta í dag. 26.11.2022 18:41
Minnst tólf saknað eftir aurskriðu á Ítalíu Stór aurskriða fór yfir hluta bæjarins Casamicciola á eyjunni Ischia á Ítalíu í morgun. Minnst tíu hús hrundu vegna skriðunnar en mikið hefur rignt á eyjunni undanfarna daga. 26.11.2022 13:34
Áttu íbúð í blokk sem tengist rússneskri leyniþjónustu Rússnesku hjónin svo voru handtekin í Svíþjóð í vikunni fyrir njósnir, áttu íbúð í fjölbýlishúsi í Moskvu þar sem margir starfsmenn GRU-leyniþjónustu rússneska hersins, hafa einnig átt íbúðir. Hjónin eru einnig sögð tengjast fyrrverandi yfirmanni sænskrar leyniþjónustu fjölskylduböndum. 26.11.2022 12:45
Tæma hillur verslana af ótta við sóttvarnaraðgerðir Yfirvöld í Kína tilkynntu í morgun að 35.183 hefðu greinst smitaðir af Covid-19 þar í landi í gær. Það var þriðji dagurinn í röð þar sem metfjöldi greindist smitaður. Íbúar í Peking eru sagðir sanka að sér nauðsynjum af ótta við sóttvarnaraðgerðir. 26.11.2022 12:01
Squid Game leikari sakaður um að káfa á konu Hinn 78 ára gamli O Yeong-su hefur verið ákærður fyrir að kynferðisbrot. Leikarinn sem sló í gegn í þáttunum Squid Game er sakaður um að hafa káfað á konu árið 2017 en hann neitar ásökunum. 26.11.2022 08:23
„Hann hagaði sér eins og hann væri á veiðum“ Maðurinn sem skaut sex samstarfsmenn sína til bana í Walmart í Virginíu í Bandaríkjunum í vikunni, keypti byssuna sem hann notaði nokkrum klukkustundum áður. Hann skaut sex undirmenn sína til bana í versluninni og særði sex til viðbótar áður en hann svipti sig lífi. 26.11.2022 08:01
Húsleit í rannsókn á spillingu í kringum Ólympíuleikana Saksóknarar í Tókýó gerðu húsleit hjá stórri auglýsingastofu og viðburðafyrirtæki í tengslum við rannsókn á spillingu sem er talin hafa átt sér stað í kringum Ólypmpíuleikana sem voru haldnir í borginni. Fyrirtækin eru grunuð um að hafa hagrætt útboðum sem tengdust leikunum. 25.11.2022 09:08
Merkel segist hafa skort vald til að hafa áhrif á Pútín Angela Merkel fyrrverandi kanslari Þýskalands segist í nýju viðtali hafa skort vald til að hafa áhrif á Vladimír Pútín Rússlandsforseta síðustu ár sín í embætti. 25.11.2022 07:43
Grænlendingar breyta klukkunni á næsta ári Klukkunni verður breytt á Grænlandi á næsta ári og verður tekið upp nýtt tímabelti sem kallast UTC-2. 25.11.2022 07:42
Trump formlega kærður fyrir nauðgun í New York Bandarísk blaðakonan E Jean Carroll hefur nú formlega lögsótt Donald Trump fyrrverandi forseta Bandaríkjanna fyrir dómstól í New York ríki. 25.11.2022 07:25
Fjörutíu og níu dæmdir til dauða fyrir múgæðisaftöku Fjörutíu og níu einstaklingar hafa verið dæmdir til dauða í Alsír fyrir að hafa tekið þátt í múgæðisaftöku árið 2021. Fórnarlambið var listamaður sem hugðist aðstoða við að slökkva gróðureld en var myrtur þegar múgurinn ákvað að hann hefði kveikt eldinn. 25.11.2022 07:11
Handalögmál milli þingmanna í þingsal Það kom til slagsmála á þinginu í Síerra Leóne í dag þegar flokkurinn sem er við stjórn í landinu reyndi að koma í gegn breytingum á kosningakerfi landsins. Þingmenn reyndu að slá hvorn annan og grýttu hlutum í kollega sína. 24.11.2022 23:35
Rannsaka ásakanir á hendur Kanye West Tískurisinn Adidas rannsakar nú ásakanir á hendur rapparanum og tískuhönnuðinum Kanye West, einnig þekktum sem Ye, sem sakaður er um að hafa skapað „eitrað andrúmsloft“ meðan hann starfaði með fyrirtækinu. 24.11.2022 21:14
Tillaga Íslands og Þýskaland samþykkt af mannréttindaráði SÞ Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti í dag ályktun Íslands og Þýskalands um að sett verði á fót sjálfstæð og óháð rannsóknarnefnd sem safna á upplýsingum og gögnum sem nýst geta til að draga þá til ábyrgðar sem ofsótt hafa friðsama mótmælendur í Íran undanfarnar vikur. 24.11.2022 18:18
Kallar forseta Suður-Kóreu fávita Ráðamenn í Suður-Kóreu eru „fávitar“ sem haga sér eins og „villtir hundar“ nagandi bein sem þeir fengu frá Bandaríkjunum. Þetta segir Kim Yo Jong, systir Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, en reiði hennar og annarra má rekja til þess að yfirvöld í Suður-Kóreu eru að íhuga hertar refsiaðgerðir gegn nágrönnum sínum í norðri. 24.11.2022 16:33
Tilefni árásarinnar á Club Q liggur ekki fyrir enn Anderson Lee Aldrich, sem grunað er um að hafa skotið fimm manns til bana í næturklúbbi í Colorado í Bandaríkjunum um helgina, verður ekki sleppt úr haldi gegn tryggingu. Það kom fram þegar Aldreich var flutt fyrir dómara í gærkvöldi. 24.11.2022 15:13
Segir Vesturlönd hrokafull og misnota mannréttindaráð SÞ Fulltrúi Írans í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna segir Vesturlönd skorta siðferðilegan trúverðugleika til að gagnrýna Íran en Ísland og Þýskaland kölluðu eftir sérstökum aukafundi í ráðinu um ástand mannréttindamála í Íran. 24.11.2022 14:06
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Yfirmenn sagðir hafa hvatt til nauðgana Ekkert lát virðist ætla að vera á árásum Rússa á orkuinnviði í Úkraínu en þessum árásum hefur verið lýst sem stríðsglæpum. Veturinn er að ganga í garð í Úkraínu og er þegar byrjaður að hafa áhrif á víglínunum og heimilum óbreyttra borgara. 24.11.2022 13:01
Bein útsending: Mannréttindaráð fundar um Íran að beiðni Íslands og Þýskalands Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna í Genf heldur í dag sérstakan aukafund um ástand mannréttindamála í Íran. Fundurinn er haldinn að beiðni Íslands og Þýskalands og er honum ætlað að knýja á um að Sameinuðu þjóðirnar hefji markvissa gagnaöflun varðandi framgöngu yfirvalda í Íran gegn friðsömum mótmælendum. 24.11.2022 09:34
Vilja taka skýrslu af varaforseta Trump Bandaríska dómsmálaráðuneytið vill taka vitnaskýrslu af Mike Pence, fyrrverandi varaforseta, í tengslum við sakamálarannsókn á tilraunum Donalds Trump til þess að halda í völdin eftir að hann tapaði forsetakosningunum fyrir tveimur árum. Pence er sagður opinn fyrir því að gefa skýrslu. 24.11.2022 08:33
Sakar Rússa enn og aftur um glæpi gegn mannkyni Volodómír Selenskí Úkraínuforseti sakar Rússa enn of aftur um glæpi gegn mannkyninu eftir að þeir skutu eldflaugum sínum enn og aftur á landið með það að augnamiði að eyðileggja orkuinnviði. 24.11.2022 07:29